Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014 ✝ Valný Bárðar-dóttir fæddist á Hellissandi 24. októ- ber 1917. Hún and- aðist á hjúkrunar- deild Hrafnistu í Reykjavík 17. jan- úar 2014. Foreldrar henn- ar voru Guðlaug Pétursdóttir hús- móðir frá Ingjalds- hóli, f. 13.8. 1895, d. 16.2. 1986, og Bárður Helgi Jón- asson sjómaður, f. 13.6. 1894, d. 25.7. 1964. Valný var elst sex systkina. Þau eru: Gunnleif, f. 1919, d. 2002; Pétur, f. 1920, d. 2011; Kristín, f. 1921, d. 2010; Guðrún, f. 1924, d. 2011; og Jón Jónas, f. 1925, sem nú er einn á lífi þeirra systkina. Valný giftist 23. október 1943 eiginmanni sínum, Helga Sæ- mundssyni ritstjóra og skáldi, f. 17.7. 1920, d. 18.2. 2004. For- eldrar hans voru hjónin Ástríður Helgadóttir, f. 28.8. 1883, d. 30.11. 1970, og Sæmundur Bene- diktssson, f. 6.12. 1879, d. 5.9. 1955. Valný og Helgi eignuðust níu syni. Þeir eru: 1) Helgi Elías, f. 31.5. 1944, kvæntur Ásdísi Ásmundsdóttur, f. 1946. Synir þeirra eru: a) Ás- mundur, f. 1969, kvæntur Sigur- 1975, gift Antoni Sigurðssyni. Börn þeirra eru Birta Mjöll, Ótt- ar og Sveinn Atli. 8) Sigurður, f. 1.10. 1954, kvæntur Önnu Ólafsdóttur, f. 1951. Börn þeirra eru: a) Stefán Ólafur, f. 1978, sambýliskona Sigríður Sunna Aradóttir. Þau eiga tvö börn, Sigurð Ara og Auði Emblu. b) Alma, f. 1981, sambýlismaður Jónas Magn- ússon. Sonur þeirra er Magnús Sigurður. c) Sigríður, sambýlis- maður Egill Þorbergsson. 9) Bárður, f. 30.7. 1961, kvæntur Svanhildi Jónsdóttur, f. 1961. Börn þeirra eru: a) Ragnheiður, f. 1987, gift Mads Gelting; b) Helgi, f. 1990. Valný ólst upp á Hellissandi, elst í fjölmennum systkinahóp. Hún lauk barnaskólaprófi frá Barnaskóla Hellissands með góð- um vitnisburði. Fjórtán ára og nýfermd flutti hún til Reykjavík- ur og réðst þá fljótlega í vist hjá Gyðu Gunnarsdóttur og Ólafi R. Björnssyni stórkaupmanni, sem reyndust henni afar vel. Valný vann um skeið á saumastofu uns heimils- og uppeldisstörf á stóru heimili tóku við. Valný og Helgi bjuggu öll sín fullorðinsár í Reykjavík, lengst á Holtsgötu 23 og Miklubraut 60. Síðustu tíu ár- in bjó Valný á Hrafnistu í Reykja- vík. Útför Valnýjar fer fram frá Áskirkju í dag, 29. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 13. borgu S. Guð- mundsdóttur, og eiga þau fjögur börn, Líneyju Rut, Helga Guðmund, Ásdísi Emblu og Baldur Jökul. b) Helgi Sæmundur, f. 1975, sambýliskona Emma Lindahl. Sonur þeirra er Viktor Tumi. c) Bárður Ingi, f. 1984, sambýliskona Dóra Marteins- dóttir. Sonur þeirra er Marteinn Elías. 2) Óskírður drengur (tví- buri), f. 31.5. 1944, d. sama dag. 3) Gunnar, f. 20.6. 1946, d. 6.1. 1947. 4) Gísli Már, f. 14.11. 1947. 5) Sæmundur, f. 5.7. 1949, d. 21.11. 1973. 6) Gunnar Hans, f. 4.5. 1951, kvæntur Sigrúnu Þórð- ardóttur, f. 1948. Börn þeirra eru: a) Þórður Viðar, f. 1975. b) Steinunn, f. 1978, sambýlismaður Birgir Steinn Björnsson. Börn þeirra eru Sigrún Ísgerður og Andri Bergur. c) Gunnar Ingi, f. 1987, sambýliskona Katrín Magnúsdóttir. 7) Óttar, f. 5.5. 1953, d. 2.9. 