Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Síða 34
Pixel-stríðið
Það trúðu fáir að Finnarnir í Nokia gætu
troðið 41 megapixils myndavél í snjallsíma.
En það gerðu þeir og tókst svona líka vel
til. Nú vilja aðrir framleiðendur herma eftir
og bæta myndavélum í snjallsíma sem oftar
en ekki eru lélegar. Trúlega verður árið
2014 árið þar sem hægt er að kveðja stóru
myndavélina og taka almennilegar myndir á
símanum en ekki hreyfðar og úr fókus.
Qualcomm-kubburinn
64 bita kubbur sem á að vera jafnöflugur
og Apple-kubburinn hér hinum megin á
síðunni. Mun koma á síðari helmingi árs-
ins og gæti gert snjallsíma enn ódýrari.
Það er allavega beðið eftir þessum
kubbi með eftirvæntingu.
Ofurskerpa
Nýjustu símarnir eru margir með
skerpu upp á 1920x1080 punkta sem
gerir þá nánast skýrari en mannsaugað.
Nú vilja menn bæta skerpuna enn frek-
ar og fara upp í 2560x1440 punkta. Vi-
vio hefur þegar gert slíkan síma og nú
er Samsung og LG sögð vera í starthol-
unum að búa til slíkan síma. Það verður þó væntanlega
einhver bið á slíkum símum því grafíkin er svo mikil að hún étur
upp batteríið og endast tilraunasímarnir ekki einu sinni daginn.
HORFT Í SNJALLSÍMAKRISTALSKÚLU FRAMTÍÐARINNAR
Ekki á tali hjá
framleiðendum
Hlaðið á nóttu
Spámenn framtíðarinnar og sérfræðingar í
símatækni sjá ekki að batterí snjallsíma muni
lagast á árinu. Það verður því enn um sinn að
hlaða tækið að kveldi fyrir komandi átök.
Lithium-air batterí eru á tilraunastigi og lofa
góðu. Lithium-Sulfur sömuleiðis. Þá eru
nokkrir framleiðendur að prófa sodium-ion
batterí. Þegar þessi batterí koma á mark-
aðinn mun verða yndislegt að eiga snjallsíma. Beygðar línur
Snjallsímar ársins 2014 verða ekki bara láréttir og lóðréttir. Nú er komin
sveigja í þá en LG G Flex var kynntur á síðasta ári í Kóreu og sló í gegn.
Samsung, LG og Nokia eru sögð í startholunum með síma með beygðar
línur. Sérfræðingar segja að slíkir símar fari ef til vill betur að eyranu en alls
ekki í vasanum. Því muni þessir símar ekki seljast mikið.
Firefox-síminn
Þó svo að því sé spáð á næstu opnu að
Blackberry-símar hverfi með öllu á árinu
2014 má ekki gleyma því að Blackberry 10
snjallsíminn er að koma. En það eru fleiri
spennandi símar að koma á árinu. Firefox
OS, Sailfish OS, Ubuntu Touch og Tizen
eru kannski ekki þekktustu snjallsímamerki
heimsins en það hefur sýnt sig að símar frá
þessum fyrirtækjum eru ekkert síðri en frá
risunum. Það er allavega hægt að hringja, fá
sms, senda sms, fara á netið og skoða fés-
bókina. Þarf nokkuð annað?
Örgjörvi frá Apple
Þegar iPhone 5s kom á markaðinn kynnti Apple
þetta undratæki, Apple A7. Þeir nota þennan
kubb í téðan iPhone 5s, iPad mini og iPad Air.
Kubburinn er 64 bita og sagður tvisvar sinnum
öflugri en fyrirrennari hans A6 og ráða mun
betur við alla grafík og gera tækin mun betri.
Ódýrt og gott
Nokia Lumia 520 var einn heitasti sími ársins og kom Nokia aftur á
topplistana yfir mest seldu tækin. Hann var ódýr og góður með alla
góða eiginleika snjallsíma. Nú er talað um að símafyrirtækin vilji nýta
sér 200 dollara markaðinn svokallaðan. Gera síma sem kostar ekki
lengur yfir 100 þúsund heldur ódýra, góða síma.
SNJALLSÍMAR HALDA ÁFRAM AÐ ÞRÓAST OG MUN HEIM-
URINN FÁ AÐ KYNNAST NOKKUÐ MÖGNUÐUM NÝJUNGUM
Á ÁRINU. ÞRÁTT FYRIR ALLAR NÝJUNGARNAR ER EKKERT
SEM BENDIR TIL AÐ SNJALLSÍMINN FÁI BETRA BATTERÍ. ÞAÐ
ÞARF ÞVÍ ENN AÐ HLAÐA ÞÁ Á HVERJU KVÖLDI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
*Græjur og tækniHvað verður efst á baugi í tækninni árið 2014 og mun það breyta sýn okkar á heiminn? »36