Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Gamlir bekkjarfélagar nutu saman og snæddu dásamlegt andabringusalat í Vesturbænum »32 N anna Teitsdóttir er matarbloggari með gráðu í heimspeki og sagnfræði. Hún er nýflutt heim til Íslands en hún bjó bæði í Skotlandi og Banda- ríkjunum en þegar hún dvaldi í Bandaríkjunum byrjaði hún með blogg sem er nú orðið mjög vinsælt, www.eldadivesturheimi.is. „Ég bjó í New York, þar sem mað- urinn minn var í doktorsnámi, þegar ég byrjaði að blogga. Ég var nýútskrifuð frá Háskólanum í Edinborg og var ekki að vinna svo mér var farið að leiðast. Ég var byrjuð að prófa mig áfram í eldhúsinu og ákvað að skrifa inn á netið tilraunir mínar í eldamennsku ásamt því að veita fólki smá innsýn í líf okkar í stórborginni. Ég bjóst aldrei við því að aðrir en fjöl- skylda og vinir myndu lesa vefsíðuna en annað kom síðan á daginn,“ segir Nanna. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því að borða mat. Ég var þó aldrei stórtæk í eldhúsinu sjálf og það var ekki fyrr en við fluttum til Bandaríkjanna sem ég fór að leggja mikinn metnað í matreiðslu, en það að borða og pæla í mat hefur alltaf verið mér ofarlega í huga.“ Nanna segist vera mikill sælkeri og er bláskel nú sér- staklega í uppáhaldi hjá henni. „Við hjónin kaupum reglulega íslenska bláskel í Melabúðinni og eldum saman. Svo er ég mjög veik fyrir hægelduðum pottréttum með góðu kjöti.“ Hún segir þó að sér þyki skemmtilegast að prófa að elda nýja og krefjandi rétti og hefur hún undanfarið verið að prófa sig áfram með klassíska franska rétti og haft gaman af. Morgunblaðið/Kristinn MATARBLOGGARI MEÐ MEIRU Bláskelin í uppáhaldi MATGÆÐINGURINN NANNA TEITSDÓTTIR HELDUR ÚTI VINSÆLLI BLOGGSÍÐU ÞAR SEM HÚN DEILIR REYNSLU SINNI ÚR ELDHÚSINU. ÍSLENSK BLÁSKEL ER Í MIKLU UPPÁHALDI EN SKEMMTILEGAST ÞYKIR HENNI AÐ PRÓFA NÝJA OG KREFJANDI RÉTTI. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Nanna byrjaði að blogga um reynslu sína í eldhúsinu í Banda- ríkjunum og hefur vefsíðan vaxið að vinsældum síðan þá. Skelin: 160 g hveiti 1 msk. sykur ½ tsk. salt 100 g smjör, kalt og skorið í teninga 4 msk. ískalt vatn Aðferð: Hrærið hveiti, sykur og salt saman í stórri skál. Nuddið smjörinu saman við hveitiblönduna með fingurgómunum þar til blandan líkist grófu mjöli. Bætið vatninu saman við og hnoðið deiginu saman í kúlu, fletjið með lófunum og vefjið í plastfilmu. Geymið inni í ísskáp í hálftíma. Hitið ofninn í 190°C. Fletjið deigið út í hring sem er ca. 30 cm að þvermáli. Flytjið yfir í 22 cm hringlaga bökuform og látið deigið hanga yfir barminn. Skerið aðeins til og búið til brún með því að klípa deigið á milli fingra með reglulegu millibili. Geymið í kæli á meðan fyllingin er búin til. Fylling: 3 egg 100 g púðursykur 200 g gyllt síróp (t.d. Lyle’s) ½ tsk salt 1 msk. viskí eða bourbon (má sleppa) 30 g brætt smjör 100 g súkkulaði, saxað 200 g pekanhnetur, ristaðar og saxaðar (geymið nokkrar heilar ef þið viljið skreyta með hnetum) Aðferð: Hrærið saman eggjum, púðursykri, sírópi, salti, viskíi og smjöri þar til allt hefur blandast vel sam- an. Hærið pekanhnetum og súkkulaði saman við. Takið skelina út úr kælinum og hellið fylling- unni ofan í. Skreytið með heilum pekanhnetum ef þið viljið. Bakið í miðjum ofni í 30-35 mínútur eða þar til fyllingin lyftir sér en er samt fremur blaut í miðjunni. Leyfið að kólna alveg áður en hún er borin fram. Pekanbaka með súkkulaði og bourbon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.