Morgunblaðið - 03.01.2014, Blaðsíða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
dag að keppa í maraþonum.“
Hlaupahópurinn hittist á þriðju-
dögum, fimmtudögum og laug-
ardögum og ólíkar áherslur í hvert
skiptið. „Þriðjudagsæfingarnar ein-
blína á hraðaþjálfun og styrktaræf-
ingar á meðan fimmtudagar eru
helgaðir millilöngum hlaupum á
jöfnum hraða. Á laugardögum för-
um við svo í langt og rólegt skokk.
Við skiptum okkur upp í þrjá hópa á
hverri æfingu, eftir getustigi, svo
allir eiga að geta fengið þá þjálfun
og hreyfingu sem þeim hentar.“
Meðlimir hlaupahópsins æfa eftir
úthugsuðu kerfi sem miðar að því að
þeir taki stöðugum framförum.
Markmiðið er að byrjendur geti
a.m.k. tekið þátt í stuttu keppn-
ishlaupi að sumri ef þeir byrja að
æfa um miðjan vetur. „Við endum
árleg nýliðanámskeiðin okkar á mið-
næturhlaupi í Reykjavík þar sem
fólk getur valið þá vegalengd sem
því hugnast best, hvort heldur að
hlaupið er 5 km, 10 km eða hálf-
maraþon. Aðalatriðið í öllu starfi
haupahópsins er þó að hafa gaman
af því sem við erum að gera.“
Hófstillt gjöld
Að stunda hlaup er ódýr íþrótt og
líka skemmtileg að sögn Péturs.
Á
skömmum tíma hefur
myndast stór og öflugur
hlaupahópur í Hafn-
arfirði, Hlaupahópur FH.
Í dag eru virkir meðlimir
um hundrað talsins og mikið líf og
fjör á æfingum. „Við höfum hist þrjá
daga í viku frá stofnun hópsins í árs-
byrjun 2010 og æfingar aldrei fallið
niður, ekki einu sinni vegna veðurs,“
segir Pétur Smári Sigurgeirsson,
einn af þjálfurum hópsis.
Hlaupahópurinn er fjölbreyttur
og má þar finna fólk á aldrinum frá
18 til 65 ára, jafnt byrjendur sem
lengra komna. „Hópurinn verður til
sem félagsskapur áhugamanna og
margir þeir sem voru með okkur á
allra fyrstu æfingunum gátu þá vart
hlaupið á milli ljósastaura en eru í
Æfingagjöldin hjá hlaupahópnum
eru ekki nema 1.000 kr. á mánuði,
og rukkað fyrir hálft ár í senn.
Hann segir að það að hlaupa með
öðru fólki geri þessa íþrótt
skemmtilegri enda er maður manns
gaman. Það veiti fólki líka gott að-
hald að hlaupa með öðrum og vita
að þess er vænst á æfingum. „Við
lífgum enn frekar upp á starf
hlaupahópsins með því að skipu-
leggja hlaupaferðir bæði út fyrir
bæjarmörkin og út í heim. Höfum
við m.a. lagt leið okkar til Kölnar og
á þessu ári skellti stór hópur fólks
sér til Amsterdam til að keppa í
maraþoni eftir 16-20 vikna und-
irbúningstímabil. Við skipuleggjum
líka jólahlaup ár hvert og höldum
utan um hlaupaseríu Actavis. Ut-
anvegahlaup úti á landi eru reglu-
lega á dagskrá og vitaskuld má ekki
gleyma fjörugri árshátíð hlaupa-
hópsins.“
Gaman er að hlaupa í góðum fé-
lagsskap og ef þrekið og hraðinn
leyfir má oft spjalla um daginn og
veginn við hlaupafélagana á meðan.
„Við göntumst oft með það á æfing-
um að ef menn geta talað saman á
hraðahlaupsdögum þá eru þeir ekki
að reyna nógu mikið á sig, og ef þeir
geta ekki talað í rólegu hlaupunum
hlaupa þeir of hratt,“ segir Pétur
glettinn.
