Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
Föstudaginn 28.
febrúar sl. fjallaði
Fréttablaðið um tíðni
og áhrif stórra undir-
skriftasafnana, þar
sem segir m.a.: „Sex-
tán stórar undir-
skriftasafnanir hafa
farið fram hér á landi
frá því að Ísland varð
sjálfstætt ríki árið
1944.“ Undirskrifta-
safnanir eru klárlega fleiri og stærri
en um er getið og Ísland varð sjálf-
stætt ríki árið 1918, en ekki 1944.
Undirskriftasöfnun Umhverfisvina,
árið 1999, er þar á meðal, en þá mót-
mæltu 45.386 manns áformum um
uppistöðulón á Eyjabökkum, en und-
irritaður var forsvars- og ábyrgð-
armaður þeirrar söfnunar. Undir-
skriftasöfnunin varð til þess, að hætt
var við fyrirhugaða Fljótsdals-
virkjun. Einnig skrifuðu um 17.000
manns undir mótmæli, árið 2012,
gegn hótelbyggingu á Landsímareit
og að tónlistarhúsið Nasa færi undir
hótelið. Borgaryfirvöld skelltu skolla-
eyrum við þessum mótmælum. Lík-
lega má finna fleiri undirskriftasafn-
anir, sem eru stærri en mótmælin
gegn niðurskurði á RÚV, árið 2013,
þar sem 10.339 manns tóku þátt, en
Fréttablaðið telur RÚV-mótmælin
með sextán stærstu undirskriftasöfn-
unum síðan 1944. Undirskriftasöfn-
unin vegna RÚV fór vissulega hátt í
fjölmiðlum og mótmælasamkomum,
en árangurinn varð ekki í samræmi
við það.
Ólíkar undirskrifta-
safnanir fyrr og nú
Stærsta undirskriftasöfnunin á lið-
inni öld var Varið land árið 1974, þar
sem 55.522 undirrituðu skjal, þar sem
mótmælt var áformum um brottför
varnarliðsins og lýst áframhaldandi
stuðningi við þátttökuna í Atlants-
hafsbandalaginu. Undirritaður man
vel þau átök í samfélag-
inu, sem spunnust út
frá undirskrifta-
söfnuninni, en veit ekki
með vissu hvort undir-
skriftalistar hurfu, þar
sem þeir lágu frammi
eða voru rifnir, eins og
gerðist oft í
undirskriftasöfnun Um-
hverfisvina, aldarfjórð-
ungi síðar. Söfnun Var-
ins lands var mjög
áhrifarík og leiddi beint
til þess, að vinstristjórn
hrökklaðist frá völdum eftir kosn-
ingasigra Sjálfstæðisflokksins í
sveitarstjórnar- og alþingiskosn-
ingum.
Í október 1999 voru Umhverfis-
vinir stofnaðir, í þeim tilgangi, að
safna undirskriftum gegn áformum
um Fljótsdalsvirkjun, án lögform-
legs umhverfismats, en virkjunar-
áformin voru grundvölluð á lögum
frá 1991, sem hafði verið breytt árið
1994. Baráttan snerist um að forða
Eyjabökkum, við austurhlíðar Snæ-
fells, undan 45 ferkílómetra uppi-
stöðulóni. 45.386 manns rituðu undir
skjal Umhverfisvina, sem þannig
varð og er enn næststærsta raun-
verulega undirskriftasöfnun Ís-
landssögunnar. Þegar mótmæla-
skjal Umhverfisvina var afhent
fulltrúum ríkisstjórnarinnar og
Norsk Hydro hafði Alþingi þegar
samþykkt Fljótsdalsvirkjun með
miklum meirihluta atkvæða. Ráða-
menn hlustuðu ekki, sérstaklega þá-
verandi umhverfisráðherra, en
Norsk Hydro féll frá Fljótsdals-
virkjun 30. mars árið 2000, sem
verður að teljast einn stærsti dagur í
sögu íslenskrar náttúruverndar.
