Morgunblaðið - 03.01.2014, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.01.2014, Qupperneq 28
’Annars er andlegaformið einna mik-ilvægast. Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður „Ég reyni að hreyfa mig eitthvað alla daga. Hef undanfarið stundað jóga tvisvar til þrisvar sinnum í viku og farið í fótbolta og ræktina hina dag- ana. Svo er ég aftur byrjaður í jap- önskum skylmingum, sem ég hef æft og kennt í mörg ár. Mér finnst líka frá- bært að ganga á fjöll þegar viðrar til þess, eða bara fara í góðan göngutúr. Annars er andlega formið einna mikilvægast og þar koma inn hlutir eins og öndunaræfingar, hugleiðsla og fleira. Ég er aðeins byrjaður en stefni að því að leggja mun meiri áherslu á andlega þáttinn.“ Ísklifur og útivist Ertu nýjungagjarn þegar líkams- ræktin er annars vegar? „Mér finnst mjög gaman að prófa nýja hluti og fór t.d. fyrir stuttu í ís- klifur í fyrsta sinn. Undanfarin ár hef ég verið duglegur að fara í ræktina en í fyrra reyndi ég að einblína meira á „functional“ hreyfingu, þar sem maður notar allan líkamann, s.s. í skylming- unum. Á síðasta ári byrjaði ég líka að stunda hot yoga af miklum krafti og er mjög ánægður með það. Það er á dag- skránni að prófa ýmislegt fleira enda fæ ég reglulega æði fyrir einhverju nýju.“ Stundaðu útivist? „Á sumrin er ég mun meira úti. Þá reyni ég að fara sem oftast út í körfu- bolta, stunda fjallgöngur og fleira. Ann- ars er ekkert mál að hreyfa sig úti á veturna líka, maður þarf bara að klæða sig eftir veðri. Það stendur allt til bóta.“ Hvaða tími dagsins hentar þér best til heilsueflingar? „Ég er alveg ómögulegur á tóman maga þannig að ég hreyfi mig yfir- leitt síðdegis eða í hádeginu.“ Sykur undir álagi Hvað með mataræðið? „Ég er með nokkuð góða þekkingu þegar kemur að næringu; tók næring- arfræðikúrs sem val í háskólanum en fer ekki alltaf eftir því sem ég veit að er best fyrir mig, eins og gengur. Almennt reyni ég samt að borða sem náttúru- legasta fæðu. Grænmeti, ávexti, hnet- ur, fræ, kjöt og fisk. Undir miklu vinnu- álagi dett ég gríðarlega oft í sykurát, en á meðan fæðan er sirka 80% næring- arrík og 20% drasl er ég í lagi.“ Best fyrir æfingu? „Ég fann að ég gat æft af töluvert meiri krafti þegar ég fór að venja mig á að borða litla máltíð skömmu fyrir æf- ingu. Flókin kolvetni 30-45 mínútum fyrir æfingu gera það að verkum að maður er enn á fullu gasi þegar líður á æfinguna. Bara skál af haframjöli eða banani og lúka af hnetum til dæmis. Alvöru máltíð Svo reyni ég að borða almennilega máltíð eins fljótt og hægt er að lokinni æfingu. Ef maður tekur vel á því er líkaminn í þannig ástandi eftir æfingu að góð fæða er nauðsynleg til að við- halda orkunni og fá eitthvað út úr æf- ingunni. Ef tíminn er knappur fæ ég mér gott próteinbúst en helst vil ég fá alvöru máltíð; kjöt eða fisk, grænmeti og kartöflur eða brún grjón.“ Hugleiðsla með hot yoga Morgunblaðið/Árni Sæberg Tækni „Svo er ég aftur byrjaður í japönskum skylmingum, sem ég hef æft og kennt í mörg ár,“ segir Sölvi Tryggvason. ’Mér finnst alltafgaman að prófa eitthvað nýtt. Völundur Snær Völundarson veitingamaður „Ég er mikill morgunhani, mæti alla morgna í sundlaugina og reyni með því að halda mér í andlega góðu formi. Í gufunni hugleiði ég og í heita pottinum teygi ég lúna vöðva, sem eru stirðir eftir 12 til 16 tíma hlaup í vinnunni. Ég hef reyndar íhugað það af fúlustu alvöru að henda mér í djúpu laugina við tækifæri og fá mér sundsprett.