Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 10
Malín Brand
malin@mbl.is
Sum okkar sætta sig enganveginn við fullyrðingarannarra um að þetta eðahitt sé „ekki hægt“. Gísli
Gíslason er einn þeirra og hefði
aldrei tekið mark á þeim sem hefði
sagt við hann að hann gæti ekki far-
ið út í geim. Hann vissi betur og nú
liggur það ljóst fyrir að hann mun
svífa í geimnum á næsta ári eða því
þarnæsta ásamt fleira fólki sem
deilir áhuga hans á hinu óend-
anlega.
„Ég hef alltaf haft áhuga ein-
hverju svona skrítnu og öðruvísi og
trúi því að allt sé hægt. Það er nú
grunnpunkturinn,“ útskýrir Gísli
þegar hann er spurður um tildrög
geimferðarinnar en slíkar ferðir
verða farnar fyrir tilstilli Richards
Bransons og Virgin Galactic. Stefnt
er að því að fyrsta holl, sem saman-
stendur af sex geimförum og tveim-
ur þrautþjálfuðum flugmönnum, fari
á þessu ári.
„Þegar ég frétti að verið væri
að hugsa um að fara út í geim fór ég
strax að sýna þessu áhuga. Svo var
það um miðjan dag, á fimmtudegi
sumarið 2011, að ég var heima og á
netinu að einhverjar fréttir af þessu
fóru að detta inn. Konan mín var í
vinnunni og ég hugsaði með mér að
ef ég bæði hana um leyfi til að fara
út í geim myndi hún segja nei og
ekki taka þetta í mál. Þannig að ég
ákvað bara að slá til og skrifaði
þeim, fékk strax svar, skráði mig og
borgaði inn á. Ég fékk samninginn
sendan og kvittaði undir, svo sagði
ég konunni. Hún var ekki mjög glöð
en núna er hún orðin róleg,“ segir
Gísli um þann dag sem þessi
ákvörðun var tekin. Hann sér ekki
eftir að hafa tekið þessa ákvörðun
og er fullur tilhlökkunar að litast
um í öðru hvolfi.
Kveður í 60.000 fetum
Eiginkona Gísla er langt frá því
að vera óvön háloftunum enda hefur
hún starfað lengi sem flugfreyja.
Hún kann ágætlega við sig undir
40.000 fetunum og lætur það nægja.
Gísli, hins vegar, vill fara ofar.
„Það er vél sem fer með eld-
flaugina upp og sleppir henni í
60.000 fetum og konan mín ætlar að
koma með þangað. Ég má taka með
mér gest þangað,“ segir Gísli sem
Lætur gott af sér
leiða með geimferð
Ævintýramaðurinn Gísli Gíslason lærði ungur að árum að ekkert væri ómögu-
legt. Einn besti vinur hans þegar hann var að alast upp var handalaus drengur
sem bjó í sama húsi. Að sjá hann geta gert allt það sama og þeir sem höfðu hend-
ur, fékk Gísla til að trúa því enn frekar að allt væri hægt. Sjálfur er hann á leið út
í geim og telur niður dagana í næstu geimþjálfun sem er síðar í mánuðinum.
Ljósmynd/Bonni
Geimfari Gísli tekur sjálfan sig ekki of hátíðlega og hefur gaman af því að
bregða á leik eins og hann gerði hér í geimbúningi við Leif Eiríksson.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
Í dag kl. 10.30 til 13.30 verður árleg
barna- og unglingabókaráðstefna í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Á
ráðstefnunni verður fjallað um leiðir
til að kveikja áhuga barna á lestri.
Yrsa Sigurðardóttir glæpasagnahöf-
undur ætlar að fjalla um hvers vegna
barnabækur læðast meðfram veggj-
um, en hún hóf feril sinn sem barna-
bókahöfundur. Herdís Anna Friðfinns-
dóttir leikskólakennari fjallar um
lestrarvenjur ungra bókaorma, Davíð
Stefánsson, bókmenntafræðingur og
rithöfundur, fjallar um hvernig við
sköpum þegar við lesum og við lesum
þegar við sköpum. Því mynda lestur
og sköpun eilífan tvíhöfða sem ekki
verður aðskilinn og býr innra með öll-
um. Marta Hlín Magnadóttir og Birg-
itta Elín Hassell fjalla um áskoranir
sem nýgræðingar í útgáfu unglinga-
bóka standa frammi fyrir. Allir eru
velkomnir og ókeypis aðgangur.
Vefsíðan www.gerduberg.is
Morgunblaðið/Heiddi
Bókaormur Að lesa bækur er afar dýrmætt og opnar nýjan heim fyrir börnum.
Kveikjum eld og vekjum áhuga
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Karlakórinn Heimir er iðinn við að
gleðja fólk með söng sínum og nú er
komið að Húnvetningum að njóta
þeirra. Kórinn verður með tónleika á
morgun, sunnudag, kl. 16 í félags-
heimilinu á Hvammstanga. Með þeim
verður einsöngvarinn Garðar Thor
Cortes og því engin ástæða til annars
en búast við fjarska fínum tónleikum.
Þeir rjúka svo af stað eftir tónleika til
að halda aðra strax um kvöldið,
syngja í Hólaneskirkju á Skagaströnd
kl. 20.30. Þeir eru ekki af baki dottnir
söngmennirnir fyrir norðan.
Endilega …
Heimir Margir kunna vel að meta söng karlakóra.
… heyrið og sjáið Heimismenn
syngja hljómmiklum röddum
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-2
9
1
9
Draumaferð á hverjum degi
Ef þú vilt sparneytinn og rúmgóðan fjölskyldubíl sem kemur skemmtilega á óvart er óþarfi
að leita lengra. Nýr Mercedes-Benz B-Class eyðir frá 4,1 l/100 km í blönduðum akstri og
mengar svo lítið að hann fær frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur. Gerðu allar ferðir að
draumaferðum á Mercedes-Benz B-Class.
Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur B-Class til sýnis og reynsluaksturs.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz B-Class 160 CDI, dísil, beinskiptur 6 gíra.
Verð frá 4.790.000 kr.