1996, var kvæntur Ásdísi Stefánsdóttur, f, 1952. Dætur þeirra eru: a) Unnur Helga, f. 1970, gift Ólafi Ingvari Arnarsyni. Börn þeirra eru Arna Dís og Dagur Fannar. b) Valný, f. Kær tengdamóðir mín, Valný Bárðardóttir, er nú kvödd eftir langa, annasama og gefandi ævi. Ég kynntist Valnýju fyrst fyrir hartnær 50 árum þegar ég kom inn í fjölskyldu hennar. Það sem fyrst vakti athygli mína var hversu glæsileg og falleg kona hún var, dökk á brún og brá og með stór og falleg, brún augu. Hún stýrði þá stóru heimili með eiginmanni og 7 fjörmiklum son- um af mikilli röggsemi. Hún var frábær húsmóðir og afar vand- virk í öllum sínum verkum. Alla tíð var mjög gestkvæmt á heimili hennar og Helga, eiginmanns hennar, og allir velkomnir, ungir sem gamlir. Segja má að á tíma- bili hafi heimili þeirra verið eins konar miðstöð fjölskyldna beggja. Þar var tekið á móti öll- um af sömu gestrisni. Valný ólst upp á Hellissandi fyrstu 14 ár ævi sinnar og var elst 6 systkina 4 systra og 2 bræðra. Sem elsta systir lærði hún snemma að sýna mikla ábyrgðartilfinningu. Ein- stakt var hversu mikil ástúð og samheldni ríkti á milli þeirra systkina alla tíð. Þeir eiginleikar sem koma upp í hugann þegar Valnýjar er minnst eru hlýja, umhyggja, gestrisni, heiðarleiki, hógværð. Hún var ekki mikið fyrir að trana sér fram, en lét frekar verkin tala. Hún hafði þó sínar skoðanir í pólitík sem öðru og minnisstætt er mér þegar við skiptumst á skoðunum varðandi kynjahlut- verkin þar sem mér fannst Valný frekar fastheldin á gamlar venj- ur. Allt var þetta þó í góðu og við jafn góðar vinkonur á eftir. Nokkrar ferðir fórum við saman fjölskylda mín og hún og Helgi eða bara hún og við til Danmerk- ur og gaman var að sjá hve vel hún naut þessara ferða og var forvitin og vildi fræðast um alla hluti. Valný var fyrst og fremst fjölskyldukona og lét sér afar annt um velferð allra sinna af- komenda og vildi fylgjast með lífi þeirra og þroska. Valný var mikil barnakona. Ég held hún hafi einhvern tímann gætt allra sinna 14 barnabarna um lengri eða skemmri tíma. Allt fram á síðustu daga hennar á Hrafnistu brosti hún sínu fallega brosi og blik kom í auga ekki síst þegar litlu langömmubörnin komu í heimsókn. Á stóru heimili gafst ekki mikill tími til bóklest- urs eða annarra tómstunda. Eftir að Valný flutti á Hrafnistu varð bóklestur hins vegar hennar helsta áhugamál. Ljóðabækur og ævisögur voru vinsælastar. Fjöl- skyldan hafði varla við að færa henni bækur til lesturs. 600 blað- síðna ævisögur uxu henni ekki í augum. Oft áttum við skemmti- legar stundir er við ræddum bækurnar og innihald þeirra. Ég kveð tengdamóður mína með söknuði og þakklæti fyrir alla þá umhyggju sem hún alla tíð sýndi mér og fjölskyldu minni. Ásdís Ásmundsdóttir. Oft er kvíði í fólki er það hittir tengdafólk sitt í fyrsta sinn, man samt ekki hvort það átti við mig er ég hitti tengdamóður mína fyrst. Þar mætti mér myndarleg, lágvaxin, silfurhærð kona með fallega brún augu sem tók strax utan um mig og bauð mig vel- komna í fjölskylduna. Kvíði eða ótti var ástæðulaus og ég fann hvað ég var velkomin strax frá fyrstu stundu. Ég kallaði tengdamóður mína alltaf Völlu líkt og systur hennar gerðu, en mikill kærleikur var með þeim systrum og systkinum öllum. Valla var þeirra elst og mjög umhyggjusöm við systkini sín og systkinabörn. Þær systur voru duglegar að hittast eða höfðu daglega símasamband og höfðu ætíð næg málefni að spjalla um. Það var alltaf gaman að koma við á Miklubrautinni og hitta á þessi myndarlegu systkini og frétta af stórfjölskyldunni allri. Það er líka gaman að sjá hvað er sterkur ættarsvipur með mörgum í ættinni og ekki spillir að brúnu augun eru þar ríkjandi. Valla var mikil fjölskyldukona, var mjög annt um barnabörnin og passaði þau mörg hver ósjald- an. Börnin mín eiga margar góð- ar minningar af Miklubrautinni þegar komið var í heimsókn til ömmu og afa á sunnudögum. Oft var tekin skák við afa meðan amma stóð við eldavélina og bak- aði pönnukökur í gríð og erg enda vinsælt hjá mörgum að kíkja við í