Morgunblaðið - 15.03.2014, Síða 32

Morgunblaðið - 15.03.2014, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 ✝ Geir KonráðBjörnsson fæddist á Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði 9. júní 1935. Hann lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 8. mars 2014. Foreldrar hans voru Kristín Ingi- björg Krist- insdóttir húsfreyja og Björn Jónsson bóndi og hreppstjóri. Önnur börn þeirra: Jófríður, Jón, Val- garð, Gunnar, Sigurlína, Hauk- ur og fóstursonurinn Reynir Gíslason, systursonur Kristínar. Geir kvæntist 3. febrúar 1961 Hönnu Cörlu Proppé, f. 5. ágúst 1938. Foreldrar hennar voru Sigríður F. Proppé og Ástráður J. Proppé. Börn Geirs og Hönnu Cörlu eru: 1) Jón Þór, maki Kristín Anna Hjálmarsdóttir, dætur þeirra eru Þórhildur Ögn og Kolfinna. 2) Sigríður Lísa, maki hennar er Marinó Már Marinósson, börn Sigríðar Lísu eru Hanna Carla og Elvar Örn (faðir Jóhann Heiðmundsson). Uppvaxin að hluta til eða öllu Geir sleit barnsskónum á Bæ en flutti á unglingsaldri til Borgarness og sótti nám þar. Hann bjó þar hjá Geirlaugu föð- ursystur sinni, eiginmanni henn- ar, Þórði Pálmasyni og dóttur þeirra, Þorbjörgu (Distu). Geir lærði bakaraiðn í Borgarnesi og lauk sveinsprófi 1955. Hann stundaði síðan nám í kökusk- reytingum („konditori“) í Dan- mörku og starfaði þar um hríð, áður en hann sneri aftur í Borg- arnes, þar sem hann vann hjá Kaupfélagi Borgfirðinga. Eftir að þau Hanna Carla giftust sigldu þau til Kaupmannahafnar og dvöldu þar um hríð; þar bætti Geir við sig námi í gluggaskeyt- ingum. Þau stofnuðu heimili í Borgarnesi veturinn 1961-62 en bjuggu síðar um skeið á Vega- mótum, Snæfellsnesi, þar sem þau önnuðust veitingarekstur, uns Geir var ráðinn hótelstjóri í Borgarnesi haustið 1965. Þau störfuðu bæði á hótelinu í tólf ár. Árið 1977 tóku þau að sér mötuneytið í Kröfluvirkjun, en frá árinu 1979 starfaði Geir sem sölustjóri kjötafurða hjá Kaup- félagi Borgfirðinga en síðan rúman áratug sem sölumaður hjá Kjötvinnslunni Esju og lét ekki af störfum fyrr en um 75 ára aldur. Útför Geirs fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 15. mars 2014, og hefst athöfnin kl. 14. leyti á heimili Geirs og Hönnu Cörlu eru einnig 3) dóttir hans, María Erla (móðir Arnþrúður Jóhannsdóttir), maki hennar er Theódór Þórð- arson, synir þeirra eru Björn, Árni, Geir Konráð og Ei- ríkur Þór, og 4) sonur Hönnu Cörlu, Ástráður (faðir Eysteinn Þor- valdsson), maki hans er Anna Jóhannsdóttir, börn þeirra eru Jóhann og Eyja, en Ástráður á einnig synina Andra Þór og Berg (móðir þeirra er Birna Kristjánsdóttir). Geir eignaðist einnig 5) dótturina Kristínu Ingibjörgu (móðir Sigríður Bachmann), maki Guðgeir Eyj- ólfsson, börn þeirra eru Guðrún, Sigurður og Eyjólfur, og 6) son- inn Gunnar Má (móðir Svanborg Kjartansdóttir), maki hans er Dagmar Jóhannesdóttir, synir hans eru Andri, Bjarki og Sig- finnur Helgi (móðir Soffía Sig- finnsdóttir). Samtals eru barna- barnabörnin níu. Ég ólst upp að hluta til hjá ömmu Kristínu og afa Birni á Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði, ásamt uppeldisbróður mínum honum Konna frænda. Við Konni vorum síðan tekin inn í „Litlabæjargeng- ið“ sem samanstóð af systkinahóp feðra okkar, þegar þau komu sér upp bústaðnum Litla Bæ niðri við sjó í Bæjarlandinu. Það hafa verið mikil forréttindi að fá að kynnast þessum sam- heldna systkinahópi á æskuslóð- um okkar allra en hópurinn hefur komið þar reglulega saman á hverju ári um áratuga skeið. Heldur hefur fækkað í hópnum eins og gengur og nú er hann faðir minn horfinn á braut. Söknuður- inn er mikill og minningarnar hrannast upp í hugann. Yndisleg- ar minningar um elskulegan og ljúfan föður. Að fara með honum á Litla Bæ var alltaf mjög skemmtilegt og mikil upplifun. Þar