Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Við Uummannaq-fjörð áNorðaustur-Grænlandi,tæpum 600 kílómetrumnorðan við heimskauts-
baug, búa um 3.200 manns. Flestir
búa í bænum Uummannaq sem í
raun er sjálft
hjarta fjarðarins.
Íbúar eru tæp-
lega 1.300 og ger-
ir það bæinn að
þeim ellefta
stærsta á Græn-
landi.
Jón Viðar
Sigurðsson hefur
ferðast vítt og
breitt um Græn-
land síðustu þrjá
áratugina. „Ég fór fyrst til Græn-
lands átján ára gamall árið 1984. Þá
fór ég um Austur-Grænland, Kulu-
suk og það svæði. Eins og flestir sem
fara til Grænlands fellur maður fyrir
landinu og ferðirnar eru orðnar um
fimmtíu núna,“ segir Jón Viðar.
Nokkrar ferðanna hafa tengst
jarðfræðirannsóknum Jóns Viðars
sem hefur einnig farið sem leið-
sögumaður með gönguhópa sem og í
fjölda leiðangra sem fyrirlesari.
„Síðan hef ég nýtt sumarfríin til
að ferðast um Grænland með fjöl-
skyldu og vinum til að kynnast land-
inu sem best,“ segir hann um land
næstu nágranna okkar.
Djúpir firðir og háir tindar
Jón Viðar á sér nokkra eftirlæt-
isstaði á Grænlandi og þar á meðal
er Uummannaq sem hann segir æði
Gestir frá Íslandi og
utan úr geimnum
Þar sem fjöllin eru hæst og firðirnir dýpstir stafar ævintýraljóma af afskekktum
bæ. Uummannaq á Grænlandi hefur laðað að ótrúlegasta ævintýrafólk og jafnvel
verur úr geimnum. Jarðfræðingurinn Jón Viðar Sigurðsson hefur á síðustu þrjá-
tíu árum farið í tugi ferða til Grænlands og er Uummannaq með eftirminnileg-
ustu stöðunum. Þar lifir fólk í sátt og samlyndi við náttúruna sem það gjörþekkir.
Loftslagsbreytingar Jón Viðar segist sjá mikinn mun á því hvernig hafið
leggur í Uummannaq-firðinum og hefur lífið breyst töluvert í bænum.
Tengsl Íslendingar komu með íslenska hesta þegar landkönnuðurinn Alfred
Wegener reisti veðurathugunarstöð við jökulröndina í Uummannaq 1930. Jón Viðar Sigurðsson
Stundum hefur krydd verið kallað
gull, enda margt krydd verðmætt og
munaðarvara ef út í það er farið.
Af kryddi vilja flestir hafa pass-
lega mikið, ekki of lítið og alls ekki
of mikið.
Geymsluaðferðir krydds eru ólíkar
eftir tegundum og á vefsíðunni
www.foodsubs.com/spices er að
finna ýmsar góðar upplýsingar.
Hvernig á að geyma þau, hvaðan þau
koma, hvernig þau líta út og hvernig
er best að nota þau.
Til dæmis má nefna að séu krydd,
ber eða fræ keypt ómöluð geymast
þau lengur því best er að mala
kryddið rétt áður en það er notað.
Einnig segir að ná megi fram enn
ríkara bragði með því að rista krydd-
ið á pönnu á lágum hita í örstutta
stund. Þetta og fjölmargt fleira um
krydd á þessari áhugaverðu og ein-
földu síðu.
Vefsíðan www.foodsubs.com/Spice
EPA
Krydd Ferskleiki krydds getur haldist mun lengur sé það meðhöndlað rétt.
Krydd frá öllum heimshornum
Opnun myndlistarsýningar-
innar outer place verður í
dag á milli 17 og 19 í hús-
næði Sambands íslenskra
myndlistarmanna að
Hafnarstræti 16. Einnig
verður opið á morgun frá
klukkan 10 – 15:30.
Sýningin er alþjóðleg
samsýning tíu listamanna
sem hafa ólíkan bakgrunn
og vinna með ólíkan efnivið.
Listamennirnir eru frá
Bretlandi, Danmörku,
Grikklandi, Sviss, Þýska-
landi og Ástralíu.
Endilega ...
... skoðið
myndlist
Morgunblaðið/Þorkell
SÍM Sýningin er í húsi við Hafnarstræti 16.
Farandsýning á myndskreytingum í
íslenskum barnabókum frá árinu
2013 stendur nú yfir í Gerðubergi
og stendur til 30. mars.
Þetta er í tólfta skiptið sem sýn-
ingin er haldin og er hún orðin fast-
ur liður í starfsemi menningar-
miðstöðvarinnar. Sýningunni hefur
verið sköpuð skemmtileg og barn-
væn umgjörð á efri hæð Gerðu-
bergs. Þar verða sýndar myndir eftir
26 myndskreyta.
Í samvinnu við Borgarbókasafnið
verður öllum átta ára skólabörnum í
Reykjavík boðið að skoða sýninguna.
Krakkar utan höfuðborgarsvæðisins
fá líka tækifæri til að njóta mynd-
anna og bókanna því Þetta vilja
börnin sjá! er farandsýning sem
leggur land undir fót þegar sýning-
artímanum í Gerðubergi lýkur.
Myndskreytingarnar hafa vakið
athygli utan sýningarinnar og hafa
myndir ársins 2012 verið sýndar á
sex stöðum utan Reykjavíkur og
þegar liggja fyrir pantanir frá
áhugasömum sýningaraðilum víða
um land vegna nýju sýningarinnar.
Myndskreytingar íslenskra barnabóka til sýnis
Þetta er það sem börnin vilja
sjá! Sýning í Gerðubergi
Sýningin Umgjörðin er skemmtileg fyrir unga sem aldna. Myndin er frá 2012.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
ÞJÓÐLEG
ÞORRAHLAÐBORÐ
FRÁVEISLULIST
Súrmatur
Hrútspungar, súr sviðasulta, lun-
dabaggar, bringukollar, lifrapylsa
og blóðmör.
Þorrakonfekt
Hákarl, harðfiskur, hvalrengi, mari-
neruð síld og kryddsíld.
Kjötmeti og nýmeti
Hangikjöt, pressuð svið, lifrapylsa
og blóðmör.
Heitir réttir
Sviðakjammi, saltkjöt, rófu-
stappa, kartöflur og jafningur.
Meðlæti
Rúgbrauð, flatbrauð, smjör,
grænmetissalat, grænar baunir og
grænmeti
Fari fjöldi yfir 40 manns bjóðum
við Stroganoff pottrétt með hrís-
grjónum og steiktum kartöflum,
sé þess óskað.
Matreislumenn fylgja veislu eftir
fari fjöldi yfir 60 manns.
www.veislulist.is
3.000.-
Verð f
rá
fyrir s
tærri
hópa 3.500.-
Verð f
rá
fyrir s
tærri h
ópa í
(heim
ahús/
sali.)
Allt um þorramatinn, verð, veislur
og veislusal á heimasíðu okkarHólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
ÞORRAMATUR
Í LOKJANÚARBLÓTUMVIÐÞORRANNEINSO
GSÖNNUM
ÍSLENDINGUMSÆMIR. Súrmatinn útbúum v
ið sjálfir frá grunni
og byrjar undirbúningur þessa skemmtileg
a tíma strax að
hausti. Þorramatinn er hægt að fá senda í s
ali, heimahús og
panta í veislusal okkar.
Skútan