Morgunblaðið - 10.12.2013, Síða 19
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Forsætisráðherra Taílands, Ying-
luck Shinawatra, hefur rofið þing og
boðað til þingkosninga í kjölfar fjöl-
mennra mótmæla stjórnarandstæð-
inga í höfuðborg landsins, Bangkok.
„Fólkið mun ákveða hvað meiri-
hlutinn vill og hver fær að stjórna
landinu,“ sagði Yingluck í ávarpi
sem sýnt var í beinni útsendingu um
allt landið. „Ríkisstjórnin vill koma í
veg fyrir mannfall,“ sagði hún jafn-
framt. Búist er við að kosningarnar
verði haldnar 2. febrúar næstkom-
andi.
Ekkert lát er á mótmælum stjórn-
arandstæðinga en yfir 150 þúsund
mótmælendur fjölmenntu á stræti
Bangkok í gær.
150 þingmenn Demókrataflokks-
ins sögðu af sér í fyrradag en leið-
togi þeirra, Vejjajiva, sagði þá ekki
geta sinnt skyldum sínum lengur.
Vilja steypa henni af stóli
Mótmælin hófust upphaflega
vegna lagafrumvarps stjórnar-
flokksins, Puea Thai, þess efnis að
bróður Yingluck, auðkýfingnum og
fyrrverandi forsætisráðherranum
Thaksin, yrði gert kleift að snúa
heim úr útlegð án þess að þurfa að
afplána dóm sem hann hlaut.
Stjórnarandstæðingar höfðu sak-
að Yingluck um að ganga erinda
bróður síns, sem herinn steypti af
stóli árið 2006, en hann var dæmdur
í tveggja ára fangelsi fyrir spillingu.
Hafa þeir sagt að eina ástæðan fyrir
því að Yingluck gegni embættinu sé
sú að hún sé systir auðkýfingsins
umdeilda.
Í kjölfar ákvörðunar Yingluck
sögðu stjórnarandstæðingar að þeir
myndu hvergi hvika frá kröfu sinni
um að steypa henni af stóli.
„Hreyfingin mun halda áfram að
berjast. Markmið okkar er að flæma
ríkisstjórnina burt,“ sagði Suthep
Thaugsuban, sem fer fyrir stjórnar-
andstæðingum. „Þó svo að búið sé að
rjúfa þing og boða til nýrra kosn-
inga, þá er ríkisstjórn Thaksin enn
við völd.“
Yingluck boðar til
kosninga í Taílandi
Ekkert lát er á mótmælum stjórnarandstæðinga
AFP
Fjöldamótmæli Í frétt BBC segir að yfir 150 þúsund manns hafi mótmælt á
götum Bangkok í gær en stjórnarandstæðingar krefjast afsagnar Yingluck.
Boðað til kosninga
» Forsætisráðherra Taílands,
Yingluck Shinawatra, hefur
rofið þing og boðað til kosn-
inga.
» Vill hún koma í veg fyrir átök
stjórnarsinna og stjórnarand-
stæðinga.
» Kosningarnar verða haldnar
2. febrúar næstkomandi.
» Enn mótmæla stjórnarand-
stæðingar á götum Bangkok.
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Átta af stærstu tæknifyrirtækjum
heims hafa óskað eftir því að
bandarísk stjórnvöld geri viðamikl-
ar og víðtækar breytingar á því
hvernig þau hafa eftirlit með al-
menningi.
Fyrirtækin, sem eru Google,
Apple, Microsoft, Facebook, Twitt-
er, AOL, Linkedin og Yahoo, hafa
tekið höndum saman og sett á stofn
samstarfsvettvang, að því er segir í
frétt Wall Street Journal. Þau
sendu í gær opið bréf til Baracks
Obama, forseta Bandaríkjanna, og
þingmanna og kröfðust þess að
stjórnvöld tækju upp aðrar aðferðir
við hleranir.
Segir í bréfinu að afhjúpanir
sumarsins hafi beint athyglinni að
þeirri knýjandi þörf sem er á breyt-
ingum á aðferðum stjórnvalda við
hleranir og annað eftirlit. Núver-
andi aðferðir vegi að frelsi ein-
staklingsins og brjóti í bága við
stjórnarskrána.
Hafa sett á laggirnar vefsíðu
Fyrirtækin hafa ekki gefið upp
hve miklu fé þau ætla að verja í
málefnið. Þau hafa nú þegar sett á
laggirnar vefsíðu þar sem fram
koma fimm lögmál sem þau vilja að
stjórnvöld vinni eftir.
„Fólk mun ekki nota tækni sem
það treystir ekki,“ segir Brad
Smith, aðallögmaður Microsoft, á
vefsíðunni. „Traustið er í húfi og
stjórnvöld þurfa hjálp við að end-
urheimta það.“
AFP
Njósnir Samstarfið kemur í kjölfar uppljóstrana Edwards Snowdens.
Gangi ekki á frelsi
einstaklingsins
Átta tæknirisar hafa hafið samstarf
Jang Song-Thaek, mágur Kim Jong-Il, fyrrverandi ein-
ræðisherra og föður Kim Jong-Un, núverandi leiðtoga,
og einn af valdamestu mönnum í Norður-Kóreu, hefur
verið sviptur völdum. Jang er sakaður um að vera spillt-
ur, eiturlyfjafíkill og lausgyrtur, að því er segir í frétt
AFP.
Jang er giftur systur Kim Jong-Il, og var um tíma
helsti aðstoðarmaður Kim Jong-Un.
Það var leyniþjónusta Suður-Kóreu sem greindi fyrst
frá því að Jang væri ekki lengur við völd í nágranna-
ríkinu. Stjórnvöld í Norður-Kóreu staðfestu síðan fregn-
irnar og sögðu að hann hefði sett hagsmuni sína ofar
hagsmunum Verkamannaflokksins. Eins hefði hann átt í ástarsambandi við
nokkrar konur, notað eiturlyf og stytt sér stundir í spilavítum.
Mágur Kim Jong-Il sviptur völdum
Kim Jong-Un, leið-
togi Norður-Kóreu.
NORÐUR-KÓREA
www.gjofsemgefur.is
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
•
102985
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
• Gerð - fleiri en 900 mismunandi útfærslur
• Stærð - engin takmörk
• Áklæði - yfir 3000 tegundir
Landsins mesta úrval
af sófum og sófasettum
ENDALAUSIR MÖGULEIKAR Í STÆRÐUM OG ÚTFÆRSLUM
Mósel
Basel