nutu eiginleik- ar og ríkir hæfileikar hans sín vel, glettnin og spaugsemin kappið og dugnaðurinn að ég tali nú ekki um veiðigleðina. Það kom oftast í hans hlut og Hönnu Cörlu konu hans að sjá um matinn sem pabbi hafði keypt af mikilli útsjónarsemi og hagsýni og síðan var brugðið upp dýrindis veislum, sagðar sögur, spilað og sungið af hjartans lyst. Ég vona að ég verði jafn dugleg að miðla sögum, söng og fróðleik til minna barna og barnabarna eins og faðir minn og systkinin frá Bæ hafa verið og ég hef notið. Ég minnist atvika úr uppvext- inum þegar ég var hjá pabba sem var þá hótelstjóri á Hótel Borg- arnesi. Alltaf svo mikið líf og fjör og oft svo mikið að gera. Ég lærði ótrúlega mikið á þeim árum, fékk að vinna fjölbreytt störf sem kenndu mér svo margt og svo kynnin við það góða fólk sem þar vann. Þau hjónin höfðu svo gott lag á sínu starfsfólki og krafan var; „gerið ykkar besta og verið samviskusöm“. Pabbi var glæsilegur maður svo eftir var tekið. Hann hafði mikla útgeislun og hafði þetta alveg sér- staka blik í augum og gat hann auðveldlega hrifið fólk með sér í leik og starfi. Hann var líka snyrti- pinni, allt var hjá honum „spikk og span“ bíllinn gljáfægður og bíl- skúrinn tandurhreinn og þar var allt í röð og reglu. Gestrisinn var hann og þau hjón bæði með af- brigðum og var maður nú ævin- lega saddur, sæll og glaður er heim var haldið. Pabbi átti við sína veikleika að stríða eins og svo margir aðrir. En hann tókst á við þá af æðruleysi og samviskusemi og hafði sigur. Ég sé honum pabba bregða fyr- ir í sonum mínum, á ýmsan hátt. Við getum glaðst yfir því að þann- ig lifum við áfram í afkomendum okkar. Hvíldu í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín dóttir María Erla María Erla Geirsdóttir. Elsku pabbi minn, ég kveð þig með sárum söknuði en í hjarta mínu geymi ég allar þær góðu og ljúfu stundir sem við áttum sam- an. Allar góðu ferðirnar okkar á Litla-Bæ, stundirnar sem við eyddum saman í að þvo og bóna bílana okkar. Þú átt alltaf eftir að verða mér efst í huga þegar ég set upp jóla- ljósin. Við Marinó eigum eftir að sakna spilakvöldanna sem við átt- um með ykkur mömmu. Ég hefði ekki getað fengið betri kennara en þig þegar ég var að stíga mín fyrstu skref sem hótelstjóri. Ég kveð þig með þessum orðum: Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíldu í friði elsku pabbi minn. Þín dóttir, Lísa. Stórt skarð er nú höggvið í Bæjarfjölskylduna við fráfall þitt, elsku Geiri okkar. Margra góðra stunda er að minnast frá liðnum árum, sérstaklega nú í seinni tíð þegar samskiptin voru orðin meiri og bræðraböndin styrktust enn frekar. Varla leið dagur án þess að við töluðumst við. Maður minnist allra stundanna í Litla-Bæ við veiðar, söng og fleira skemmti- legt. Oft fórum við bræðurnir saman út á vatn og líka á sjó, og svo allar stundirnar þegar spilað- ur var kani fram á nótt með ykkur Hönnu Cörlu. Ég get ekki látið hjá líða að minnast á alla þína hjálpsemi, ein- staka lipurð og snyrtimennsku. Ekki má gleyma bílskúrnum hjá þér í Borgarnesi, þar sem allt var í röð og reglu. Þegar bíllinn var þrifinn varstu meira að segja sagður hafa notað tannbursta til að fara í smæstu fellingar. Ég er ekki frá því að það hafi verið satt! Og Geiri minn, hver kemur núna með mér að svíða lappirnar í haust? Þú sem varst alltaf til í þá skemmtilegu iðju og hlakkaðir til í hvert skipti. Við Magga munum mikið sakna samverustundanna með ykkur Hönnu Cörlu á Hóla- veginum, í Litla-Bæ og hvar sem við komum saman. Mikil samheldni hefur verið í Bæjarfjölskyldunni. Alltaf hefur verið hist á vorin í Litla-Bæ og einnig stundum á haustin, þar sem við höfum átt yndislega samveru. En svona er nú lífið. Smátt og smátt fækkar í fjölskyldunni en nú eru fjögur systkini