Morgunblaðið - 15.03.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
MYNDFRÁADVANIA VILTUKOMAUPPAÐSTÖÐUÁÞÍNUMVINNUSTAÐ?
HAFÐUSAMBANDOGVIÐFINNUMBESTU LAUSNINAFYRIRÞIG!
WWW.SPAIN.INFO
VELKOMIN Á SPÆNSKAN FERÐADAG
Í DAG, LAUGARDAG, KL. 11-17
Spænskur ferðadagur
á Blómatorginu í
Kringlunni
Ferðakynningar, spænsk
tónlist og ljúffengar
spænskar veitingar.
Andlitsmálun, teiknileikur
og fleiri uppákomur
fyrir börnin.
Kynntu þér spennandi
áfangastaði!
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Breskur karlmaður á þrítugsaldri
sem aldrei skiptir skapi, sýnir ekki
tilfinningar sínar og hörfar frá átök-
um og ágreiningsefnum. Svona er
manninum lýst sem ákærður er fyrir
að hafa orðið fimm mánaða gamalli
dóttur sinni að bana með því að
hrista hana kröftuglega þegar hún
hætti ekki gráta að kvöldi 17. mars
2013. „Þetta voru aðstæður sem
hann réði ekki við á nokkurn hátt,“
sagði Sigríður J. Friðjónsdóttir rík-
issaksóknari. „Í þessum aðstæðum
getur hann ekkert gengið burtu.
Hann er einn og verður að gera eitt-
hvað. Hann getur ekki látið barnið
hætta að gráta. Það er á því byggt að
hann hafi, því miður, beitt barnið
þessu ofbeldi í þetta skipti, hrist
barnið með þessum afleiðingum.“
Saksóknari fer fram á allt að 16 ára
fangelsi yfir manninum en að
minnsta kosti 8 ára fangelsi.
Aðstæðum mannsins var lýst með
þeim hætti að hann kynni lítið til
verka þegar að börnum kæmi. Hann
hefði legið undir gagnrýni frá konu
sinni vegna þess að hann lagði ekki
nógu mikið í samband þeirra, hjálp-
aði ekki til við barnið eða heimilis-
störfin og var samband þeirra á
brauðfótum. Hann hafði nýlega
misst vinnu sína og var búinn að
missa stað sinn í rúmi þeirra þar sem
litla stúlkan svaf uppi í hjá móður
sinni. Með tilkomu barnsins hefði
ástríkt samband breyst og var hann
orðinn aukahlutur sem konan vildi
helst losna við. Ofan á allt tengdist
hann ekki barninu og fór það raunar
að gráta þegar það sá hann, föður
sinn. Maðurinn hefði því verið undir
miklu álagi.
Móðir barnsins var að reyna að að-
laga sig vinnu sinni á nýjan leik og
hinn örlagaríka dag ætlaði hún að
vera þar í þrjár klukkustundir eða
svo. Maðurinn settist því yfir barnið
en tók með sér tölvu sem hann hafði
verið í lungann úr deginum. Vildi
saksóknari meina að hann væri lík-
lega tölvufíkill. „Barnið vaknar og
hann þarf að slíta sig frá tölvunni.
Þetta eru aðstæður sem hann réði
ekki á nokkurn hátt við.“
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa
hrist barn sitt kröftuglega með þeim
afleiðingum að það hlaut heilablæð-
ingu og heilabólgu sem leiddu til
dauða þess. Saksóknari vísaði meðal
annars til sérfræðings í heila- og
taugalækningum sem framkvæmdi
aðgerð á stúlkunni en hann sagði fyr-
ir dómi að bláæðatengingar hefðu
verið í sundur í höfði barnsins. Það
átti sér aldrei viðreisnar von og eftir
að það fékk áverkan hafi aðeins
nokkrar mínútur liðið þar til meðvit-
und barnsins skertist.
