Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 29

Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 Nokkur umræða fer nú fram um Evrópustefnu sitjandi ríkisstjórnar og ekki öll mjög hófstillt. Með pólitískum loftfim- leikum er því haldið fram að ríkisstjórnarflokk- arnir svíki gefin kosn- ingaloforð ef þeir fylgja stefnum og funda- samþykktum flokka sinna og slíta aðildav- iðræðum við ESB. Í aðdraganda síðustu alþingis- kosninga voru umræður um aðild að ESB ekki miklar og svolítið ruglings- legar. Vinstriflokkarnir sem hrökkl- uðust frá völdum eftir að hafa sett allt sitt afl og sína æru í ESB-aðild voru áhugalitlir um þessa umræðu þar sem hún var þeim síst til frama. Hægriflokkarnir tveir sem nú sitja að völdum vonuðust til að halda inn- an sinnan raða bæði já- og nei- sinnum ESB-málsins og vildu því heldur ekkert um málið tala. Sá sem hér skrifar var í hópi andstæð- inga ESB-aðildar sem tefldu fram lista til þess að skerpa á þessari umræðu og standa vörð um full- veldisbaráttuna. Flest komum við úr VG en sá flokkur var þá fyrir löngu geng- inn í björg heimatrú- boðs ESB-sinna. Með því að bjóða upp á kost þar sem enginn afsláttur væri gefinn frá einarðri kröfu um tafarlaus slit ESB- viðræðna töldum við okkur þrýsta á stóru flokkana að hvika ekki frá eigin samþykktum. Það er fljótsagt að við höfðum þar algerlega erindi sem erf- iði. Þrátt fyrir hik og margskonar orðagjálfur viku hvorki Framsókn- arflokkur né Sjálfstæðisflokkur frá þeim stefnum sem markaðar höfðu verið í grasrótum flokkanna og sam- þykktar á þingum að aðlögunarferli ESB skyldi stöðvað og það taf- arlaust. Sú ríkisstjórn sem nú situr er ekki líkleg til afreka í þágu almennings. Gjafir til handa heimilunum í land- inu eru nú framkomnar í ríflegum skenkingum til þeirra heimila sem halda á kvóta í sjávarútvegi. Það eru vissulega fjölskyldur líka og kannski þær einar sem flokkarnir voru sam- stiga um að fá ættu gjafafé. En í ESB-málinu voru ríkisstjórn- arflokkarnir algerlega samstiga. Það er lágmarkskrafa okkar allra, sem studdum að því að koma hinni óvinsælu ESB-stjórn Jóhönnu Sig- urðardóttur frá völdum, að þeir sem nú ráða standi hér við gefin loforð. Að svíkja kosningaloforð Eftir Bjarna Harðarson »Það er lágmarkskrafa okkar sem studdum að því að koma hinn óvin- sælu ESB-stjórn Jó- hönnu frá völdum að þeir sem nú ráða standi hér við gefin loforð. Bjarni Harðarson Höfundur er bóksali. Kínverjinn Li Chao er sig-urvegari Reykjavíkur-skákmótsins sem lauk íHörpu á miðvikudaginn eftir spennandi lokaumferð. Li Chao hlaut 8 ½ vinning af 10 mögu- legum. Kínverjar eru stórveldi í skákinni og að fulltrúi þeirra skuli vinna þetta mót kemur ekki á óvart. Sennilega hefur komið á óvart að greinarhöfundur sem lítið hefur teflt undanfarið skyldi eiga mögu- leika á efsta sætinu en í lokaumferð- inni var efsta sætið undir í harðri baráttuskák við Kanadamanninn Eric Hansen. Taktík þeirrar við- ureignar var að tefla frekar þurrt í þeirri von að andstæðingurinn myndi sprengja sig. En í skákinni var ákveðnu jafnvægi ekki raskað og úr varð einhverskonar störu- keppni sem endaði með því að kepp- endur slíðruðu sverðin eftir mikil uppskipti. Undirritaður var því fyrir vikið í 2.