farin og þrír makar. Nú ert þú kominn til fund- ar við þau, Geiri minn, og áreið- anlega glatt á hjalla. Elsku Hanna Carla, börn og tengdabörn. Guð geymi ykkur og veiti styrk á þessum erfiðu tímum. Missir ykkar er mikill. Minning þín mun lifa, elsku Geiri okkar. Haukur og Margrét. Ég kynntist Geira fyrir um ára- tug, þegar við Ástráður tókum saman, og kom hann mér strax fyrir sjónir sem mikill ljúflingur, vingjarnlegur og hlýr. Geiri var myndarlegur maður, fallega eygð- ur, grannur og kvikur í hreyfing- um, og fas hans einkenndist af hógværri reisn. Við áttum margar góðar stundir með Hönnu Cörlu og Geira, enda lífsglöð hjón og höfðingjar heim að sækja á Kveld- úlfsgötuna. Þegar börnin okkar, Jóhann og Eyja, komu til sögunn- ar með stuttu millibili, hafði Geiri gaman af því að gjugga í ungviðið og lýsir það vel hugulsemi hans hvernig hann jafnframt gætti þess þegar eldri afastrákur, Bergur, var með í för, að sýna honum at- hygli og hlýju, taka með honum í spil og spjalla um daginn og veg- inn. Samræður við Geira voru ávallt ánægjulegar, enda maður skarpur, glaðbeittur og glettinn. Þau hjónin komu iðulega færandi hendi í heimsóknum sínum í Garðastrætið eða í sumarbústað- inn, og síðar á Laufásveginn. Geiri starfaði allt þar til fyrir fáeinum árum sem sölustjóri í kjötvinnslu og nutum við Ástráður góðs af því, þegar Geiri færði okkur búbót á jólum, páskum eða við önnur til- efni, þegar við vorum að koma okkur upp heimili saman. Ég gleymi ekki þeirri alúð sem þau hjón sýndu og hjálpsemi í brúð- kaupsveislunni okkar, og áttaði mig þá á því hversu samstillt teymi þau voru, rösk og eljusöm og ávallt létt í lund. Geiri bar sig vel í veikindum sínum og aldrei heyrði maður hann kvarta. Þegar ég hitti hann fyrir utan Landspít- alann í byrjun árs, og gekk með honum dálítinn spöl eftir Baróns- stígnum, var af honum dregið og þá skynjaði ég að hann hafði mest- ar áhyggjur af henni Hönnu Cörlu sinni. Nú er Geir Björnsson horfinn á braut. Ég kveð tengdaföður minn með söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina. Eftir sitja minningar um vandaðan og góðan mann sem sýndi öðrum umhyggju og veitti uppörvun með návist sinni. Missir Hönnu Cörlu er mikill og votta ég henni og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Anna Jóhannsdóttir. Ástkær tengdafaðir minn Geir Konráð Björnsson er fallinn frá. Móðir mín, 97 ára gömul, man vel eftir snaggaralegum og glað- værum unglingspilti sem kom árið 1948, þá á 14. aldursári, til dvalar hjá föðursystur sinni Geirlaugu Jónsdóttur og manni hennar Þórði Pálmasyni kaupfélagsstjóra í Borgarnesi, en þá bjuggu for- eldrar mínir í kjallara sama húss. „Hann hljóp alltaf beint af augum og fór eins og elding yfir veggi og garða til að vera sem fljótastur í sendiförum fyrir hana frænku sína.“ Geira líkaði vel hjá Geir- laugu og Þórði og var kært með þeim alla tíð. Síðar áttu Geiri og konan hans Hanna Carla eftir að koma sér upp bústað í rjóðri við hliðina á þeim hjónum nærri Bif- röst. Þar áttu þau margar sæl- ustundir. Í grúski í gömlum skjöl- um og ljósmyndum fannst nýlega gömul einkunnabók úr iðnskóla Borgarness þar sem fram kemur að Geiri fékk 10 fyrir verklegt og einnig 10 fyrir munnlegt. Segja má að þarna hafi strax komið fram það sem var einkennandi í hans fari alla tíð; verklagni og sérstak- lega góðir sölumannshæfileikar í bland við léttleika og sterka út- geislun. Fólk hafði trú á honum Geira og teysti honum í viðskipt- um. Hann var einnig þessi hríf- andi persónuleiki sem átti auðvelt með að fá fólk á sitt band og virkja til góðra verka. Hugur Geirs leit- aði oft til æskustöðvanna á Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði og það var honum kærkomið þegar þau systkinin komu sér upp sumar- húsinu