Morgunblaðið - 10.12.2013, Qupperneq 27
eiginkona Ólafs, stundaði meist-
aranám. Þau fluttu síðan í Reykja-
nesbæ árið 1995.
Ólafur var kennari við Holta-
skóla í Keflavík 1973-77, var að-
stoðarskólameistari, námsráðgjafi
og kennari við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki
á árunum 1984-94. Hann var rekt-
or Menntaskólans á Egilsstöðum
1994-95, var skólameistari Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja á árunum
1995-2012 og hefur verið skóla-
stjóri Fisktækniskóla Íslands frá
árinu 2012.
Ólafur átti sæti í stjórn Iðn-
skólaútgáfunnar, IÐNÚ, 1995-
2010. Hann sat í stjórn MENNT -
samstarfsvettvangs atvinnulífs og
skóla og sat í stjórn Félags
áfangaskóla.
Ólafur var formaður stjórnar
Félags áfangaskóla um skeið, for-
maður Skólameistarafélags Ís-
lands og formaður Miðstöðvar Sí-
menntunar á Suðurnesjum frá
stofnun hennar, árið 1997, og til
2012.
Með flugustöng í Flókadalsá
Þegar Ólafur er spurður um
áhugamál nefnir hann veiði, úti-
vist, ferðalög og menntamál: „Ég
hef alltaf haft unun af ferðalögum
og við hjónin höfum ferðast víða
erlendis. Það er hverjum og einum
hollt og nauðsynlegt að skipta um
umhverfi og upplifa eitthvað nýtt.
Sá sem er forvitinn um framandi
slóðir og tekur þeim fagnandi er í
rauninni að mennta sjálfan sig og
auka víðsýni sína.
Hér heima höfum við ferðast
töluvert um hálendið. Fátt jafnast
þó á við bakka Flókadalsár í Borg-
arfirði ef maður heldur á flugu-
stöng og er í góðum félagsskap.
Það væri þá helst góð gönguferð
að Fjallabaki.
Þá hef ég að sjálfsögðu alltaf
haft mikinn áhuga á mennta-
málum. Skólastarf er nú einu sinni
þess eðlis að það þýðir lítið að
leggja það fyrir sig ef maður hefur
ekki brennandi áhuga á viðfangs-
efninu og trú á því sem maður er
að gera.“
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er Sossa
Björnsdóttir, f. 9.2. 1954, myndlist-
armaður. Foreldrar hennar: Björn
Jónsson, f. 7.10. 1929, d. í desem-
ber 2011, sóknarprestur á Akra-
nesi, og Sjöfn P. Jónsdóttir, f.
14.12. 1934, húsfreyja.
Börn Ólafs og Sossu eru Arn-
björn Ólafsson, f. 5.5. 1973, mark-
aðsstjóri en börn hans eru Silja, f.
2002, og Óli Björn, f. 2006 en móð-
ir þeirra er Guðrún Einarsdóttir, f.
9.12. 1973; Björk Ólafsdóttir, f
15.2. 1982, læknir en maður henn-
ar er Brett Gardali, f. 2.4. 1985,
kvikmyndagerðarmaður og er son-
ur þeirra Viggó, f. 2013.
Systur Ólafs eru Birna Arn-
björnsdóttir, pófessor í málvís-
indum við HÍ, búsett í Reykjavík;
Hrafnhildur Jóhannsdóttir, starfs-
maður hjá Símanum, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Ólafs: Arnbjörn Ólafs-
son, f. 29.7. 1922, f. 1.11. 2001,
skrifstofumaður hjá Rafveitu
Keflavíkur og kaupmanður í Kefla-
vík, og Erna Björg Vigfúsdóttir f.
24.6. 1929, húsfreyja og fyrrver-
andi kaupmaður í Keflavík.
Úr frændgarði Ólafs Jóns Arnbjörnssonar
Ólafur Jón
Arnbjörnsson
Arnbjörn Ólafsson
kaupm. og útgm. í Keflavík
Þórunn Bjarnadóttir
húsfr. í Keflavík
Ólafur J.A. Ólafsson
kaupmaður í Keflavík
Guðrún Einarsdóttir
kaupmaður í Keflavík
Arnbjörn Ólafsson
skrifstofum. og kaupm. í Keflavík
Guðrún Bjarnadóttir
húsfr. í Sandgerði
Einar Sveinbjörnsson
útvegsb. í Sandgerði
Hólmfríður Guðmundsdóttir
húsfr. á Hellissandi
Ásbjörn Gilsson
útvegsb. á Hellissandi
Epephanía Ásbjörnsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Vigfús Jón Vigfússon
sjóm. í Hafnarfirði
Erna Björg Vigfúsdóttir
húsfr. í Keflavík
Sólveig Bjarnadóttir
ljósmóðir á Kálfárvöllum
Vigfús Jón Vigfússon
b. á Kálfárvöllum í Staðarsveit
Afmælisbarnið Með lax úr Flóku.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Jón Guðmundsson, ritstjóriÞjóðólfs, fæddist í Melshúsumí Reykjavík 10.12. 1807. For-
eldrar hans voru Guðmundur Bern-
harðsson í Melshúsum og Ingunn
Guðmundsdóttir.
Eiginkona Jóns var Hólmfríður,
systir Þuríðar, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur og Önnu, móður
Matthíasar Johannessen skálds.
Jón lærði fyrst hjá séra Þorvaldi
Böðvarssyni, prófasti og skáldi í
Holti er síðar varð tengdafaðir hans.
Hann fór í Bessastaðaskóla 1824, ári
á eftir Jónas Hallgrímssyni, jafn-
aldra sínum, en missti tvö ár úr
skóla vegna veikinda og var haltur
síðan. Hann lauk stúdentsprófi 1832.
Jón var skrifari hjá landfógeta og
settur til að gegna embætti hans um
hríð 1836, var umboðsmaður Kirkju-
bæjarklaustursjarða 1837-47 og bjó
þar, var settur sýslumaður í Skafta-
fellssýslu 1849 en fór utan til laga-
náms 1850 og lauk því ári síðar.
Jón hafði verið fulltrúi Íslands á
stjórnlagaþingi Dana 1848-49. Hann
var fulltrúi á Þjóðfundinum í
Reykjavík 1851 og var þar í forystu,
ásamt Jóni Sigurðssyni, þar sem
barist var fyrir landsréttindum Ís-
lendinga. Hann fór utan það ár,
ásamt nafna sínum, í erindum Þjóð-
fundarins, en í banni stiftamtmanns.
Við það missti hann sýslumanns-
embættið og von um frekari emb-
ættisveitingar.
Jón var ásamt nafna sínum einn
helsti leiðtogi sjálfstæðisbarátt-
unnar um og eftir þjóðfundinn 1851.
Hann eignaðist blaðið Þjóðólf í
Reykjavík 1852 og ritstýrði því til
1874 en blaðið kallaði hann „blað
lýðsins og þjóðernisflokksins – opp-
ositionsblað“. Hann var alþm. Skaft-
fellinga 1845-58, Vestur-Skaftfell-
inga 1858-69 og kosinn alþm.
Vestmannaeyja 1874 og bæjar-
fulltrúi í Reykjavík 1856-68. Þá var
hann málflutningsmaður við lands-
yfirréttinn frá 1858 til æviloka. Ein-
ar Laxness ritaði ævisögu Jóns Guð-
mundssonar, sem gefin var út af
Sögufélagi og Ísafold 1960, og ann-
aðist einnig útgáfu bréfa Jóns rit-
stjóra til Jóns forseta 1845-1855.
Jón lést 31.5. 1875.
