Morgunblaðið - 15.03.2014, Síða 47
hún sló í gegn sem poppsöngkona
með fyrstu breiðskífu sinni, Raw
like Sushi (1989). Illa gekk þó að
fylgja frægðinni eftir, samstarf
hennar og Youssous N’Dours í
laginu „7 Seconds“ vakti þó mikla
athygli árið 1994 og lagið fékk
mikla spilun á öldum ljósvakans.
Cherry hefur því verið utan
alfaraleiðar lengi vel en árið 2011
fékk hún hljómgrunn á jaðrinum,
þar sem hún fann upprunalega
sína rödd. The Cherry Thing, sem
er unnin með The Thing (Mats
Gustafsson er m.a. í sveitinni), er
hávaðasöm, tilraunakennd skífa
og eru verk fósturföður hennar,
Dons, m.a. til grundvallar. Plöt-
unni var vel tekið og veitti
Cherry innblástur til frekari
verka.
Frosin
The Blank Project var samið
af Cherry og eiginmanni hennar,
Cameron McVey. Upptökur fóru
fram í Woodstock en upptöku-
stjórnandinn, Kieran Hebden (Fo-
ur Tet), býr þar hluta úr ári.
Gestir eru m.a. sænska popp-
stjarnan Robyn og slagverksdúett-
inn RocketNumberNine. Tónlistin
og textarnir eru nokkurs konar
hugleiðing um móður Cherry, sem
lést 2009. Cherry varð fyrir miklu
áfalli við þann atburð og lagðist í
mikið þunglyndi í kjölfarið. Stóð
það yfir í meira en ár, þar sem
hún var meira og minna „frosin“
að eigin sögn.
Upptökur á The Blank Proj-
ect stóðu í fimm daga og var
tveimur lögum rúllað inn á harða
diskinn á dag. Hugmyndin var að
hafa framvinduna hráa og „lif-
andi“ en tökur urðu aldrei fleiri
en þrjár. Að fanga „andann“ var
aðalmálið. Návist Hebdens er þá
greinileg, maður finnur á fyrstu
sekúndunum að þessi maður hafði
tilsjón með framvindunni, svo ein-
kennandi er stíll hans. Platan er
ágeng og hörð, dálítið myrk, og
hvellt slagverkið hringar öll lög.
Miðlæg er svo Cherry, sem er
auðheyranlega að hella úr hjart-
anu, eða eins og hún segir í við-
tali við Pitchfork: „Með fyrri verk
mín, þá finnst mér, þegar ég lít til
baka, eins og ég sé ekki alveg á
staðnum. Ég er hins vegar alger-
lega heil með þessum lögum. Ég
hafði djúpa, knýjandi þörf fyrir
að gera þessa plötu en ég var um
leið undarlega róleg og æðrulaus
í gegnum allt ferlið.“
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
Kvennakór Kópavogs heldur
tvenna tónleika í Kaldalóni í Hörpu
í dag og hefjast fyrri tónleikarnir
klukkan fjögur en þeir síðari klukk-
an átta. Fluttar verða léttar og sí-
gildar dægurperlur sem spanna
tímabillið frá kreppuárunum og
fram yfir seinna stríð. Á efnis-
dagskránni má m.a. finna lög eins
og Papermoon, Dream a little
dream og Sugartime.
Þá flytur kórinn einnig syrpu af
lögum frá sjöunda áratug síðustu
aldar. Undirleikarar verða þeir
Árni Heiðar Karlsson á píanó og
Birgir Bragason á bassa.
Tónleikarnir í dag eru vor-
tónleikar kórsins en seinna í vor
ætla konurnar að skella sér norður
til Akureyrar á Landsmót kvenna-
kóra. Stjórnandi er Gróa Hreins-
dóttir.
Kreppan og
stríðsárin
sungin í Hörpu
Vortónleikar Kvennakór Kópavogs
syngur í Kaldalóni Hörpu í dag.
Tónlistarskólar landsins halda um
þessar mundir hátíð til að fagna
góðum árangri í tónlistaruppeldi
landans. Hátíðin gengur undir
nafninu Nótan – uppskeruhátíð
tónlistarskólanna. Hápunktur hátíð-
arinnar verður í Hörpu þann 23.
mars næstkomandi með veglegum
lokatónleikum.
