Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 11
Hópurinn Hópur geimferðalanga við Spacestation America sem er í miðri Mojave eyðimörkinni í Nýju-Mexíkó. Aftan við hópinn er sérhönnuð flugvél.
kvíðir því ekki að kveðja eiginkon-
una þar. Við mun taka tveggja
klukkustunda geimflug þar sem far-
þegar fá að upplifa geiminn og horfa
á jörðina langt fyrir neðan. Að
tveimur stundum liðnum lendir
geimflaugin aftur á vélinni í 60.000
feta hæð og lendir með geimfarana
og föruneyti á jörðinni.
Branson og börn í fyrstu ferð
Kliður fór um geimferðalang-
ana þegar Richard Branson til-
kynnti að hann myndi fara í fyrstu
ferðina út í geim ásamt börnum sín-
um. Til stóð að það yrði á síðasta ári
en ljóst er að það verður á þessu ári.
Alls hafa rúmlega 600 manns keypt
sér miða út í geim með Virgin Ga-
lactic og eflaust eiga fleiri eftir að
bætast í hópinn þegar reynsla verð-
ur komin á ferðirnar.
„Við hittumst öll fjórum sinn-
um á ári og það er ótrúlega
skemmtilegt!“ segir Gísli enda er
fólkið sem hefur keypt sér miða úr í
geim varla það sem kallast getur
hefðbundið. Hvernig fólk er þetta?
„Það er annaðhvort mjög ríkt
fólk og þar skiptir verðið ekki
nokkru máli því það vill bara gera
eitthvað skemmtilegt, ríkt
ævintýrafólk. Hins vegar er þarna
fólk eins og ég sem ákveður að gera
þetta og finnur einhverja leið til
þess, eins og ein vinkona mín í
hópnum sem er rússnesk. Hún fékk
krabbamein, ung kona, veðsetti
íbúðina sína og keypti sér miða.
Hún sagði við mig að eftir að hún
fékk krabbamein ætlaði hún bara að
gera það sem hana langaði til. Þarna
er líka ungur Finni sem fjármagnar
ferðina sína með því að halda fyrir-
lestra um geiminn, ferðina og kallar
sig finnska geimfarann,“ segir Gísli.
Það er ekkert launungarmál að
ferðin kostar rúmar tuttugu millj-
ónir króna, eins og fram kemur á
síðu Virgin Galactic.
64 lönd en geimurinn eftir
Gísli nýtur þess að ferðast og
hefur komið til sextíu og fjögurra
landa. Fæst þeirra eru það sem
kalla mætti hefðbundnir ferða-
mannastaðir og einn áhugaverðasti
staður sem Gísli hefur komið á er
Norður-Kórea. „Þangað var mjög
sérstakt að koma og sömu sögu er
að segja af Moldavíu. Staður sem
hefur verið lokaður inni í komm-
únísku umhverfi og hefur verið
mjög einangraður. Það var mikil
sorg þegar kommúnisminn féll því
fólk áttaði sig þá á að alla ævina að
heimurinn var ekki eins og það hafði
haldið alla sína ævi. Maður getur
ekki ímyndað sér hvað gerist þegar
fólkið í Norður-Kóreu sér raunveru-
leikann. Ég fann að fólkið þar trúði
því innilega að það hefði það betra
en restin af heiminum,“ segir Gísli.
Margt leynist í eyðimörkinni
Inni í miðri Mojave eyðimörk-
inni í Nýju-Mexíkó leynist all-
sérstök flugstöð. Hún heitir Space-
port America og var byggð fyrir
tilstilli hugsjónar ríkisstjórans Bill
Richardson, skattgreiðenda og
Richards Bransons. Þegar maður
skoðar myndir af geimstöðinni er
óhætt að segja að þetta minni einna
helst á skot úr framtíðarmynd en
eftir sem áður er þetta nútíminn og
hefur stöðin þegar verið vígð.
„Ég spurði Branson hvernig
Félagar Gísli Gíslason og Richard Branson eru spenntir að fara út í geim.
þetta hefði eiginlega komið til og þá
var það þannig að þeir hefðu hist í
einhverju boði og Richardson spurt
þar Branson hvort þeir ætluðu ekki
einhvern tíma að gera eitthvað sam-
an. „Jú, ég er að fara út í geim. Get-
urðu ekki búið til fyrir mig geim-
stöð?“ mun Branson hafa spurt.
