Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Síða 30
S alöt og réttir sem innihalda fisk og kjúkling eru kær- komnir í byrjun janúar,“ segir Emilía sem hefur haft það náðugt um jólin. „Já, við höfðum það mjög gott um jólin. Búin að borða nóg, hreyfa mig lítið og hafa það notalegt með fjölskyldunni.“ Hún segir það hefð að fara til ömmu sinnar á aðfangadag en þar borðar fjölskyldan sam- an rjúpu. „Rjúpuilmurinn þar fyllir öll vit og þá mega jólin koma fyrir mér. Ég elska villibráð og hef borðað rjúpu á að- fangadag frá því ég man eftir mér. Unnust- inn er hins vegar hamborgarhryggjarmaður en ég er að vinna í þessu,“ segir hún og hlær. Spurð um uppáhaldsmat segist hún verða að nefna rjúpurnar góðu en þess utan á indverskur matur vinninginn. Emilía heldur úti bloggsíðu og setur þar inn reglulega ýmsar uppskriftir og fallegar myndir af matnum en hún er iðin í eldhúsinu. Hún segist reyna að elda ávallt hollan mat og leggur hún mikið upp úr því að elda matinn frá grunni. „Það er mitt helsta markmið þegar kemur að mataræði að reyna að borða hreinan mat með litlu af aukaefnum. Ég á samt sem áður mjög erfitt með að neita mér um hluti þegar að kemur að mat svo þetta er alls ekki heilagt.“ Bloggsíðu hennar má nálgast á slóðinni emiliaottesen.com. Vill elda matinn frá grunni FLESTIR VILJA FÁ SÉR EITTHVAÐ FERSKT OG EINFALT EFTIR JÓLIN OG NÁ SÉR AFTUR Á STRIK. EMILÍA OTTESEN GEFUR HÉR UPPSKRIFT AÐ GIRNILEGU KJÚKLINGA- OG GRANATEPLASALATI, SEM ER TILVALIÐ EFTIR ALLAN JÓLAMATINN, SEM FLESTIR ERU BÚNIR AÐ FÁ NÓG AF. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014 Uppskrift fyrir þrjá DRESSING: 1 lítið hvítlauksrif 1 tsk. hunang 1 msk. hvítvínsedik 5 msk. ólífuolía ½ tsk. dijonsinnep 1 msk. ferskur sítrónusafi Aðferð: Gott að byrja á dressingunni og leyfa henni að vera inni í ísskáp á meðan gengið er frá salatinu sjálfu. Í SALATIÐ FER EFTIRFARANDI: 2 kjúklingabringur 150 g kál að eigin vali 1 avókadó 2 perur 1 poki ristaðar möndlur, skornar gróft Fræ úr einu granatepli Parmesanostur eftir smekk. MARINERING FYRIR KJÚKLINGINN: ½ chilli 1 hvítlauksrif 2 cm engiferrót 1 msk. olía Aðferð: Allt maukað í matvinnsluvél og kjúklingur látinn liggja í þessu í 2 tíma (eða yfir nótt ef hægt). Síðan er hann skorinn í strimla og steiktur á pönnu og látinn kólna. Hýðið er tekið af og þær soðnar í 20 mínútur með 4 cm engifer- bút, látið kólna áður en kjarnhreinsað og skorið í sneiðar. Kjúklingnum er síð- an raðað á salatið ásamt öllu öðru og borið fram með brauði. Kjúklinga- og granateplasalat Matur og drykkir Emilía Ottesen EMILÍA OTTESEN ER IÐIN Í ELDHÚSINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.