Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.12.2013, Page 59
8.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Titill sem kemur á undan ákvörðun í spilum (9)
5. Hlekkið nú einhvern veginn með þunnu lagi af Ni. (9)
9. Húrra fimm tugir og fimm tugir enda hjá heilsutæpum. (5)
10. Dragspil Ella getur orðið að því sem sýnir brag hundrað ára.
(12)
11. Illa klædd bók eða kona? (8)
12. Kostar engan farva að fá blæfagurt. (8)
15. Hús Þorvaldar er fyrir hóp sem fer með yfirráð. (10)
18. Yfirlýsing strætisvagns um að hann sé ekki sorgmætt fljót?
(2,4,1,4)
19. Keyrði planta með þýskan ís til dónalegs. (8)
20. Líkjörar 1006 blandast þeim sem hafa mikla sterkju. (11)
23. Fíkill í hárskraut og hættu. (12)
24. Gunnar reiður og ljúfur. (5)
25. Í skanna enn einn var að lokum að finna athuganir. (10)
26. Hvaða, væna? Ruglastu úr öllum áttum? (9)
28. Borðaði mál að 12,5%. (8)
30. Hlusti á byltu vegna hlemms sem dettur. (9)
31. Sum stangið í veseninu. (9)
32. Dæld við borg sem hljóðlát segir frá. (6)
LÓÐRÉTT
2. Óskaplega æðri kunningja. (8)
3. Postilla nær að setja í rétta stöðu. (6)
4. Lauslát stúlka fer óvarfærin til Bandaríkjanna. (6)
5. Óp í líki heyrist við svengd. (6)
6. Spori, samstæða og tarína mynda það sem á heima á baðher-
bergi. (11)
7. Langt í vímu menntaskóla Akureyrar og verkun. (13)
8. Eyðing á klukku áður en íþróttakeppni í góðum flokki hefst
gerir hana að lokakeppni. (13)
9. Fimm sem eru ekki saman út af dýri. (8)
13. Eyðileggi með tonni kjötsoð sýningarmanns. (14)
14. Æðir á sælgætið í óveðrinu. (13)
16. Maður í mótorhjólaklúbb sem vill ekki vera á flatlendi er eins
og lítið dýr. (13)
17. Flottur sér bofs af sjónvarpsstöð. (8)
21. Aðalheiði telur frekar. (4,6)
22. Annað heiti jólakattar notað yfir erlent rándýr. (9)
23. Einfaldan dýjagróður litar með fiskum. (8)
24. Lómur frá Fagurhólsmýri lendir á byggingu. (8)
27. Geðshræringin hjá fjörkálfi. (6)
29. Skröggur sýnir atorku. (4)
Judit Polgar var eina konan sem
tefldi í Opnum flokki Evrópumóts
landsliða í Varsjá á dögunum en 25
ár eru síðan hún tefldi með ung-
versku kvennasveitinni á Ólympíu-
mótinu í Saloniki í Grikklandi og
hreppti gullverðlaun. Síðan hefur
hún ekki tekið þátt í „kvennamót-
um“. Þær konur sem tóku sæti í
bestu liðum kvennaflokksins í
Varsjá á dögunum standa Judit
ekki langt að baki. En Judit hefur
samt algjöra sérstöðu meðal
kvenna og er réttnefnd skák-
drottning heimsins. Af henni má
margt læra og það vita stúlkurnar
í íslensku sveitinni sem voru þær
sömu og tefldu á OL í Istanbul í
fyrra. Lenka Ptacnikova, Hall-
gerður Helga Þorsteinsdóttir, Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir, Tinna
Kristín Finnbogadóttir og Elsa
María Kristínardóttir hafa ekki áð-
ur fengist við jafnerfitt verkefni og
taka áreiðanlega ýmislegt með sér
frá mótinu. Sveitin hafnaði í 31.
sæti af 32 þátttökuþjóðum en ekki
var langt á milli sveitanna sem
lentu í neðri helmingi mótsins. Þó
liggur fyrir að einungis Lenka
Ptacnikova sem hlaut 4½ vinning
úr 9 skákum og Tinna Kristín
Finnbogadóttir, með 4 vinninga af
7 mögulegum geta verið sáttar
með frammistöðu sína. Þannig náði
Tinna Kristín árangri upp á 2151
elo stig og hækkaði um 35 elo-stig.
