Morgunblaðið - 15.03.2014, Side 23
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Lítið þokast í átt að samkomulagi milli Lands-
bankans og slitastjórnar gamla Landsbankans
(LBI) um endurskoðun á greiðsluskilmálum 240
milljarða erlendra skulda Landsbankans við LBI.
Enn eru engar formlegar viðræður hafnar. Meira
en fimm mánuðir eru síðan LBI féllst á beiðni
bankans að hefja viðræður en ekki hefur tekist að
ná saman um tillögur að viðræðuskilmálum.
Fram kemur í skýrslu slitastjórnar LBI til
kröfuhafa, sem var lögð fram á kröfuhafafundi
bankans sl. miðvikudag og Morgunblaðið hefur
undir höndum, að „talsvert ber á milli“ Lands-
bankans og LBI í þessum efnum.
Landsbankinn vildi ekkert tjá sig um sam-
skiptin við LBI þegar eftir því var leitað.
Seðlabanki Íslands hefur talað opinskátt um
nauðsyn þess að lengja í endurgreiðsluferli skulda
Landsbankans áður en hægt verður að afnema
fjármagnshöft. Vegna óvissu um aðgengi Lands-
bankans að erlendri fjármögnun telur Seðlabank-
inn „óvíst að hægt verði að standa skil á afborg-
unum bréfanna, að minnsta kosti ekki án þess að
valda verulegum þrýstingi á gengi krónunnar“.
Að óbreyttu þarf bankinn að greiða upp skuld
sína við LBI að fullu 2018. Bankinn á þó verulegt
lausafé í erlendri mynt, yfir 160 milljarða, og hef-
ur sagt að fjármögnun sé tryggð til 2016.
Á kröfuhafafundi LBI þann 2. október 2013 var
greint frá því að slitastjórnin hefði samþykkt að
viðræður byggðar á þeim tillögum. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins gerðu tillögur LBI
meðal annars ráð fyrir að ekki væri hægt að fall-
ast á viðræður um að lengja í endurgreiðsluferli
skuldanna og samtímis að vextir héldust óbreytt-
ir.
Landsbankinn skoðar nú einkum þann mögu-
leika hvort bankinn geti sótt sér lánsfé á erlendum
mörkuðum til að endurfjármagna hluta skuldanna
við LBI. Það verður hins vegar hægara sagt en
gert að fá slíkt fjármagn á viðunandi vaxtakjörum.
Hækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins og
frekari skuldabréfaútboð þess gætu þó hugsan-
lega haft jákvæð áhrif fyrir Landsbankann.
taka til skoðunar ósk Landsbankans um að hefja
viðræður um ýmsar skilmálabreytingar á skulda-
bréfunum. Þær breytingar lutu að því að lengja í
skuldunum um tólf ár – lokagjalddagi 2030 í stað
2018 – og að þáverandi vextir myndu haldast
óbreyttir næstu fimm árin. Í október sl. hækkaði
vaxtaálagið á skuldum bankans við LBI úr 1,75% í
2,9%. Aðrar breytingar voru að kröfur um lág-
marksveðsetningu lækkuðu úr 124,7% í 105%.
Slitastjórn LBI kynnti sínar eigin tillögur að
viðræðuskilmálum (e. Heads of Terms) fyrir
Landsbankanum um miðjan janúar. Í bréfi sem
var sent slitastjórn tveimur vikum síðar hafnaði
Landsbankinn því hins vegar að hefja formlegar
Engar formlegar viðræður hafnar
Morgunblaðið/Kristinn
Landsbankinn Þarf að óbreyttu að greiða upp 240 milljarða króna erlenda skuld við LBI.
„Talsvert ber á milli“ Landsbankans og slitastjórnar LBI um að ná samkomulagi um skilmálabreyt-
ingar á 240 milljarða erlendum skuldum Landsbankinn hafnaði tillögum LBI að viðræðuskilmálum
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
● Advania tapaði 360 milljónum króna
á síðasta ári, en það er talsvert betri
niðurstaða en árið á undan þegar fyrir-
tækið tapaði 1,7 milljörðum króna.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði (EBITDA) var 1,3 millj-
arðar og jókst um tæplega einn milljarð
króna milli ára. Heildartekjur jukust um
2,5% á milli ára, voru 26,5 milljarðar
króna samanborið við 25,8 milljarða
króna árið á undan.
Nánar á mbl.is
360 milljóna króna tap
hjá Advania í fyrra
Morgunblaðið/Ómar
Advania Þrátt fyrir tap í fyrra var útkom-
an mun betri en árið 2012.
● Greiningardeild Arion banka spáir
0,4% hækkun vísitölu neysluverðs
(VNV) í mars sem þýðir að tólf mánaða
verðbólga muni mælast 2,3% reynist
deildin sannspá. „Lítill verðbólguþrýst-
ingur er um þessar mundir en líklegt er
að útsöluáhrifin gangi til baka og verði
veigamesti þátturinn til hækkunar á
verðbólgu í mars. Krónan hefur haldið
áfram að styrkjast frá síðustu verð-
bólgumælingu og hefur gengisvísitalan
farið undir 206 í mánuðinum en það
hefur ekki gerst síðan í desember árið
2010,“ segir í spá Arion banka. Arion banki Spáir 0,4% verðbólgu.
Spáir 0,4% verðbólgu í marsmánuði
● Velta í dagvöruverslun jókst um 3,0% á föstu verðlagi í febrúar miðað við
sama mánuð í fyrra Um 60% aukning varð að raunvirði á sölu farsíma miðað
við febrúar í fyrra. Snjallsímavæðingin heldur því enn áfram og líklega má
leiða líkur að því að tölvusamskipti færist í sífellt meira mæli yfir í símtækin.
Þótt verslun sé smám saman að aukast á ný á hún enn langt í land með að ná
fyrri styrkleika. Þetta kemur fram í smásöluvísitölu Rannsóknarseturs versl-
unarinnar. Nánar á mbl.is
60% aukning í sölu snjallsíma í febrúar
● Rætt var um miðilinn auroracoin á
fundi efnahags- og viðskiptanefndar í
gærmorgun, en þar var lögð áhersla á
að vara neytendur við áhættunni sem
fyrirbærið kunni að skapa. Pétur Blön-
dal, varaformaður nefndarinnar, segir
að mikil áhætta gæti skapast af notkun
miðilsins. Nánar á mbl.is
Ræddu um auroracoin
!
"#
""#
$
#
#
!
$
%&'() '*'
+,%-%*./ ,&*'0'12% 34*'1.4
5
$
"5
"
!
5
"
!
#
"5
"$
"#!
5
$5$
!
"
!$
$5$
"$5$"$
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Seðlabanki Íslands gæti ekki
veitt LBI undanþágu frá fjár-
magnshöftum til að greiða út
um 260 milljarða í gjaldeyri
til forgangskröfuhafa nema að
viðhöfðu samráði við Bjarna
Benediktsson fjármálaráð-
herra.
Samkvæmt breytingum á
lögum um gjaldeyrismál í
mars 2013 eru allar undan-
þágur frá höftum sem eru að
hærri fjárhæð en 25 milljarðar
háðar samráði Seðlabankans
við fjármálaráðherra og und-
angenginni kynningu á efna-
hagslegum áhrifum fyrir efna-
hags- og viðskiptanefnd
Alþingis.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá hefur LBI sent tvær
undanþágubeiðnir til Seðla-
bankans, samtals að fjárhæð
um 260 milljarðar.
Þarf samráð
við ráðherra
UNDANÞÁGUBEIÐNI LBI