“ Hvað með líkamlega formið? „Ég hreyfi ég mig daglega í vinnunni enda á sífelldum hlaupum. Á Borg Restaurant er mikið um rang- hala og stiga, snarpar u-beygjur og hlaup með mismunandi þyngd, þann- ig að ég get sjálfsagt fært rök fyrir því að ég iðki daglega langhlaup innan- húss. Vinnugallinn er því eiginlega íþróttagallinn minn, sérstaklega í des- embermánuði. Ég hef ekki sett á mig göngumæli en giska á að ég gangi nokkra kílómetra á dag innandyra.“ Bretti og skautar Stundarðu útivist? „Ég er vanur snjóbrettamaður. Sonurinn fékk svo snjóbretti í jóla- gjöf í fyrra og við fjölskyldan stefnum að því að stunda sportið nokkuð grimmt í vetur. Við fórum líka saman á skauta síðasta vetur og stefnum að því að endurtaka leikinn.“ Sumaríþróttin? „Á sumrin finnst mér skemmtileg- ast að hjóla, sem fer jafnframt betur með hnén á mér en allt hitt. Síðast- liðið sumar og haust reyndi ég að komast út að hjóla hvenær sem tæki- færi gafst, sem varð ekki eins oft og ég hefði viljað. Mig skortir því þolið þar en mun væntanlega bæta mig í sumar.“ Auðvelt að léttast Hefurðu alltaf hugsað vel um heils- una? „Já, nánast alla tíð. Ég tek þó skipulagðar æfingar í skorpum en ég á auðvelt með að þyngjast og af- skaplega auðvelt með að léttast. Ég er samt stöðugt á hreyfingu, fer fót- gangandi í og úr vinnu og stoppa sjaldan lengi á sama stað. Ég stefndi að því á unga aldri að verða íþrótta- kennari en skipti svo um skoðun. Mér finnst alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, sl. sumar var það longboard-hjólabretti. Ég var viss um ég yrði nokkur góður þar sem ég er snjóbrettamaður en svo var ekki, fyrsta tilraun endaði með ósköpum. Ég prófa það ekki aftur nema fjár- festa fyrst í almennilegum hlífð- arbúnaði.“ Í góðu jafnvægi Hollur matur í fyrirrúmi? „Já, án nokkurs vafa, ef frá er tal- inn desember. Ellefu mánuði ársins borða ég mjög hollan og trefjaríkan mat. Ég elska fisk og grænmeti, tek mín vítamín og reyni að halda lík- amanum í eins góðu jafnvægi og kost- ur er. Fyrir æfingu finnst mér best að borða ávexti og drekka næring- arríkan safa en á eftir fæ ég mér trefja- og próteinríkari mat.“ Langhlaup í vinnunni Hreyfingin Völundur Snær Völund- arson er á þeytingi í vinnunni frá morgni til kvölds og segist því í raun vera í íþróttagallanum allan daginn. 28 | MORGUNBLAÐIÐ Tímapantanir í síma 445 4404 Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur Guðmundur Þór Brynjólfsson sjúkraþjálfari hefur hafið störf hjá Klínik Sjúkraþjálfun. Sérgrein: Manual Therapy (MT). Guðmundur hefur áralanga reynslu í skoðun og meðferð á einkennum frá stoðkerfi. ’Danshugleiðslunaþróaði ég sjálf, enhún er sambland af hreyf-ingu, öndun og íhugun. Morgunblaðið/Styrmir Kári Hreysti Tristan Gribbin segir ótrúlega spennandi að synda í sjónum að vetrarlagi, þegar kalt er og jafnvel snjór. Tristan Gribbin danshugleiðslukennari „Ég hef lengi iðkað jóga og geri mínar æfingar aðallega heima. Svo syndi ég mikið, bæði