Morgunblaðið - 25.02.2014, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.02.2014, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014 Í dag kveð ég mína dásamlegu ömmu og börnin mín langömmu sína. Í mínum huga eru það forréttindi að hafa fengið tækifæri til að hafa ömmu mína alltaf nærri mér. Geta heimsótt hana í öll þessi ár og stutt hana og aðstoðað á síðustu árum. Börnin mín búa einnig að því að hafa umgengist langömmu sína mikið svo þau munu minnast hennar. Amma var einstök. Í mínum huga var hún dugleg, nægjusöm, skemmtileg og áhugaverð. Amma tók ávallt vel á móti mér og í seinni tíð manni Katrín Sigurjónsdóttir ✝ Katrín Sigur-jónsdóttir fæddist 3. júní 1927. Hún lést 11. febrúar 2014. Katr- ín var jarðsungin 22. febrúar 2014. mínum og börnum. Lundi og svartfugl- segg voru iðulega á borði eftir langan akstur frá Reykja- vík til Stykkishólms á mínum yngri ár- um. Enn í dag eru þetta einir af mínir uppáhaldsréttum. Amma var einstak- lega áhugasöm um að spila og var ávallt spilað mikið í heimsóknum mín- um og, í seinni tíð, fjölskyldu minnar á Bók 7. Kani, manni og rommý var mikið spilað. Ömmu fannst ég nú óttalegur klaufi við spil en var öllu sáttari við mann- inn minn þegar þau spiluðu sam- an. Enda bæði útsjónarsöm og skynsöm með spil á hendi. Virð- ing og rólegheit einkenndu sam- band mitt við ömmu. Mér leið alltaf vel hjá ömmu þar sem ná- lægðin við hana var góð og hún umhyggjusöm. Skemmtilegar samræður þar sem „kallinn í tunglinu“ kom oft við sögu og húmorinn ekki langt undan var einkennandi fyrir ömmu. Ég er stolt að hafa átt sterka ömmu sem var skynsöm, dugleg og áhugasöm og þar sem æðruleysi og hæfilega mikið af kæruleysi var ekki langt undan. Elsku amma, við elskum þig og söknum þín. Edda Sif og fjölskylda. Amma í Stykkó. Fyrsta orðið sem kemur upp í hugann þegar við hugsum til ömmu í Stykkó er æðruleysi. Amma var ætíð með æðruleysisbænina innan seiling- ar, en hjá henni voru þetta ekki bara orð á blaði eða falleg bæn, amma var í okkar huga æðrulaus. Við getum okkur til að amma hafi að hluta öðlast æðruleysið við það að eignast átta börn á tíu árum, ala þau upp og koma þeim öllum vel til manns. Þegar við spurðum hana í forundran, með eitt barn hvor, hvernig í ósköp- unum hún hefði farið að þessu svaraði hún stutt og laggott: „Ég hugsaði ekkert um þau!“ Amma tileinkaði sér það sem lífið kenndi henni. Auk æðruleys- isins hafði lífið líka kennt henni umburðarlyndi og fordómaleysi gagnvart umhverfi og samferða- fólki. Einhvern tíma í samræðum um fordóma og samkynhneigð sagði hún að gamalt fólk hefði ekki fordóma – það vissi betur! Við eigum margar góðar minningar úr Stykkó. Skólafrí byrjuðu einatt á fimm klukku- stunda rútuferð í Stykkishólm með góðu stoppi á hótelinu í Borgarnesi. Í Stykkó dvöldum við í rólegheitum og afslappelsi, enda asi og stress það síðasta sem einkenndi ömmu og heim- ilislífið á Bók7. Lunda, svartfugl- segg og lambalæri í hádegismat á sunnudögum fengum við bara hjá ömmu. Við deildum áhuga hennar á spilum og sjónvarps- glápi langt fram eftir nóttu ef þannig bar við. Amma var óþrjót- andi í hvoru tveggja. Hún lagði kapla og spilaði við okkur rommý, manna og kana. Við kveðjum ömmu með söknuði og geymum í huganum minningu um yndislega ömmu. Gerður Björk og Katrín Helga. Fyrir tæpum 20 árum var Tennis- höllin fyrri vígð í Dalsmára Kópa- vogsins. Gunnar fregnaði af þessu undarlega uppátæki, tók spaðann upp aftur en hann hafði um árabil leikið tennis á Melavellinum á sínum tíma. Enda spengilegur með góða tækni, tímasetningu og fín- hreyfingar. Í Kópavoginum lék hann tví- liðaleik með nokkrum aldur- hnignum görpum fram í nóv- emberlok síðasta árs. Þá var sárlega af honum dregið. Þótt hann væri ekki þrotinn að kröft- um var síðasta lotan í æðru- lausri og áralangri baráttu við vægðarlausan og illvígan sjúk- dóm runnin upp. Komið var að leiðar- og leikslokum, tími til að leggja niður og kveðja vopnið, afhenda skotfærin (sænskir Tre Torn X-boltar) – eftir margan sætan sigurinn. Gunnar var ljúfmenni til orðs og æðis, í senn heiðurs- og heimsmaður. Hann bjó yfir fág- un og forvitni fræðimannsins, fíngerður, fyrirferðarlítill, hlé- drægur, orðvar, leitaði stöðugt Gunnar Daníel Lárusson ✝ Gunnar DaníelLárusson fæddist 6. maí 1930. Hann lést 2. febrúar 2014. Útför Gunnars fór fram 24. febrúar 2014. fullkomnunar í leik sínum, hvað mætti betur fara, var samfellt að læra. Var metnaðarfull fyrirmynd í leik og starfi. Og svo hafði hann skopskyn. Var staða leiksins 40:15 eða 30:30 eða var lotunni lokið? Þá þurftu minnugir öldungarnir að rifja upp síðustu boltana – eða finna ásættanlega málamiðlun. Örstutt var í hlát- urinn, mikið lifandis skelfingar ósköp var gaman að leika tennis. Sól hækkar á lofti, lóan ku víst vera komin, vorið rétt hand- an við himinlána – og hægt verður að leika útitennis í kvöld- húmi lognsins milli sjávarfalla. En enginn Gunnar kemur leng- ur akandi í sínum silfurgráa Audi – með strók vindlareyks upp úr opinni þaklúgunni – við kynngimagnaða tónlist Beetho- vens. Það verður bæði söknuður eftir Gunnar og sjónarsviptir að honum. Sævar Tjörvason. Það er orðið fyrir margt löngu síðan að við Gunnar Daní- el Lárusson urðum málkunnug- ir. Við syntum í flokki Björgvins af Vaðnesi lengi án þess að tala mikið saman. Þá voru farnar menningarferðir til Kristjáns Ziemsen á Elliðavatn þar sem foringinn dreypti á „Fivlevin“ sem var búið til úr þúsund fífl- akrónum eftir leynilegri formúlu apótekarans undir eftirliti Lillu Laxdal. Þar voru góðar stundir og hlátrasköllin hljóma enn í minningunni. Árin liðu. Svo var það einn dag um 1990 að ég fór að teikna í tölvu í stað þess að tússa. Þá tókum við Gunnar tal og þá var hann orðinn þróaður í þrívídd- arteikningum sem fáir léku þá. Ég fór í kennslutíma til hans og undraðist stórum að sjá teikn- ingar sem voru eins og ljós- myndir. Svo liðu enn árin og snemma á þesari öld fórum við að vinna saman þar sem ég fékk að læra af Gunnari um loftræstikerfi sem hann var búinn að sérhæfa sig í. En hann var flugvélaverk- fræðingur að mennt og átti að baki starfsferil á því sviði. Hann fór létt með að skipta á milli Autocad og Microstations og hann kenndi mér svo að nýta það fyrrnefnda sem ég kunni greinilega of lítið í þótt ég þætt- ist annað. Þetta voru góðar stundir að kynnast svo vönd- uðum fagmanni sem hann var. Hans teikningar voru sérstæðar í nákvæmri þrívídd og mátti taka hvert stykki út og smíða eftir því málsettu. Og