Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014 ALLT á einum stað! Lágmarks biðtími www.bilaattan.is Dekkjaverkstæði Varahlutir Bílaverkstæði Smurstöð Ragnar Arnalds, fyrrverandifjármálaráðherra, fjallar á Vinstri vaktinni um skrítluna um að ljúka beri „samningaviðræðum“ sem ekki hafa farið fram og minnir á vafningalaus svör Sigrúnar Magnúsdóttur þingflokksformanns við spurningu um almannakosn- ingu um skrítluna:    Við sögðum aðvið myndum aldrei ganga í Evr- ópusambandið nema að undan- genginni kosningu og við ætlum ekkert að ganga í Evrópu- sambandið. Þannig að það þarf enga kosningu.“ „Ég sé ekki ástæðu til þess,“ svaraði Sigrún þeg- ar spurt var hvort efna skyldi til þjóðaratkvæða- greiðslu um framhald aðildar- viðræðna við Evrópusambandið.    Hitt er svo allt annað mál að nú-verandi stjórnarflokkar hétu því að efna til þjóðaratkvæða- greiðslu ef til þess kæmi að stjórnin vildi endurvekja viðræðurnar við ESB.    En það stendur sem sagt ekki tilí bráð. Dapurleg reynsla VG á liðnu kjörtímabili verður öðrum flokkum lærdómsrík í framtíðinni og kennir þeim að enginn stjórnmálaflokkur, sem er andvígur ESB-aðild, má láta hafa sig til að sækja um inngöngu með þeirri afsökun að flokkurinn ætli svo að fella fyrirhugaðan samning sem hann bæri þó aug- ljóslega ábyrgð á að gerður yrði við ESB.    Það var og er og verður mótsögnog tvöfeldni sem kemur við- komandi flokki í koll fyrr en síðar, eins og reyndin hefur orðið hjá VG.“ Sigrún Magnúsdóttir Þetta er ekki flókið STAKSTEINAR Ragnar Arnalds Veður víða um heim 28.1., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík 2 skýjað Akureyri 1 snjókoma Nuuk -3 léttskýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló -2 snjókoma Kaupmannahöfn -1 skýjað Stokkhólmur -1 heiðskírt Helsinki -7 skýjað Lúxemborg 2 léttskýjað Brussel 5 skúrir Dublin 5 skúrir Glasgow 6 skýjað London 7 léttskýjað París 6 alskýjað Amsterdam 6 skúrir Hamborg 0 skýjað Berlín -2 þoka Vín 0 þoka Moskva -16 heiðskírt Algarve 13 skýjað Madríd 7 skýjað Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 12 léttskýjað Róm 8 léttskýjað Aþena 8 alskýjað Winnipeg -27 alskýjað Montreal -16 léttskýjað New York -10 heiðskírt Chicago -20 heiðskírt Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 29. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:17 17:06 ÍSAFJÖRÐUR 10:40 16:53 SIGLUFJÖRÐUR 10:24 16:35 DJÚPIVOGUR 9:51 16:30 Allir sakborningar í máli lögreglu- stjórans í Reykjavík gegn níu Hraunavinum neituðu sök við þing- festingu málsins í gærmorgun. Fólk- inu er gefið að sök að hafa brotið gegn 19. grein lögreglulaga, þegar það fór ekki að „ítrekuðum fyrir- mælum lögreglu um að flytja sig um set,“ líkt og fram kemur í einni ákær- unni. Umrædd brot áttu sér stað 21. október síðastliðinn. „Þetta er allt fólk sem var handtekið tvívegis þennan sama dag,“ segir Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari. „Það voru handtökur þarna um morguninn og fólk var flutt á lög- reglustöð, og það fór svo aftur á vett- vang og lét handtaka sig öðru sinni,“ segir hann. Karl Ingi segir að fleiri einstaklingar hafi verið handteknir þennan sama dag en ákvörðun hafi ekki verið tekin um ákærur í þeim málum. Frestur til að skila greinargerðum í máli níumenninganna rennur út 24. febrúar næstkomandi. holmfridur@mbl.is Öll handtekin tvisvar sama daginn Morgunblaðið/Þórður Hraunavinir Viðurlög við brotum gegn 19. grein lögreglulaga eru sektir. Skúli Bjarnason hæstaréttar- lögmaður fer með mál fjög- urra af níu ákærðu. Hann gagnrýnir framgang lögreglu á vettvangi og ákvörðunina um að ákæra. „Það segir sig sjálft að í þessu tilviki hefði verið al- gjörlega nægjanlegt að „stugga“ við fólkinu, þannig að þessi ágæta jarðýta kæm- ist áfram, sem og hún gerði,“ segir hann. „Ef maður skoðar þetta allt í samhengi sé ég ekki betur en að Vegagerðin hafi náð öllu sínu fram með aðstoð lögreglu, þannig að fara að ákæra virðulega eldri borgara og fólk sem má ekki vamm sitt vita; allir með hreint sakarvottorð og al- mennt fyrirmyndarfólk, er náttúrlega dálítið langt gengið að mínu mati,“ segir hann. Skúli segir ákærðu hug- sjónafólk, sem hafi talið sig vera í rétti við að standa vörð um náttúru landsins, og segir að þegar hafi verið rætt innan hópsins að skjóta málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu ef niðurstaðan verður fólkinu ekki hagfelld. Hann segir framgöngu yfirvalda í málinu hafa verið úr öllu hófi. Vammlausir náttúrusinnar ÚR ÖLLU HÓFI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.