Merkir Íslendingar
Jón Guð-
mundsson
95 ára
Sigríður F. Helgadóttir
90 ára
Ámundi Sveinsson
85 ára
Emma Benediktsson
Hrefna Kristjánsdóttir
80 ára
Anne H. Jóhannsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Magnús Sigfússon
Sigurbjörg Helga
Jónsdóttir
Snorri Friðriksson
75 ára
Esther Valdimarsdóttir
Gréta Aðalsteinsdóttir
Guðný Helgadóttir
Marinó Jóhannsson
Rúna Bína Sigtryggsdóttir
Þórunn Einarsdóttir
70 ára
Fanney Björk Björnsdóttir
Halldóra Gróa
Guðmundsdóttir
Kolbrún Ragnarsdóttir
Rögnvaldur Ólafsson
60 ára
Anna María Kristjánsdóttir
Halldór Bjarnason
Ingibjörg Karlsdóttir
Konráð Ægisson
Magnea Sólveig Bjartmarz
Magnús Eiríksson
Sveinsína Björg Jónsdóttir
50 ára
Andrea Arna Gunnarsdóttir
Brynja Matthíasdóttir
Finnbogi Geirsson
Greta Kristín Ólafsdóttir
Halldóra Gunnarsdóttir
Helena Sigurðardóttir
Hilmar Adolfsson
Hólmfríður Sigurðardóttir
Íris Árnadóttir
Jónína Magnúsdóttir
Magnús Reynisson
Sigurbjörg Árný
Björnsdóttir
Waldemar Dabrowski
Þórhallur F. Þórhallsson
40 ára
Arnar Þór Vatnsdal
Davíð Aðalsteinsson
Guðmundur Jóhannsson
Hafrún Ósk Gísladóttir
Lilja Ragnhildur
Einarsdóttir
Ómar Hafberg Guðjónsson
Piotr Niemczyk
30 ára
Dolores Rós Valencia
Edda Rún Knútsdóttir
Guðmundur B.
Sigurbjörnsson
Guðrún Arna B. Svöludóttir
Juvencio Rosario Quim
Nicole Cox
Una Björgvinsdóttir
Þórey Birna Jónsdóttir
Örn Steinar Viggósson
Til hamingju með daginn
30 ára Þorgils ólst upp á
Hvolsvelli, er nú búsettur í
Reykjavík og er rafvirki.
Maki: Guðrún Björk Jóns-
dóttir, f. 1985, vöruhönn-
uður.
Dóttir: Þóra Margrét Þor-
gilsdóttir, f. 2012.
Foreldrar: Guðrún Þor-
gilsdóttir, f. 1959, hár-
greiðslumeistari og versl-
unarmaður hjá IKEA, og
Einar Helgason, f. 1954,
múrarameistari. Þau búa í
Reykjavík.
Þorgils Bjarni
Einarsson
30 ára Gunnhildur ólst
upp í Vesturbænum, lauk
M.Mus.-prófi í fiðluleik við
Univerisity of Illionis og er
fiðluleikari við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Maki: Björn Þór Guð-
mundsson, f. 1980, tölv-
unarfræðingur.
Foreldrar: Daði Kolbeins-
son, f. 1950, óbóleikari,
og Sesselja Halldórs-
dóttir, f. 1951, víóluleikari,
bæði við Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Gunnhildur
Daðadóttir
30 ára Kristján ólst upp í
Garðabæ, er búsettur í
Hafnarfirði, lauk BA-prófi í
félagsfræði frá HÍ og
starfar hjá VÍS.
Maki: Lilja Rún Krist-
björnsdóttir, f. 1988, nemi
í húsasmíði.
Sonur: Benedikt Krist-
jánsson, f. 2008.
Foreldrar: Margrét Kolka
Haraldsdóttir, f. 1948,
framhaldsskólakennari,
og Leifur Agnarsson, f.
1948, d. 2001, forstjóri.
Kristján Páll
Kolka Leifsson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR
Keðjurnar eru til á allar gerðir vinnuvéla, vöru-
og flutningabifreiða, dráttarvéla og lyftara
FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR
Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar
Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur
Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur
Keðjurnar eru til í
mörgum gerðum og
í öllum mögulegum
stærðum