í sundlaugum og í sjónum og þá fyrst og fremst í Nauthólsvík. Ég elska að hjóla eða fara fótgangandi í vinnuna og fylgja börnunum í skólann. Uppáhalds- hreyfingin mín er samt danshug- leiðsla, sem ég stunda reglulega og kenni. Danshugleiðsluna þróaði ég fyrir nokkrum árum en hún er sambland af hreyfingu, öndun og íhugun. Ég byrjaði sjálf að hugleiða árið 2000 og aflaði mér svo kennsluréttinda í Bandaríkjunum. Í framhaldinu fæddist hugmyndin að danshug- leiðslunni en hún er mjög áhrifarík leið til að tengjast líkama sínum og sál, virkja innri orku, kyrra hugann og vinna gegn streitu. Danshug- leiðsla veitir manni mikla frelsistil- finningu og er frábært tækifæri til að fá útrás fyrir hreyfiþörfina, við ým- iss konar tónlist sem snertir hjart- að.“ Áhrif frá Kaliforníu Hefurðu alltaf hugsað vel um heilsuna? „Já, ég hef alltaf stundað líkams- rækt og passað upp á mataræðið. Ég er fædd og uppalin í Palo Alto í Kali- forníu og þar lifir fólk mjög heilsu- samlegu lífi. Ég var mikið í íþróttum sem barn og hjólaði hvert sem ég fór. Mér líður ekki vel nema ég hreyfi mig og hlúi vel að andlegri heilsu minni, það hefur áhrif á skapið ef ég trassa það. Þannig hreyfi ég mig eitt- hvað daglega þó að stundum sé það ekki annað en að ganga eða hjóla.“ Setur íslenskt vetrarveður aldrei strik í reikninginn? „Nei, ég læt það aldrei stoppa mig. Ég hjóla auðvitað meira á sumrin en nota hjólið samt mikið á veturna, í raun alltaf þegar fært er. Ég prófaði fyrst sjósund ásamt manninum mín- um í febrúar á síðasta ári og hef stundað það reglulega síðan; það er ótrúlega spennandi að synda yfir veturinn, þegar kalt er og jafnvel snjór.“ Djúpöndun og teygjur Hefurðu þörf fyrir að breyta til? „Já, ég er mjög nýjungagjörn. Það á ekki vel við mig að vera alltaf í sömu rútínunni, dag eftir dag, viku eftir viku. Samt hef ég mikla þörf fyrir ramma til að fylgja, um leið og ég rækta líkama og sál. Þess vegna hentar danshugleiðslan mér full- komlega; dansinn er aldrei eins og tónlistin er breytileg en þó fylgi ég ákveðnum grunnhreyfingum.“ Hvaða tími dagsins hentar þér best til æfinga? „Mér er eiginlega sama hvort ég æfi á morgnana eða kvöldin, það fer allt eftir aðstæðum. Þegar ég syndi finnst mér best að gera það á morgn- ana fyrir vinnu, þegar börnin eru farin í skólann. Dagurinn verður allt- af miklu betri ef ég byrja hann á góðri líkamsrækt. Undanfarið hef ég byrjað daginn á djúpöndun, góðum teygjum og hugleiðslu, það færir mér mikla orku og ótrúlega vellíð- an.“ Lágkolvetna-mataræði Borðarðu hollan mat? „Ég hef í mörg ár lagt áherslu á að borða fyrst og fremst lífrænan mat og forðast erfðabreytt matvæli eins og heitan eldinn. Ég hef alltaf reynt að borða hollt, kannski sérstaklega núna því ég hef tileinkað mér lágkol- vetna-mataræði til að sýna pabba mínum stuðning en hann er með krabbamein. Þannig borða ég bara holla fitu, kókos- og ólífuolíu, græn- meti og prótein en sneiði alveg hjá kolvetnum, sykri og ávöxtum. Mér líður frábærlega af þessu mataræði en með því á að vera hægt að svelta krabbamein og ég er sannfærð um að það á sinn þátt í því að pabba heilsast betur.“ Vetrarsund í sjónum Efnið og andinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.