Morgunblaðið - 10.12.2013, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Reiknað er með að svipaður fjöldi
nýti sér matarúthlutun Mæðra-
styrksnefndar fyrir jólin og und-
anfarin ár eftir efnahagshrunið 2008.
„Staðan er ekki betri í ár,“ segir
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, for-
maður Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur, en nefndin er 85 ára á
þessu ári.
„Hópurinn sem kemur hingað hef-
ur breyst síðustu ár. Fjölgað hefur í
hópi eldri borgara, öryrkja, einstæð-
inga sem og fólks af erlendum ætt-
um,“ segir Ragnhildur og bendir á
að þegar grunnlífeyrir öryrkja og
eldriborgara hafi verið skertur 1. júlí
2009 þá hafi fjölgað í þeim hópi um-
talsvert. „Það var stórt högg fyrir
þennan hóp. Kjör þessa fólks eru
bág.“
Þá þyki henni umhugsunarvert að
bæst hafi í hóp innflytjenda. „Þetta
fólk hefur lítið á milli handanna, er
óöruggt og ber sig illa og konunum í
þeim hópi hefur fjölgað.“ Þá virðist
einnig yngra fólk vera í vanda statt.
Ný staðsetning við Korputorg
Matarúthlutun Mæðrastyrks-
nefndar fer fram 20., 21. og 22. des-
ember á Korputorgi. Það er í fyrsta
skipti sem úthlutunin fer fram í því
húsnæði. Verið er að vinna að því að
koma upp aðföngum. Félagasamtök,
fyrirtæki og einstaklingar gefa til
Mæðrastyrksnefndar. Framvísa
þarf persónuskilríkjum til að fá mat-
arúthlutun.
„Það kemur þó fyrir að inn í hóp-
inn slæðist þeir sem vilja fá meira en
þeim ber. Þá biðjum við fólk stund-
um um að framvísa launaseðlum,“
segir Ragnhildur. Hún áréttar þó að
þær séu farnar að þekkja hópinn
nokkuð vel eftir að hafa starfað í
þessu í gegnum árin.
Sjálf hefur Ragnhildur starfað
innan Mæðrastyrksnefndarinnar
undanfarin 12 ár og gegnt for-
mennsku síðustu ár. Hún kom inn í
nefndina sem fulltrúi frá Kvenrétt-
indafélagi Íslands.
Þegar Ragnhildur er beðin um að
líta yfir síðustu ár í starfi segir hún
að mesti umbrotatíminn hafi verið
eftir hrunið 2008. Þá hafi þörfin fyrir
úthlutun orðið mun meiri. Hún segir
vonir standa til að ástandið batni í
samfélaginu en í gegnum tíðina hafi
alltaf verið þörf fyrir Mæðrastyrks-
nefnd.
„Markmið okkar er alltaf að styðja
þá sem búa við bág kjör. Við munum
halda áfram að hlúa að þeim og höld-
um okkar striki í þeim efnum.“
Menntunarsjóður
Ragnhildur segir það vægast sagt
mjög gefandi að fást við þetta starf;
að gefa öðrum. „Það er fróðlegt að
sjá nýjar hliðar á lífinu, maður er
alltaf að sjá eitthvað nýtt. Fyrir utan
hvað það er frábært að vinna með
öllum þessum sterku og lífsreyndu
konum,“ segir hún og hlær.
Karlmenn hafa einnig starfað með
þeim. „Það hefur verið mjög gaman
að fá þá til okkar. Þetta er líkamlegt
starf. Það verður að viðurkennast að
þeir eru sterkari líkamlega þó við
séum jafnsterk andlega.“
Mæðrastyrksnefnd deilir ekki ein-
göngu út mat yfir árið og jólin heldur
úthlutar einnig fatnaði. Þá er nefnd-
in með aðstoð við fermingarbörn og
verðandi mæður, einnig er starf-
ræktur menntunarsjóður.
Hann var stofnaður formlega 19.
apríl árið 2012. Honum er ætlað að
styrkja tekjulágar konur og/eða
mæður til menntunar svo að þær eigi
betri möguleika á góðu framtíð-
arstarfi.
„Sjóðurinn hefur reynst mörgum
konum ákaflega vel. Við erum stolt-
ar af því,“ segir Ragnhildur og bætir
við að margar mæður hafi bætt kjör
sín til muna eftir að hafa fengið styrk
úr sjóðnum. „Þegar góður hópur
kvenna kemur saman þá getur ekk-
ert annað en gott komið út úr því,“
segir Ragnhildur að lokum.
Morgunblaðið/Golli
Nýtt húsnæði Mæðrastyrksnefnd er flutt í nýtt húsnæði við Korputog og verður fyrsta úthlutunin þar í ár.
Líklega sami fjöldi í matarúthlutun
Úthlutun Mæðrastyrksnefndar fyrir jólin í nýju húsnæði við Korputorg Eldri borgurum,
öryrkjum, einstæðingum og fólki af erlendum uppruna fjölgaði Nefndin er 85 ára á þessu ári
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Mæðrastyrksnefnd var stofnuð 20. apríl 1928. Forsendurnar eru raktar til
þess að togarinn Jón forseti fórst út af Stafnesi í febrúar sama ár. Fimm-
tán skipverjar fórust en tíu komust af. Í kjölfarið hófust umræður í sam-
félaginu um að koma þyrfti ekkjum og föðurlausum börnum til hjálpar.
Stjórn Kvenréttindafélags Íslands (KRFÍ) hafði frumkvæðið að stofun fé-
lagsins undir forystu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Einnig voru önnur kven-
félög fengin að stofnuninni.
Urðu ekkjur eftir sjóslys
85 ÁRA AFMÆLI