Skákir hennar taka oft óvænta
stefnu og hún á það til að láta liðs-
afla af hendi fyrir óljósar bætur.
Fleyg orð Jóhanns Þóris um
þankagang sinn þegar hann tefldi
við Norðmanninn Leif Ögaard á
Norðurlandamótinu sumarið 1973:
„Grugga, grugga“, eiga vel við
sumar ákvarðanir hennar við skák-
borðið. Í Póllandi var þó meira ör-
yggi yfir stílnum sem kom vel
fram í bestu skák hennar sem tefld
var í 1. umferð:
EM 2013, Varsjá 2013:
Tinna Kristín Finnbogadóttir –
Giedre Vanagaite (Litháen)
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4.
d3 Bg7 5. Be3 d6 6. Bg2
Lokaða-afbrigði sikileyjarvarn-
arinnar stendur býsna traustum
fótum. Tinna velur hér leið sem
kom býsna oft upp skákum Nigel
Short í byrjun aldarinnar.
6. … Hb8 7. Dd2 b5 8. Rge2
Rd4 9. O-O Rxe2 10. Dxe2 b4 11.
Rd1 Rf6 12. e5!?
Óvæntur leikur og ekki slæmur.
Gott var einnig 12. a3 eða 12. f4.
12. … Rg4 13. exd6 Dxd6 14.
Bf4 e5 15. h3 O-O 16. Bc1 Rh6 17.
Re3 Rf5 18. Rc4 Dc7 19. Hb1
Full hægfara. betra er 19. c3 má
hvítur vel við sína stöðu una.
19. …Rd4 20. Dd1 Bb7 21. Be3
Re6 22. Bxb7 Hxb7 23. Dd2 Hd8
24. f3 f5 25. Hbe1 f4 26. gxf4 exf4
27. Bf2 Rg5 28. Kg2 Dd7 29. Hh1
Dd5 30. De2 Bf6 31. h4
Það veitist létt verk að bægja
atlögum svarts frá. Brátt nær hvít-
ur yfirráðum eftir e-línunni.
31. … He7 32. Dd1 Re6 33. He4
Df5 34. De2 Hdd7 35. Re5 Hc7 36.
Rg4 Bg7 37. He1 Kf7
Litháíska stúlkan sem var í
miklu tímahraki hefur stillt upp í
vörn í kringum riddarann á e6.
- Sjá stöðumynd -
38. He5!
Óvæntur hnykkur. Er 38. …
Bxe5 þá 39. Rh6+ og drottningin
fellur.
38. … Rd4 39. Hxf5+
Einfaldara var 39. Hxe7+.
Tinna var fegin a losna við svörtu
drottninguna og valdi því þennan
leik sem dugar auðveldlega til sig-
urs.
39. … gxf5 40. Dd2 fxg4 41.
Dxf4+ Kg8 42. fxg4 Hb7 43. Dd6
Hxe1 44. Bxe1 Rxc2 45. Dd8 Bf8
46. Bf2 Rd4 47. Bxd4 cxd4 48.
Dxd4 h6 49. g5 Hg7 50. Dd5 Kh8
51. Df5 Be7 52. g6 Bxh4 53. Df8+
– og svartur gafst upp, 53. …
Hg8 er svarað með 54. Dxh6 mát.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Tinna Kristín og Lenka stóðu sig best í Varsjá
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgátunnar.
Senda skal þátttökuseð-
ilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 7. desember
rennur út á hádegi föstu-
daginn 13. desember. Vinn-
ingshafi krossgátunnar 1.
desember er Kári Sigfús-
son, Sæviðarsundi 70, 104 Reykjavík. Hlýtur hann
bókina Skuggasund eftir Arnald Indriðason. Vaka-
Helgafell gefur út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang