Morgunblaðið - 15.03.2014, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samningar eru á lokastigi um að
Jarðboranir taki að sér boranir fyrir
Reykjavik Geothermal á jarðhita-
svæði í Eþíópíu í sumar. Eftir er að
ganga frá fjármögnun og vonast er til
að það klárist á næstu vikum.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
fyrr í vetur gerði Reykjavik Geo-
thermal (RG) samning við ríkisstjórn
Eþíópíu um að byggja og reka allt að
1.000 MW jarðvarmaorkuver í tveim-
ur 500 MW áföngum á næstu árum.
Áætluð fjárfesting verkefnisins er um
500 milljarðar króna og er þetta eitt
stærsta verkefni sem íslenskt orku-
fyrirtæki hefur nokkurn tímann tekið
að sér. Til samanburðar er uppsett afl
Hellisheiðarvirkjunar um 300 MW.
Verkefnið nýtur m.a. stuðnings
bandarískra stjórnvalda en ríkis-
stjórn Baracks Obama hefur í gegn-
um stofnunina US Aid lagt Afríku-
ríkjum til fjármagn í uppbyggingu
raforkuvera í álfunni. Gunnar Örn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri RG,
var nýlega á ferðinni í Eþíópíu með
fulltrúum US Aid, til að sýna þeim að-
stæður á háhitasvæði Corbetti-öskj-
unnar í suðurhluta landsins. Með í för
voru erlendir blaðamenn og hafa
áform RG því ratað í heimsfréttirnar.
„US Aid lítur á þetta sem gott
verkefni til að styðja við, en allar
framkvæmdir eru enn byrjunarreit,“
segir Gunnar Örn, sem vonast til að
boranir geti hafist í sumar. Hann seg-
ir RG leggja áherslu á samstarf við
önnur fyrirtæki og það sér gleðiefni
að geta fengið Jarðboranir í lið með
sér. Nú þegar séu nokkrar íslenskar
verkfræðistofur að störfum fyrir RG
vegna verkefnisins í Eþíópíu.
Spennandi verkefni
Baldvin Þorsteinsson, forstjóri
Jarðborana, segir verkefnið í Eþíópíu
vissulega mjög spennandi en tekur þó
fram að ekki sé búið að ganga end-
anlega frá samningum.
„Þetta er gríðarlega stórt jarðhita-
verkefni á heimsvísu. Við erum
spenntir fyrir þessu og að sjálfsögðu
tilbúnir í slaginn,“ segir Baldvin.
Gangi allir samningar eftir verður
byrjað með einn bor í sumar. Ef þær
boranir skili góðum árangri segir
Baldvin að bæta þurfi við 3-4 borum. Í
einni áhöfn eru 20-30 manns og að
sögn Baldvins eru starfsmenn Jarð-
borana langflestir íslenskir.
Jarðboranir eru nú að stöfum í
Malasíu, Karíbahafinu og á Fill-
ippseyjum. Alls starfa nú um 100
manns hjá fyrirtækinu.
„Nokkrir borar standa núna að-
gerðalausir þannig að við erum alltaf
að leita nýrra verkefna og tökum þátt
í útboðum um allan heim. Við gerum
okkur vonir um að landa fleiri verk-
efnum en það er of snemmt að greina
frá því hver þau eru,“ segir Baldvin.
Samningar á lokastigi um
jarðhitaboranir í Eþíópíu
Verkefni RG
nýtur m.a. stuðn-
ings Obama
Eþíópía Starfsmenn Reykjavik
Geothermal í rannsóknum.
Þingvallanefnd
hefur samþykkt
breytingar á
veiðireglum í
þjóðgarðinum.
Heimilt verður að
byrja veiðar í
Þingvallavatni 20.
apríl í ár, en áður
hefur verið miðað
við 1. maí. Í apríl
og maí verður
hins vegar aðeins heimilt að veiða
með flugu og sleppa skal urriða.
Í fundargerð Þingvallanefndar
kemur fram að tillagan hafi verið lögð
fram eftir náið samráð við veiðifélög
og einstaka veiðimenn. Tilgangurinn
er að bæta veiðimenningu við Þing-
vallavatn og styrkja urriðastofninn.
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðs-
vörður segir að urriðinn í Þingvalla-
vatni sé í vexti og með breytingunum
sé verið að styðja við þann vöxt. „Urr-
iðinn gengur á grunnslóð á þessum
tíma og er oft auðveiddur,“ segir
Ólafur. „Mörg dæmi eru um að veiði-
menn hafi verið með nokkrar stangir
úti og sótt grimmt í urriðann, en með
þessum takmörkunum verður breyt-
ing á. Þá viljum við líka sjá bætta
veiðimenningu við vatnið. Alltof mikið
hefur verið um draslaralega um-
gengni og margir skilja matar-
umbúðir og -leifar, dósir og girni eftir
á bökkunum.“ Frá 1. júní verða veiði-
reglur eins og þær voru áður og að-
eins bannað að nota beitu sem getur
valdið smithættu.
