Morgunblaðið - 29.01.2014, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014
Efnamóttakan hf. í samstarfi við Gámaþjónustuna hf. býður fyrirtækjum og stofnunum með skrifstofurekstur að annast þjónustu sem tryggir öryggi og
hámarksendurvinnslu ýmissa endurvinnsluefna sem falla til á skrifstofum. Fyrirtækin veita ráðgjöf, útvega réttu ílátin og sjá um trygga losun þeirra.
Trúnaðarskjöl
Trúnaðarskjölum má safna í sérstök læst
ílát. Gögnin eru síðan tætt og fyllsta
trúnaðar og öryggis er gætt. Tættur
pappírinn fer að því loknu til endurvinnslu.
Rafhlöður og lítil raftæki
Útvegum hentug ílát fyrir rafhlöður sem ekki
mega blandast öðrum úrgangi. Í sömu ílát
má einnig safna litlum raftækjum svo sem
símum og myndavélum.
Stór raftæki
Sækjum stór raftæki og tryggjum að þau
komist til öruggrar endurvinnslu.
Öllum trúnaðargögnum á tölvum er eytt
með tryggilegum hætti.
Prenthylki
Notuðum heilum prenthylkjum er hentugt
og hagkvæmt að safna í sérstök ílát. Með
því móti er endurnýting þeirra tryggð.
Umhverfislausnir fyrir skrifstofur
Sími 559 2200 • soludeild@efnamottakan.is
www.efnamottakan.is
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mér finnst ég í raun ekki vera búinn
að loka hringnum fyrr en ég hef sjálf-
ur stjórnað eigin verki. Mér finnst því
mjög gaman að fá tækifæri til þess
núna,“ segir Daníel Bjarnason tón-
skáld sem stjórnar Íslandsfrumflutn-
ingi á verki sínu The Isle is Full of
Noises á opnunartónleikum Myrkra
músíkdaga í Eldborgarsal Hörpu
annað kvöld kl. 19.30. Á sömu tón-
leikum stjórnar Daníel einnig frum-
flutningi á nýju verki eftir Þuríði
Jónsdóttur sem nefnist Miss Reykja-
vík Rita, auk þess sem flutt verða Í
sjöunda himni eftir Hauk Tómasson
og Three Movements eftir Steve
Reich.
Auk Sinfóníuhljómsveitar Íslands
taka Hamrahlíðarkórar Þorgerðar
Ingólfsdóttur þátt í flutningnum á
The Isle is Full of Noises, en verkið
samdi Daníel fyrir Barnakór Los
Angeles og Ungsinfóníusveit Banda-
ríkjanna sem frumflutti verkið undir
stjórn James Conlons í Los Angeles
fyrir tæpum tveimur árum.
„Ég hef alltaf vitað að ef ég myndi
flytja verkið hérlendis þá myndi ég
vilja gera það með Hamrahlíðar-
kórnum þar sem hann passar verkinu
vel með sínum ungu röddum,“ segir
Daníel og tekur fram að hann hafi
engu að síður þurft að umskrifa verk-
ið þar sem upphaflega hafi verið gert
ráð fyrir barnakór. „Breytingin kem-
ur hins vegar mjög vel út og kórinn er
auðvitað frábær. Það er einstaklega
skemmtilegt að vinna með honum og
Þorgerði.“
Hátíðin nær eyrum fleiri
Daníel hlaut sem kunnugt er Ís-
lensku tónlistarverðlaunin sem tón-
skáld ársins fyrir verkin The Isle is
Full of Noises og Over Light Earth.
Spurður nánar um tilurð fyrrnefnda
verksins segist Daníel sækja sér inn-
blástur í Ofviðri Shakespeares.
„Enda er leikritið mjög músíkalskt.
Það er því engin tilviljun að mörg tón-
skáld hafi valið að semja tónverk inn-
blásin af þessu leikriti. Töfraeyjan er
uppfull af skringilegum hljóðum og
hefur yfir sér dulúðlega og yfir-
náttúrulega stemningu,“ segir Daníel
sem notast við búta úr þremur eintöl-
um þeirra Miröndu, Kalíbans og
Prosperós í tónverki sínu.
