Morgunblaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
Haraldur Jónsson myndlistarmaður
tekur á sunnudag klukkan 15 þátt í
leiðsögn um sýningu sína, H N I T, í
Hafnarborg í Hafnarfirði. Í fram-
haldi af leiðsögninni verður fluttur
gjörningurinn L I T sem Haraldur
hefur unnið í tengslum við sýn-
inguna. Sunnudagurinn er lokadag-
ur sýningarinnar en á henni gefur að
líta ný verk Haraldar, teikningar og
skúlptúra sem virkja skynjun áhorf-
enda og upplifun af rými og táknum.
Titillinn, H N I T, liggur eins og leið-
arstef gegnum sýninguna og vísar til
staðsetningar og hreyfinga líkama
og tilfinninga í rými sem bæði getur
verið hið innra og umhverfis okkur,
ferðalag um sýnilegan og ósýnilegan
arkitektúr.
Haraldur Jónsson (f. 1961) nam
myndlist við Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands, Listaakademíuna í
Düsseldorf og Institut des Hautes
Études en Arts Plastiques í París.
Hann hefur haldið fjölda sýninga.
Haraldur með
leiðsögn og gjörning
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaðurinn Haraldur ræðir við
gesti um verkin á sunnudag.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Hljómsveitin Mezzoforte hlaut heið-
ursverðlaun Íslensku tónlistarverð-
launanna 2013 en þau voru afhent
við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveit
hlýtur heiðursverðlaun en fram að
þessu hafa einungis einstaklingar
hlotið þau. Sveitin er sögð skipuð
færustu hljóðfæraleikurum landsins
sem hafi borið hróður íslensks
djassbræðings um allan heim en um
þessar mundir eru þrjátíu ár síðan
Mezzoforte kom lagi á topp 20-
smáskífulista í Bretlandi, fyrstir ís-
lenskra tónlistarmanna.
Þykir vænt um þennan heiður
Eyþór Gunnarsson, hljómborðs-
leikari Mezzoforte, segir þá félaga
vera mjög ánægða og þakkláta fyrir
verðlaunin.
„Okkur þykir mjög vænt um það
að vera sýndur þessi heiður. Það
sem stendur upp úr þegar litið er
yfir farinn veg er það ótrúlega ævin-
týri sem hófst árið 1983. Engin ís-
lensk hljómsveit hafði komist þetta
langt á þeim tíma. Þá komu vin-
sældirnar okkur nokkuð á óvart þar
sem við tilheyrðum ekki þessum
meginstraumi og vorum að semja
tónlist með engum söng sem var
kannski ekki líklegt til vinsælda. Við
höfum ferðast um allan heim og er-
um enn að. Við erum almennt ekki
mikið að blása í lúðra hérna heima
en við höfum í nógu að snúast er-
lendis og höfum í rauninni aldrei
hætt.“
Eyþór segir að ástæða velgengni
Mezzoforte sé einfaldlega sú að tón-
listin höfði vel til fólks.
„Velgengni er náttúrlega afstætt
hugtak. Sú tegund tónlistar sem við
Íslensku tónlistarverðlaunin 2013
Morgunblaðið/Golli
Mammút Hljómsveitin Mammút hlaut þrenn verðlaun á hátíðinni. Lagið Salt var valið besta lagið í flokki popp- og
rokktónlistar, plata sveitarinnar Komdu til mín svarta systir var valin besta platan og umslagið hlaut verðlaun.
Mammút sigursæl og
hlaut þrenn verðlaun
Mezzeforte
hlaut heiðurs-
verðlaun
Morgunblaðið/Golli
Verðlaunahafi Gunnar Þórðarson hlaut verðlaun, ásamt Friðriki Erlings-
syni, fyrir tónlistarviðburð ársins - uppsetningu óperunnar Ragnheiður.
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudagur 16. mars: Tveir fyrir einn af aðgangseyri
Þriðjudagur 18. mars kl. 12:
Gunnar Karlsson fjallar um Sigurð Vigfússon þjóðminjavörð
Ástarsaga, HönnunarMars á Torgi
Nýr ratleikur um Silfur Íslands í Bogasal
Betur sjá augu – Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 í Myndasal
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár - grunnsýning
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17.
Listasafn Reykjanesbæjar
MANNLEGAR VÍDDIR
Sefán Boulter og Stephen L. Stephen
sýna mannamyndir
15. mars – 27. apríl
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
FORM, LITUR, LÍKAMI: HÁSPENNA / LÍFSHÆTTA
Magnús Kjartansson 7.3.-11.5. 2014
GERSEMAR - DÝR Í BÚRI 8.11. - 11.5. 2013
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin, HÚSAFELL ÁSGRÍMS. Opið sunnudaga kl. 14-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Sýningin, BÖRN AÐ LEIK
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
H N I T
Haraldur Jónsson
Síðasta sýningarhelgi
sýningunni lýkur
sunnudag 16. mars
Sunnudag 16. mars kl. 15
Listamannsspjall og gjörningur
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Verið
velkomin
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Páskadvöl
Innifalið í verði: Gisting, fullt fæði, aðgangur að líkamsræktarsal og baðhúsinu Kjarnalundi
með inni- og útisundlaug, heitum pottum, nuddpotti, víxlböðum, sauna og vatnsgufubaði.
Fjölbreytt dagskrá er innifalin yfir páskana: Vatnsleikfimi – Ganga – Slökun – Qi Gong
– Leikfimi – Jóga o.fl. Matreiðslunámskeið verður 19. mars (3.500 kr.)
Verð: Einn í herb. Tveir í herb.
1 sólarhringur 15.200 kr. 25.800 kr.
3 daga dvöl 38.700 kr. 65.790 kr.
5 daga dvöl 58.050 kr. 90.000 kr.
Heilsustofnun býður sérstakt tilboð á styttri dvöl fyrir þá sem vilja hvíld
og njóta lífsins í fallegu umhverfi.
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Bókanir og nánari upplýsingar
á hnlfi.is eða í síma 483 0300