Morgunblaðið - 15.03.2014, Side 14

Morgunblaðið - 15.03.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 KOLAPORTIÐ kolaportid.is Einstök stemning í 25 ár Opið laugardaga og sunnu daga frá kl. 11-17 Það var til dæmis fyrsta fyrirtækið í Evrópu sem fékk svokallaða BAP- vottun á framleiðsluaðferðum við laxeldi og umgengni við náttúruna. „Þetta er algert lykilatriði fyrir okkur sem búum svona afskekkt. Við finnum mun minna fyrir verð- sveiflum en þeir sem eru í magn- framleiðslu og fáum að jafnaði hærra verð,“ segir Höskuldur Stein- arsson, framkvæmdastjóri Fjarða- lax. Fyrsta lífræna aðlögunin Dýrfiskur hf. sem er með eldi á regnbogasilungi í Dýrafirði og víðar er að stíga skrefið lengra, fara út í lífræna framleiðslu. Fyrirtækið hef- ur fengið vottun á lífræna aðlögun sem leiðir til þess að í fyllingu tím- ans verður hluti af framleiðslu þess lífrænt vottaður. Sigurður Pétursson fram- kvæmdastjóri segir að dýrara sé að framleiða lífrænan regnbogasilung. Fyrst þarf að tryggja að hrognin séu úr lífrænum stofni. Dýrfiskur kaupir þau frá Danmörku. Minni þéttleiki þarf að vera í seiðaeldinu og sjókvíaeldinu, en hefðbundnu eldi og fóður á öllum stigum þarf að vera lífrænt vottað. Fóðrið er flutt inn en Dýrfiskur er í þróunarverk- efni með innlendum fóðurframleið- enda sem stefnir að því að fá vottun á framleiðslu fóðurs. Sigurður getur þess að fóðrið sem keypt er frá Skotlandi sé um 30% dýrara en venjulegt eldisfóður. Fóðrið er stærsti kostnaðarliðurinn í rekstr- inum og því þurfa tekjurnar að aukast verulega til að standa undir kostnaði við lífræna framleiðslu. „Þetta er okkar leið til að skapa okkar framleiðslu sérstöðu. Það er aukin eftirspurn eftir lífrænt vott- uðum fiski í Evrópu og á síðasta ári var verð fyrir lífrænt vottaðan fisk nærri helmingi hærra en fyrir venjulegan fisk. Hann þarf að vera það vegna kostnaðaraukans. Þá er markaðurinn fyrir lífrænan fisk nokkuð stöðugur á meðan verðið á almenna markaðnum er ansi sveiflu- kennt,“ segir Sigurður. Vakning á Vestfjörðum Stjórnendur Fjarðalax eru farnir að huga að því að stíga næsta skref með því að sækja um vottun á að- lögun að lífrænni framleiðslu. Hösk- uldur framkvæmdastjóri segir stefnt að því og telur raunhæft að miða við næstu tvö til þrjú ár. Þótt Fjarðalax standist nú þegar kröfur Whole Foods Market og full- nægi stórum hluta af lífrænu kröf- unum þarf fyrirtækið að leggja í verulegan kostnað til viðbótar til að geta framleitt lífrænt vottaðan lax. „Við teljum það siðferðilega skyldu okkar að gera þetta því þessa framleiðslu er betra að stunda hér á landi en víða annars staðar þar sem laxalús og sjúkdómar eru viðvarandi. Það er líka til mikils að vinna,“ segir Höskuldur. Stóru fiskeldisfyrirtækin á Vest- fjörðum hafa verið að byggja upp samstarf í fiskeldisklasa með At- vinnuþróunarfélagi Vestfjarða. Þar hefur verið fjallað um sameiginlegt átak í að efla fiskeldið með auknum gæðum. Sveitarfélögin vinna einnig að umhverfisvottun sem nýtist fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og ferða- áfangastaði og óbeint fyrir fiskeldið með betri gæðaímynd svæðisins. Fyrirhugað er að halda ráðstefnu á Patreksfirði í haust þar sem fjallað verður um alla þessa þættir, fiskeldi, ferðaþjónustu og umhverf- isvottanir. Forsvarsmenn fiskeldis- fyrirtækjanna vonast til að það geti skapað vakningu á svæðinu Sérstaða í betri framleiðsluháttum  Dýrfiskur ríður á vaðið með lífræna framleiðslu á regnbogasilungi  Fjarðalax selur kröfuhörðustu kaupendum heims lax  Hugað að næstu skrefum  Þurfa hærra verð vegna lakari staðsetningar Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Slátrun Laxinn sem framleiddur er á Vestfjörðum er ísaður og fer ferskur á markaði í Bandaríkjunum og Evrópu. Miklar kröfur eru gerðar til gæðanna. Eldismenn sjá möguleika í lífrænu eldi á fiski í sjókvíum. Tölur frá Evrópu » 20.600 tonn af lífrænt vott- uðum eldislaxi fór á Evr- ópumarkað á árinu 2012 sem er 1,4% heildarframleiðsl- unnar. » Írar framleiða mest af líf- rænt vottuðum laxi, 9.600 tonn sem var 70% framleiðslu þeirra á árinu 2012. » Til samanburðar má geta þess að á síðasta ári voru framleidd um 3.000 tonn af laxi hér á landi. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stór fiskeldisfyrirtæki í sjókvíaeldi stefna að lífrænni framleiðslu á regnbogasilungi og laxi, að hluta eða öllu leyti. Þannig hyggjast þau auka sérstöðu afurðanna og tryggja sér hærra og jafnara verð í framtíð- inni. Miklu þarf að kosta til og ekki fullljóst hvernig markaðir bregðast við. Ávallt verður dýrara að framleiða laxfiska í sjókvíum hér við land en í bestu fiskeldislöndum. Hitastig er lægra en við Færeyjar og suður- hluta Noregs og þar af leiðandi vex fiskurinn hægar. Fiskeldið er frekar afskekkt, í fjörðum á suðurhluta Vestfjarða og á Austfjörðum og því verður flutningur á fóðri og öðru hráefni til framleiðslunnar og á af- urðunum á markað ávallt meiri en hjá samkeppnisfyrirtækjum sem liggja nær mörkuðum. Aðrir kostir vega upp á móti. Einn helsti mótleikurinn er að standa þannig að eldinu að fiskurinn fái viðurkenningu sem heilnæm af- urð og seljist á hærra verði. Framleiðsluaðferðin lykilatriði Fjarðalax sem borið hefur uppi þá miklu aukningu sem verið hefur í sjókvíaeldi á laxi hér við land í þeirri uppbyggingarbylgju sem nú stendur yfir hefur frá upphafi lagt áherslu á kynslóðaskipt eldi til þess að draga úr hættu á að sjúkdómar og lús valdi erfiðleikum og draga úr álagi á umhverfið. Það er gert með því áframeldið fer fram í þremur fjörðum. Seiðin eru alin til slátrunar í tvö ár og hvílt á þriðja ári. Fjarðalax hefur fengið viðurkenn- ingar kröfuhörðustu kaupenda á laxi, keðju sælkerabúða sem reknar eru undir nafni Whole Foods Mar- ket í Bandaríkjunum og víðar um heim. Fyrirtækið hefur einnig verið að fá vottun frá ýmsum samtökum sem hjálpar fyrirtækinu við mark- aðssetningu á öðrum mörkuðum. „Þetta er stór áfangi fyrir lífræna framleiðslu hér. Dýrfiskur er fyrsta eldisfyrirtækis sem fer í líf- ræna framleiðslu. Íslendingar eiga mikið verk að vinna við að ná sama dampi í lífrænni framleiðslu og grannþjóðirnar,“ segir Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns. Markaður fyrir lífræna laxfiska er ekki stór í Evrópu en fer vax- andi. Írar hafa lagt langmesta áherslu á lífræna framleiðslu og er meirihluti allrar framleiðslu þaðan lífrænt vottaður. Kröfurnar sem þarf að uppfylla til að fá vottun á lífrænni fram- leiðslu taka til allra stiga fram- leiðslunnar, allt frá klakstofni til slátrunar og flutnings á markað. Sem dæmi má nefna að fiskurinn fær tvöfalt meira rými í kerunum en við hefðbundnar eldisaðferðir. Minni líkur eru á að sjúkdómar og sníkjudýr komi upp í stöðvum sem nota aðferðir lífrænnar fram- leiðslu, að sögn Arnþórs Gústavs- sonar, sérfræðings hjá Hólaskóla og úttektarmanns vottunarstof- unnar. Ef eigi að síður koma upp vandamál á að hafa velferð fisksins í forgangi við meðhöndlun við sjúkdómum eða sníkjudýrum. „Neytendur sem treysta vott- uninni greiða hærra verð fyrir þá hugmyndafræði sem að baki ligg- ur, að varan sé heilnæm, að velferð fisksins hafi verið eins góð og unnt er og framleiðslan hafi sem minnst áhrif á umhverfið,“ segir Arnþór. Stór áfangi fyrir lífræna framleiðslu  Skilyrði líf- rænnar vottunar á öllum stigum Morgunblaðið/Sverrir Laxaflök Mikið er framleitt af laxi í Evrópu en lítill hluti með vottuðum lífrænum aðferðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.