Morgunblaðið - 25.02.2014, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
HEYRNARSTÖ‹IN
Þjónusta Heyrnarstöðvarinnar gengur út á aukin lífsgæði. Við bjóðum ókeypis
heyrnarmælingu, hágæða heyrnartæki og margvíslega sérfræðiþjónustu og ráðgjöf.
Kynntu þér þjónustu okkar á heyrnarstodin.is og vertu í sambandi.
Við tökum vel á móti þér. Heyrumst.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Dalvegi 16a Kóp. | nora.is | facebook.com/noraisland
ÚTSALAN HELDUR ÁFRAM
20-50% AFSLÁTTUR
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Litasprey í úrvali!
Flottar
mussur
Str. 36-52
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
kr. 11.900
HARPA SILFURBERG
Sunnudag 2. mars kl. 20:00
Miðaverð kr. 3.500 / 2.500
STÓRSVEIT
REYKJAVÍKUR
Styrkt af
Miðar á midi.is harpa.is í miðasölu Hörpu
GLÆSILEGIR GALATÓNLEIKAR
Leikin verða mörg af þekktustu lögummerkustu stórsveita swing
stílsins ss Benny Goodman, Artie Shaw, Jimmy Lunceford, Cab
Calloway, Charlie Barnet, Tommy Dorsey, Les Brown, GlennMiller,
Duke Ellington og Count Basie.
GESTASÖNGVARAR:
Björgvin Halldórsson - Helgi Björnsson
Ragnheiður Gröndal
STJÓRNANDI:
Sigurður Flosason
Röng nöfn drengja
Nöfn tveggja drengja á mynd frá
Grundarfirði í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins voru röng. Þeir
heita Benjamín Æsir Markússon og
Hrímnir Steini Fannarsson. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
Rangt farið með nafn
Í afmælisgrein um Karl Jónatansson
níræðan í Morgunblaðinu í gær var
nafn Harmonikufélags Reykjavíkur
rangt skrifað. Beðist er velvirðingar.
LEIÐRÉTT
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
fékk tilkynningu um eld í póstkassa í
anddyri fjölbýlishúss við Austurberg
í Reykjavík um klukkan þrjú í gær.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
hafði eldurinn verið slökktur.
Ekki liggur fyrir með hvaða hætti
eldurinn kviknaði en nokkrar
skemmdir urðu á póstkassanum.
Gera má ráð fyrir að eldurinn hafi
kviknað af manna völdum.
Kveikt í póstkassa
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra harmar að forseti Úganda
hafi undirritað lög sem herða enn
viðurlög við samkynhneigð en brot á
lögunum geta varðað ævilangri fang-
elsisvist. „Íslensk stjórnvöld styðja
réttindabaráttu hinsegin fólks á al-
þjóðavettvangi og það eru mér því
mikil vonbrigði að þessi lög hafi nú
tekið gildi,“ er haft eftir ráðherra á
heimasíðu ráðuneytisins.
Ákvæði laganna brjóta gegn
mannréttindum sem tryggð eru í
mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna, mannréttindasáttmála
Afríku og í sáttmála SÞ um borgara-
leg og stjórnmálaleg réttindi, sem
Úganda hefur fullgilt.
Úganda er mikilvægt samstarfs-
ríki Íslands og eitt af þeim fimm
ríkjum þar sem lögð er áhersla á
þróunarsamvinnuáætlun. Þróunar-
samvinna Íslands í Úganda er unnin
í samstarfi við héraðsstjórnvöld auk
þess sem verkefni á vegum frjálsra
félagasamtaka eru studd, segir á
heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
Þverpólitísk tillaga
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, er fyrsti
flutningsmaður þverpólitískrar
þingsályktunartillögu sem lögð hef-
ur verið fram á Alþingi þar sem mót-
mælt er ofsóknum stjórnvalda í Úg-
anda gegn samkynhneigðum þar í
landi.
Tillagan gerir meðal annars ráð
fyrir að framlög til samtaka samkyn-
hneigðra í Úganda verði stóraukin.
Þá kemur fram að ekki sé rétt að
segja formlega upp samningum um
þróunarsamvinnu en það kunni þó að
reynast nauðsynlegt að tjá mótmæli
Íslands með þeim hætti ef þarlend
stjórnvöld láti ekki af ofsóknum sín-
um gegn samkynhneigðum.
Ofsóknir lögleiddar
Samtökin ’78 hafa átt í miklu sam-
starfi við systursamtök sín í Úganda
og hefur Anna Pála Sverrisdóttir
formaður fylgst með málinu þróast
dag frá degi. „Fólk er bara ofboðs-
lega hrætt. Það er búið að lögleiða of-
sóknir á hendur því, enginn veit hvað
kemur næst og ég finn að fólk óttast
virkilega um líf sitt og öryggi,“ sagði
Anna Pála í samtali við mbl.is í gær.
Hún segir að nú reyni á alþjóða-
samfélagið að mótmæla, því mót-
mæli af þessu tagi teljist nú orðið
lögbrot í Úganda samkvæmt hinum
nýsamþykktu lögum. „Nú má ekki
aðhafast neitt í þágu baráttu hinseg-
in fólks í Úganda og það er því ekki
sniðugt að fólk efni til mótmæla þar.“
»22
Ráðherra harmar
setningu laga
Íslensk stjórnvöld styðja réttindabar-
áttu hinsegin fólks á alþjóðavettvangi
EPA
Barátta Enn þarf að berjast fyrir réttindum samkynhneigðra í veröldinni.