Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
SVIPMYND
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Dregið hefur úr ágreiningi í frímín-
útum í skólum og krakkarnir hreyfa
sig meira eftir að svokallað Vinaliða-
verkefni hefur verið innleitt í nokkr-
um grunnskólum víða um land.
Verkefnið var fyrst tekið upp í
þremur grunnskólum í Skagafirði
árið 2012 að norskri fyrirmynd.
Markmið verkefnisins er að stuðla
að fjölbreyttari leikjum í löngu frí-
mínútum í skólanum. Í gegnum leik-
inn er nemendum gert kleift að
tengjast sterkum vinaböndum. Með
þeim hætti er unnið gegn einelti.
Vinaliðaverkefnið hefur gefið
góða raun. Á tæpum tveimur árum
hafa fleiri skólar bæst í hópinn.
Samtals eru skólarnir orðnir 13 tals-
ins, víða um land. Fyrsti skólinn á
höfuðborgarsvæðinu bættist í hóp-
inn nýverið, Hólabrekkuskóli. Í
næstu viku verður þar haldið leikja-
námskeið þar sem krakkarnir læra
hina ýmsu leiki.
Annað landslag á skólalóðinni
„Landslagið á skólalóðinni núna
er allt annað. Krakkarnir leika sér
miklu meira,“ segir Inga Lára Sig-
urðardóttir, kennari og verkefnis-
stjóri vinaverkefnisins í Árskóla.
Hún bendir á að ekkert verkefni
sem hún hefur tekið þátt í hafi virk-
að jafn fljótt og vel. Árskóli inn-
leiddi verkefnið haustið 2012.
Löngu frímínúturnar í Árskóla
voru lengdar úr 20 mínútum í 30
mínútur á miðstiginu til þess eins að
krakkarnir gætu notið sín betur í
leikjunum. Flestir taka þátt og eng-
inn er neyddur til að vera með.
Fyrirkomulagið er með þeim
hætti að valdir eru vinaliðar innan
bekkja eða bekkjadeilda sem skipu-
leggja leiki í frímínútunum og ganga
úr skugga um að farið sé eftir leik-
reglum. Mikilvægt er að allir eru
boðnir velkomnir í leikinn og það
með nafni. Þessir vinaliðar fá
kennslu og þjálfun á leikjanám-
skeiðum og einnig leiðtogaþjálfun.
Eingöngu þeir nemendur sem sýna
góða hegðun eru gjaldgengir. Vina-
liðunum er umbunað með ýmsum
hætti; m.a. með því að fá frítt í sund
og á íþróttakappleiki.
„Hegðun hefur batnað. Áður
eyddu skólaliðarnir miklum tíma í
að útkljá mál sem komu upp á skóla-
lóðinni en núna er lítill ágreiningur.
Nú er nóg um að vera og hægt að
velja úr mörgum leikjum þar sem
reglurnar eru skýrar,“ segir Inga
Lára.
Töff unglingar leika sér líka
Í Árskóla var tekið upp á því að
færa verkefnið upp á unglingastig. Í
stað þess að hafa leiki á hverjum
degi eins og tíðkast á miðstiginu þá
er í boði fyrir unglingana að taka
þátt í skipulögðum leikjum tvisvar í
viku í íþróttasalnum. Inga Lára seg-
ist fyrirfram hafi verið örlítið efins
um að eins vel myndi takast á ungl-
ingastigi og á miðstigi. En útkoman
kom á óvart.
„Mér finnst þetta mjög skemmti-
legt og gaman að taka þátt í þessu.
Ég hélt að ekki allir myndu vilja
taka þátt. Það finnst ekki öllum ung-
lingum töff að leika sér en það er
mjög góð mæting,“ segir
Fanney Rós Konráðsdóttir, vina-
liði og nemandi í tíunda bekk í Ár-
skóla. Hún segist hafa kynnst fullt
af krökkum. „Núna getur maður tal-
að við alla.“ Ekki skemmi fyrir að
þau hafa lært fullt af nýjum leikjum.
Í vor er stefnt að því að leika sér úti.
Endurvekja leiki með
skipulagðri útiveru
„Við lítum á verkefnið sem kær-
komið tækifæri að skipuleggja úti-
veru, endurvekja leiki og virkja
krakkana í að stjórna leikjunum.
Með þessu vinaliðaverkefni tekst
það og við erum afskaplega ánægð,“
segir Jónína Magnúsdóttir, skóla-
stjóri grunnskóla Fjallabyggðar.
Vinaliðaverkefnið var innleitt í
skólann í janúar. Jónína segir verk-
efnið fara afskaplega vel af stað. En
nemendur eru mjög áhugasamir um
að fá að verða vinaliðar og það hvetji
til góðrar hegðunar. Til að byrja
með er verkefnið á miðstigi og
yngsta stigið nýtur góðs af því. Þá
er stefnt á að innleiða verkefnið á
unglingastiginu á næstunni.
Skipulagðir leikir úti á skólalóðinni
Fleiri skólar feta í fótspor Skagfirðinga og innleiða vinaliðaverkefni Markmiðið að auka fjöl-
breytta leiki á skólalóðinni Dregið úr ágreiningi og hreyfing aukist Hreyfa sig í hálftíma á dag
Ljósmynd/Árskóli
Vinaliðar Þessir nemendur eru fyrstu vinaliðar í Skagafirði, að launum fyrir að hafa staðið sig vel og stjórnað leikj-
um fengu þau að fara í skíðaferðalag. Einungis þeir nemendur sem sýna góða hegðun fá að vera vinaliðar.
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
• tré- eða ál/trégluggar og hurðir
• hámarks gæði og ending
• límtré úr kjarnaviði af norður skandinavískri furu
• betri ending—minna viðhald
• lægri kostnaður þegar fram líða stundir
• Idex álgluggar eru íslensk framleiðsla
• hágæða álprófílakerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
GLUGGAROGGLERLAUSNIR
Byggðu til framtíðar
með gluggum frá Idex