-5. sæti ásamt Hollend- ingnum Robin Van Kampen, Eric Hansen og Litháanum Eduardas Rosentalis, allir með 8 vinninga. Í humátt á eftir komu m.a. Hjörvar Steinn Grétarsson og Hannes Hlífar Stefánsson með 7 ½ vinning. Lokaúrslitin að öðru leyti bera með sér að margir af okkar ungu skákmönnum bættu sig verulega. Hinn 11 ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson hækkaði mest allra eða um 55 elo-stig. Félagar hans í sig- urliði Íslands á NM í skólaskák hækkuðu flestir heilmikið, Jón Kristinn Þorgeirsson, Oliver Jó- hannesson, Dagur Ragnarsson, Hilmir Freyr Heimisson og Nökkvi Sverrisson og einnig ungir skák- menn á hraðri uppleið, Gauti Páll Jónsson, Símon Þórhallsson, Dagur Andri Friðgeirsson og Birkir Karl Sigurðsson svo nokkrir séu nefndir. Þá stóð Lenka Ptacnikova sig frá- bærlega. Nýjasti stórmeistari Íslendinga Hjörvar Steinn Grétarsson átti gott mót en lykilinn að árangrinum fann hann í 9. umferð er honum tókst að leggja að velli 2. borðs mann Eng- lendinga frá síðasta Ólympíumóti: Hjörvar Steinn Grétarsson – Gawain Jones Pirc-vörn 1. d4 d6 2. e4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Be3 a6 5. a4 Bg7 6. Dd2 O-O 7. Rf3 Bg4 8. Be2 Rc6 9. O-O e5 10. d5 Re7 11. g3 Sérstæður leikur en 11. a5 lá beinast við. Eftir 11. … Rd7 á hvít- ur 12. Rg5. 11. … Bd7 12. Dd3 h6 13. Rd2 Rg4 14. Bxg4 Bxg4 15. f4 Dd7 16. fxe5 dxe5 17. Rb3 Hab8 18. Rc5 Dd8 19. Rd1 Bh3 20. Hf3 Bg4 21. Hf1 Bh3 22. Hf3 a5 Jafntefli kemur ekki til greina. 23. Rf2 Bc8 24. Hd1 b6 25. Rb3 g5 26. h3 Rg6?! Riddarinn er fremur óvirkur þarna. Mun betra var 26. … f5 strax. 27. Rd2 Bd7 28. b3 h5 29. Rc4 Bh6 30. Bc1 Dc8 31. Re3! Eftir að hvítur nær að hertaka f5- reitinn á svartur afar erfitt um vik. 31. … Bxh3 strandar á 32. Rxh3 Dxh3 33. Rf5! Kh7 34. g4! Dxg4 Hg3 og drottningin á engan reit. 31. … g4 32. hxg4 Bxe3 33. Dxe3 Bxg4 34. Dh6! Þrumuleikur sem hótar 35. Bg5. Svartur er varnarlaus gagnvart þeirri hótun. 34. … Bxf3 35. Bg5! Sá kostur að láta drottninguna af hendi með 35. … Dd8 var ekki fýsi- legur. 35. … f5 36. Dxg6+ Kh8 37. Dh6 Kg8 38. Dg6 Kh8 39. Bf6 Hxf6 40. Dxf6 Kg8 41. Hd3 fxe4 42. Dg6 Kf8 43. Hc3! c5 44. dxc6 Dc7 45. Rxe4 Bxe4 46. Dxe4 Hd8 47. Df3+ Ke7 Eða 47. … Df7 48. Dxf7+ Kxf7 49. c7 Hc8 50. Kf2 og endataflið er auðunnið. 48. Dxh5 Dd6 49. Dh7+ Ke8 50. Dg8+ Ke7 51. Dg7+ Ke8 52. Hf3 Dc5+ 53. Kh2 Hd1 54. Dg8+ Ke7 55. Hf7+ Ke6 56. Dg6+ Kd5 57. Hd7+ - og loks gafst Gawain Jones upp. Ungu skákmennirnir bættu sig verulega á Reykjavíkurmótinu Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is TWIN LIGHT GARDÍNUR Betri birtustjórnun MEIRA ÚRVAL MEIRI GÆÐI ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA EFTIR MÁLI Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18 Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver Er ferming framundan? Láttu okkur sjá um veisluna Gómsætir réttir við allra hæfi Allar nánari upplýsingar í síma 533 3000 Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.