Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Qupperneq 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Qupperneq 57
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Ólæsinginn sem kunni að reikna er önnur skáldsaga Jo- nasar Jonassonar sem sló svo rækilega í gegn með hinni bráðskemmtilegu og sprellfjör- ugu bók Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf. Það er ekki vandalaust að fylgja slíkri bók eftir en Jonasi tekst það nokkuð vel, þótt bókin standist ekki samanburð við Gamlingjann. Stúlka úr fátækrahverfi í Suð- ur-Afríku flækist inn í al- þjóðlega stjórnmálarefskák og verður eftirlýst af alræmdustu leyniþjónustu veraldar. Húmorinn er ekki langt und- an hjá Jonasi sem hæðist að of- stæki, fordómum og bók- stafstrú. Ólæsingi og stjórnmál Við áramót eru gjarnan teknir saman á fjöl- miðlum listar yfir það sem þykir skara fram úr á ýmsum sviðum. Ritstjórar bókablaðs The New York Times tóku saman lista með þeim tíu bókum sem þeir töldu bestar af þeim sem komu út í Bandaríkjunum. Í flokki skáldverka eru það skáldsögurnar Americ- anah eftir Chimamanda Ngozi Adichie, The Flamethrowers eftir Rachel Kushner, The Goldfinch eftir Donna Tartt, Life After Life eftir Kate Atkinson og smásagnasafn George Saunders, Tenth of December. Af öðrum bókum en skáldverkum völdu ritstjórarnir After the Music Stopped – The Financial Crisis, the Response, and the Work Ahead eftir Alan S. Blinder, Days of Fire – Bush and Cheney in the White House eftir Peter Baker, Five Days at Memorial – Life and Death in a Storm-Ravaged Hospital eftir Sheri Fink, The Sleepwalkers – How Europe Went to War in 1914 eftir Christopher Clark og Wave eftir Sonali Deraniyagala. Nígeríski rithöfundurinn Chimamanda Ngozi Adichie hlýtur mikið lof fyrir Americanah. BÆKUR ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM Skrudda og Sagnasmiðjan hafa sent frá sér bækur í nýjum flokki er kallast „Á jaðrinum“ og er í umsjá Þorsteins Antonssonar. Í bók- inni Ljúflingurinn er höfundarsaga Steinars Sigurjónssonar sögð með hans eigin orðum og samferðamanna. Þorsteinn tók efnið sam- an. Í bókinni Einn plús einn kemur Steinar við sögu en hér birtast bréfaskipti Steinars og Jóns Ýngva um lífið og listina. Sá síð- arnefndi kemur einnig við sögu í Sögur og sagnamál Jóns Ýngva en í henni eru textar sem hann skrifaði á árunum 1964-85, þegar höfundurinn var af sumum gestum á Mokka kallaður Jón tragedía fyrir þær ströngu kröfur sem hann gerði til sín við rit- störfin. Á jaðrinum er afmælisrit Þorsteins Antonssonar samið af honum sjálfum, í tilefni 50 ára höfundarafmælis. Þú skrínlagða heimska – Heim- ildasaga er eftir Þorstein og Sævar Marinó Ciecielski. Er þar fylgt eftir fyrri bók Þor- steins um Guðmundar- og Geirfinnsmál frá 1991. Loks eru í Öðruvísi ástarsögu birt bréf Harries Schrader. NÝR BÓKAFLOKKUR: Á JAÐRINUM Í tveimur bókum segir af Steinari Sigurjónssyni. Veiðihundarnir eftir Jørn Lier Horst fékk Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan árið 2013. Í heimalandinu, Noregi, velti þessi bók sjálfum Nesbø úr efsta sæti metsölulistans. Lögreglumaðurinn William Wisting sætir rannsókn og er grunaður um að hafa hagrætt sönnunargögnum í máli. Hvarf ungra stúlkna er í forgrunni í spennandi bók sem er mjög sennilega sú besta sem Horst hefur skrifað. Verðlaunabók frá Jørn Lier Horst Þægilegur kiljulestur eftir jólin NÝJAR BÆKUR FJÖLMARGAR ÁGÆTAR KILJUR ERU NÚ Á MARK- AÐI. JONAS JONASSON ER AÐ SLÁ Í GEGN MEÐ ÓLÆSINGJANUM OG BÓKIN SEM FÉKK GLERLYK- ILINN Á SÍÐASTA ÁRI, VEIÐIHUNDARNIR, ER ÁGÆTIS AFÞREYING. FINNSK VERÐLAUNABÓK ER SVO KOMIN ÚT Í KILJU. VERT ER AÐ VEKJA AT- HYGLI Á BÓK UM KAUPMANNAHÖFN. Klefi nr. 6 er skáldsaga eftir finnsku skáldkonuna Rosu Liksom, en hún hlaut Finlandiu-verðlaunin fyrir bókina, sem var einnig tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs.. Finnsk stúlka tekur sér far með Síberíulestinni á níunda áratug síð- ustu aldar og deilir klefa með drykkfelldum harðjaxli sem segir henni sögur úr lífi sínu. Vestrið mætir austrinu Sagnfræðingarnir Guðjón Friðriksson og Jón Þ. Þór eru höfundar tveggja binda verks, Kaup- mannahöfn sem höfuðborg Íslands. Í fyrra bindinu er sagan rakin frá 15. öld fram til 1814 og í síðara bindi er samskiptasaga landanna rakin frá 1814-1918 og þá meðal annars sagt frá sjálf- stæðisbaráttunni og margskonar menningar- starfsemi Íslendinga í Kaupmannahöfn og sam- starfi við Dani. Mikill fjöldi mynda prýðir verkið. Ísland og Kaupmannahöfn * Að fortíð skal hyggja, ef frumlegtskal byggja. Einar Benediktsson METSÖLULISTI EYMUNDSSON2013 Allar bækur Listinn er tekinn saman af verslunum Eymundsson 1 Iceland Small World small ed.Sigurgeir Sigurjónsson 2 Maður sem heitir OveFredrik Backman 3 SkuggasundArnaldur Indriðason 4 Lág kolvetna lífsstíllinn LKLGunnar Már Sigfússon 5 LygiYrsa Sigurðardóttir 6 Ólæsinginn sem kunni að reiknaJonas Jonasson 7 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson 8 BrynhjartaJo Nesbø 9 Vísindabók VillaVilhelm Anton Jónsson 10 LeðurblakanJo Nesbø Innbundin skáldverk, ljóðabækur & hljóðbækur 1 SkuggasundArnaldur Indriðason 2 LygiYrsa Sigurðardóttir 3 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson 4 Árleysi aldaBjarki Karlsson 5 SæmdGuðmundur Andri Thorsson 6 GrimmdStefán Máni 7 MánasteinnSjón 8 Og fjöllin endurómuðuKhaled Housseini 9 Stúlka með magaÞórunn Erlu-ogValdimarsdóttir 10 DísusagaVigdís Grímsdóttir MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Ástin hefur augu í hnakkanum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.