Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 48
Í dag verður
sýnd í Há-
skólabíói heim-
ildarmynd um
tónleikaferðalag
tónlistarmanns-
ins Peters Gabr-
iels. Kvikmynd-
inni er leikstýrt
af Hamish Ha-
milton og var
meðal annars tekin upp á tónleikum
Gabriels í London í október 2013.
Peter Gabriel
Heimildarmynd
um Peter Gabriel
frumsýnd
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Kammersveit Reykjavíkur flytur
Schubert-oktettinn á hádegistón-
leikum í Hörpu á morgun, sunnu-
dag. Oktettinn telst til merkustu
kammerverka tónlistarsögunnar.
„Þetta er mjög glaðvært og upp-
lífgandi verk en um leið blíðlegt og
ljóðrænt. Í raun er þetta fullkomið
verk fyrir fólk að hlusta á á sunnu-
degi,“ segir Arngunnur Árnadóttir
klarinettleikari.
Aðspurð segir Arngunnur verkið
vera nokkuð krefjandi í flutningi en
flutningurinn tekur nærri klukku-
stund.
„Þetta er mjög umfangsmikið
verk í sex köflum bæði hvað varðar
lengd og tónlistarlegt innihald. Það
er næstum eins og að spila heila sin-
fóníu, að spila þetta verk. Þá er það
líka ákveðin áskorun að vera átta í
kammerhópi.“
Ólíkar kynslóðir koma saman
Athygli vekur að aldurssamsetn-
ing hópsins er mjög breið. Þar koma
saman bæði þaulreyndir hljóðfæra-
leikarar og aðrir yngri.
„Það skemmtilega við hinn klass-
íska tónlistarheim er að fólkið sem
þar starfar saman hefur ólíkan bak-
grunn og er oft af allt annarri kyn-
slóð en maður sjálfur. Það myndast
oft góð og náin vinátta með okkur
öllum. Í þessum hóp mætast þrjár
kynslóðir og samstarfið gengur
mjög vel og það er einstaklega gam-
an að spila með þessu fólki. Þetta
eru allt samstarfsfélagar úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þessir
elstu í faginu hafa tekið vel á móti
mér og okkur sem yngri erum og
hjálpað okkur mjög að læra inn á
starfið og það hefur mikla þýðingu
fyrir mig að fá að taka þátt í þessu
verkefni með þeim nú.“
Arngunnur segist halda að alltaf
megi greina einhvern blæbrigðam-
un á milli kynslóða.
„Áherslur í tónlist eru stöðugt að
breytast og það er alltaf einhver
þróun sem setur mark sitt á fólk. Þá
er það misjafnt hvað fólk hefur lagt
áherslu á í námi sínu og það hefur
líka sitt að segja.“
Beethoven ruddi brautina
Verkið hefur tvisvar áður verið
flutt af Kammersveit Reykjavíkur, á
fyrsta starfsárinu 1974 til 1975 og
svo aftur haustið
1989.
Schubert skrif-
aði oktettinn fyr-
ir tréblásara og
strengi árið 1824.
„Beethoven hafði
rutt brautina fyr-
ir þessa hljóð-
færasamsetningu
25 árum fyrr með
sínum Septett.
Schubert kemur síðan með þetta
verk sem er að mörgu leyti frá-
brugðið. Það er til að mynda mun
lengra auk þess sem Schubert setti
mark sitt á verkið og víkkar það út,“
segir Arngunnur.
Sveitin fagnar 40 ára afmæli
Kammersveit Reykjavíkur fangar
í ár 40 ára afmæli sínu en sveitin var
stofnuð árið 1974 af Rut Ingólfs-
dóttur ásamt 12 öðrum hljóðfæra-
leikurum.
Markmiðið var m.a. að gefa
áheyrendum kost á reglulegum tón-
leikum með kammertónlist af ýmsu
tagi.
Flytjendur á sunnudag eru Arn-
gunnur Árnadóttir klarinett, Rúnar
H. Vilbergsson fagott, Joseph Ogni-
bene horn, Una Sveinbjarnardóttir
fiðla, Helga Þóra Björgvinsdóttir
fiðla, Guðrún Hrund Harðardóttir
víóla, Sigurgeir Agnarsson selló og
Richard Korn kontrabassi.
Tónleikarnir eru haldnir í Kalda-
lóni í Hörpu og hefjast þeir klukkan
12.15. Miðasala fer fram í Hörpu og
á midi.is, almennt miðaverð er 2.000
krónur en afsláttarverð fyrir nema,
eldri borgara og öryrkja er 1.000
krónur.
Morgunblaðið/Þórður
Tónaflóð Oktett Kammersveitar Reykjavíkur flytur á sunnudag Oktett D803 (op. posth. 166) eftir Franz Schubert.
Glaðvær, ljóðrænn og
blíðlegur Schubert
Hádegistónleikar Kammersveitar Reykjavíkur í Hörpu
Arngunnur
Árnadóttir
Í dag, laugardaginn 15. mars, kl.
15 verður opnuð samsýningin
Stétt með stétt í Deiglunni á Ak-
ureyri. Þar sýnir fjöldi listamanna
verk sem öll eru unnin út frá
gangstéttinni í Listagilinu. Hver
listamaður býr til sína eigin hellu í
myndverki og saman mynda þær
eina stétt. Þannig samanstendur
sýningin af hellum sköpuðum af
fólki úr öllum stéttum þjóðfélags-
ins.
Sýningin stendur til 20. apríl og
er opin alla daga nema mánudaga
kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.
Stétt með stétt
á Akureyri
Þú færð GO Walk skó í: Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar
Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport, Reykjavík | Dion, Glæsibæ
Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir,
Hellisandi | Heimahornið, Stykkishólmi | Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið,
Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið,
Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
Palóma, Grindavík| Skóbúðin, Keflavík
SVO ÞÆGILEGIR AÐ
ÞÚ GETUR GENGIÐ
ENDALAUST.
HVER ÆTLI SÉ
SÁTTUR VIÐ ÞAÐ.