Aðspurður segist Daníel hlakka til
að takast á við verk annarra tón-
skálda kvöldsins. „Þarna verður í
fyrsta sinn, eftir því sem ég best veit,
flutt hérlendis þetta verk eftir Steve
Reich sem er eitt merkilegasta núlif-
andi tónskáld heims. Þetta verk er
fyrir tvö píanó, tvær marímbur og tvo
víbrafóna sem staðsett eru fremst á
sviðinu, en hljómsveitin raðar sér í
hálfhring fyrir aftan. Verkið býr til
ákveðinn steríóeffekt. Þetta er rosa-
lega flott verk sem ég er mjög
spenntur fyrir að stjórna. Miss
Reykjavík Rita er glænýtt verk sem
Þuríður skrifaði sérstaklega fyrir
þetta tilefni. Verkið er að sögn Þur-
íðar portrett af dragdrottningu. Í sjö-
unda himni eftir Hauk Tómasson var
frumflutt við opnun Hörpu, en hefur
ekki verið flutt síðan. Þetta er glæsi-
legt verk sem samið var með hljóm-
burð hússins í huga. Þetta eru því ólík
verk, en mynda skemmtilega heild,“
segir Daníel.
Spurður um þýðingu Myrkra mús-
íkdaga í íslensku listalífi segir Daní-
el hátíðina hafa mikið vægi.
„Þetta er ein elsta nútímatón-
listarhátíð á Norðurlöndum og
hugsanlega víðar. Mér finnst
mjög ánægjulegt að sjá hvernig
hátíðin hefur verið að þróast og
opnast á umliðnum árum, en
hún virðist sífellt ná eyrum
fleiri,“ segir Daníel og bendir
sem dæmi á að erlenda press-
an fylgist með hátíðinni auk
þess sem hátíðin tengist núna
einnig sjónrænni tónlistarhátíð.
Hringnum loks lokað
Daníel Bjarnason tónskáld stjórnar opnunartónleikum Myrkra músíkdaga í Hörpu á morgun
Hann segir verkin fjögur sem flutt verða á tónleikum kvöldsins ólík en mynda skemmtilega heild
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tilhlökkun Daníel Bjarnason segist hlakka til að takast á við verkin sem flutt verða á opnunartónleikum Myrkra músíkdaga í Eldborgarsal Hörpu.
Myrkir músíkdagar hefjast annað
kvöld með tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands og Hamrahlíð-
arkóranna, undir stjórn Daníels
Magnússonar. Stofnað var til þess-
arar tónlistarhátíðar árið 1980, af
tónskáldunum Atla Heimi Sveins-
syni og Þorkeli Sigurbjörnssyni,
sem þá voru forvígismenn Tón-
skáldafélags Íslands. Síðan hef-
ur hátíðin vaxið og dafnað,
með þátttöku innlendra og
erlendra tónlistar-
manna, og er í dag
einn af burðarásum
í íslensku tónlistarlífi,
með framsækni og
frumsköpun í tónlist í
fyrirrúmi.
Tónleikar og hin-
ar ýmsu uppá-
komur Myrkra
músíkdaga fara að þessu sinni að
mestu fram í hinum ýmsu sölum í
Hörpu, en einnig í Fríkirkjunni, í
Bílakjallara Ríkisútvarpsins og í
Listaháskóla Íslands. Þá á hátíðin í
samstarfi við Reykjavík Visual Mus-
ic-hátíðina, sem einnig er haldin í
Hörpu. Meðal hinna ýmsu viðburða
má nefna eftirfarandi:
Fimmtudagur
19.30 Opnunartónleikar í Eld-
borg – Sinfóníuhljómsveit Íslands
og Hamrahlíðarkórarnir undir
stjórn Daníels Bjarnasonar.
23.00 Portretttónleikar Berg-
lindar Maríu Tómasdóttur í Kalda-
lóni.
Föstudagur
19.30 Caput í Norðurljósum.
21.00 Electroacoustic, Kaldalóni.
Laugardagur
14.00 Nordic Affect í Norður-
ljósum.
16.00 Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikari í Norðurljósum.
18.00 Megumi Masaki á píanó,
Kaldalóni.
20.00 Quatuor Bozzini í Norður-
ljósum.
21.30 Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir messósópran í Kaldalóni.
Sunnudagur
11.00 Barnadagskrá, Pamela de
Sensi, Kaldalóni.
13.00 Tinna Þorsteinsdóttir pí-
anóleikari, Norðurljósum.
17.00 Stockholm Saxophone
Quartet, Kaldalóni.
21.00 Lokatónleikar, Kammer-
sveit Reykjavíkur, Norðurljósum.
Fjölbreytileg og framsækin dagskrá
MYRKIR MÚSÍKDAGAR HEFJAST Á FIMMTUDAG OG STANDA FRAM Á SUNNUDAG
Guðný Guð-
mundsdóttir
kemur fram á
laugardag.