allt féll þetta svo í eina heild á bygging- arstað. Eitt sinn talaði hann um að hann hefði spilað tennis á Mela- vellinum í gamla daga. Þá vor- um við byrjaðir að spila nokkrir félagar og Gunnar slóst í hópinn og við spiluðum saman í meira en áratug við mikla kátínu og ánægju. Þesssi spilamennska stóð alveg fram undir jól á síð- asta ári þar til að heilsu Gunn- ars fór að hraka meira. Gunnar var sérstakur lífskúnstner. Reykti stóra vindla í skipulagi og naut þess svo að unun var á að horfa. Hann var vandvirkur og formfastur í lífinu og hafði ánægju af tækni og góðum bílum. Vinnusamur og góður félagi. Ráðagóður við erf- iðustu vandamál. Það var stund- um ótrúlega gaman að horfa á hann flétta loftræsistokka og lagnir í mikið spaghetti. Allt féll þetta svo saman í eina heild í smíðinni. Mörg stórhýsi njóta verka hans í dag. Gunnar var kjarkmaður með afbrigðum. Hikaði ekki við að ráðast einn á tvo ræningja sem höfðu rænt veskinu úr jakka hans á skrifstofunni. Þeir lögðu á flótta en Gunnar reif veski sitt úr innanávasa annars þegar hann hljóp þá uppi út á götu. „Maður er ekkert að hugsa svo- leiðis“ sagði hann með hægð þegar ég spurði hann um hætt- una sem þessu fylgdi. Hann var jafngeiglaus gagnvart veikind- um sínum og ræddi lítt. Það þýðir ekkert að súrmúla svona sagði hann við mig þegar þess þurfti með. Hann var glæsimenni að vall- arsýn, fríður sýnum, grannur og bar sig vel. Orðvar og umtals- frómur. Hugumstór og hugprúð- ur til hinsta dags. Hann gerði sér auðvitað grein fyrir því hvert stefndi eftir margra ára frækilega baráttu við krabba- meinið. Aldrei eitt æðruorð heldur að allt væri í lagi. Frá- bær maður og félagi. Farðu vel vinur. Halldór Jónsson. Látinn er traust- ur og góður félagi, Halldór Valgeirs- son. Hann ólst upp í stórum systkinahóp og var snemma kall- aður til ábyrgðar og fyrirvinnu innan sem utan fjölskyldunnar. Halldór hefur verið góður og glöggur nemandi og hefði viljað leggja langskólanám fyrir sig, en Halldór Valgeirsson ✝ Halldór Val-geirsson fædd- ist 1. desember 1937. Hann and- aðist 17. febrúar 2014. Halldór var jarð- sunginn 24. febrúar 2014. þröngt var í búi. Fór hann ungur sem messi á Gullfoss og vann einnig í frysti- húsi og launin hygg ég að hafi gengið til heimilisins. Hann tók landspróf og fer svo í stóra bekkjar- deild í Samvinnu- skólanum 1954-55. Sá skóli varð nem- endum sínum og lífsstarfi þeirra notadrjúgur. Þetta mun hafa verið síðasti vet- ur Jónasar Jónssonar við skólann og miklar kröfur gerðar og langir skóladagar. Í skólanum hafði vaxið það félagshyggju- og sam- vinnustarf sem renndi styrkum stoðum undir verslun, iðnað og sjálfstæði þjóðarinnar. En þetta var ekki nóg fyrir Halldór og sýnir næsta skref sem hann tók víðsýni hans og gáfur. Hið bóklega var gott en hvað með hið verklega? Þá fyrir milligöngu Árna G. Eylands fer Halldór til Noregs í nám við Búnaðarskól- ann Stend í Noregi og er þar 2 ár m/útivinnu á sumrin eða frá ágúst 1955 og kemur svo heim í júní 1957. Þarna hefur Halldór öðlast mikið bóklegt og starfs- tengt nám sem hann og þau störf sem hann tók að sér nutu síðar. Það verður svo hlutskipti Hall- dórs að glöggir menn fá hann til samstarfs í bókhaldi og endur- skoðun og hlaut hann löggildingu