Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Síða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Síða 51
Dagblöð um allan heim fluttu í gærdag fréttir af andláti Nel- sons Mandela, fyrsta blökku- mannsins sem kosinn var for- seti Suður-Afríku. AFP UNDIR ÞAÐ SÍÐASTA Mandela í apríl á þessu ári en tveimur mánuðum síðar var hann lagður inn á spítala með lungnasýkingu. AFP ingur úr Witwatersrand-háskólanum. Hægt og sígandi kallaði pólitíkin á sinn forustusauð og árið 1952 var Mandela kominn í forrystusveit Afríska þjóðarráðsins (ANC) og orðinn einn helsti baráttumaður blökkumanna gegn kynþáttaaðskiln- aðarstefnunni og fyrir réttindum blökkumanna í landinu. Lögfræðikunnáttan kom að góðum notum í þeirri baráttu. Afríska þjóðarráðið hafði verið fremur máttlaus samtök frá stofnun þess árið 1912 en með Mandela urðu samtökin svo öflug að yfirvöld í landinu sáu ástæðu til að banna þau árið 1960. Barátta Mandela og félaga hans í þjóðarráðinu varð minna sýnileg en hélt áfram í felum og ákveðið var að vígbú- ast. Mandela fékk meðal annars herþjálfun í Eþópíu. Þegar hann snéri aftur til Suður-Afríku 5. ágúst 1962 var hann handtekinn. Í réttarsalnum hélt hann fjögurra klukkustunda langa ræðu þar sem hann rakti sögu sína og baráttu. Hann talaði um lýðræði og frjálst samfélag. „Það er hugmynd sem ég er tilbúinn að deyja fyrir.“ Mandela var dæmdur í lífstíðarfang- elsi. Mandela sat í fangelsi í 27 ár, þar af 19 á Robben-eyju og var fanganúmer hans, 46664, númer sem Mandela notaði síð- ar í baráttu sinni gegn alnæmi. Meðan Mandela dvaldi í fangelsi var alþjóðlegri herferð hrundið af stað um að hann yrði látinn laus en yfirvöld í landinu buðu honum nokkrum sinnum að fara út sem frjáls maður en gegn því að hann léti af baráttu sinni. Mandela af- þakkaði alltaf boðið. Árið 1990 var hann látinn laus eftir mik- inn þrýsting frá alþjóðasamfélaginu og allur heimurinn fagn- aði. Íbúar Suður-Afríku komu víða saman, meðal annars í Jó- hannesarborg og Sóvetó, fæðingarborg hans, til þess að minnast Mandela í fyrradag og þjóðhöfðingjar heims hafa tjáð harm sinn yfir andláti frelsishetjunnar. Síðustu mánuði höfðu læknar sinnt Mandela á heimili hans vegna lungnasýk- ingar en talið er að rekja megi lungnasjúkdóm hans til fang- elsisvistarinnar í Robben-fangelsinu. Þar sætti hann oft illri meðferð, stritaði í grjótnámu og smitaðist meðal annars af berklum. 8.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Sá eitthvað gott í öllum Ragna Sara Jónsdóttir, fyrrverandi blaðamaður Morgunblaðsins, tók viðtal við Mandela í júlí 2001. Hún segir að hann hafi verið sameiningartákn fyrir hina ólíku kynþætti sem búi í Suður-Afríku. „Í ævisögu sinni segir Mandela frá því að í fangelsinu hafi hatur sitt gagnvart hvíta manninum minnkað en hatrið á kerfinu og aðskilnaðarstefnunni vaxið,“ segir Ragna Sara. „Sama hvað á gekk, þá sá hann alltaf eitthvað gott í hverri manneskju, sem er einstakur hæfileiki.“ Ragna Sara segir að Mandela hafi verið mjög hlýr í allri viðkynningu. „Hann þakkaði mér fyrir að vera komin til þess að hitta hann og spjallaði við mig um daglega lífið og hvernig ég hefði haft það,“ segir Ragna Sara en þau sátu í rúman klukkutíma og ræddu saman. „Hann var algjörlega einstakur maður og ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að hitta hann,“ segir Ragna Sara að lokum. ÁRATUGA MÓTMÆLI Hópur fólks mót- mælir lífstíðarfang- elsisdómi yfir Nel- son Mandela í Pretoria árið 1964. AFP MYND ÁRSINS Fyrr á árinu heimsótti Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, litla fangelsisklefa Nelsons Mandela á Robben-eyju. AFP EPA ELSKAÐUR ALLS STAÐAR Nelson Mandela gleðst þegar bresk börn fagna honum á Trafalg- ar-torginu í London árið 1996. Mandela var þar í fjögurra daga opinberri heimsókn. AFP Á LEIÐ Í FANGELSIÐ Árið 1964 var Nel- son Mandela dæmd- ur í lífstíðarfangelsi fyrir landráð, sam- særi og skemmd- arverk. Sú stund þegar hann og sjö aðrir menn voru fluttir úr rétt- arsölum í Pretoria var fest á filmu. Þeir mótmæltu með því að rétta hnefann í gegnum rimlana. DANSAÐ OG SUNGIÐ Íbúar Suður-Afríku brustu í söng og dönsuðu á götum úti 10. febrúar 1990. FÖGNUÐUR Íbúi Jóhannesarborgar heldur dagblaði á lofti, 11. febrúar 1990, þar sem greint er frá náðun Nelsons Mandela. FANGELSIÐ KVATT Mannþröng var á götum úti þegar Nelson Mandela kvaddi Victor Verster-fangelsið í febr- úar 1990. Heimsbyggðin fylgd- ist víðast hvar með í beinni út- sendingu 11. febrúar 1990. AFP VINIR Bill Clinton, fyrrver- andi forseti Banda- ríkjanna, og Mandela horfa út um rimla fangelsisins þar sem Mandela eyddi 17 ár- um af 27 ára fangels- isvist sinni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.