Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 46

Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 46
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég varð fyrst var við Neneh Cherry er lagið „Buffalo Stance“ glumdi látlaust í viðtækjum sum- arið 1989. Ég var fimmtán ára, í draumavinnunni (lagermaður hjá Steinari í Kópavogi) og allra handa neðanjarðartónlist var tek- in að heilla. Cherry var því „bara“ popp og ég pældi lítið í henni, fannst lagið þó ágætt en ekki mikið meira en það (og hefði aldrei viðurkennt slíkt á þessu of- urviðkvæma þroskaskeiði). Það var ekki fyrr en löngu síðar að ég komst að því að hún hafði spilað sæmilega rullu í síðpönkssenunni í London í upphafi níunda áratug- arins og væri fósturdóttir djass- risans Dons Cherrys. Ég varð svo heldur betur var við hana í hitteð- fyrra, er platan The Cherry Thing kom út, samstarf hennar við jaðardjassarana sænsku í The Thing og nú, í síðasta mánuði, kom platan Blank Project út, fyrsta sólóplata Cherry í 18 ár. Hluturinn En áður en við veltum fyrir okkur tildrögum hennar skulum við kíkja lítið eitt á litskrúðugan tónlistarferill Cherry. Hún fædd- ist árið 1964 í Stokkhólmi, dóttir Monicu „Moki“ Cherry og trym- bilsins Amahdu Jah frá Síerra Leóne. Monica giftist síðar Don Cherry og gekk hann Neneh í föðurstað. Hún ólst upp í sænsku sveitinni og var húsið undirlagt af allra handa sköpunargleði og var gestkvæmt mjög að því leytinu til. Þetta uppeldi átti eftir að móta Cherry fyrir lífstíð. Fjölskyldan bjó um hríð í New York en sem unglingur flutti Cherry til London og tók þátt í síðpönkssenunni þar. Hún bjó t.a.m. með Ari Up úr Slits, söng með Rip Rig + Panic og spilaði hipp-hopp sem plötusnúður. Það var því harla óvænt er Þörf „Ég hafði djúpa, knýjandi þörf fyrir að gera þessa plötu,“ segir Neneh Cherry. Hrá … eins og sushi  Neneh Cherry snýr aftur á sjónarsviðið  Litskrúðugur ferill; varðaður pönki, poppi og taugaáföllum » Cherry varð fyrirmiklu áfalli við þann atburð og lagðist í mikið þunglyndi í kjölfarið. Stóð það yfir í meira en ár, þar sem hún var meira og minna „frosin“ að eigin sögn. 46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Söngfuglarnir í kvennakórnum Vox Feminae bjóða tónlistarunnendum upp á sannkallaða vortónleika í Saln- um í Kópavogi í dag klukkan fjögur enda skammdegið á undanhaldi og styttist óðum í vorjafndægur. Tón- leikarnir eru liður í afmælisdagskrá kórsins sem fagnaði 20 ára afmæli sínu á síðasta ári og eru tónleikarnir í dag lokapunkturinn á hátíðar- höldum afmælisársins. Sigrún Pálmadóttir, sópransöngkona, syng- ur með kórnum í dag en hún var fastráðin við óperuhúsið í Bonn í tæpan áratug. „Við fögnum því sér- staklega að hafa fengið með okkur ungt og efnilegt tónlistarfólk sem hefur dvalið um nokkurt skeið er- lendis við nám en hefur nú snúið heim til að auðga íslenskt tónlistar- líf,“ segir Hallveig Andrésdóttir, al- mennur kórfélagi í Vox Feminae og tengiliður kórsins við fjölmiðla. „Sig- rún flutti nýlega frá Bonn til Bol- ungarvíkur og mun án efa auðga ís- lenskt tónlistarlíf. Auk hennar koma fram Hafdís og Kristján Karl en þau hafa leikið saman dúó um árabil.“ Tónleikarnir eru skiptir en á fyrri- hluta syngur kórinn klassísk íslensk lög eins og Vorvindur og Svanurinn minn syngur en eftir hlé færir kór- inn sig yfir í Vínarljóð og Vínarvalsa. Kvennakór Stelpurnar í kvennakórnum Vox Feminae ætla að fagna hækk- andi sól og 20 ára afmæli kórsins með glæsilegum tónleikum í Salnum. Vorbragur hjá kvenna- kórnum Vox Feminae  Síðustu afmælistónleikar kórsins Lækjargötu og Vesturgötu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.