Morgunblaðið - 15.03.2014, Síða 36

Morgunblaðið - 15.03.2014, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 Höskuldur Skarphéðinsson var heimagangur á heimili mínu. Sem krakki horfði ég með virðingu á hann, hetju úr land- helgisdeilum Íslendinga, hann hafði verið fangi Breta um tíma, en þess á milli stýrði hann skipum Íslendinga í hinum mikilvægu stríðum, hann fékk fálkaorðuna og hann var móðurbróðir minn. Virðing mín fyrir honum minnk- aði aldrei. Hann var nátengdari fjöl- skyldu minni en aðrir frændur fyrir tvær sakir: Eftir að amma mín, móðir Höskuldar og mömmu minnar, fékk krabba- mein þá fluttist hún inn í hús okk- ar. Og vegna fráfalls fyrstu eig- inkonu hans þá endaði sonur hans á heimili okkar sem uppeld- isbróðir minn þegar ég var um þriggja ára. Höskuldur var ekki gallalaus. Eiginlega oftast á skjön. Hann var mikill vinstrimaður í Land- helgisgæslunni – og þar voru þeir yfirleitt vandfundnir. Hann var samt svo samviskusamur að þó margir hefðu viljað bregða fæti fyrir hann var það erfitt. Hann var alltaf að rífast um pólitík og leysti upp margar veisl- ur á heimili mínu með látum. Hann var samt reglumaður og svo mikill prinsippmaður að síð- ast þegar ég talaði við hann um pólitík þá gat hann ekki lengur kosið neinn flokk. Stóran hluta æskuára minna var ég alltaf að reyna að ganga í augun á honum. Foreldrar mínir töluðu ákaflega vel um hann, þótt þau hefðu andstæðar skoðanir á flestu. En hann hafði allar þær dyggðir sem þau mátu mest, reglusemi, vinnusemi, samvisku- semi og heiðarleika. Með fallegustu minningum mínum úr æsku er þegar fyrir- myndir mínar allar, Höskuldur, pabbi og afar mínir tveir, unnu heilt sumar við að byggja hús for- eldra minna. Samheldnir og oft- ast svo þreyttir að enginn orkaði Höskuldur Skarphéðinsson ✝ HöskuldurSkarphéð- insson fæddist 15. júní 1932. Hann lést 3. mars 2014. Útför Höskuldar fór fram 14. mars 2014. að rífast um pólitík þótt enginn þeirra kysi það sama. Það var ekki lenska hjá þessari kynslóð karlmanna að gráta. Ég man þegar sonur Hösk- uldar, Hermann bróðir minn, lést í umferðarslysi á átj- ánda ári og ég á því tólfta, að þá vakti pabbi mig og sagði tíðindin lágum rómi. Tíðindi sem voru einsog bakraddir fyrir háværan reiði- lestur og öskur Höskuldar frammi í eldhúsi um að Hermann hefði ekki valið sér vini nógu vel, verið of frakkur eða eitthvað ann- að. Ég skildi það ekki fyrr en seinna að öskur sumra er þeirra grátur. Ég sá Höskuld aldrei gráta. Þegar ég færði mig inní eldhúsið seinna sá ég samt tár falla í stríðum straumum niður hvarma hans í reiðilestrum hans, en það var ekki grátur í mínum skilningi en svo sannarlega í hans. Hann var og er ein af mínum fyrirmyndum. Réttlætiskennd hans var mikil. Bókþekking var svo ríkur þáttur í því að hann teldi fólk orðið að mönnum að ég lagð- ist í lestur. Átta ára gamall barði ég mig í gegnum Brennu-Njáls- sögu til þess eins að ganga í augun á honum. Ég lýsti fjálglega hvað mér hefði þótt gaman að henni þótt í raun hefði þetta verið svaka- leg þolraun fyrir smástrák, ef undan eru skildar bardagasenurn- ar. Þó ég muni lítið eftir mér þeg- ar ég var átta ára þá man ég mjög skýrt eftir þessum þjáningar- stundum heima hjá Höskuldi. En ég fékk mín laun sem voru hrós Höskuldar. Ég valdi ýmsar aðrar leiðir en Höskuldur á lífsleiðinni en man sérstaklega eftir því að þegar ég fór að vinna fyrir NATO á stríðs- svæðum að þá sendi ég honum nokkur bréf þar sem ég skrifaði texta um eitthvað allt annað en ég var að hugsa. Inná milli lín- anna vonaði ég að hann læsi: Elsku Höskuldur, prinsippmaður hinn mesti, vona að NATO kom- ist ekki uppá milli okkar? Höskuldur var og er mér góð fyrirmynd, blessuð sé minning hans. Börkur Gunnarsson. ✝ Guðrún Mark-úsdóttir fædd- ist í Haukadal í Dýrafirði 1. októ- ber 1920. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar 5. mars 2014. Foreldrar henn- ar voru Eleseus Markús Jónsson, f. 23. október 1895, hann fórst með vél- bátnum Dýra í apríl 1921, og Sigríður Ólafsdóttir, f. 15. jan- úar 1891, d. 14. febrúar 1933. Bróðir Guðrúnar er Markús Markússon, f. 11. janúar 1922. Hinn 21. nóvember 1943 gift- ist Guðrún Skarphéðni Njáls- syni, f. 31. maí 1916, d. 18. sept- ember 2006. Foreldrar hans voru Njáll Sighvatsson, f. 3. ágúst 1872, d. 18. mars 1950, og Jóna Ágústína Jónsdóttir, f. 5. nóvember 1882, d. 23. mars 1960. Börn Guðrúnar og Skarphéð- ins eru: 1) Gunnar Ólafur, f. 2. ágúst 1945, d. 11. janúar 2009. 2) Sigríður Margrét, f. 5. maí 1948, gift Skarphéðni Ólafssyni, f. 10. október 1946. Sonur Sig- ríðar: Skarphéðinn Rúnar Grét- arsson, f. 14. febrúar 1966, d. 30. nóvember 2005. Börn hans eru Konráð Ari, f. 26. desember 1985, unnusta Helga Hrund Sig- urðardóttir, f. 6. júní 1991, dótt- ir þeirra Natalía Rún, f. 15. ágúst 2011, Linda Rún, f. 24. júlí 1994, og Berglind Eva, f. 29. september 1998. 3) Njáll Arnar, f. 15. nóvember 1952, kvæntur Pálínu Katrínu Baldvinsdóttur, f. 27. desember 1951. Börn þeirra eru Guðrún Ósk, f. 2. júní 1977, og Skarphéðinn Arnar, f. 28. nóvember 1982. 4) Guðbjörg Bergþóra, f. 20. ágúst 1956, gift Hilmari Pálssyni, f. 1. október 1952. Börn þeirra eru Páll Ja- nus, f. 5. apríl 1978, kvæntur El- ísu Stefánsdóttur, f. 22. apríl 1982, dætur þeirra eru Hrefna Dís, f. 20. september 2004, Soffía Rún, f. 22. maí 2008. Hugrún Lilja, f. 2. apríl 1980, í sambúð með Steinari Nóna Hjaltasyni, f. 3. nóvember 1978. Sindri Viðar, f. 20. ágúst 1987, dóttir hans Emilía Rós, f. 12. júní 2011. 5) Bjarki Rúnar, f. 14. apríl 1961, í sam- búð með Sigrúnu Lárusdóttur, f. 21. desember 1962. Börn þeirra eru Kolbrún Helga, f. 7. júlí 1983, gift Pálma Péturssyni, f. 13. ágúst 1986, dóttir þeirra Nína Rakel, f. 4. mars 2012. Stefán Hrafn, f. 21. apríl 1988, Arnar Kári, f. 10. október 1989. Guðrún ólst upp í Miðbæ í Haukadal hjá móðurafa sínum Ólafi Guðbjarti Jónssyni og móðursystrum sínum Guð- björgu og Guðrúnu. Hún stund- aði nám í farskóla í Haukadal og við Héraðsskólann á Núpi. Hún vann einn vetur í eldhúsi Núps- skóla og um tíma í Reykjavík þar til hún giftist og flutti til Þingeyrar. Utan heimilis starf- aði hún við ræstingar og síðar við fiskvinnslu hjá Hraðfrysti- húsi Dýrfirðinga. Hún starfaði mikið með Skógræktarfélagi Þingeyrar. Hún var ötull þátt- takandi í starfi Kvenfélagsins Vonar á Þingeyri og var heið- ursfélagi þess. Hún söng í kirkjukór Þingeyrarkirkju í áratugi. Guðrún og Skarphéð- inn hófu búskap 1943 á Brekku- götunni á Þingeyri en 1950 fluttu þau að Aðalstræti 23 og bjuggu þar allan sinn búskap. Þau fluttu á Tjörn, dvalarheim- ili aldraðra á Þingeyri, 2002. Ár- ið 2006 flutti Guðrún á Hlíf 1, dvalarheimili aldraðra á Ísa- firði, og haustið 2012 flutti hún á öldrunardeild Heilbrigð- isstofnunar Ísafjarðarbæjar. Útför Guðrúnar fer fram frá Þingeyrarkirkju í dag, 15. mars 2014, og hefst athöfnin kl. 11. Mig langar að minnast tengdamóður minnar, Guðrúnar Markúsdóttur, eða Dunnu, eins og hún var alltaf kölluð, í nokkr- um orðum. Ég var svo lánsamur að kynnast ungri stúlku hinn 16. júní 1973 á balli í Súgandafirði, mínum heimabæ. Og þar með varð ekki aftur snúið og ég var orðinn einn af fjölskyldu Dunnu og Héðins. Síðan hafa liðið rúm 40 ár og tel ég mig einstaklega lánsaman fyrir þessi rúmu 40 ár. Dunna tók mér strax sem eigin syni og alltaf þótti mér einstak- lega gott að koma á heimili þeirra hjóna. Þar mætti mér allt- af indælt og hlýtt viðmót. Það var eins og einhver innri friður ríkti á þessu heimili og ég fann alltaf hvað ég gat slappað vel af í Aðalstrætinu. Það var margt nýtt sem ég kynntist á heimili Dunnu og þá sérstaklega í mat- argerð