Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014 Allianz • Nýi ökuskólinn • Prentlausnir SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING SÉRSTÖK STYRKTARSÝNING Í kvöld miðvikudaginn 29. janúar kl. 20.00 í Laugarásbíó. Allur ágóði sýningarinnar rennur til líknarmála. ÞÖKKUM STUÐNINGINN LIONS KLÚBBURINN EIR REYKJAVÍK Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Ísland www.rafstjorn.is Virkni loftræstikerfa er okkar fag! Þúsundir manna söfnuðust í fyrra- kvöld saman á torginu fyrir framan hið kunna óperuhús La Scala í Míl- anóborg og minntust hins kunna stjórnanda Claudios Abbados sem lést í liðinni viku áttræður að aldri. Hans er minnst sem eins merkasta og áhrifamesta hljómsveitastjóra síðustu áratuga. Gamall vinur og samstarfsmaður Abbados í áratugi, Daniel Baren- boim, stjórnaði þá á táknrænan hátt Fílharmóníuhljómsveit Scala fyrir mannlausum sal; öll hin rauðu flauelsklæddu sæti voru tóm en tón- listinni varpað út til þöguls mann- fjöldans. Hljómsveitin lék útfarar- mars Beethovens úr þriðju sinfóníu hans sem þekkt er sem Eroica- sinfónían. Abbado var um langt árabil list- rænn stjórnandi Scala-óperunnar, þar sem hann hóf störf árið 1960. Hann stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Lundúna á árabilinu 1979 til 1988 og var listrænn stjórnandi Staatsoper í Vín á árunum 1986 til 1991. Fyrir- hugað var að Abbado kæmi hingað til lands og stjórnaði tónleikum Moz- art-hljómsveitarinnar í Hörpu. AFP Minningarathöfn Þögull mannfjöldinn hlýðir á hljómsveitina leika útfararmars Beethovens fyrir utan Scala. Mílanóbúar kvöddu meistarann Samtök kvikmyndahúsaeigenda í Bandaríkjunum, The National Association of Theater Owners, hafa óskað eftir því að stiklur úr væntanlegum kvikmyndum verði ekki lengri en tvær mínútur, þ.e. um 30 sekúndum styttri en þær eru vanalega. Þá vilja samtökin einnig að stiklur verði ekki sýndar fyrr en í fyrsta lagi fimm mánuðum fyrir frumsýningu og að kynningarefni tengt myndunum verði ekki að finna í kvikmyndahúsum fyrr en í fyrsta lagi fjórum mánuðum fyrir frumsýningu. Eiga þessar reglur að gilda frá og með 1. október nk. Samtökin vilja með þessu hafa meira um það að segja hvernig kvikmyndir eru kynntar í kvik- myndahúsum og segir í frétt á vef Hollywood Reporter að kvik- myndahúsaeigendum hafi borist kvartanir frá bíógestum hvað stikl- ur varðar. Gestum þyki þær of langar og gefa of mikið upp um söguþræði. Hvort kvikmynda- framleiðendur í Hollywood verða við þessu á eftir að koma í ljós en þeir hafa lengi haldið því fram að tveggja og hálfrar mínútu langar stiklur séu alls ekki of langar, að því er segir í Hollywood Reporter. Þar segir einnig að algengt sé í kvikmyndahúsum vestra að leiknar séu sjö eða átta stiklur á undan kvikmynd sem þýði allt að 20 mín. bið fyrir gesti eftir því að myndin sem þeir greiddu fyrir hefjist. Væntanleg Úr Spider-Man 2, Jamie Foxx í hlutverki óþokkans Electro. Óska eftir því að stiklur verði styttar Vefritið Kjarn- inn greinir frá því að svo virðist sem leikarinn Ólafur Darri Ólafsson hafi verið klipptur út úr sjónvarps- þáttaröðinni True Detective sem bandarísku Hollywood- stjörnurnar Matthew McConaug- hey og Woody Harrelson fara með aðalhlutverk í. Stikla úr þáttunum þar sem Ólafur Darri kemur við sögu var sett á netið fyrir nokkrum vikum en Kjarninn bendir réttilega á að nafn Ólafs Darra sé nú hvergi að finna á lista yfir leikara þátta- raðarinnar á vefnum IMDb og að búið sé að breyta stiklum þáttanna. Ólafur Darri klipptur út? Ólafur Darri Ólafsson Bandaríski kvik- myndaleikstjór- inn Quentin Tar- antino hefur höfðað mál á hendur stjórn- endum vefjarins Gawker fyrir brot á höfundar- rétti. Vefurinn birti handrit að kvikmyndinni The Hateful Eight sem Tarantino hugðist leikstýra en hætti við eftir að handritinu var lekið á netið. Tarantino höfðar mál Quentin Tarantino

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.