Segja má að hátíðin hafi byrjað
fyrir alvöru um síðustu helgi þegar
haldnir voru nemendatónleikar í
Reykjavík og Hafnarfirði með þátt-
töku tónlistarskóla af suðvestur-
horninu. Á þessum tónleikum sem
jafnan eru nefndir svæðistónleikar
koma fram framúrskarandi nem-
endur á ýmsum stigum hljóðfæra-
náms og flytja margvíslega tónlist
fyrir hönd síns skóla. Valnefnd vel-
ur síðan þau atriði af þessum tón-
leikum sem þeim finnst best til
þess fallin að koma fram á lokahá-
tíðinni í Hörpu.
Nemendatónleikar
Uppskeruhátíð Nótan er uppskeruhátíð tónlistarskóla landsins þar sem
nemendur fagna góðum árangri í tónlistaruppeldi landsins.
Þeir bestu spila í Hörpunni aðra helgi
Bæjarbíó, bíóhús Kvikmyndasafns
Íslands, sýnir í dag klukkan 16.00
mynd Leni Riefestahl Olympia.
Myndin er bæði umdeild og
þrungin sepnnu enda fjallar hún
um Ólympíuleikana í Berlín árið
1936. Myndin sem tekin var í tveim-
ur hlutum var fyrsta heimildar-
bíómyndin af Ólympíuleikum, sem
gerð hafði verið. Fyrri hlutinn heit-
ir Hátíð þjóðanna og sá síðari nefn-
ist Hátíð fegurðarinnar. Stutt hlé
verður gert milli sýningarhlutanna
tveggja og er aðgangur ókeypis.
Fyrsta heimildar-
myndin um Ólymp-
íuleikana 1936
WWW.OPERA.IS
ÓPERUKYNNING FYRIR SÝNINGU: Höfundar óperunnar kynna verkið fyrir
sýningu í boði Vinafélags Íslensku óperunnar kl. 19:15 hvert sýningarkvöld.
15. MARS KL. 20 - UPPSELT
16. MARS KL. 20 - UPPSELT
22. MARS KL. 20 - UPPSELT
28. MARS KL. 20 - NÝ SÝNING
29. MARS KL. 20 - UPPSELT
6. APRÍL KL. 20 - LAUS SÆTI
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á HARPA.IS
MIÐASÖLUSÍMI 528 5050
Ragnheiður – ópera eftir
Gunnar Þórðarson
og Friðrik Erlingsson
NÝ SÝNING 28. MARS KOMIN Í SÖLU!
Úr ummælum gagnrýnenda:
Framúrskarandi sviðsetning stórfenglegrar óperu
… Gæsahúð hvað eftir annað … Bravissimo
– Jónas Sen, Fréttablaðið
Stórkostlegt
– Dagný Kristjáns, Djöflaeyjan
Tær snilld
– Hugrún Halldórsdóttir, Stöð 2
Söguleg stund
– Silja Aðalsteins, TMM
Ótrúleg upplifun...frábær sýning... stórkostleg tónlist
– Lísa Pálsdóttir, RÚV
Glæsileg frumraun … fagmennska, fágun og öryggi
– Hlín Agnars, DV
Ummæli Óperugesta á netmiðlum:
Stórkostlegt kvöld...fallegasta og stílhreinasta
óperusýning sem ég hef séð á Íslandi í langan tíma
– Kristinn Sigmundsson, óperusöngvari
Sannkallaður stórviðburður í íslenskri menningarsögu
– Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður
Magnað meistaraverk –tónlistarsögulegur viðburður
– Eiður S. Guðnason, sendiherra
6 stjörnu sýning, sem enginn má missa af
… STÓRKOSTLEGT!!!
–Gerrit Schuil, píanóleikari
ÞÓRA EINARSDÓTTIR
VIÐAR GUNNARSSON
ELMAR GILBERTSSON
JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
ELSA WAAGE
GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR
BERGÞÓR PÁLSSON
ÁGÚST ÓLAFSSON
BJÖRN INGIBERG JÓNSSON
KÓR OG HLJÓMSVEIT
ÍSLENSKU ÓPERUNNAR