kaffi og pönnsur á sunnudögum. Held að barna- börnin hennar sakni þess mikið að fá ekki heimsins bestu pönnu- kökur lengur því ekki gat amma gefið upp uppskriftina, bara áætlaði þetta í hvert skipti. Það má segja að Valla hafi verið snill- ingur í bakstri, bakaði voða fínar og góðar smákökur fyrir jólin sem hún nostraði við. Ég hef bakað eina sort af smákökum frá henni en mínar hafa ekki verið eins fínar og kökurnar hennar. Tengdaforeldrar mínir gengu í gegnum þungar raunir að missa fjóra syni sína, það er átakanlegt að missa barnið sitt hvað þá börn. Valla leitaði sterkt í trúna og eflaust hefur það verið til að sefa sorgina. Hún kunni margar vísur og sálma og fór með það þegar við átti. Valla var mikil handverks- kona, saumaði mikið og bróder- aði eitthvað fínt á synina þegar þeir voru litlir. Þegar hún kynnt- ist svo Guðrúnu systur minni, þá leiddi Guðrún hana inn í fé- lagsstarfið í Gerðubergi og þar naut Valla sín vel við postulíns- málun ásamt því að fara í helgi- stundir þar sem gáfu henni mik- ið. Hún gerði marga fallega muni sem hún færði fjölskyldunni sinni og dýrmætt er að eiga nú. Það eru fallegar og góðar minningar sem Valla tengdamóð- ir mín skilur eftir sig og þær verða varðveittar um ókomna tíð. Ég þakka henni samfylgdina og bið Guð að geyma hana. Mig langar að kveðja hana með ljóð- inu Vegurinn heim eftir kæran tengdaföður minn, Helga Sæ- mundsson. Senn er leiðin á enda, sumarið horfin tíð. Mun þó helkuldann lifa minningin skær og blíð. Húmið skelfir mig eigi, hljóðláta vetrarnótt. Bráðum í mjúkri hvílu blunda ég sælt og rótt. Ljómandi stjörnuskari leiftrar um dimman geim. Ljósin í gluggum himins lýsa mér – veginn heim. Svanhildur. Ég er svo heppin að eiga ótelj- andi góðar minningar um Völlu ömmu. Amma mín var afskap- lega hlý, barngóð og ljúf kona og við í fjölskyldunni nutum þess vel og þá sérstaklega við barnabörn- in. Amma sá alltaf til þess að allt væri til staðar fyrir okkur og enginn skilinn útundan. Oft sat ég á eldhúsbekknum hjá henni þar sem hún stóð fyrir framan eldavélina og bakaði bestu pönnukökur í heimi. Um leið sönglaði hún lagstúfa og spjallaði við mig um alla heima og geima. Þeim pönnukökum sem ekki stóðust hinar ströngu gæðakröf- ur ömmu til að vera bornar fram með kaffinu inni í stofu, fékk ég glöð að gæða mér á. Amma var nefnilega „vaskeægte“ húsmóðir af gamla skólanum. Hún gat eld- að og bakað eins og bestu meist- arakokkar og samt var hún hóg- værðin uppmáluð þegar henni var hrósað fyrir herlegheitin. Hún sagði skoðanir sínar um- búðalaust og var óhrædd við það þrátt fyrir að „gelgjan“ ég hafi ekki verið par sátt með samlík- inguna á nýju klippingunni minni og hárkollu. Ég var líklega níu ára þegar mamma kenndi mér að kveðja alltaf fólk sem mér þætti vænt um fallega, þá sérstaklega ömm- ur og afa, þar sem maður veit aldrei hvað langan tíma maður getur átt með ástvinum sínum. Þessi orð mömmu ollu mér kvíða og áhyggjum enda langaði mig alls ekki að missa neinn. Ég ræddi þessar áhyggjur mínar við ömmu sem sannfærði mig um, að hún væri alls ekki að fara neitt. Hún ætlaði að minnsta kosti að sjá mig gifta mig fyrst. Amma mín stóð að sjálfsögðu við orð sín og mér þótti virkilega vænt um að hún var viðstödd brúðkaup okkar Mads á síðasta ári. Það er kominn tími til að kveðja og eftir lifa fallegar minn- ingar um góða konu sem mér mun alltaf þykja afskaplega vænt um. Kemur napur að norðan næðíngur éli líkur hverri sem lokar leið. Allt sem vordísir vöktu vonglaða sólskinsdaga endar sitt aldursskeið. Dauðann