Ríkisstjórinn gerði þá svohljóðandi
samning við hann: „Ef þú býrð til
flugvél sem fer út í geim, þá skal ég
búa til geimstöð.“ Þannig gerðist
þetta. Í fylkinu var haldin atkvæða-
greiðsla þar sem samþykkt var að
allir legðu einhverja upphæð af
skattinum um einhvern tíma til að
byggja geimstöð fyrir Richard
Branson til að hægt væri að hafa
hana í Nýju-Mexíkó,“ segir Gísli.
Þetta var í kringum árið 2005 og
síðan þá hafa flugvélarnar verið
smíðaðar, flugmenn þjálfaðir, geim-
stöðin smíðuð og nú eru hópar geim-
fara byrjaðir í geimþjálfun.
Geimferð til góðs
Gísli hefur gaman af því að láta
gott af sér leiða. Bæði hefur hann
áhuga á að vernda perluna bláu,
jörðina, og því að styðja góð mál-
efni. Aðspurður hvort hann ætli sér
eitthvað meira með geimferðinni en
að fara í ferðalag segir hann til-
ganginn sannarlega stærri og meiri.
Gísli hefur frá aldrei glatað sann-
færingunni um að allt sé hægt.
Hann sannfærðist um það í æsku og
er nú sannfærðari en nokkurn tíma.
„Mig langar til að vera með stærstu
söfnun Íslandssögunnar og safna
milljón dollurum í þágu góðs mál-
efnis. Ef ég fer út í geim þá verður
hægt að heita á mig. Þetta er það
sem mig langar að nota ferðina í og
gefa henni tilgang,“ segir ævintýra-
og hugsjónamaðurinn Gísli Gíslason
sem lætur drauma sína rætast og
jafnvel drauma annarra í leiðinni
með því að safna áheitum í leiðinni.
Stærsta söfnun Íslandssögunnar
færi fram úti í geimi og það er sann-
arlega eitthvað sem ekki hefur verið
gert áður og nánar verður fjallað
um þegar nær dregur. Nánari upp-
lýsingar um Virgin Galactic er að
finna á www.virgingalactic.com.
NASA Gísli heimsótti bandarísku geimferðastofnunina á einu ferðalaganna.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
www.odalsostar.is
Nýjasti meðlimur Óðalsfjölskyldunnar er
framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir fjallinu
Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem fengið
hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu
einkennandi þétta bragði hefur verið náð.
Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir
við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér.
Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur
hann fátt yfirgnæfa sig.
TINDUR
NÝROSTURÚR SKAGAFIRÐINUM
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
M
SA
68
18
7
03
/1
4
Hjónin Áslaug Guðrúnardóttir og
Runólfur Ágústsson ætla að halda
bókamarkað heima hjá sér í Þing-
holtsstræti 14 á morgun, sunnudag,
milli klukkan 13 til 17. Þau eru að
flytja og ætla að selja kiljur á 100 kr.
og innbundnar bækur á 200 kr. Öll
innkoma mun renna til styrktar
Barnaspítala Hringsins. Fleira góss
verður líka til sölu. Nú er lag að gera
góð bókakaup og styrkja í leiðinni
gott málefni.
Bókamarkaður í heimahúsi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bækur Aldrei nóg af þeim.
Losa sig við
bækur vegna
flutninga
Á morgun, sunnudaginn 16. mars,
klukkan 15 verður listamaðurinn Har-
aldur Jónsson með leiðsögn um sýn-
ingu sína HNIT sem hefur verið í
Hafnarborg frá því í janúar. Sýning-
unni lýkur á morgun og verður lista-
maðurinn með gjörninginn L I T að
leiðsögn lokinni.
Á sýningunni eru ný verk af ýmsum
toga, teikningar og skúlptúrar sem
hvert og eitt virkjar skynjun manns-
ins á eigin tilfinningum, upplifun af
rými og táknum. Titillinn er leiðarstef
í gegnum sýninguna og segir í sýn-
ingarskrá að sýningin sé eins konar
ferðalag um sýnilegan og ósýnilegan
arkitektúr. Sýningunni lýkur form-
lega klukkan 17 á sunnudaginn.
Gjörningur í Hafnarborg
Sýningarrými Skynjunin er virkjuð.
Leiðsögn
um H N I T