Morgunblaðið - 25.02.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkja-
forseta hefur hvatt stjórnvöld í
Rússlandi til að senda ekki her-
menn á Krímskaga eða önnur svæði
í Úkarínu eftir að Viktor Janúkó-
vítsj var steypt af stóli forseta í
Kænugarði.
Sergej Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, hefur sakað andstæð-
inga Janúkóvítsj um að hafa brotið
samkomulag sem náðist á föstudag-
inn var fyrir milligöngu utanríkis-
ráðherra þriggja ríkja Evrópusam-
bandsins og fulltrúa Vladímírs
Pútíns, forseta Rússlands. Lavrov
sagði að stjórnarandstaðan hefði „í
raun hrifsað völdin í sínar hendur,
neitað að afvopnast og haldið áfram
að veðja á ofbeldi“. Rússneska
stjórnin kallaði sendiherra sinn í
Kænugarði heim til að ræða
ástandið í Úkraínu eftir að þing
landsins samþykkti um helgina að
víkja Janúkóvítsj úr embætti for-
seta.
Susan Rice, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Bandaríkjaforseta, lét í
ljósi áhyggjur af því að Pútín sendi
hermenn til Úkraínu. „Það væru al-
varleg mistök,“ sagði Rice í sjón-
varpsviðtali um hugsanlega
hernaðaríhlutun af hálfu Rússa.
„Það þjónar ekki hagsmunum
Úkraínu, Rússlands, Evrópu eða
Bandaríkjanna að landið klofni.“
William Hague, utanríkis-
ráðherra Bretlands, sagði að Rúss-
ar hefðu ekki hag af því að beita
Úkraínu frekari þvingunum. „Við
vitum auðvitað ekki hver næstu við-
brögð Rússlands verða,“ sagði
Hague þegar hann var spurður
hvort Rússar kynnu að senda skrið-
drekasveitir inn í Úkraínu.
Fall Janúkóvítsj og ríkisstjórnar
hans er mikið áfall fyrir Pútín sem
hefur lagt mikla áherslu á að
tryggja að Úkraína verði áfram á
áhrifasvæði Rússa. Pútín vill
byggja upp bandalag fyrrverandi
sovétlýðvelda, Evrasíusambandið
svonefnda, en margir Rússar telja
að án Úkraínu sé hugmyndin um
slíkt bandalag nánast andvana
fædd.
Líta á Krím sem
hluta af Rússlandi
Um það bil þriðjungur íbúa
Úkraínu hefur rússnesku að móð-
urmáli og flestir þeirra búa í aust-
an- og sunnanverðu landinu þar
sem stuðningurinn við Janúkóvítsj
og náin tengsl við Rússland er
mestur.
Stuðningsmenn Rússa hafa með-
al annars skipulagt mótmæli í Krím
til að krefjast þess að skaginn fái
aukin sjálfstjórnarréttindi. Svarta-
hafsfloti rússneska sjóhersins er
með bækistöð í Sevastopol, stærstu
borginni í Krím og næststærstu
hafnarborg Úkraínu. Herstöðin
veitir Rússum greiðan aðgang að
Miðjarðarhafinu og Krím hefur því
mikla hernaðarlega þýðingu fyrir
Rússa.
Nýleg skoðanakönnun bendir til
þess að um 56% Rússa líti á Krím
sem rússneskt landsvæði. Skaginn
var hluti af Rússlandi frá átjándu
öld en var færður undir stjórn
Úkraínu árið 1954 þegar Níkíta
Khrústsjov var leiðtogi Sovétríkj-
anna. Margir Rússar rekja þá
ákvörðun til þess að Khrústsjov var
lengi leiðtogi kommúnistaflokksins í
Úkraínu áður en komst til valda í
Kreml eftir dauða Jósefs Stalíns.
Eftir að Úkraína fékk sjálfstæði frá
Sovétríkjunum árið 1991 hélt landið
yfirráðunum yfir Krím en gerður
var samningur við Rússa um að
þeir héldu herstöðinni í Sevastopol
til ársins 2042.
Telur innrás ólíklega
Lilit Gevorgjan, sérfræðingur í
málefnum Rússlands og annarra
fyrrverandi sovétlýðvelda, telur að
Rússum geti reynst erfitt að leggja
Krím undir sig með hjálp rúss-
neskra þjóðernissinna á skaganum.
