Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 23
Þar sem ég borða mikið af ávöxtum og grænmeti dagsdaglega þáskiptir úrval og gæði slíkra matvæla mig miklu máli. Staðreyndin erhins vegar sú að oft má finna leifar af skordýraeitri, sveppagróðri og jarðvegi í slíkum matvörum. Einnig má þar finna bakteríur því fjöldi fólks tínir, pakkar og flytur ávexti og grænmeti. Af þessum ástæðum fyll- ist ég alltaf ákveðnum efasemdum þegar ég sé epli uppi í búðarhillu sem skín bjartara en jólastjarnan í Betlehem. Sumir hlutir eru einfaldlega of góðir til að vera sannir. Eftir að ég las greinar um að stutt skolun með vatni hefur lítil áhrif á magn skordýraeiturs utan á ávextinum áttaði ég mig á að fæstir hreinsa þessi matvæli nægilega vel. Sjálfur hef ég oft dottið í þá freistni að nudda eplinu upp við gallabuxurnar áður en ég legg mér það til munns og ég er viss um að flestir kannast við slíkar „hreins- unaraðgerðir“ í dagsins önn. Óhætt er að segja að slíkar aðferðir skila engum árangri fyrir utan það að róa samvisku neytandans með sjálfsblekk- ingu og afneitun. Til að kóróna ástandið þá telja ýmsir sérfræð- ingar að ekki sé nægilega gott að afhýða ávöxtinn. Hnífurinn kemst nefnilega í beina snertingu við bæði hýðið og ávöxtinn sjálfan og getur þannig borið óæskileg efni inn í ávöxtinn. Þá segja margir sérfræðingar að hýðið sé einmitt einn hollasti hluti ávaxtarins og því er ekki mælt með því að fólk sleppi ávallt við að leggja sér það til munns. Besta leiðin til að sefa ofsóknaræðið er að sjálfsögðu að kaupa lífrænar vörur. Lífrænir ávextir og grænmeti eru mjög góðir kostir fyrir þá sem vilja hugsa um heilsuna en raunveruleikinn er því miður sá að þetta er hræðilegur kostur fyrir þá sem þykir einnig vænt um peningana sína. Því er eðlilegt að spyrja hvort heilsuþenkjandi einstaklingar úr millistétt samfélagsins séu dæmdir til að borða skor- dýraeitur, sveppagróður, bakteríur og jarðveg til eilífðarnóns? Svarið er sem betur fer „nei“. Það eru til auðveldar leiðir til að hreinsa bæði ávexti og grænmeti með fullnægjandi hætti. Slíkar hreinsunar- aðferðir krefjast þess að blandaður sé sérstakur „elixir“ sem er látinn liggja á matvörunni í 5-10 mínútur áður en varan er skoluð vandlega upp úr köldu vatni. Dæmi um slíka uppskrift er t.d. 1 matskeið af sítrónusafa, 1 matskeið af hvítu ediki og einn bolli af vatni. Hægt er að úða þessari blöndu á matvöruna eða láta hana liggja í þessu í eldhúsvaskinum. Með þessum hætti er hægt að úða í sig ávöxtum og grænmeti með góðri sam- visku án þess að lýsa sig gjaldþrota. TIL BJARGAR MILLISTÉTTINNI Heilbrigt líf JÓN HEIÐAR GUNNARSSON 5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Í þróttafréttamaðurinn Einar Örn Jónsson kann ekki eingöngu að brúka míkrófóninn í sjónvarps- fréttum Ríkisútvarpsins því hann kann einnig að kasta bolta. Hann var fyrr á árum afreksmaður í handbolta bæði hér heima og í Þýskalandi og lék með íslenska landsliðinu um árabil. Gælunafn: Veggurinn. Það kemur víst til vegna fótboltahæfileika minna eða skorts á þeim. Einhver hafði á orði að það væri eins og að sparka í vegg að senda boltann á mig. Ég er því ósammála! Hversu oft æfir þú á viku? Núorðið aldrei, en þeg- ar mest var 8-10 sinnum að viðbættum leikjum. Hvernig æfir þú? Ég fæ fanta-æfingu fyrir fing- urna við tölvuskjáinn! Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað? Prófa sem flest og aldrei láta neitt draga úr sér kjark, annars kemst maður aldrei að því hvort eitt- hvað er rétt fyrir mann eða ekki. Hver er lykillinn að góðum árangri? Aukaæf- ingin! Æfingin er fín en aukaæfingin skapar meist- arann. Hvað er það lengsta sem þú hef- ur hlaupið? Alltof langt. Einn þjálf- ari hjá mér var rosahrifinn af 16 kílómetra hlaupum á undirbúnings- tímabilinu ... sem voru 8 vikur. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Upp úr stólnum, það er ekkert til sem heitir að hafa ekki tíma! Líður þér illa ef þú færð ekki reglulega útrás fyrir hreyfiþörfina? Nei, merkilega lítið. Samviskan læt- ur í sér heyra. Hvernig væri líf án æfinga? Dauflegt. Hvað er það lengsta sem hef- ur liðið á milli æfinga hjá þér? Eftir að hnéð á mér fór á haugana er ansi langt síðan ég hef æft nokk- uð. Fótbolti af og til telst ekki alveg með. Ertu almennt meðvitaður um matarræðið? Já, en það tekst ekki allt- af að fylgja eigin meðvitund eftir. Hvaða óhollustu ertu veikur fyrir? Nammi hefur verið minn stóri akkilesarhæll í gegnum tíðina, sérstaklega íslenskt nammi þegar ég bjó í útlöndum. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mat- aræðið? Að leita upplýsinga hjá réttum aðilum. Það eru margir til í að veita ráðleggingar en hagsmunir fólks eru mismunandi. Næringarfræðingar geta oft gefið góð ráð sem mér finnst yfirleitt vera á þá leið að borða fjölbreytta og holla fæðu, engar skyndi- lausnir. Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig? Það er alveg merkilegt hvað manni líður einfald- lega vel eftir góða hreyfingu, bæði á líkama og sál. Heilinn hjálpar manni með skammti af hormónum og samviskunni líður betur. Hver eru erfiðustu meiðsli sem þú hefur orðið fyrir? Eiginlega þau sem ég á í núna, handónýtt hné sem á aldrei eftir að lagast. Hljómar kannski pínu dómsdagslega. Hversu lengi varstu að ná þér aftur á strik? Fyrst þegar ég lenti í hnémeiðslum var ég frá í mán- uð, svo einn og hálfan og nú er því lokið... Hver eru heimskulegustu meiðslin sem þú hefur orðið fyrir? Ég tognaði á pínulitlum vöðva á milli rifja við að reyna eitt- hvert trix eftir æfingu. Það kostaði mig þrjár vikur af pínu. Hver er erfiðasti mótherjinn á ferlinum? Helví... hann Guðjón Valur Sigurðsson. Hver er besti samherjinn? Helví... hann Guðjón Valur Sigurðsson. Hver er fyrirmynd þín? Frændi minn Júlíus Jónasson átti stærstan þátt í að ég fór í handbolta. Ég vildi alltaf vera eins og Júlli... bara örvhentur. Hver er besti íþróttamaður allra tíma? Ætli það sé ekki bara Michael Jordan. Fyrirmynd- aríþróttamaður í alla staði. Óhugnanlega hæfileikaríkur en líka með heilann og hugarfarið á réttum stað og hafði sennilega víðtækari áhrif en hægt er að mæla, a.m.k. á mína kynslóð. Af íslensk- um íþróttamönnum er Óli Stef náttúrulega á toppnum. Skilaboð að lok- um? Lífið er of stutt til að taka því alvarlega! ÍÞRÓTTAMAÐUR DAGSINS EINAR ÖRN JÓNSSON Vildi vera eins og Júlli frændi Epli góð fyrir hjartað Vísindamenn við Oxford-háskólann á Englandi segja epli vera jafn öflug og hefðbundin hjartalyf til að viðhalda og efla heil- brigði hjartans. Helsti kosturinn við epli umfram hjartalyf er að þau hafa engar slæmar aukaverkanir. „Við erum vanafastar verur. Við erum það sem við gerum, aftur og aftur. Að skara fram úr er því ekki athöfn, heldur vani.“ Aristóteles
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.