Litla-Bæ á mölunum niðri við sjó í Bæjarlandinu og byggðu þar við bústað sem faðir hans Björn í Bæ hafði sett þar niður. Það urðu því fastir liðir að systk- inin kæmu saman á Litla-Bæ og þá voru nú hendur látnar standa fram úr ermum hjá þeim og eins gott fyrir yngra fólkið að vera bara ekki fyrir. Það var hvergi dregið af sér hvort heldur sem var við að dytta að bústaðnum eða að stunda veiðarnar. Enda voru bestu kræsingarnar oft dregnar úr sjónum og Höfðavatninu. Þrátt fyrir annasama starfsævi tók Geiri mjög virkan þátt í félags- störfum. Á yngri árum var hann driffjöður í leikstarfsemi Ung- mennafélagsins Skallagríms og lék þar eftirminnileg hlutverk í gamanleikjum. Slíkt hentaði hon- um vel; hann var alla tíð lífsglaður og gjarnan glettinn og spaugsam- ur. Hann var einn af stofnfélögum Lionsfélagsins í Borgarnesi, starf- aði þar í 55 ár og var gerður að heiðursfélaga nýlega. Einnig var hann félagi í frímúrareglunni Akri á Akranesi í um 40 ár. Hann gerð- ist ungur skáti og í þeim fé- lagsskap lagðist hann í ferðalög og var alla tíð ástríðufullur ferða- langur, hvort sem var á vélhjóli um Evrópu liðlega tvítugur eða síðar með Hönnu Cörlu jafnt inn- anlands sem utan. Um tíma áttu þau hesta og fóru um landið á reið- skjótum. Geiri var röggsamur og ákveðinn í öllu sem hann tók sér fyrir hendur; hann var leiðtogi en jafnframt bjó hann yfir einstakri þjónustulund og margir fengu að kynnast greiðvikni hans. Ég er Geira þakklátur fyrir Geir Konráð Björnsson erfidrykkjur Grand Grand Hótel Reykjavík Sigtúni 38, sími: 514 8000 erfidrykkjur@grand.is www.grand.is Hlýlegt og gott viðmót Fjölbreyttar veitingar í boði Næg bílastæði og gott aðgengi ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, uppeldisbróðir, tengdasonur og mágur, KRISTJÁN ÓSKARSSON tónlistarmaður, Fannafold 121, Reykjavík, lést á líknardeildinni í Kópavogi 12. mars. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 20. mars kl. 13.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð líknardeildarinnar í Kópavogi. Marilyn Herdís Mellk, Eva Ósk Kristjánsdóttir, Kristján Indriði Kristjánsson, Óskar Indriðason, Margrét Erla Guðmundsdóttir, Örvar Daði Marinósson, Kristjana Bjargmundsdóttir Mellk, Róbert Mellk, Guðríður Guðmundsdóttir, Karen Mellk, frændsystkini og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, mágkona, tengdamóðir og amma, MARGRÉT ALBERTSDÓTTIR Austurbyggð 5, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð mánudaginn 24. febrúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey frá Höfðakapellu að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hlíðar fyrir alúðlega umönnun og hlýju. Einar Júlíus Hallgrímsson, Magnús Albert Einarsson, Hallgrímur Einarsson, Fjóla Heiðrún Héðinsdóttir, Friðrik Sighvatur Einarsson, Anna Kristín Hallgrímsdóttir, Nataya Sriprasong, Þorgerður Hafdís Þorgilsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir, systir og mágkona, HELGA ÞÓRA TH. KJARTANSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar á Grensásdeild Landspítala mánudaginn 10. mars. Útför hennar fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 18. mars kl. 15.00. Hrefna Guðmundsdóttir og Tinna Tynes, Kjartan Guðmundsson og Emilía Gunnarsdóttir, Melkorka, Hrafn og Haukur Orri Kjartansbörn, Hrefna Sigurðardóttir, Hreinn Kjartansson, Jens Kjartansson og Þórey Björnsdóttir, Þórunn Kjartansdóttir og Sigtryggur Jónsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langaafi, EINAR SIGURÐUR GÍSLASON, Suðurgötu 42, Sandgerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 4. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ingibjörg Gísladóttir, Ómar Einarsson, Pálína Guðmundsdóttir, Henríetta Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.