Morgunblaðið - 10.12.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Fjármálaráðherrar Evrópusam-bandsins hittast í Brussel í dag
og helsta umræðuefnið er kunn-
uglegt; bankasamband. Í gær sagði
FT frá því að útlit væri fyrir að loks
næðist samkomulag um banka-
sambandið, það er
að segja yfirþjóð-
lega stjórn á banka-
kerfinu, ekki síst til
að Evrópusam-
bandið geti gripið
inn í ef bankar
lenda í vanda.
Og hver skyldiástæðan vera
fyrir því að nú er út-
lit fyrir að samruna-
mönnum innan ESB
takist að stíga enn
eitt skrefið í átt að
sambandsríki?
Jú, ástæðan er sú að fyrir fund-inn þar sem fjármálaráðherrar
allra ESB-ríkjanna hittast hafa
Pierre Moscovici, fjármálaráðherra
Frakklands, og Wolfgang
Schäuble, fjármálaráðherra Þýska-
lands, lagt á ráðin og komist að
samkomulagi.
Íslenskir áhugamenn um aðild aðEvrópusambandinu halda því
iðulega fram að með aðild fengi Ís-
land „sæti við borðið“ og hefði
áhrif á gang mála.
Staðreyndin er hins vegar sú að áfundum eins og þeim sem hald-
inn er í Brussel í dag eru engar
veigamiklar ákvarðanir teknar.
Þeir eru meira í ætt við leiksýningu
til að staðfesta formlega ákvörðun
sem stóru ríkin hafa þegar tekið og
til að leyfa þeim sem engu ráða að
halda höfði gagnvart eigin þjóð.
Finnst einhverjum eftirsókn-arvert fyrir Ísland að verða
aukaleikari í slíkri leiksýningu?
Pierre
Moscovici
Fyrst er fundað,
svo hefst leikritið
STAKSTEINAR
Wolfgang
Schäuble
Veður víða um heim 9.12., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Bolungarvík 2 léttskýjað
Akureyri 1 skýjað
Nuuk -6 skafrenningur
Þórshöfn 10 súld
Ósló -5 snjóél
Kaupmannahöfn 3 súld
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -8 skýjað
Lúxemborg 6 heiðskírt
Brussel 7 heiðskírt
Dublin 11 léttskýjað
Glasgow 10 skýjað
London 11 léttskýjað
París 6 heiðskírt
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 8 súld
Berlín 8 súld
Vín 5 skúrir
Moskva -7 snjókoma
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 10 heiðskírt
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 10 heiðskírt
Winnipeg -27 léttskýjað
Montreal -3 snjókoma
New York 1 þoka
Chicago -6 snjókoma
Orlando 26 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:09 15:34
ÍSAFJÖRÐUR 11:51 15:01
SIGLUFJÖRÐUR 11:36 14:43
DJÚPIVOGUR 10:46 14:55
Sjö manna sendinefnd Reykjavík-
urborgar, undir formennsku Jóns
Gnarrs borgarstjóra, er þessa dag-
ana í heimsókn í
Brussel, höfuð-
borg Belgíu.
Nefndin kom til
Brussel í fyrra-
dag, sunnudag,
og kemur heim á
morgun.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Reykjavíkurborg
mun nefndin
funda með forseta byggðanefndar
Evrópusambandsins, Ramón Luis
Valcárcel Siso, samtökunum Eu-
rocities og forstjóra Evrópska fjár-
festingabankans, Ben Knapen. Þá
verður fundað með starfsfólki á
skrifstofu Sambands íslenskra
sveitarfélaga og norskra sveitarfé-
laga í borginni og auk þess mun
nefndin heimsækja starfsfólk sendi-
ráðs Íslands í Brussel.
Eftirtaldir eru í ferðinni: Jón
Gnarr, Sigurður Björn Blöndal, að-
stoðarmaður borgarstjóra, borgar-
fulltrúarnir Dagur B. Eggertsson
og Sóley Tómasdóttir, Ellý Katrín
Guðmundsdóttir borgarritari, Birg-
ir Björn Sigurjónsson fjármála-
stjóri og Hrólfur Jónsson skrif-
stofustjóri. kij@mbl.is
Borgarstjóri
í heimsókn í
Brussel
Jón Gnarr
Meira en helmingur allra íbúa í
Vesturbyggð og í Tálknafjarðar-
hreppi skrifaði undir áskorun til
heilbrigðisráðherra um að hætta við
að fella Heilbrigðisstofnun Patreks-
fjarðar undir Heilbrigðisstofnun
Ísafjarðar. Undirskriftirnar voru af-
hentar í gær.
Íbúarnir óttast að þjónustan muni
minnka og öryggið skerðast verði af
sameiningunni. Þeim þykir fyrir-
huguð sameining vera í hrópandi
mótsögn við fyrirheit ríkisstjórn-
arinnar um eflingu byggða.
Heilbrigðisstofnun Patreks-
fjarðar hefur verið rekin innan fjár-
heimilda undanfarin ár. Bæjarstjórn
Vesturbyggðar hefur boðist til að
taka yfir rekstur heilbrigðisstofn-
unarinnar. Sveitarfélagið telur að
við slíka yfirtöku skapist tækifæri til
samþættingar stofnunarinnar við
Félagsþjónustu V-Barðastrand-
arsýslu. gudni@mbl.is
Mótmæla sameiningu
heilbrigðisstofnana
Morgunblaðið/Golli
Mótmæli Kristján Þ. Júlíusson tók við undirskriftunum frá Ásthildi Sturlu-
dóttur bæjarstjóra og Gunnari Ingva Bjarnasyni bæjarfulltrúa.
ALLT
á einum stað!
Lágmarks biðtími www.bilaattan.is
Dekkjaverkstæði
Varahlutir
Bílaverkstæði
Smurstöð