í endurskoðun 1975. Halldór eignast sinn trausta lífsförunaut, dugnaðarforkinn Ernu Helgadóttur, 1967 og sam- an eiga þau þrjá drengi, en fyrir átti Erna tvö börn, Guðnýju og Helga. Þetta var því stór fjöl- skylda. Þau hjónin stofna til verslunar, „Saumasporið“, og byggja stórhýsi í Laufbrekkunni – fjölskyldan uppi og verslun og iðnaður niðri. Alltaf sívinnandi, eins og frá unga aldri. Erna féll frá fyrir nokkrum árum og var Halldóri sár missir. Allir sem kynntust Halldóri lærðu að meta hyggindi hans og holl ráð og svo þessa djúpu gam- ansemi sem læddist svo hlýlega fram. Ég veit að hann minntist frá æskuárum sínum stríðsár- anna og hergöngu með trébyssu á eftir dátum og hendast svo skjól í kjallara þegar sírenurnar höfðu vælt um hríð og ná þá þangað – um það leyti sem aðrir voru á leiðinni aftur upp. Ekki fór framhjá neinum lífsbarátta al- mennings á þeim árum með vöru- skorti og skömmtunarseðlum. Með Halldóri er fallinn góður drengur sem ætíð stóð fyrir sínu. Hann er kært kvaddur. Gunnar Gunnarsson. ✝ Yndislegur eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, PÁLL VIDALÍN JÓNSSON, andaðist í London þriðjudaginn 18. febrúar. Minningarathöfn fer fram síðar. Brigitte Chastanet, Magnús Vidalín, Daníel Vidalín, Oliver Vidalín, Jón Bergsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, HJÁLMAR RÚNAR JÓHANNSSON, er látinn. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. febrúar kl. 15.00. María Vala Friðbergs, Sigrún Birna, Hrafnhildur, María Lára og Sandra Rún. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEINÞÓR JÓHANNSSON, húsa- og húsgagnasmíðameistari og Kópavogsskáld, Auðbrekku 2, Kópavogi, lést þriðjudaginn 11. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 27. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á söfnunarreikning vegna útgáfu óútkominnar ljóða- bókar Kópavogsskáldsins. Kt. 201280-5409, 0130-05-071954. Albert Steinþórsson, Jórunn Helga Steinþórsdóttir, Guðjón Elmar Guðjónsson, Helgi Jónsson, Hrönn Þráinsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR ÁRNASON frá Vík í Mýrdal, síðast til heimilis að Brákarhlíð, dvalar- og hjúkrunarheimili í Borgarnesi, lést laugardaginn 22. febrúar. Útförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi föstudaginn 28. febrúar kl. 13.00. Helga Einarsdóttir, Karl Magnús Kristjánsson, Arna Einarsdóttir, Konráð Konráðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA M. STEFÁNSDÓTTIR, Staðarbakka 20, andaðist þriðjudaginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 28. febrúar kl. 13.00. Stefán Ólafsson, Ragnheiður G. Sumarliðadóttir, Sigurður Ólafsson, Fjóla Agnarsdóttir, Anna Ólafsdóttir, barnabörn og langömmubarn. ✝ Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, METÚSALEM ÓLASON, Miðvangi 6, áður Selási 21, Egilsstöðum, lést föstudaginn 21. febrúar á hjúkrunardeild HSA, Egilsstöðum. Útför hans fer fram frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 1. mars klukkan 14.00. Rósa Bergsteinsdóttir, Guttormur Metúsalemsson, N. Snædís Jóhannsdóttir, Óli Grétar Metúsalemsson, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Bergsteinn H. Metúsalemsson, Rannveig Sigurjónsdóttir, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.