Morgunblaðið - 25.02.2014, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 56. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Framkoman í Biggest Loser ...
2. Ættarsvipurinn þynnist út
3. Fjölmenni á Austurvelli
4. Fyrir og eftir-myndirnar ...
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti
hefur samið við bandaríska útgáfu-
fyrirtækið Columbia Records um út-
gáfu á plötu sinni In the Silence sem
fyrirtækið mun gefa út 4. mars í sam-
starfi við One Little Indian, útgáfu-
fyrirtækið sem Ásgeir er á mála hjá.
Morgunblaðið/Kristinn
Ásgeir Trausti semur
við Columbia Records
Nýtt verk eftir
danshöfundinn
Margréti Söru
Guðjónsdóttur,
Targeted, verður
flutt í Riksteatern
í Hallunda í Sví-
þjóð á fimmtu-
daginn. Verkið er
hluti af dans-
syrpu hennar, Soft Target, pantað af
sænska ballettflokknum Cullberg.
Nýtt verk eftir Mar-
gréti flutt í Hallunda
Norræn þjóðlistahátíð verður
haldin í fyrsta sinn á Akureyri 20.-
23. ágúst nk. Á henni munu koma
fram tónlistarmenn og dansarar frá
Norðurlöndum. „Aldrei fyrr hefur
verið haldin listahátíð með þjóð-
tónlist og þjóðdansi
allra landanna,“ segir í
tilkynningu. Íslenskir
tónlistarmenn, hljóm-
sveitir og dansarar
geta sótt um að
taka þátt á
tradition.is,
til og með
1. maí.
Norræn þjóðlistahá-
tíð haldin á Akureyri
Á miðvikudag Norðaustan 13-18 m/s norðvestantil, annars víða
8-13. Snjókoma fyrir norðan, él austanlands en bjartviðri á SV-landi.
Á fimmtudag Norðaustan 10-20 m/s, hvassast um landið
norðvestanvert. Slydda eða snjókoma á norðanverðu landinu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlægar áttir og él, einkum austanlands,
en þurrt á SV- og V-landi. Bætir í vind og ofankomu síðdegis.
VEÐUR
Deildarmeistaratitill karla í
körfubolta blasir við KR-
ingum eftir að þeir sigruðu
Keflvíkinga með eins stigs
mun, 90:89, í dramatísku
uppgjöri toppliðanna í gær-
kvöld. Brynjar Þór Björns-
son skoraði sigurkörfuna
undir lokin með þriggja
stiga skoti. KR þarf nú að
tapa tvisvar í síðustu fjór-
um leikjunum til að Kefla-
vík geti náð efsta sætinu.
»2
Efsta sætið blasir
við KR-ingum
„Aðalmálið hjá okkur núna er að
tryggja okkur inn í úrslitakeppnina.
Við leyfum okkur ekki að hugsa neitt
lengra,“ segir Kolbeinn Aron Ingi-
bjargarson, markvörður ÍBV í hand-
boltanum, sem
er leikmaður
15. umferðar
hjá Morgun-
blaðinu fyrir
frammistöðu
sína gegn Akur-
eyri um síðustu
helgi en auk hand-
boltans
vinnur
hann
þessa dagana við að
stækka og endurbæta
Hótel Vestmannaeyjar.
»2-3
Við leyfum okkur ekki
að hugsa lengra
Óhætt er að segja að stór skörð séu
höggvin í raðir íslenska kvennalands-
liðsins í fótbolta sem er á leiðinni í
tvö stór verkefni á næstu vikum. Úr
EM-hópi síðasta árs vantar fimm
reyndar landsliðskonur sem hafa
leikið samtals 400 landsleiki og skor-
að samtals 124 mörk fyrir Íslands
hönd. Farið er yfir þetta í fréttaskýr-
ingu um val landsliðsins. »4
Stór skörð höggvin í
raðir landsliðsins
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Umræður eru hafnar um að „hinir
fjórir fræknu“ komi saman sem
sveit á ný og tefli á Evrópumótinu,
sem verður í Reykjavík á næsta ári.
„Fjórmenningaklíkan“ svonefnda,
Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson,
Jón L. Árnason og Margeir Péturs-
son, tók þátt í Stórmeistaramóti
Vildarbarna Icelandair á Hótel
Hilton Reykjavík Nordica í fyrra-
dag. Það gerði Friðrik Ólafsson
einnig, en rætt er um að hann verði
með sveitinni á umræddu móti
haustið 2015.
