Morgunblaðið - 29.01.2014, Síða 11
Ljósmynd/Jón Viðar Sigurðsson
Ævintýralegt Ljómi er yfir Uummannaq þar sem fjöllin gnæfa hátt yfir bænum og ísjakarnir vagga á haffletinum.
sérstakan stað fyrir margra hluta
sakir.
„Náttúran er stórbrotin, há fjöll
og miklir jöklar og mikið af ísjökum
alltaf á hafinu og síðan eru þarna í
kring sjö lítil þorp fyrir utan Uum-
mannaq og þetta er svona veiði-
mannasamfélag og maður fer aðeins
aftur í tímann þegar maður fer
þangað. Mannlífið þar er líka mjög
heillandi því þetta er svo afslappað
og rólegt og þarna lifir fólk í svo
nánum tengslum við náttúruna. Það
er þetta samspil mannlífs og náttúru
sem gerir þetta svæði svo sérstakt,“
útskýrir Jón Viðar.
Þarna er kyrrðin ekki rofin með
gjammandi síma eða hringjandi
klukkum. Fólk er ekki að velta tím-
anum fyrir sér, segir Jón Viðar og
kann því afskaplega vel sjálfur.
Aðrir hnettir og hafís
Þarna eru engir tveir staðir
tengdir við vegi og því lítið að gera
fyrir ökuþóra. „Menn nota báta á
sumrin og þyrlur á veturna en ef það
er ís þá fara menn bara út á ísinn og
keyra á milli staða. Þeir fara bara á
fleygiferð en þetta hefur breyst mik-
ið. Þegar ég byrjaði að þvælast
þarna 1995 þá lagði alltaf vel á vet-
urna og menn gátu keyrt nánast
hvert sem er á ísnum en breyting-
arnar eru alveg svakalegar því ísinn
er minni og þynnri þannig að þetta
er erfitt í dag,“ segir Jón Viðar.
Loftslagsbreytingar hafa því haft
töluverð áhrif á lífið í Uummannaq
en Jón Viðar hefur ekki trú á að
byggð leggist þar af. Til þess er
staðurinn of góður.
Annað kvöld, fimmtudaginn 30.
janúar klukkan 20, mun Jón Viðar
segja nánar frá þessum merkilega
stað og sýna ljósmyndir í Norræna
húsinu. Allir eru velkomnir og er að-
gangur ókeypis. Þar mun Jón Viðar
meðal annars segja frá áhugaverðum
tengslum Íslendinga við staðinn frá
því 1930 þegar þýski landkönnuður-
inn Alfred Wegener reisti þar veður-
athugunarstöð með hjálp góðra
manna. Að ógleymdum sögum heima-
manna af heimsóknum nokkurra for-
vitinna geimvera sem sagt er að hafi
komið til Uummannaq árið 1986.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014
Landvernd hefur boðið alþingis-
mönnum, náttúruverndarfólki og öll-
um sem áhuga hafa á verndun há-
lendis Íslands á myndasýningu og
stefnumót í kvöld á Alþingisreitnum.
Hefst sýningin klukkan 18 og stendur
í um klukkustund. Markmiðið með
sýningunni er að opna fyrir umræður
um fyrirhugaðar framkvæmdir á há-
lendi Íslands.
Í viðburðarlýsingu á Facebook seg-
ir meðal annars: „Uppi eru hug-
myndir um vel á annan tug virkjana
með tilheyrandi háspennulínum, upp-
byggða vegi um Kjöl og Sprengisand,
að ógleymdri stórri háspennulínu yfir
Sprengisand. Framkvæmdirnar, ef
fram ná að ganga, munu eyðileggja
hálendið í þeirri mynd sem við þekkj-
um það.“
Fyrir fimm mánuðum hóf Land-
vernd baráttuverkefni til varnar há-
lendi Íslands. Verkefnið nefnist Há-
lendið – hjarta landsins og má
fræðast nánar um það á vefsíðunni
www.hjartalandsins.is (ensk útgáfa
er á www.heartoficeland.org). Við-
burðurinn á Alþingisreitnum í kvöld
er hluti af þessu verkefni og ætlað að
vekja athygli á að hálendi íslands sé
eitt stærsta landsvæði í Evrópu,
sunnan heimskautsbaugs, sem hefur
aldrei verið numið af mönnum. Á vef-
síðu verkefnisins er ýmsar upplýs-
ingar að finna. Þar er meðal annars
vísað í nýlega rannsókn sem gerð var
við Háskóla Íslands sem sýnir að víð-
erni á hálendinu minnkuðu um 68%
frá 1936 til 2010.
Vonast aðstandendur til þess að
sem flestir mæti, bæði til að skoða
myndirnar en einnig til að njóta síð-
degisstundar við Alþingishúsið og
ræða málin við þingmenn og aðra.
Stefnumót á Alþingisreitnum í kvöld
Morgunblaðið/Einar Falur
Frá Kili Markmið sýningarinnar er að opna fyrir umræður um verndun hálendis.
Barátta til verndar hálendinu
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
0
24
3
jonogoskar.is Sími 552 4910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Á tilboðsdögum bjóðum við allt að
50% afslátt í verslunum okkar frá
miðvikudegi til sunnudags.
Verið velkomin!
Tilboðsdagar
Trúlofunar- og giftingarhringar 20% afsl.
Skartgripir úr gulli 20% afsl.
Skartgripir úr silfri 20% afsl.
Öll úr 20% afsl.
Valdar vörur 30–50% afsl.
FimMið Fös Lau Sun
10–18.30 10–21 10–19 10–18 13–18
11–19 11–21 11–19 11–18 13–18
10–18 10–18 10–18 11–17 Lokað
Kringla
Smáralind
Laugavegur
Opnunartímar
30-50% afsláttur af völdum vörum
20% afsláttur af öllum öðrum vörum