hennar. Hún notaði með- al annars grænmeti meira en ég var vanur að heiman og sumt af þessu grænmeti ræktaði hún sjálf í garðinum ofan við húsið, einnig sauð hún niður í krukkur Guðrún Markúsdóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURÐAR HALLGRÍMSSONAR, Vík í Mýrdal. Ingibjörg Þórdís Sigurðardóttir, Sólborg Sæunn Sigurðardóttir, Margrét Sigurðardóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Svandís Salómonsdóttir. ✝ Alúðarþakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR FINNSDÓTTUR, frá Straumfjarðartungu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar í Borgarnesi fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju. Valgeir Ingólfsson, Jóhanna Þ. Björnsdóttir, Guðbjörg Ingólfsdóttir, Gunnar Ragnarsson, Finnur Ingólfsson, Guðríður Ebba Pálsdóttir, Páll Ingólfsson, Brynja Þórhallsdóttir, Þórður Ingólfsson, Haraldur Ingólfsson, Steinunn Ingólfsdóttir, Helgi Valur Friðriksson, Baldur Ingólfsson, Guðrún Helga Helgadóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, EYRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Kálfhóli, Skeiðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima, Selfossi, fyrir góða umönnun. Elsa Aðalsteinsdóttir, Guðmundur Þórðarson, Gestur Þórðarson, Margrét J. Ólafsdóttir, Valgeir Þórðarson, Kristín Hjálmarsdóttir, Hrafnkell Baldur Þórðarson, Siril Iren Sagstad, Elín Þórðardóttir, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Már Þórðarson, Kolbrún Björnsdóttir, Þorbjörg Valgeirsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæra ZÓPHANÍASAR MAGNÚSAR MÁRUSSONAR, Meltröð 4, Kópavogi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólkinu á Sunnuhlíð fyrir hlýhug og góða umönnun. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall föður okkar, tengdaföður og afa, HILMARS SÆVALDS GUÐJÓNSSONAR. Pétur S. Hilmarsson, Margrét K. Sverrisdóttir, Axel Viðar Hilmarsson, Ásdís Ingþórsdóttir, Snorri Freyr Hilmarsson, Anna Söderström og barnabörn. ✝ Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför GUNNARS DANÍELS LÁRUSSONAR verkfræðings. Anna Þrúður Þorkelsdóttir, Ragnar Lárus Gunnarsson, Katherine Williamson Day, Ragnhildur Anna Gunnarsdóttir, Þorkell Máni Gunnarsson, Sigrún Erla Blöndal, Anna Þrúður Guðbjörnsdóttir, Soffía Sara Steingrímsdóttir, Jóhanna Ester Þorkelsdóttir, Gunnhildur Anna Þorkelsdóttir, Erla Karen Þorkelsdóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar kæru HLÍFAR ERLENDSDÓTTUR, Hátúni 10a, Reykjavík. Sérstakar þakkir sendum við því starfsfólki í heimaaðhlynningu sem annaðist hana með hlýju, virðingu og vináttu. Jóna María Eiríksdóttir, Reynir Þorsteinsson, Kristján Hjaltested, Gerður, Frank og börn. ✝ Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar yndislegs eiginmanns míns, ástkærs föður, tengda- föður og afa, RAGNARS GÍSLASONAR skólastjóra, Efstalundi 4, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við Guðmundi Rúnarssyni lækni og starfsfólki deildar 11G á Landspítalanum við Hringbraut. Ingibjörg Gunnarsdóttir, Gunnar Bjarni Ragnarsson, Sigríður Elísabet Ragnarsdóttir, Jónatan F. Vilhjálmsson, Ragnheiður Þórdís Ragnarsdóttir, Úlfar Linnet og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar elskulegu EVU DAGGAR ÓLAFSDÓTTUR, Björnskoti, Skeiðum. Sérstakar þakkir viljum við færa öllu því góða fólki sem aðstoðaði hana við daglegt líf og fyrir einstaka umhyggju í hennar garð. Einnig viljum við þakka þeim fjölmörgu sem minntust hennar með því að leggja ferðasjóði Selsins, tómstundaklúbbs fatlaðra á Selfossi, eða öðrum góðum málefnum lið. Ólafur F. Leifsson, Harpa Dís Harðardóttir, Ólafur F. Ólafsson, Guðfinna Magnúsdóttir, Elvar Örn Ólafsson, Ólöf S. Ólafsdóttir, Sibba, Hörður Björgvinsson, Hugrún P. Skarphéðinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.