Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 61
því liðið náði mjög góðum kafla síðari
hluta sumars og endaði í sjötta sæti
eftir að hafa verið neðst í deildinni
þegar mótið var hálfnað.“
Sumir segja að Solskjær leyni á sér.
Þrátt fyrir barnslegt yfirbragð sé
hann hörkutól og víli ekki fyrir sér að
hvessa sig ef á þarf að halda; hefur
líklega lært það af Sir Alex Ferguson!
Sem gott dæmi um hörkuna sem
Solskjær getur sýnt, nefndi norskur
blaðamaður sem Morgunblaðið ræddi
við atvik eftir sigurleik Noregs gegn Grikkjum í Aþenu fyrir
allmörgum árum. Þetta var í undanriðli Evrópumóts, Norð-
mönnum hafði gengið afleitlega og urðu að vinna. Sem þeir
og gerðu og Solskjær skoraði í tvígang í 2:0 sigri. Liðið
komst á rétta braut og tryggði sér á endanum sæti í úr-
slitakeppninni í Belgíu og Hollandi sumarið 2000.
Með munninn fyrir neðan nefið
Fyrir leikinn var haft eftir þjálfara landsliðsins, Nils Johan
Semb, að hann væri ekki viss um hverjir hentuðu best í
nokkrar stöður í liðinu. Þar á meðal var framherjastaðan.
Solskjær lét verkin tala og svaraði fyrir sig inni á vellinum.
Hann þótti þó ekki fagna mörkunum sérstaklega innilega og
á eftir tók hann ekki þátt í fagnaðarlátum. Lét þess hins
vegar getið í viðtölum hve óánægður hann væri með ummæli
þjálfarans. Sýndi að hann hefur munninn fyrir neðan nefið.
Norðmenn eru mjög spenntir að sjá hvernig Solskjær reið-
ir af í nýja starfinu. Þeir eiga nefnilega ekki góðu gengi
norskra þjálfara í Englandi að fagna; þrír hafa reynt þar fyr-
ir sér: Egil Drillo „Olsen“ með Wimbledon, Henning Berg
hjá Blackburn og Ståle Solbakken með Wolves. Öllum gekk
herfilega en búist er við betri tíð. Og kemur ekki á óvart.
* Sagt er aðSolskjær leyniá sér. Þrátt fyrir
barnslegt yfirbragð
sé hann hörkutól
og víli ekki fyrir
sér að hvessa sig.
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
NÝ LÍNA AF
BAÐINNRÉTTINGUM FRÁ IFÖ
Baðinnréttingar eru fáanlegar: hvítar háglans – hvítar mattar – ljósbrúnar – dökkgráar – svört eik
Allt í baðherbergið frá A til IFÖ.
Opið virka daga kl. 8–18 og laugardaga kl. 10–15
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Vincent Tan, eigandi Cardiff City, hefur verið mikið í fréttum áEnglandi síðustu vikur. Skömmu fyrir jól ráðlagði hann MalkyMackay, þjálfara liðsins, að segja starfi sínu lausu ellegar yrði
hann rekinn. Mackay sagði ekki koma til greina að hætta og fékk þá
reisupassann á milli jóla og nýárs, daginn eftir 3:0 tap fyrir Southamp-
ton.
Tan þessi, sem er auðugur viðskiptajöfur frá Malasíu, er liðlega sex-
tugur. Þræðir hans liggja víða í viðskiptum, m.a. í fasteignabransanum
og ferðaþjónustu auk þess sem hann á hlut í stóru veðmálafyrirtæki.
Hann er sagður í miklum tengslum við stjórnmálamenn í heimalandinu.
Tan keypti meirihluta í Cardiff City árið 2010 og á nýliðnu ári eign-
aðist hann bosníska knattspyrnufélagið FK Sarajevo.
Malasíumaðurinn kveðst stefna hátt með Cardiff og vera tilbúinn að
leggja töluverða fjármuni í reksturinn. Hann hefur verið harðlega
gagnrýndur í Englandi síðustu daga, bæði af fjölmiðlamönnum og ýms-
um í knattspyrnuheiminum, vegna þess hvernig hann kom fram við
Mackay. Í fyrsta lagi hefði hann alls ekki átt að reka þjálfarann, því
hann hefði gert mjög góða hluti með félagið. Sem er reyndar rétt. Því
hefur verið haldið fram að Tan hafi ekki hundsvit á fótbolta, sem vel má
vera rétt, en það skiptir svo sem ekki máli – hafi hann góða ráðgjafa sér
við hlið. Þeir þóttu reyndar ekki sérlega gáfulegir þegar Tan ákvað
fljótlega eftir að hann keypti félagið að skipta úr bláum keppnisbún-
ingum yfir í rauða. Það þótti stuðningsmönnunum skemmdarverk. Hið
sama var upp á teningnum þegar Mackay var rekinn. Því verður fróð-
legt að sjá hvernig samstarf Tans og Norðmannsins Solskjærs gengur.
Tan er óvinsæll
og veit af því
Vincent Tan veifar til stuðningsmanna Cardiff fyrir úrslitaleik deildarbik-
arkeppninnar, þegar félagið mætti Liverpool á Wembley í febrúar 2012.
AFP