Morgunblaðið - 10.12.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Malín Brand
malin@mbl.is
Elvar starfar sem mat-reiðslumaður í Portinu íKringlunni. Hann elskarmat og segist vera algjör
nautnaseggur. „Ég hef rosalega gam-
an af því að borða. Það er bara þann-
ig,“ segir Elvar.
Í mars árið 2011 var Elvar orð-
inn 146 kíló og það var farið að skerða
lífsgæði hans að vera svo þungur. Það
var þá sem hann sagði við sjálfan sig:
„Hingað og ekki lengra.“
Við það hefur hann staðið og er í
dag fimmtíu kílóum léttari. Hann nýt-
ur þess enn að borða góðan mat en
hann gætir þess að hreyfa sig mikið
og þar er hjólið aðalatriðið.
Strætópeningurinn
fór í hjólið
Hjólið keypti Elvar sem fyrr
segir árið 2011. Það gerði hann fyrst
og fremst af því að hann varð að
koma heilsunni í lag en fleira spilaði
inn í, til dæmis hagkvæmnin.
„Ég tók strætó í vinnuna á þess-
um tíma og var orðinn þreyttur á því.
Annaðhvort þurfti maður að taka
strætó eða þá að keyra alla fjölskyld-
una í leikskóla, skóla og allt sem því
fylgir. Svo hugsaði ég með mér að
það væri alveg eins gott að hjóla í
staðinn fyrir að sitja í þessar 40-50
mínútur í strætó. Svo fannst mér líka
bara dýrt að taka strætó og ég gat al-
veg eins eytt þessum pening í hjól,“
segir Elvar sem gafst upp á þessu
fyrirkomulagi og tileinkaði sér í stað-
inn nýjan lífsstíl.
Elvar heldur úti mjög vel skipu-
lagðri vefsíðu, www.ismadurinn.net,
Hjólar 200 kíló-
metra í hverri viku
Matreiðslumaðurinn Elvar Örn Reynisson hefur ekki alltaf verið í góðu formi.
Hann ákvað árið 2011 að kaupa sér hjól til að nota það allan ársins hring og við
það hefur hann staðið. Hann hjólar að jafnaði um 200 kílómetra á viku og hefur
misst fimmtíu kíló síðan hann breytti um lífsstíl. Hann bjó til leið til betra lífs fyrir
sjálfan sig og sú leið hefur veitt honum nýja sýn á lífið og heilbrigðari líkama.
Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson
Púl Hér má sjá Elvar í brattri brekku við Nesjavelli síðastliðið sumar.
Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson
Götuhjólreiðar Hjólreiðar njóta aukinna vinsælda hér á landi og hafa
margir gagn og gaman af að lesa síðu Elvars þar sem hann segir sína sögu.
Á vefsíðunni heilsubankinn.is er að
finna undir hlekknum hreyfing bráð-
sniðuga myndbandaröð sem heitir
Jóla Jóga. Í sjötta myndbandinu
bendir Guðrún Darshan jógakennari á
aðferð til að auka orku og hlaða batt-
eríin, til að vera fær um að takast á
við það aukaálag sem aðventan ber
með sér. Guðrún segir að það þurfi
ekki að vera tímafrekt eða flókið að
stunda jóga, það getur breytt gríðar-
lega miklu að stunda jóga eingöngu í
3 til 5 mínútur á dag. Guðrún kennir
m.a. svokallaða eldöndun, en hún
vinnur vel með taugakerfinu, bæði
styrkir það og róar. Einnig vinnur
þessi öndunaræfing vel gegn kvíða.
Nú er bara að taka sér þrjár mín-
útur og sjá hvernig hún virkar.
AFP
Jóga Það getur breytt miklu að stunda jóga í aðeins 3-5 mínútur á dag.
Jólajóga eykur orku og hjálpar
Vefsíðan www.heilsubankinn.is
Nú þegar aðventan stendur sem
hæst er um að gera fyrir mannfólkið
að vera meðvitað um að láta streitu
og ergelsi ekki ná tökum á sér. Allir
vita að slíkt ástand skapar ekki
skemmtilega stemningu, fólk jafnvel
missir stjórn á skapi sínu og segir
eitthvað sem það vildi alls ekki sagt
hafa, hvort sem það er við afgreiðslu-
fólk í verslunum þar sem fríkað er út
á biðinni, eða við sína nánustu
heimafyrir þar sem eitthvað er ekki
eins og það átti að vera. En við ráðum
sjálf meiru um það hvernig okkur líð-
ur, heldur en við höldum. Og þá kem-
ur að meðvitundinni, að vera vakandi
fyrir því að gera lífið á aðventunni
ekki óþarflega flókið, einfalda hlut-
ina, fara sér hægt, gefa sér tíma og
síðast en ekki síst, taka sér tíma í að
slaka á. Sumir fara í jóga, aðrir ham-
ast í ræktinni eða fara í göngutúr.
Hver og einn finnur sína leið til að
slaka á. Og allt verður aðeins betra.
Endilega …
… hlúið að and-
legri heilsu á
aðventunni
Morgunblaðið/Kristinn
Slökun Alveg nauðsynleg á aðventu.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/P
EN
66
92
2
12
/1
3
DSR
Eames stólar
Sígild
hönnun
frá 1950
TIlboð til áramóta:
DSR 35.900 kr.
39.900 kr.
DSW 49.400 kr.
54.900 kr. Opið
laugardag
kl. 11-16
sunnudag
kl. 13-17