óttast ég ekki óðum þó birta dvíni að þegar feigð mín fer. Horfinna vina hendur handanvið myrkur grafar taka á móti mér. (Helgi Sæmundsson.) Guð blessi þig. Ragnheiður. Aðfaranótt föstudagsins 17. janúar lauk rúmlega 96 ára við- burðaríkri ævi ömmu minnar. Það er undarlegt til þess að hugsa að samverustundirnar með henni verði ekki fleiri í þessu lífi. Hún á nefnilega all- stóran þátt í æskuminningum mínum. Stutt var að rölta frá Blönduhlíðinni upp á Miklubraut og alltaf gat maður treyst því að þar mætti manni blítt viðmót ömmu og afa sem kvaddi þetta líf fyrir tæpum tíu árum síðan. Þar var maður alltaf aufúsugestur. Mér er minnistætt hvernig hún gaf sér ætíð tíma til að sinna barnabörnum sínum og spjalla við okkur um hitt og þetta á milli þess sem hún bakaði gómsætar pönnukökurnar, vöfflurnar eða kökurnar og hellti upp á kaffi fyrir fullorðna fólkið. Sérstak- lega er mér minnisstætt tímabil þar sem ég sem polli kom vart í heimsókn til þeirra án þess að finna eina þeirra fjölmörgu bóka sem prýddu heimilið, fletti upp í henni þar til ég fann ljóð sem ég hafði lært í skólanum, Maístjörn- una eftir Laxness. Það sungum við síðan saman okkur báðum til mikillar ánægju. Rödd ömmu í lifanda lífi er nú hljóðnuð og eins og litli drengurinn minn, hann Marteinn Elías, orðar það er „langamma Valný komin til Guðs og Jesú.“ Hinum megin hafa afi og þeir synir hennar sem kvöddu þetta líf allt of snemma þurft að bíða eftir henni en fá nú loks að njóta samvistar við hana á ný. Mig langar að þakka þér, amma mín, fyrir samfylgdina og bið að heilsa öllu því góða fólki sem ugglaust hefur tekið vel á móti þér hinum megin. Bárður Ingi. Amma var af þeirri kynslóð kvenna sem helgaði líf sitt öðrum en sjálfri sér. Ég veit ekki hversu vel ég kynntist henni í raun því einhvern veginn var hún bara þarna, bakaði pönnukökur fyrir okkur afa, sauð tuttugu pulsur ofan í okkur á einu kvöldi með dýrindis kartöflumús. Heimur ömmu var heimur fjölskyldunn- ar, hún lifði fyrir okkur. Hún leit á það sem heilaga skyldu sína að annast bónda sinn, börnin og barnabörnin. Einhvern tíma var þessum viðhorfum víst bylt en aldrei efaðist amma um sitt hlut- verk og aldrei held ég að hún hafi harmað það. Ég efast um að ég eigi eftir að kynnast gestrisnari og elskulegri manneskju en ömmu minni sem ljómaði ávallt upp þegar ungan mann í tilvist- arkreppu bar að garði. Að koma á Miklubrautina var alltaf svolít- ið eins og að kúpla sig út úr hversdeginum og tilvistarlegar vangaveltur leystust iðulega upp í pönnukökuilmi og fallega bros- inu hennar ömmu. Þá var heim- urinn þar og hvergi annars stað- ar. Mér leið alltaf vel í návist ömmu, jafnvel þegar hún hlust- aði ekki á óskir mínar. Ég segi ekki að ég hafi alltaf verið að deyja úr kaffiþorsta þegar ég leit við á Miklubrautinni en hálfur bolli kom aldrei til greina. Og auðvitað voru allar sortir dregn- ar fram, maður þráði kannski nokkrar kleinur en fyrr en varði blöstu þær systur við brúnkaka, jólakaka og randalína. Svona var amma – á sífelldum þeytingi fyrir okkur barnabörnin. Þegar ég var strákur var stórveisla á hverjum sunnudegi á Holtsgötunni. Þá kom stórfjölskyldan saman og gæddi sér á nýbökuðum kleinum, rjómapönnukökum og jellótert- unni eftirminnilegu. Klukkan sex safnaðist krakkaskarinn saman fyrir framan skjáinn en oftast heyrði maður lítið í Bryndísi á þessum árum. Mörgum liggur nefnilega nokkuð hátt rómurinn í þessari fjölskyldu. Samband okkar ömmu var ekki flókið en alltaf fannst mér eins og henni þætti ákaflega vænt