Morgunblaðið - 25.02.2014, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 2014
Hvern ætlar þú að
gleðja í dag
Bíólistinn 21.-23. febrúar 2014
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Lego The Movie
Gamlinginn
Ride Along
Lífsleikni Gillz
RoboCop
I, Frankenstein
Cloudy with a Chance of Meatballs 2
Out Of The Furnace
Nymphomaniac part 1
Justin and the Knights of Valour
1
Ný
Ný
2
3
Ný
5
4
7
8
2
1
1
3
2
1
6
2
2
4w
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
The Lego Movie, eða Lego-myndin,
var langbest sótt um helgina af
þeim kvikmyndum sem sýndar eru í
bíóhúsum landsins. Um 19 þúsund
miðar hafa verið seldir á hana frá
frumsýningardegi, þar af um 7.300
um helgina. Aðsóknin að næst-
tekjuhæstu mynd helgarinnar,
Gamlingjanum sem skreið út um
gluggann og hvarf, var öllu minni,
um 2.800 miðar seldir. Gaman-
myndin Ride Along, sem segir af ör-
yggisverði sem dreymir um að
verða lögreglumaður, var ágætlega
sótt, um 2.000 miðar seldir á hana
yfir helgina.
Bíóaðsókn helgarinnar
19 þúsund Lego-miðar
Lego-æði Landsmenn flykkjast á
Lego-myndina, The Lego Movie.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Nýju verkefni á vegum Hönnunar-
sjóðs Auroru og fleiri aðila sem ber
nafnið Hæg breytileg átt hefur ver-
ið ýtt úr vör. Verkefnið er á sviði
byggða- og íbúðaþróunar en mikið
hefur verið rætt um íbúðarkosti
síðustu misserin. Um er að ræða
vettvang þverfaglegrar hugmynda-
vinnu þar sem reynt verður að
varpa ljósi á vistvænni, hagkvæm-
ari og framsæknari íbúðarkosti í ís-
lensku þéttbýli. Skipulag íbúða-
hverfa og íbúðarhúsin sjálf eru
sögð hafa lítið þróast undanfarna
áratugi og mikilvægt sé að þau taki
mið af breyttum lífsstíl fólks og
breyttu samfélagsmynstri hvers
tíma.
Anna María Bogadóttir arkitekt
situr í stjórn verkefnisins. Hún tel-
ur að samfélagið verði að koma til
móts við breytt lífsmynstur kyn-
slóðanna sem eru að koma inn á
húsnæðismarkaðinn og kalla verður
eftir sjónarmiðum sem endurspegla
þessar nýju áskoranir.
„Þetta er þróunarverkefni á sviði
íbúða- og byggðaþróunar. Gert er
ráð fyrir þessu sem hugmynda-
fræðilegum vettvangi þar sem
varpað verður ljósi á mögulegar
lausnir með tilliti til húsnæðiskosts
þar sem áhersla er lögð á þarfir
kynslóðarinnar sem er að koma inn
á íbúðamarkaðinn. Sérhver samtími
þarf að horfa til félagslegra þátta
þegar kemur að því að hanna íbúðir
og við viljum horfa til þessarar
nýju kynslóðar og leggja drög að
því að það sé byrjað á réttum
enda,“ segir Anna María.
Breyttar áherslur kynslóðanna
„Það er margt sem bendir til
þess að þessi hópur hafi aðrar þarf-
ir og áherslur en kynslóðirnar á
undan en með hverri nýrri kynslóð
á alltaf einhver endurskoðun sér
stað.
Kannanir hafa til dæmis bent til
þess að langstærstur hluti ungs
fólks kýs helst að búa í miðbænum
eða í Vesturbænum þar sem er
þéttasta byggðin.
Þá eru einnig ýmis teikn á lofti
um það að þessi kynslóð ætli sér
ekki endilega að kaupa sér fast-
eignir í eins miklum mæli og hing-
að til hefur verið hefð fyrir og kjósi
heldur meiri sveigjanleika og jafn-
vel minna húsnæði en það sem al-
mennt tíðkast. Þá er ungt fólk að
horfa í auknum mæli til þess að
leigja með öðrum og jafnvel deila
með öðrum grunnaðstöðu eins og
eldhúsi.
