Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014
STOFNAÐ1987
M
ál
ve
rk
:
K
ar
ó
lín
a
Lá
ru
sd
ó
tt
ir
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
því að bærinn fái safnið til varð-
veislu er tryggt að starfinu verður
haldið áfram, myndefnið skráð og
skannaðar myndir til varðveislu á
rafrænu formi.
Af nógu er að taka. „Ég á jafn
mikið af myndum óunnið og þær
sem til eru kópíeraðar; af sumum
filmum hefur ekki verið kópíeruð
ein einasta mynd. Ég þurfti oft að
senda filmu í hvelli, með flugi eða
skipi, framkallað var á Mogganum
og ég fékk margar sendar til baka
löngu seinna. Auðvitað vildi ég
stækka myndir en filmurnar hlóð-
ust upp og þess vegna hef ég ekki
einu sinni séð sjálfur það sem er á
mörgum filmunum!“
Ekki er ofsögum sagt að Sig-
urgeir hafi skráð sögu Vest-
mannaeyja síðustu áratugi með
myndavélinni. Og safn hans er af-
ar fjölbreytt. Ekkert hefur verið
honum óviðkomandi. „Ég hef að
langflestu leyti haft gaman af
þessu,“ segir Sigurgeir þegar feril
hans sem ljósmyndara ber á góma.
Hann segist bæði hafa verið hepp-
inn og óheppinn: „Ég hef tapað
nokkrum myndavélasettum í sjóinn
og ætti líklega ekki að vera hérna
megin! Einu sinni brotnaði undan
okkur bátur við Surtsey og sökk á
einni og hálfri klukkustund; það
var svart, en hér er maður samt
enn!“
Komst á kortið
Þegar Sigurgeir er spurður hvort
eitthvað sé minnisstæðara en ann-
að frá löngum ferli, segir hann allt
renna í eina stöppu. „Ég byrjaði
að mynda vegna þess að ég hafði
mikinn áhuga á mannlífi og gaman
af því að mynda fólk. Mjög
snemma fór ég svo að safna mynd-
Gísli Jónsson á Arnarhóli, einn stofn-
enda Vinnslustöðvar Vestmannaeyja.
Mynd frá 15. október 1976.
Gísli Jónsson á Arnarhóli var einn af
stofnendum Vinnslustöðvar Vest-
mannaeyja. Mynd tekin 15. okt 1976.
Einar Sigurðsson, forstjóri Hrað-
frystistöðvar Vestmannaeyja. Myndin
var tekin 7. október 1970.
Frægasta ljósmynd Sigurgeirs og sú sem víðast hefur birst. Hún er tekin að kvöldi 1. desember 1963, rúmlega hálfum mánuði eftir að gosið hófst í Surtsey. Sigurgeiri tókst að fanga hrikalegan ljósagang í
gosmekkinum og var myndin valin fréttamynd desember 1963 hjá Associated Press og ein af bestu fréttamyndum ársins. Myndin hefur birst í mörgum þekktustu dagblöðum og tímaritum heims.
Morgunblaðið/Sigurgeir