Morgunblaðið - 25.02.2014, Side 4

Morgunblaðið - 25.02.2014, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014 FLUGKORTIÐ HAGKVÆMT GREIÐSLU- OG VIÐSKIPTAKORT • Afsláttur af flugi innanlands • Sérþjónusta og fríðindi • Viðskiptayfirlit FYRIR FYRIRTÆKI OG ATHAFNAFÓLK. Sæktu um á flugfelag.is eða sendu póst á flugkort@flugfelag.is Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur ákveðið að hefja samstarf við tvo framleiðendur kavíars úr íslensk- um grásleppuhrognum og umsýslu- aðila grásleppuhrogna á Íslandi um að sækja um vottun á grásleppu- stofninum, á grundvelli svonefndra MSC-reglna. Ástæðan er sú að alþjóðlegu nátt- úruverndarsamtökin World Wildlife Fund, WWF, hafa ítrekað viðvörun sína um áframhaldandi veiðar á grá- sleppu í N-Atlantshafi. Hafa samtök- in sett grásleppu á válista í Þýska- landi og Svíþjóð og ráðleggja neytendum í þessum löndum að kaupa ekki afurðir úr grásleppu, þ.m.t. grásleppukavíar. LS hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að staðan fyrir íslenska grásleppukarla sé „grafal- varleg“. Upplýsingar frá seljendum kavíars í Svíþjóð og Þýskalandi bendi til að byrjað verði að fjarlægja vörur tengdar grásleppu úr hillum ein- stakra verslana strax í byrjun mars- mánaðar næstkomandi. Grásleppuvertíðin hefst í kringum 20. mars nk. og vonast Halldór Ár- mannsson, formaður LS, til þess að það takist að ljúka tilskildum hluta vottunarferlisins sem fyrst þannig að hrogn af vertíðinni fái MSC-stimpil- inn. Smábátasjómenn telja ákvörðun WWF, um að setja grásleppu á vá- lista, ekki byggða á vísindalegum rök- um. Halldór segir landssambandið hafa fylgst með yfirlýsingum WWF um grásleppuna á undanförnum ár- um og sent upplýsingar til samtak- anna um veiðar og nýtingu á grá- sleppu. Hafrannsóknastofnun hefur einnig gert slíkt hið sama. Halldór segir ljóst að þetta hafi ekki dugað til að breyta afstöðu samtakanna. Ákvörðun um að setja grásleppu á válista geti haft í för með sér að hundruð fjölskyldna missi lífsviður- væri sitt. Að sögn Halldórs hafa um 400 leyfi verið gefin út til grásleppu- veiða en yfirleitt séu 200-300 bátar að veiðum. Í fyrra voru verkuð grá- sleppuhrogn í um 8.500 tunnur, borið saman við um 12 þúsund árið áður. „Ástæðan fyrir því að við höfum ekki viljað fara í þetta vottunarferli fyrr en núna er kostnaðurinn. Lands- sambandið hefur eitt og sér ekki haft efni á að standa í slíku en núna höfum við komist í samstarf með stórum framleiðendum. Við höfum til þessa ekki talið ástæðu til að merkja grá- sleppuafurðir sérstaklega þar sem veiðunum hefur verið vel stýrt. Að auki ætluðu aðrir aðilar að undan- skilja okkur og aðra framleiðendur í vottun og sitja einir að markaðnum,“ segir Halldór. Votta grásleppu vegna válista  Samtökin WWF hóta að fjarlægja grásleppuafurðir úr verslunum í Svíþjóð og Þýskalandi  Grásleppa úr N-Atlantshafi á válista  Grafalvarleg staða, segir LS Morgunblaðið/Helgi Mar Grásleppa Komin á válista hjá WWF í Þýskalandi og Svíþjóð. Varðskipið Týr fór í slipp á Akur- eyri í gær. Þar verður það málað hátt og lágt vegna nýs leiguverk- efnis á Svalbarða næstu mánuðina. Varðskipið mun algjörlega skipta um lit, þar sem skrokkurinn verður rauður og stýrishúsið hvítt. Hefur Týr eða annað íslenskt varðskip ekki áður skipt algjörlega um ham í sínum leiguverkefnum, að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæsl- unnar. Helst er þegar Týr fékk á sig merki Evrópusambandsins vegna fiskveiðieftirlits fyrir sam- bandið fyrir um þremur árum, en þá hélst