„Þá er unnið að því að ná til allra
veiðiréttarhafa umhverfis vatnið til
að endurvekja veiðifélag Þingvalla-
vatns, sem ekki hefur verið virkt,“
segir Ólafur. „Ásókn í veiðarnar
eykst stöðugt því veiðimönnum er að
fjölga og margir sem áður stunduðu
laxveiði sækja nú í silung. Samfara
þessu hefur áhugi manna á urriðan-
um stóraukist og farið er að markaðs-
setja veiðar í Þingvallavatni.
Þar er Orkuveita Reykjavíkur í
fararbroddi og hefur framleigt
Þorsteinsvík í landi Nesjavalla. Þar
er veiðileyfið selt á 15 þúsund krónur
á dag í aprílmánuði og 25 þúsund í
maí. Þar er eingöngu veitt á flugu og
sleppa skal öllum urriða,“ segir
Ólafur. aij@mbl.is
Veitt með flugu
og urriða sleppt
Veiðireglum breytt á Þingvöllum
Ólafur Örn
Haraldsson
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Umboðsmaður Alþingis gerir ekki athugasemdir
við innheimtu á gestagjöldum við Silfru á Þing-
völlum, né framkvæmd gjaldtökunnar. Tvö fyrir-
tæki, Straumhvörf og Scuba Iceland, kvörtuðu
vegna gjaldsins og töldu m.a. að lagastoð skorti
fyrir innheimtunni, sem í raun væri skattheimta
þar sem sérgreind þjónusta væri ekki veitt gegn
greiðslu gjaldsins og uppfyllti því ekki reglur um
þjónustugjöld. Þessu hafnar umboðsmaður og
vitnar í lög um þjóðgarðinn frá 2004.
Þar segi að Þingvallanefnd semji reglugerð
um þjóðgarðinn, verndun og meðferð hans en
ráðhera staðfesti. Í reglugerð megi ákveða að
taka gestagjöld innan þjóðgarðsins fyrir veitta
þjónustu og dvöl þar til að mæta kostnaði og eft-
irliti með dvalargestum. Á grundvelli þessara
laga hafi slík reglugerð verið sett og staðfest af
forsætisráðherra, en þar er kveðið á um gesta-
gjöld fyrir köfun í Silfru.
Aðstaða til að veita þjónustu
Í greinargerð umboðsmanns er sérstak-
lega fjallað um ákvæði í lögunum þar sem segir
að heimilt sé að taka gjald fyrir veitta þjónustu
og dvöl til að mæta kostnaði við þjónustuna og
eftirlit með dvalargestum. Í greinargerðinni
segir m.a.: „Af lögskýringargögnum við ákvæð-
ið verður ráðið að meðal þeirrar þjónustu sem
hægt sé að fella undir ákvæðið sé gjald fyrir
„tjaldstæði, leiðsögn og aðgang að ákveðnum
stöðum“ og „þá aðstöðu sem komið hefur verið
upp til að veita hana“.“
Þannig geti tilteknir stofnkostnaðarliðir
fallið undir gjaldtökuheimildina, þ.e. kostnaður
við að koma upp aðstöðu til að veita þjónustu.
Í kvörtuninni eru einnig gerðar athuga-
semdir við þá kostnaðarliði sem liggja til grund-
vallar gjaldinu. Því er haldið fram að gjaldið
standist ekki jafnræðisreglu þar sem innan
þjóðgarðsins hafi verið ráðist í margs konar
uppbyggingu af svipuðum toga án gjaldtöku.
Kostnaður vegna afmarkaðra þátta
Umboðsmaður Alþingis segir í áliti sínu að
umræddir kostnaðarliðir hafi lotið að afmörk-
uðum þáttum í starfsemi þjóðgarðsins, þ.e. við
Silfru. Ekki að almennum framkvæmdum í
þjóðgarðinum s.s. við gerð stíga, uppsetningu
salerna fyrir almenna gesti þjóðgarðsins eða
uppbyggingu eða þjónustu sem almennt er veitt
á vegum þjóðgarðsins, t.d. í þjónustumiðstöð.
Umboðsmaður telur sig ekki hafa for-
sendur til að gera athugasemdir við útreikning
á fjárhæð gjaldsins.
Heimilt að taka gjald við Silfru
Umboðsmaður Alþingis gerir ekki athugasemdir við innheimtu gjalds eða framkvæmd hennar
Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen
Við Silfru Kafarar koma að bryggju sem
Þingvallanefnd lét byggja í fyrra.
Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu á Nesvöllum í Reykja-
nesbæ var vígt í gær að viðstöddum fjölmörgum
gestum. Reykjanesbær lét byggja heimilið sem rúmar
sextíu íbúa og á að fela í sér sameiningu á bestu kostum
sjálfstæðrar búsetu og öryggis hjúkrunarheimila.
Húsnæðið er byggt upp á litlum einingum með eldhúsi,
setustofu og borðstofu í miðju hússins, sem mynda eiga
umgjörð um daglegt líf á heimilinu.
Morgunblaðið/Páll Ketilsson
Nýju hjúkrunarheimili fagnað