Fleira sem kemur til greina
Maðurinn neitar sök og krafðist
verjandi hans, Víðir Smári Petersen,
að héraðsdómur sýknaði hann meðal
annars vegna þess að ekki væri úti-
lokað að barnið hefði látist af öðrum
orsökum en vegna hristings. „Sam-
félagið vill að sjálfsögðu koma í veg
fyrir ofbeldi gegn börnum, en á móti
er ekkert hræðilegra en að vera
ranglega dæmdur fyrir að valda
dauða barns síns,“ sagði Víðir Smári
og bætti við að rannsókn hefði verið
áfátt. Útiloka hefði átt alla aðra
möguleika, sem væru tugir ef ekki
hundruð. Þannig yrði að skoða
sjúkrasögu beggja foreldra og úti-
loka alla sjúkdóma sem gætu valdið
heilablæðingu. „Að mati ákærða
stendur enn eftir spurningin: Hvaða
sjúkdómar voru útilokaðir og með
hvaða hætti?“
Hann sagði greinilegt á skýrslu
réttarmeinafræðings að hann hefði
verið búinn að komast að niðurstöðu
áður en skýrslan var skrifuð. Því
hefðu ekki aðrar ástæður en „shaken
baby syndrome“ verið kannaðar.
„Það hefði þurft rækilegri og ítar-
legri skoðun. Það er ekki sannað með
óyggjandi hætti að hún hafi látist af
völdum „shaken baby syndrome“ og
algjörlega ósannað hvenær þessi
hristingur átti sér stað. Þetta er
grundvallaratriði því [móðirin] hefði
getað valdið þessu. Ákærði var bara
einn með henni í eina klukkustund
en hún var ein með henni í nokkur
skipti sama dag og í dágóðan tíma.“
Hann sagði þetta ekki snúast um
að sanna sekt móðurinnar heldur að
benda á að ekki væri sannað að fað-
irinn hefði framið ódæðisverk sem
þetta. Vísaði hann engu síður til þess
að móðirin hefði verið greind með
fæðingarþunglyndi tíu dögum áður
en dóttir þeirra lést. Því hefði til
dæmis verið nauðsynlegt að fram-
kvæma geðlæknismat á henni. Það
hefði ekki verið gert þrátt fyrir að
rætt hefði verið um það undir rann-
sókn málsins. Þar hefði rannsókn
lögreglu verið ábótavant.
Óhuggandi barn aðstæður
sem hann réði ekki við
Farið fram á allt að 16 ára fangelsi yfir manni vegna láts fimm mánaða dóttur
Morgunblaðið/Þórður
Aðalmeðferð Guðrún Sesselja Arnardóttir, réttargæslumaður konunnar, ræðir við Víði Smára Petersen, verjanda
mannsins, í Héraðsdómi Reykjavíkur. Við hlið mannsins, ákærða í málinu, situr svo Ellen Ingvadóttir dómtúlkur.
Garðar Eiríksson, talsmaður land-
eigenda við Geysi, ítrekaði í samtali
við Morgunblaðið undir kvöld í gær
að enn standi til að hefja gjaldtöku
við Geysissvæði. Engu breyti þótt
ríkissjóður hafi skorað á landeig-
endur að fresta gjaldtöku þar til lög-
mæti gjaldtökunnar hafi verið stað-
fest af dómstólum. Í gær sendi
lögmaður ríkissjóðs lögmanni land-
eigenda bréf þar sem fram kemur að
ríkissjóður harmi mjög að Landeig-
endafélag Geysis ætli að hefja inn-
heimtuna þrátt fyrir að lögmæti
gjaldtökunnar liggi ekki fyrir.
Ennfremur kemur fram í bréfinu
að láti Landeigendafélag Geysis
ekki af fyrirætlunum um gjaldtöku
áskilji ríkissjóður sér rétt til að
sækja skaðabætur á hendur félag-
inu. Garðar segir þetta engu breyta.
Í gær birti ferðaþjónustufyrir-
tækið Iceland Excursions Allra-
handa svo tilkynningu þar sem fram
kemur að farþegar á vegum félags-
ins verði ekki rukkaðir um aðgangs-
eyri. Landeigendafélagið hafði ósk-
að eftir að stærstu fyrirtækin sem
bjóða dagsferðir frá Reykjavík
hefðu aðgangseyri að Geysissvæðinu
innifalinn í gjaldinu. vidar@mbl.is
Ítreka að
gjaldtaka
standi til
Morgunblaðið/Kristinn
Geysir Landeigendur ítreka vilja
sinn um að hefja gjaldtöku í dag.
Skaðabótakrafa
breyti engu