Þriðja stærsta undirskriftasöfnun
liðinnar aldar beindist gegn EES-
samningnum árið 1992, þar sem
skorað var á Alþingi, að efna til þjóð-
aratkvæðagreiðslu um samninginn.
34.378 manns skrifuðu undir kröf-
una, sem Alþingi hafnaði.
Undirskriftasafnanir á 21. öld.
Á þessari öld hafa undirskrifta-
safnanir verið tíðar, sérstaklega eft-
ir að Icesave-samningurinn fór til
feðra sinna, eftir vel heppnaða und-
irskriftasöfnun, árið 2009-2010. Þar
skoruðu 56.089 Íslendingar á forseta
lýðveldisins að staðfesta ekki lög um
þennan samning. Forsetinn varð við
kröfunni. Samningurinn var strá-
felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í
kjölfarið fylgdu a.m.k. sex undir-
skriftasafnanir, þar sem hæst ber
undirskriftasöfnun um orkuauðlind-
ir, þar sem 47.129 manns skoruðu á
stjórnvöld, að koma í veg fyrir sölu á
HS Orku til einkaaðila. Þetta var ár-
ið 2010-2011, þ.e. í tíð ríkisstjórnar,
sem gjarnan talaði um orkulindir í
eigu almennings, en stóð ekki við
það! Undirskriftasöfnunin skilaði
engu. 41.524 manns skrifuðu undir
mótmælalista gegn vegatollum á leið
til og frá höfuðborgarsvæðinu, og
hafa viðbótartollar ekki verið lagðir
á síðan. Loks skrifuðu 38.000 manns
undir kröfuna um að forseti lýðveld-
isins synjaði staðfestingu um frum-
varp um annan Icesave-samning,
sem Alþingi hafði samþykkt. Forset-
inn vísaði málinu til þjóðarinnar,
sem felldi samningin.
Er þá komið að fjölmennustu und-
irskriftasöfnun allra tíma á Íslandi,
en aftur skal hnykkt á aðstöðumun-
inum frá því að Varið land og Um-
hverfisvinir drógu vagninn í því
sambandi. 69.722 rituðu undir áskor-
un til Reykjavíkurborgar, um að
tryggja að Reykjavíkurflugvöllur
verði áfram í Vatnsmýri. Þegar nú-
verandi borgarstjóri tók við undir-
skriftunum sýndi hann forráða-
mönnum söfnunarinnar og öðrum
landsmönnum lítilsvirðingu og borg-
aryfirvöld hafa síðan kórónað hlust-
unarleysi sitt, með því að halda til
streitu áformum um, að byggja yfir
NA/SV-brautina, bæði í Skerjafirði
og við Hlíðarenda. Á sunnudags-
morgni í RÚV var ekki minnst á
valdníðslu og hlustunarleysi borg-
Undirskriftasafnanir
og áhrif þeirra
Eftir Ólaf F.
Magnússon
Ólafur F. Magnússon
Reykvíkingar í heimsókn í
Gullsmárann á mánudaginn
Spilað var á 16 borðum í Gull-
smára fimmtudaginn 13. mars. Úr-
slit í N/S:
Unnar A. Guðmss. – Guðm. Sigursteinss. 323
Örn Einarsson – Sæmundur Björnsson 307
Leifur Kr. Jóhanness. – Ari Þórðarson 295
Pétur Antonss. – Guðlaugur Nielsen 292
Sigtryggur Ellertss. – Tómas Sigurðss. 286
A/V:
Björn Péturss. – Valdimar Ásmundss. 363
Guðrún Gestsd. – Filip Höskuldsson 321
Ormarr Snæbjss. – Sturla Snæbjörnss. 307
Gunnar Alexanderss. – Elís Helgason 291
Ágúst Vilhelmsson – Kári Jónsson 289
Næsta mánudag, 17. mars, koma
Reykvíkingar í heimsókn. Spilað
verður á 10 borðum frá hvorum að-
ila. Fullbókað er í þá spilamennsku.
Guðjón Svavar og Garðar
styrktu stöðu sína
Þriðja kvöldið af fjórum í meist-
aratvímenningi bridsfélaganna á
Suðurnesjum var spilað sl. fimmtu-
dag og styrktu Guðjón Svavar og
Garðar stöðu sína á toppnum til
muna.