grár undirtónn skipsins. Týr verður í slipp á Akureyri til 3. mars nk. Þá fer skipið til eftir- lits- og björgunarstarfa fyrir sýslu- manninn á Svalbarða, með heima- höfn í Longyearbyen. Leigutakinn, Fáfnir Offshore hf., mun bera kostnað af slipptöku og málningu ofan sjónlínu. Gæslan greiðir botn- hreinsun og -málningu, sem átti að fara fram á næsta ári. Að verkefni loknu á Svalbarða verður Týr mál- aður aftur í sínum gráu litum. bjb@mbl.is Týr skiptir um búning Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Slipp Varðskipið Týr komið í slipp á Akureyri. Verður málað hátt og lágt.  Varðskipið mál- að rautt og hvítt en síðan aftur grátt Boðað hefur verið til fundar strand- ríkja í makríldeil- unni á mánudag og þriðjudag í næstu viku. Margir fund- ir hafa verið haldn- ir í deilunni í vetur, en niðurstaða ekki fengist þó svo að nú sé sagt að lítið beri á milli. Elisabeth Aspaker, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, segist á heimasíðu ráðuneytisins vonast til að strand- ríkin komi til fundarins í næstu viku með raunverulegan vilja til að ná samkomulagi. Norðmenn hafa farið fram á að heildaraflamark verði aukið um- fram þau 900 þúsund tonn sem Al- þjóðahafrannsóknaráðið, ICES, lagði til í haust. Stofnmat á makríl var til umræðu á fundi sérfræðinga ICES í síðustu viku, en ekki hafa fengist upplýsingar um niðurstöður þess fundar. Boðað til fundar um stjórnun makríl- veiða í næstu viku hefur verið erfitt að koma sjúklingum á milli staða þegar heiðin lokast.“ Björgunarsveitin í bænum á hrós skilið að sögn Arnbjargar en félagar í henni hafa verið duglegir að aðstoða fólk sem festist á heiðinni og hafa komið sjúklingum á milli staða þegar aðrir hafa ekki komist. Jarðgöng undir heiðina myndu að sögn Arn- bjargar bæta samgöngur til muna og efla lands- hlutann sem eitt stórt atvinnusvæði. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Þrátt fyrir að ferlirit Veðurstofunnar sýni að óvenjulítill snjór sé í mörgum byggðum landsins hafa íbúar á Austurlandi búið við annan veru- leika. Snjóþunginn er það mikill að víða hafa vegir lokast og fólk ekki komist leiðar sinnar. Oddsskarð tepptist um nýliðna helgi er þar gerði vonskuveður. Snjórinn er svo mikill í skarðinu að sögn sjónarvotta að topplyftan á skíðasvæðinu er komin á kaf. Íbúar á Seyðisfirði hafa einnig orðið fyrir barðinu á veðurguðunum en Fjarðarheiði lok- aðist nýlega í fimm daga. Arnbjörg Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði, segir lokanir á heiðinni ekki óvenjulegar yfir vetrartímann. Lokað í tvo mánuði af fimm í fyrra „Frá byrjun janúar til loka maí á síðasta ári var heiðin lokuð samanlagt í 50 daga eða nærri því tvo mánuði. Við erum því vön því að heiðin geti lokast en það er samt sem áður alltaf jafn óþægilegt,“ segir Arnbjörg. Hún bendir á að íbúar á Seyðisfirði þurfi að geta sótt bæði vinnu og þjónustu út fyrir bæinn og eins starfi margir í bænum sem búa í nær- liggjandi sveitarfélögum. „Þetta er eitt stórt at- vinnusvæði og fólk þarf að komast á milli bæjar- félaga. Þetta er líka spurning um öryggi og oft Ljósmynd/Jens Garðar Helgason Í Oddsskarði Eftir að mokað var í gærmorgun varð vegurinn greiðfær þrátt fyrir hátt snjóstálið. Hafnirnar í Fjarðabyggð eru meðal þeirra stærstu í útflutningi á sjávarafurðum og áli frá Íslandi og er nú unnið við ný göng. Á myndinni sést yfir Reyðarfjörð í átt að Skrúði. Lokaðir í firðinum í 50 daga  Mikill snjóþungi á Austurlandi í vetur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.