Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 47
Í fimm ár var Sölvi í Danmörku, þar af þrjú með stórliði Norðurlanda, FCK.
Reuters
leyfa mér að ráða ferðinni.“
Úrræðin sem Sölvi hefur notað
til að laga á sér bakið eru eftirfar-
andi. „Það er tekið blóð úr mér og
hvítu blóðkornin einangruð. Þeim
er síðan sprautað í bakið á mér, 20
sprautur hvorum megin við mjó-
hrygginn. Ég geri þetta einu sinni
í viku. Þetta gerir mér gott og er
alveg löglegt. Þetta er ekki eins og
hjólreiðakallarnir eru að gera –
langt frá því.“ Það verður eðlilega
smá þögn, enda undirritaður ákaf-
lega sprautuhræddur.
Frystur hjá FCK
Sölvi var í guðatölu hjá stuðnings-
mönnum FCK eftir að hafa komið
liðinu inn í Meistaradeildina 2011.
Gullskalli hans gegn norsku meist-
urunum í Rosenborg kom liðinu
inn í riðlakeppnina og tryggði því
fjölmarga milljarða í tekjur. Liðið
var með Barcelona og Chelsea í
riðlakeppninni.
Þegar Belginn Ariël Jacobs kom
til sögunnar hjá FCK sem stjóri
fór hinsvegar að síga á ógæfuhlið-
ina hjá Sölva. Jacobs þessi tók
Sölva úr liðinu eftir nokkrar um-
ferðir í dönsku deildinni árið eftir
og setti hann á ís. Frysti hina
sjóðheitu meistaradeildarhetju. Það
fór hvorki vel í okkar mann né
stuðningsmenn FCK. „Þetta var
allt mjög undarlegt hvernig hann
bar sig að í þessum málum öllum
hjá FCK.
Ég var að renna út á samning
og kannski spilaði það eitthvað inn
í, ég veit það ekki og hann vildi
kannski byggja á mönnum sem
hann vissi að yrðu áfram. FCK er
þannig lið að þeir geta gert slíkt.
En mér fannst ég vera besti varn-
armaðurinn í þessu liði, með fullri
virðingu fyrir hinum. Ég lít reynd-
ar stórt á sjálfan mig, finnst ég
alltaf vera bestur en þannig hugs-
unarhátt þarf maður að hafa í at-
vinnumennsku.“
Jacobs sagði við danska fjöl-
miðla að hann saknaði meiri fag-
mennsku hjá Sölva, nokkuð sem
enginn skildi, hvorki hér á Íslandi
né í Danmörku enda er Sölvi í
miklum metum þar í landi eftir að
hafa verið fyrirliði SönderjyskE og
sýnt mikla fagmennsku eftir að
hann varð atvinnumaður. „FCK er
með þá stefnu að málin eru leyst
innan félagsins og í búningsklef-
anum. Ekki í blöðunum. Þetta er
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Yekaterinburg er fjórða stærsta borg Rússlands, þar býr rúmlega ein og hálf milljón manna. Borgin hét áður Sverdlovsk.
Völlur Ural-manna heitir Central Stadium og þar fara fram nokkrir leikir á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Rússlandi 2018. Það er því verið að taka hann allan í gegn sem og borgina.
* „Það er tekið blóð úr mér og hvítu blóð-kornin einangruð. Þeim er síðansprautað í bakið á mér, 20 sprautur hvorum
megin við mjóhrygginn. Ég geri þetta einu
sinni í viku.“
FC Ural er í fallsæti eins og stendur en tvö lið falla beint úr deildinni, tvö næstu
fara í umspil. Deildin byrjar aftur í mars eftir vetrarfrí.
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47