Hún bendir á að í Krím eru aðrir
hópar sem vilja ekki að skaginn
verði hluti af Rússlandi, meðal ann-
ars tartarar sem sættu ofsóknum í
valdatíð Stalíns.
Tony Barber, fréttaskýrandi The
Financial Times, telur að Evrasíu-
sambandið, sem Pútín vill byggja
upp, verði ekki burðugt bandalag
án Úkraínu. Hann telur þó ólíklegt
að Pútín fyrirskipi innrás eins og í
Georgíu árið 2008 vegna deilunnar
um héruðin Suður-Ossetíu og
Abkhazíu sem lýstu yfir sjálfstæði
frá Georgíu. Aðeins fimm ríki
viðurkenna sjálfstæði héraðanna,
en önnur lönd líta svo á að Rúss-
land hafi hernumið þau.
Barber telur að Rússar myndu
frekar vilja láta stuðningsmenn
sína í Úkraínu um að „vinna
óþverraverkin fyrir sig“. Hann
Rússar beiti ekki hervaldi
Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta skorar á Rússa að hertaka ekki Krím eða önnur svæði
í Úkraínu Forsætisráðherra Rússa segir þá ekki geta samið við „vopnaða uppreisnarmenn“
AFP
Fórnarlambanna minnst Kona kveikir á kerti fyrir utan skrifstofu fastanefndar Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum
í New York til að minnast tuga manna sem létu lífið í átökunum í miðborg Kænugarðs í vikunni sem leið.
Janúkóvítsj eftirlýstur
» Nýr innanríkisráðherra
Úkraínu fyrirskipaði í gær
handtöku Viktors Janúkóvítsj
vegna árása öryggissveita á
mótmælendur í miðborg
Kænugarðs áður en honum var
steypt af stóli forseta. Innan-
ríkisráðuneytið segir að 88
manns hafi beðið bana í átök-
unum í borginni.
» „Hafin hefur verið saka-
málarannsókn vegna fjölda-
morða á friðsömum borgurum.
Janúkóvítsj og nokkrir aðrir
embættismenn eru eftirlýstir,“
sagði Arsen Avakov sem var
skipaður innanríkisráðherra til
bráðabirgða.
» Avakov sagði að Janúkóvítsj
hefði reynt að flýja land á
laugardaginn var frá borginni
Donetsk í austurhluta Úkraínu.
Janúkóvítsj hefði komist und-
an með lífvörðum sínum á
þremur bílum til Krím og ekki
væri vitað hvar hann væri
niðurkominn nú.
Lögreglan í Rússlandi handtók á
þriðja hundrað mótmælenda fyrir
utan dómhús í Moskvu í gær. Þar
voru sjö aðgerðasinnar dæmdir í
allt að fjögurra ára fangelsi fyrir
mótmæli gegn Vladimír Pútín árið
2012.
Nokkur hundruð stuðningsmenn
mótmælendanna mættu fyrir utan
dómhúsið í gærmorgun og tók ör-
yggislögreglan hart á þeim. Yfir
200 voru handtekin fyrir að spilla
friði, að sögn lögreglunnar. Sumir
hinna handteknu klæddust fanga-
búningi í mótmælunum og báru
grímu af andliti Pútíns forseta.
„Þessi dómar eru harðir og óviðeig-
andi,“ sagði Dmitry Agranovskí,
lögmaður Yaroslavs Belousovs, sem
var dæmdur til tveggja og hálfs árs
fangelsisvistar. „Dómarnir eru
byggðir á pólitík.“
Flestir þeir sem dæmdir voru í
fangelsi hafa þurft að dúsa í varð-
haldi allt frá handtökunum í maí ár-
ið 2012. Fjöldamótmæli brutust út í
Moskvu þegar Pútín var kjörinn
forseti í þriðja sinn eftir að hafa
gegnt embætti forsætisráðherra.
sunna@mbl.is
EPA
Dæmdir Hér má sjá aðgerðasinnar fyrir rétti í Moskvu í gær.
Dæmdir í fangelsi fyrir
mótmæli gegn Pútín
Yfir 200 handtekin við dómhúsið