„Að æfa með hlaupurum sem eru
betri en maður sjálfur er líka örugg
leið til að bæta sig og til þess fallið
að maður reynir meira á sig en ella.
Hópurinn hefur líka á að skipa
reyndum þjáfurum sem hjálpa bæði
við að byggja upp þolið á fyrstu æf-
ingunum og leiðbeina eins og þörf
er á um hlaupastíl og útbúnað.
Tvisvar á ári höldum við síðan við ít-
arlega fræðslufundi þar sem farið er
í fræðin á bak við hlaupaíþróttina.“
Bakterían breiðir úr sér
Pétur segir greinilegt að hlaupa-
áhugi Íslendinga hafi tekið mikinn
kipp á síðustu árum. Sjálfur fékk
hann bakteríuna árið 2009 og hefur
síðan þá keppt í sjö maraþon-
hlaupum. „Mér virðist að á árunum
2008-2010 hafi orðið mikil fjölgun í
röðum hlaupafólks og hlaupahópar
víða sprottið upp. Þróunin er ekki
bara bundin við Ísland heldur á sér
stað um allan heim og er t.d. svo
komið að aðsóknin í mörg af stærri
maraþonhlaupum heims er svo mikil
að þátttakendur þurfa að skrá sig í
happdrætti til að eiga möguleika á
að komast að,“ segir hann. „Margt
má tína til sem gæti skýrt þróunina
hér á landi, s.s. hin fræga nýjunga-
girni Íslendinga og þörf á að
spreyta sig á nýrri tegund hreyf-
ingar. Mikil heilsuvakning hefur
líka orðið hja þjóðinni síðustu árin
og þá auðveldara að byrja að hlaupa
en að komast inn í margar aðrar
íþróttir. Svo er þetta ekki dýr íþrótt
að stunda á krepputímum og íþrótt
sem allir geta stundað óháð aldri,
þreki og holdafari. Ekki skemmir
heldur fyrir að sá sem hleypur
þrisvar í viku getur nánast látið það
eftir sér að borða hvað sem er enda
brennslan mikil.“
ai@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Skemmtilegast að hlaupa
í góðum félagsskap
Öflugur hlaupahópur hefur orðið til hjá FH á síðustu
árum. Æfingar fara fram í þremur hópum sem skiptast
eftir getustigi. Að hlaupa með öðrum veitir aðhald og
knýr fólk til að taka stöðugum framförum.
Sprettur „Við lífgum enn frekar upp á starf hlaupahópsins með því að skipuleggja hlaupa-
ferðir bæði út fyrir bæjarmörkin og út í heim. Höfum við m.a. lagt leið okkar til Kölnar og á
þessu ári skellti stór hópur fólks sér til Amsterdam til að keppa í maraþoni eftir 16-20 vikna
undirbúningstímabil,“ segir Pétur (t.h.) sem stillir sér hér upp með hluta af hlaupahópnum.
NÁMSKEIÐ: Losun á innri líffærum;
VISCERALMANIPULATION
haldið á Akureyri 24.-27. janúar 2014.
Kennari er Rita Benamor, DO, CST-D, BI-D, túlkað á Íslensku.
Kennt er að losa um líffæri, himnur og liðbönd kviðarhols.VM
vinnur með ójafnvægi í líkamanum. Samspil og hreyfingar á milli
líffæra, himna, bandvefs og liðbanda eru metnar og meðhöndlaðar.
Losar um verki, vanstarfsemi og lagar lélega líkamsstöðu.
Upplýsingar og skráning hjá Erlu Ólafsdóttur sjúkraþjálfara, CST
Sími: 863 0610 Netfang: erla@upledger.is
www.upledger.is
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AKUREYRARAPÓTEK, Kaupangi - LYFJAVER, Suðurlandsbraut 22
LYFJABORG, Borgartúni 28 -GARÐSAPÓTEK, Sogavegi 108
URÐARAPÓTEK, Grafarholti - ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 115
APÓTEK GARÐABÆJAR, Litlatúni 3 - REYKJAVÍKURAPÓTEK,
Seljavegi 2, APÓTEK HAFNARFJARÐAR, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!