Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.12. 2013
„Lífið gerir okkur mörg að
hetjum,“ segir Þórunn Erlu- og
Valdimarsdóttir rithöfundur í
viðtali í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins í dag og á þar
einkum við móður sína, Þórdísi
Erlu Jónsdóttur.
Ný skáldsaga hennar, Stúlka
með maga, fjallar meðal annars
um ótrúleg örlög hennar og
móðurættar. Í óeiginlegri merk-
ingu læsti eiginmaður hennar
hana inni á heimilinu eftir gift-
ingu þeirra, hún átti að vera
stillt og ekki segja orð, allra
síst líkaði honum að hún tjáði
sig upphátt þar sem menn hitt-
ust og skiptust á skoðunum.
Þessi orð má að auki setja í
samhengi við eina mestu goð-
sögn Suður-Afríku sem einnig
er fjallað um í blaðinu í dag.
Lífið gerði Nelson Mandela að
veraldarhetju. Rimlarnir voru
þó ekki aðeins til í yfirfærðri
merkingu heldur var hann læst-
ur inni í rammgerðu fangelsi,
bak við sýnilega rimla, í 27 ár.
Meðal annars vegna þess að
hann talaði of mikið og sagði of
mörg huguð orð.
Manni verður hugsað til
þöggunar á tímamótum sem
þessum, þegar ljóst er hvernig
orð hafa breytt heiminum.
Stundum er hún öflugt og
ósýnilegt tæki sem menn geta
notað til að fá sínu framgengt.
Stundum eru til hugrakkir ein-
staklingar sem mæta henni af
svo miklum krafti að það þarf
manngerða byggingu og lás og
slá til að halda aftur af orð-
unum.
Þöggun er ekki framkvæm-
anleg nema við leyfum það. Að
uppræta hana snýst um að hylla
menn eins og Nelson Mandela.
Og halda áfram að heiðra hug-
rekkið um ókomna tíð.
RABBIÐ
Slagurinn gegn þöggun
Júlía Margrét
Alexandersdóttir
Kuldaboli hefur staldrað lengi við í vikunni og um helgina mun hann blása af öllum sínum kröftum. Hann kælir landið og miðin um leið. Frostið getur far-
ið í allt að 20 stig víða um land en frostið var komið upp í 23 gráður í Mývatnssveit á föstudaginn. Hlýna tekur eftir helgi helgarinnar og vonandi sjást
frekar rauðar tölur í veðurspánni. Fuglarnir verða oft út undan í kuldanum og skiptir góðmennska mannfólksins miklu fyrir fuglana. Fita hentar flestum
fuglum vel í kuldanum. Fyrir þresti, starra og hrafna má nefna brauð, epli, fitu, kjötsag og matarafganga. Mælt er með kurluðum maís og hveitikorni
handa snjótittlingum. Verum góð við fuglana. benedikt@mbl.is
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Ómar
FROST ER ÚTI FUGLINN MINN
GNÍSTANDI FROST UNDANFARIÐ UM ALLT LAND HEFUR EKKI FARIÐ FRAMHJÁ NEINUM OG EFLAUST STÖÐUGUR
HROLLUR Í MÖRGUM. ÞESSIR STARRAR RIFUST UM KORNIÐ Í SNJÓNUM ENDA VIRÐIST ÞAÐ VERA HÁTÍÐARMAT-
UR HJÁ LITLU FUGLUNUM FREKAR EN NÖGUÐ EPLI. EINHVER FUGLAVINUR HEFUR MUNAÐ EFTIR FUGLUNUM.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Opnar
vinnustofur mynd-
listarmanna.
Hvar? Seljavegi 32.
Hvenær? Sunnu-
dag kl.12-16.
Nánar: Samband
íslenskra myndlist-
armanna býður landsmönnum að líta
inn á vinnustofum myndlistarmanna.
Vinnustofur til sýnis
Hvað? Bíósýning fyrir
alla fjölskylduna.
Hvar? Borgar-
bókasafn, Aðalsafn.
Hvenær? 8. desem-
ber kl. 15.
Nánar: Jólamynd fyrir fjölskylduna.
Fjölskyldubíó
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Jólamark-
aður.
Hvar? Ingólfstorgi.
Hvenær? Hefst á
laugardag kl. 12-18.
Nánar: Jólabjálka-
hús verða sett upp
sem hýsa matar- og handverksfólk.
Stendur yfir 7, 8, 14, 15, 19, 20, 21, 22
og 23. desember.
Jólafjör á Ingólfstorgi
Hvað? Tónleikar til
styrktar mæðra-
styrksnefnd Ak-
ureyrar.
Hvar? Akureyr-
arkirkju.
Hvenær? Laug-
ardag kl. 16.
Nánar: Kvennakór Akureyrar stendur
fyrir fjáröflunartónleikum. Verð: 2.500
en frítt fyrir börn.
Tónleikar til góðs
Hvað? Jólatónleikar Hinsegin kórsins.
Hvar? Neskirkju.
Hvenær? Laugardag 7. desember.
Nánar: Hinsegin kórinn syngur ljúfa
jólatóna ásamt Andreu Gylfadóttur.
Verð: 3.200 kr. en 2.700 kr. í forsölu.
Hinsegin kórinn syngur
Hvað? Jólasýning.
Hvar? Árbæjarsafni.
Hvenær? Sunnudag kl. 13.
Nánar: Jólatrésskemmtun þar sem
sungin verða jólalög og gömlu jólasvein-
arnir mæta á svæðið. Verð fyrir full-
orðna er 1.200 kr. en frítt fyrir börn,
ellilífeyrisþega og öryrkja.
Jól í Árbæjarsafni
* Forsíðumynd: Ómar Óskarsson