um mig. Mér er sérstaklega minnisstætt hvernig hún sam- gladdist mér ævinlega á góðum stundum. Elsku amma, hvíl í friði. Helgi Sæmundur. Í dag verður amma Valný jarðsett. Eins og títt er um barnabörn kynntist ég henni þegar hún var komin fram yfir miðjan aldur. Með augum barna- barnsins var hún einhver falleg- asta kona veraldar, óspör á alla þá hlýju og ástúð sem hún sýndi á sinn ljúfa og áreynslulausa hátt. Aldrei var hún með um- vandanir við guttann, heldur ró- leg og yfirveguð, enda vön strákum, hafði sjálf átt átta drengi. Um leið einsetti hún sér að láta honum líða eins og blóma í eggi, líkt og öllum sem sóttu hana heim, góðgæti á borðum og sykurvatn í flöskum. Þegar barnabarnið fór síðan að venja komur sínar til ömmu og afa á Miklubraut með unnustu og litlu börnin sín tók amma Valný ávallt á móti unga fólkinu með þessari sömu, mildu ástúð og væntum- þykju. Barnabarnabörnin og hún Sibba mín nutu því einnig gest- risni hennar ömmu Valnýjar og eiga margar ljúfar minningar um hana. Amma var gjafmild kona en viðkvæm sál. Þel hennar hafði mótast í eldi áfalla og óvissu um heilsufar afa Helga, en hún vann úr þessari reynslu á sinn hátt með hjálp trúar á æðri máttar- völd. Oft heyrði maður hana söngla lágt fyrir munni sér eitt- hvað sem hljóta að hafa verið gamlir sálmar sem hún lærði í æsku undir jökli. Það var eins og þeir spryttu áreynslulaust fram án þess að hún tæki mikið eftir því sjálf, sóttir í djúp minning- anna til að lina sársauka og bæta heiminn. Amma Valný finnur ekki lengur til, en minningin um ljúfa nærveru hennar heldur þó áfram að lina sársauka og gera heiminn betri. Fyrir það erum við þakklát. Ásmundur Helgason. Kynni mín af Valnýju Bárðar- dóttur voru ekki mikil. En þau voru þess eðlis að ég hlýt að minnast hennar nú þegar hún kveður. Þær unnu saman um hríð, Valný og tengdamóðir mín heit- in, Svanhildur Jónsdóttir, sem lést 1994. Svanhildur var um margt sérstæð kona. Hún var af- skiptalítil við aðra og aðrir við hana. En svo fór að Valný vann traust hennar með nærgætni sinni og ljúfri framkomu. Slíkt gerðist ekki oft í lífi Svanhildar. Og Svanhildur gerði hana að sinni trúnaðarvinu. Valný gleymdi Svanhildi aldr- ei og heimsótti hana til hinstu stundar. Víst er að Svanhildur mat það mikils. Það vissum við Jón og ræddum oft. Og nú þegar Jón er allur þá er það ljúf skylda mín að þakka þessari góðu konu fyrir það sem hún, af góðvild sinni og örlæti, gerði fyrir Svan- hildi og þar með okkur Jón. Það var í raun ómetanlegt. Ástvinum Valnýjar sendi mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Margrét Jónsdóttir. Valný Bárðardóttir ✝ Elskuleg móðir, amma, langamma og langalangamma, JÓHANNA JÚLÍA SIGURÐARDÓTTIR frá Skuld í Vestmannaeyjum, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn 21. janúar, verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 31. janúar kl. 13.00. Ingunn Guðmundsdóttir, Gunnar Steinn Karlsson, Ævar Guðmundsson, Ingibjörg Bjarnadóttir, Jón Guðmundsson, Erla Guðmundsdóttir, Reynir Reynisson, Ásta Júlía Theodórsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI AXEL DAVÍÐSSON, Aragerði 7, Vogum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtu- daginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju laugar- daginn 1. febrúar kl. 13.00. Árný Helgadóttir, Margrét H. Helgadóttir, Lúðvík Þór Nordgulen, Hanna S. Helgadóttir, Kristján Kristmannsson, Davíð S. Helgason, Dagbjört Ásgeirsdóttir, Vilborg S. Helgadóttir, Sigurjón Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.