Staða efstu para í mótinu er nú
þessi: (% skor)
Garðar Garðarsson – Svavar Jensen 59,9
Gunnar Guðbjss. – Garðar Þór Garðarss.55,6
Dagur Ingimundarson – Bjarki Dagss. 52,4
Karl G. Karlss. – Svala Pálsd. 52,1
Garðar og Svavar fengu mjög
góða skor sl. fimmtudag eða 63,4%.
Þorgeir Ver Halldórsson og Arnór
Ragnarsson skoruðu einnig vel eða
62,3% sem og feðgarnir Dagur og
Bjarki sem voru með 61,5%
Lokaumferðin verður spiluð nk.
fimmtudagskvöld kl. 19 í félagsheim-
ilinu á Mánagrund.
Eldri borgarar Stangarhyl
Fimmtudaginn 13. mars var spil-
aður tvímenningur hjá bridsdeild
Félags eldri borgara, Stangarhyl 4,
Reykjavík. Spilað var á 11 borðum.
Efstu pör í N/S:
Helgi Hallgrímss. – Ægir Ferdinandss. 244
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 226
Björn Árnason – Auðunn Guðmss. 225
Hrafnhildur Skúlad. – Guðm. Jóhannss. 223
A/V
Gunnar Jónsson – Magnús Jónsson 279
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 257
Axel Lárusson – Bergur Ingimundars. 248
Tómas Sigurjss. – Björn Svavarsson 243
Högni Friðþjófs og félagar
tóku forystuna hjá BK
Þriðja kvöldið af fjórum í Hrað-
sveitakeppni Bridsfélags Kópavogs
var spilað í gærkvöldi. Sveit Högna
Friðþjófssonar náði efsta sætinu
samanlagt með 1.726 stigum en Sveit
Björns Halldórssonar kemur fast á
hæla þeim með þremur stigum
minna.
Staðan:
Högni Friðþjófsson 1726
Björn Halldórsson 1723
Þórður Jörundsson 1680
Vélasalan 1675
Ólafur Magnússon 1643
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
- með morgunkaffinu
FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
HUMARSALAT “á la Café Paris”
með klettasalati, papriku, fetaosti, sultuðum rauðlauk,
cous-cous og hvítlaukssósu
RISARÆKJUR MARINERAÐAR
í chili, engifer og lime, bornar fram með spínati,
klettasalati, rauðlauk, tómötum,
mangó og snjóbaunum
BARBERRY ANDAR ,,CONFIT” SALAT
með geitaosti, brenndum fíkjum, fersku salati,
rauðrófum, melónu, ristuðum graskersfræjum,
rauðlauk og appelsínufíkjugljáa
Við leitum eftir samstarfsaðila/rekstraraðila/leigjanda að hluta fasteigna
í Arnarholti á Kjalarnesi, 116 Reykjavik. Í dag eru 36 herbergi með og án
baðherbergis, getum aukið um 8 herbergi. Samtengdar byggingar hýsa allt að 20 íbúðir
frá einstaklings til 5 herbergja. Nokkrir stærri og minni salir, stórt eldhús með matsölum.
Unnið er að leyfi fyrir gistiheimili. Öll aðstaða sem þarf fyrir lúxushótel þ.e. líkamsrækt,
gufubað, afþreyingarsalur með billjarðborði og fleira. Verkstæði og þvottahús. Gert er
ráð fyrir aðstöðu fyrir hesta og jafnvel annan búfénað ef þær óskir koma fram. Golfvöllur
í nágrenninu. Stórkostlega umhverfi með mikilli sögu og skemmtilegum gönguleiðum.
Miklir möguleikar.
Arnarholt á Kjalarnesi
Hótelrekstur, gisting, heilsuhótel, ráðstefnur og reyndar hvað sem
góðum hugmyndasmið dettur í hug.
Fasteignin er til sýnis áhugasömum eftir samkomulagi
Hafið samband við Stefán í síma 897-6121