Þessir kappar hafa engu gleymt
og keppnisharkan er svo sannar-
lega fyrir hendi, en tíu stórmeistar-
ar tóku þátt í móti helgarinnar. „Ég
átti að vinna þetta, vann sjö fyrstu
skákirnar en klikkaði svo í lokin,“
segir Helgi, sem varð í öðru sæti
með 7,5 vinninga af níu mögulegum,
en næst á eftir honum komu Mar-
geir og Jóhann.
Í hópi þeirra bestu
Það er ekki á hverjum degi sem
skákmenn besta landsliðs Íslands
tefla á sama móti. Sumarið 1980
tefldu þeir á helgarskákmótum víða
um land og komu því vel undirbúnir
til leiks með Friðriki Ólafssyni á Ól-
ympíuskákmótið á Möltu sama ár.
„Þetta var mjög skemmtilegt,“
rifjar Helgi upp og bætir við að
Friðrik hafi verið forseti FIDE á
þessum tíma og fjórmenningarnir
því teflt flestar skákirnar. „Við vor-
um í toppbaráttunni og á næstu ár-
um vorum við í hópi tíu bestu sveita
á þessum stórmótum.“ Alltaf hóg-
vær Helgi, því liðið náði oft að
blanda sér í baráttuna um fimm til
átta efstu sætin.
Ísland hefur átt ótrúlega marga
góða skákmenn, en aldrei eins
sterka sveit og þegar Helgi, Jó-
hann, Jón og Margeir skipuðu
hana. „Liðið var mjög þétt og með-
alaldurinn viðunandi enda gott að
hafa fríska og unga menn í eldlín-
unni,“ segir Helgi. Hann segir að
andinn í hópnum hafi verið góður
og athygli hafi vakið hvað liðsmenn-
irnir voru glaðsinna. „Við vorum yf-
irleitt í góðu skapi,“ segir hann og
minnist þess ekki að menn hafi deilt
innbyrðis. Yfirleitt hafi verið raðað
á borð eftir stigum og menn hafi
einbeitt sér að því að ná sem best-
um árangri.
„Menn voru tilbúnir að leggja
mikið á sig í gamla daga,“ segir
Helgi og bendir á að þá hafi skák-
menn til dæmis nánast velt sér upp
úr skáktímaritum og -bókum en nú
sé mun erfiðara að fá unga skák-
menn til þess að skoða skákbækur.
„Nú eru allir í tölvum og við þessir
gömlu erum úti á þekju með bæk-
urnar,“ segir hann.
Strákarnir tefldu síðast á sama
móti 1999, en 2004 voru þrír þeirra
með á alþjóðamóti í Reykjavík. Jón
L. sá þá um skákskýringarnar. Ára-
tug áður tefldu þeir hins vegar síð-
ast saman í landsliðssveit Íslands.
Evrópumót landsliða verður í
Reykjavík haustið 2015 og er áhugi
á því að „hinir fjórir fræknu“ og
Friðrik verði saman í sveit á
mótinu. „Menn eru að velta þessu
fyrir sér, að við yrðum aukasveit, a-
eða b-sveit eða sveit eldri manna,“
segir Helgi. „Þetta er auðvitað bara
á umræðustigi enn sem komið er en
það er stemning fyrir þessu. Hins
vegar er eitt og hálft ár í mótið og
það getur margt gerst á skemmri
tíma en við höfum allir alltaf jafn
gaman af því að tefla. Það var mjög
gaman í mótinu á sunnudag og það
er aldrei að vita nema við tökum
upp þráðinn saman aftur.“
Hinir fjórir fræknu saman á ný
Hafa sett stefn-
una á Evrópumót-
ið haustið 2015
Morgunblaðið/Ómar
Aftur saman Fjórmenningaklíkan og Friðrik tefldu á Stórmeistaramóti helgarinnar. Frá vinstri eru Margeir
Pétursson, Helgi Ólafsson, Friðrik Ólafsson, Jón L. Árnason og Jóhann Hjartarson.
Morgunblaðið/Bjarni J. Eiríksson
Ólympíulið Íslands 1986 Stórmeistararnir frá vinstri Jón L. Árnason,
Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson.