Morgunblaðið - 03.01.2014, Qupperneq 6
’Vatn hefur mikinnlækningar- ogheilunarmátt.
V
atn hefur mikinn lækn-
ingar- og heilunarmátt og
víst er að við eigum nóg af
því á Íslandi. Hugmyndin
byggist á því að nýta þessa
auðlegð til heilsubótar og auðga um
leið baðmenningu okkar,“ segir Unn-
ur Valdís Kristjánsdóttir hönnuður
um Float-vörulínu sína, flothettu og
fótaflot, sem þróaðist út frá verkefni
við Listaháskóla Íslands.
„Float miðar að því að upplifa vel-
líðan í vatni, losa um streitu og eiga
nærandi kyrrðarstund. Rannsóknir
sýna að flot er einstaklega róandi og
við það eitt að sleppa tökunum og
leyfa sér að fljóta um í þyngdarleysi
eiga sér stað ákveðin efnaskipti í lík-
amanum. Streituvaldandi hormón,
adrenalín og kortisól, víkja fyrir ham-
ingjuhormóninu endorfíni og beta-
endorfíni sem dregur úr sársauka og
verkjum.
Þegar líkaminn er þannig umluk-
inn vatni hægir á huganum, heila-
hvelin samstillast og dýpra stig slök-
unar næst, eða svokallað
þetabylgjuástand en það er hið ómót-
stæðilega notalega ástand sem skap-
ast rétt áður en við svífum inn í svefn-
inn, þegar alger ró færist yfir okkur.“
Nýir baðsiðir
Aðspurð segist Unnur alltaf hafa
heillast af vatni. „Ég hef stundað
sundlaugarnar frá því að ég var barn,
eins og þorri þjóðarinnar, og syndi
jafnframt í sjónum. Float varð því
ekki til fyrir hreina tilviljun og nær
ekki bara til hönnunar á flotstuðn-
ingsvörum; verkefnið snýst að miklu
leyti um að innleiða nýja siði í bað-
menningu okkar, sem miða að nær-
andi stund í kyrrð og ró, og vekja at-
hygli á áhugaverðum
nýtingarmöguleikum vatns.
Vatnið er dýrmætasta auðlind Ís-
lands og enginn þarf að efast um slök-
unar- og endurnærandi mátt þess.
Flot veitir frelsi frá öllu utanaðkom-
andi áreiti. Það skapar aðstæður til
djúpslökunar og þegar þyngdaraflinu
sleppir fá þeir hlutar líkamans frí sem
bera mesta þungann; miðtaugakerfið,
vöðvarnir og hryggjarsúlan. Um leið
leysist mikilvæg orka úr læðingi sem
breytir um farveg og efnaskipti eiga
sér stað án áreynslu. Þetta er öflug,
nærandi orka sem nýtist okkar innri
líffærum til eflingar og endurnýjunar
á skemmri tíma en annars.“
Samflot á Nesinu
Unnur segir Float-vörurnar hafa
fengið mjög góðar viðtökur, bæði hjá
Íslendingum og erlendum ferða-
mönnum, en þær eru m.a. fáanlegar í
Spark á Klapparstíg, Sóley Natura
Spa, Bláa Lóninu og Systrasamlag-
inu á Seltjarnarnesi. „Við leggjum
mikla áherslu á samstarf við aðila
sem starfa á sviði heilsu, ferða- og
menningarmála. Samstarf við Sóley
Natura Spa varð mér hvati til að gera
alvöru úr þróun og framleiðslu vöru-
línunnar og gat af sér sérstaka flot-
tíma þar sem vörur Float eru í lyk-
ilhlutverki.
Í framhaldinu fæddist hugmyndin
að Samfloti í Sundlaug Seltjarn-
arness. Verkefnið hefur verið í gangi
frá því sl. haust en tvö kvöld í viku er
hluti sundlaugarinnar afmarkaður
fyrir þá sem vilja njóta fljótandi slök-
unar. Í samflotinu hefur myndast
mjög falleg stemning; þessi kyrrð-
arstund sameinar allt það góða sem
sundstaður býður upp á, heilandi
mátt vatnsins og gefandi sam-
verustund. Hugmyndin er svo að út-
víkka samflotið í vetur með stjörnu-
og norðurljósaskoðun.“
Hún bendir á að flotið sé alls ekki
bundið við sundlaugar. „Í Neslaug
getur fólk komið og prófað og síðan
getur hver stundað sína fljótandi
slökun eins og hentar; í sundi, í sjón-
um, í fallegri náttúrulaug eða í heita
pottinum í bústaðnum.“
Sundhof í 101
Unnur segir það von sína að sam-
flot verði innleitt í fleiri sundlaugum
og draumurinn sé auðvitað að það
verði í boði um land allt. „Ég sé mikla
möguleika í ferðaþjónustu þar sem
hægt væri að tengja Float saman við
áhugaverða og nærandi vatnsupp-
lifun, bæði meðal erlendra og ís-
lenskra ferðamanna. Ísland er land
vatnsauðlegðar og hér eru kjörað-
stæður fyrir nýsköpun og frumlega
hugsun á sviði vatnsmeðferðar til
heilsueflingar.
Ég geng með þá hugmynd í mag-
anum að koma upp sundhofi í
Reykjavík, ólíkt hefðbundnum laug-
um, þar sem áhersla yrði lögð á kyrrð
og ró og heilandi vatnsupplifun.
Framtíðin liggur í núvitundinni, fólk
er orðið þreytt á hraðanum og spenn-
unni og leitar nú frekar inn á við.
Sundhofið yrði í þeim anda, það
myndi ekki fá á sig lúxusstimpil held-
ur vera aðgengilegt öllum í einfald-
leika sínum og sérlega freistandi fyrir
ferðamenn.“
Aðspurð kveðst Unnur hafa rætt
málið við ýmsa aðila og margir deili
með henni áhuganum á því að reisa
annars konar baðhús, t.d. við höfnina
í Reykjavík. „Við eigum allt þetta
hreina, ómengaða vatn og sitjum á
gullkistu, nýtum okkur það. Hug-
myndin er fædd, nú lýsi ég eftir bjart-
sýnum fjárfestum sem vilja sjá feg-
urð í framkvæmd.“
beggo@mbl.is
Unnur Valdís Kristjáns-
dóttir stundar fljótandi
djúpslökun og hannaði í
því skyni vörulínuna Float.
Hún segir flotið nærandi,
bæði andlega og lík-
amlega, en hugmyndin að
baki sé að auðga bað-
menningu þjóðarinnar.
Ljósmynd/Gunnar Svanberg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framtíðarsýn „Ég geng með þá hugmynd í maganum að koma upp sundhofi í Reykjavík, ólíkt hefðbundnum laugum, þar sem áhersla yrði lögð
á kyrrð og ró og heilandi vatnsupplifun,“ segir Unnur Valdís Kristjánsdóttir.
Djúpslökun Hugleiðsla í vatni.
Varurð í vatni
6 | MORGUNBLAÐIÐ