Fjölbreytt fjölskyldumynstur
hefur að sama skapi áhrif á innra
skipulag íbúða og húsnæðis. Í
mörgum tilfellum eru til dæmis
börn að alast upp á tveimur heim-
ilum sem þau eiga jafnmikið tilkall
til og allt eru þetta þættir sem hafa
áhrif á hönnun húsnæðis.“
Mikil fagleg breidd
Áhersla verður lögð á samfélags-
lega afstöðu, frjálst og óhefðbundið
hugmyndaflæði og vistvæna og
byggingartæknilega framsækni. Þá
skiptir góð nýting á fermetrum
máli sem og mótun inni- og úti-
rýma.
Anna María segir að viðtökurnar
hafi verið afar góðar.
„Margir hafa sýnt þessu verkefni
mikinn áhuga. Umsóknarfresturinn
rann út á föstudaginn og við erum
bjartsýn á að hafa fengið margar
spennandi umsóknir. Við vitum að
það eru margir hér á landi sem eru
með spennandi hugmyndir og með
þessu verkefni erum við að skapa
vettvang fyrir þær hugmyndir.“
Athygli vekur að ekki var ein-
ungis sóst eftir arkitektum eða
hönnuðum heldur er vonast til þess
að í hverjum hópi séu einn til tveir
arkitektar og tveir til fimm ein-
staklingar úr öðrum greinum.
„Breidd verkefnisins er mjög
mikil sem sjá má endurspeglast í
bakhjörlum þess en þeir koma úr
ólíkum áttum. Við vorum því ekki
einungis að kalla eftir umsóknum
frá til dæmis arkitektum og hönn-
uðum heldur vonumst við til þess
að hóparnir sem taka þátt í þessu
verkefni hafi faglega breidd og
komi úr ýmsum atvinnugreinum,
eins og til dæmis tæknigeirum,
raunvísindum og félagsvísindum.“
Mikilvægt innlegg
Anna María reiknar með að
áfram verði unnið með hugmynd-
irnar í framhaldi af þessu verkefni.
„Vonandi verða hugmyndirnar
þróaðar áfram í framtíðinni og
framkvæmdar. Það lítur allt út fyr-
ir að farið verði í miklar byggingar-
framkvæmdir á komandi árum og
þá kemur þetta til með að vera
mikilvægt innlegg í þá umræðu.“
Þátttakendur verða kynntir þann
7. mars en formleg vinna við verk-
efnið hefst 11. mars
„Í lok maí verður opið málþing
og þá verða hóparnir komnir vel
áleiðis í sinni vinnu og geta jafnvel
kynnt grunnskissur og hugmyndir.
Í ágúst verða síðan lausnirnar
kynntar á þar til gerðri sýningu.“
Nánari upplýsingar um verkefnið
má finna á heimasíðunni:
www.haegbreytilegatt.is
Kalla eftir nýjum hugmyndum
Nýju samstarfsverkefni ýtt úr vör Skipulag hverfa og íbúðarhúsa taki mið af breyttum
áherslum samtímans Mikilvægt að byrja á réttum enda Fleiri vilja deila húsnæði með öðrum
Morgunblaðið/Þórður
Skipulag Anna María Bogadóttir arkitekt er í stjórn verkefnisins.
Bakhjarlar verkefnisins eru Hönn-
unarsjóður Auroru ásamt Hönn-
unarmiðstöð, Reykjavíkurborg,
Samtök iðnaðarins, Félagsbústaðir,
Búseti og Félagsstofnun Stúdenta.
Verkefnisstjórar eru Hólmfríður
Ósmann Jónsdóttir og Hrefna
Björg Þorsteinsdóttir, arkitektar
FAÍ.
Stjórn verkefnisins skipa Anna
María Bogadóttir, Auðunn Freyr
Ingvarsson, Árni Jóhannsson, Guð-
rún Björnsdóttir, Guðrún Ingvars-
dóttir og Páll Hjaltason.
Leitað var að þátttakendum úr
ýmsum ólíkum starfsgreinum.
Reiknað er með að hóparnir verði
þrír til fimm talsins og hver hafi á
að skipa fjórum til sex einstakl-
ingum. Hver hópur fær síðan 4,5
milljónir króna sem greiðist út í
fimm hlutum við samþykkt skil á
hverjum áfanga vinnunnar. Hóp-
arnir koma sér svo saman um
skiptingu þóknunarinnar innbyrðis.
Hæg breytileg átt
BAKHJARLAR VERKEFNISINS
Háhýsi Margir sækjast eftir því að búa
miðsvæðis í Reykjavík.