Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 49

Morgunblaðið - 15.03.2014, Page 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2014 Sýning Sirru Sigrúnar Sigurðar- dóttur og Erlings T.V. Klingenberg, Form, verður opnuð í Listamönnum galleríi, Skúlagötu 32, klukkan 17 í dag, laugardag. Í veggspjaldi sem listamennirnir gerðu fyrir sýn- inguna spinnast tveir spíralar saman og í texta segir: „Þráin til að sundra þar til hverfur – Þráin til að sameina þar til birtist.“ Sirra segir að þau vinni þó ekki sameiginleg verk held- ur stilli verkum sínum saman þannig að samhljómur verði á sýningunni. „Við Erling erum ekki mjög líkir listamenn en okkur hefur þónokkuð oft verið boðið að sýna saman og við höfum vissulega gert verk saman, en oftar höfum við farið þessa leið,“ segir hún og bætir við að þetta sé í fyrsta skipti sem þau sýna saman hér heima á þennan hátt, en þau hafa sett upp sameiginlegar sýn- ingar í Kaupmannahöfn, Hamborg og Winnipeg. „Við höldum hér áfram með það samtal,“ segir hún. Um sameiginlega þræði í verk- unum segir Sirra að þau eigi iðulega í samtali við myndlistarformið og ímynd listamannsins á einhvern hátt. „En aðferðafræðin okkar er hinsvegar ólík. Ég sanka hug- myndum að mér úr ýmsum áttum og færi þær síðan niður í einfalda mynd; aftur á móti er ákveðinn sprengikraftur í vinnuferli Erlings, hann brýtur hlutina upp,“ segir hún. „Ég er skapandi jarðbundinn mót- orhjólamaður sem fer á stöku flug um geiminn,“ bætir hann við. Þau Sirra Sigrún og Erling sýna bæði þrívíð verk og „einhverskonar þrykk,“ að hennar sögn. „Hann sýn- ir ný „mótorhjólaþrykk“ en ég hef gert skúlptúra úr gifsi sem ég tek síðan blindþrykk af. Ég sýni bæði skúlptúrinn og þrykkið.“ Erling gerir sín þrykk með raun- verulegu mótorhjóli. „Þetta eru ákveðnar tilraunir,“ segir hann. „Ég festi niður ákveðin augnablik. Á sýn- ingunni er líka portertt af mótor- hjólamanninum í hefðbundnum portrettstíl en gesturinn skynjar hann frekar en að sjá hann. Þá eru aðrir skúlptúrar, býsna spontant, en mótorhjólið er þema og formið og formleysan eru tengd mótor- hjólum.“ Erling bætir við að gestir skynji viðveru listamannsins á ákveðnu augnabliki en hann sé löngu farinn eitthvað annað. efi@mbl.is Mótorhjólaþrykk, samtal og blindþrykk  Sirra Sigrún og Erling T.V. Klingenberg opna sýningu Morgunblaðið/Ómar Listamennirnir Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Erling T.V. Klingenberg vinna verkin ekki saman en sýna saman – hún einfaldar en hann brýtur upp. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mb.is Dómkórinn í Reykjavík og Kór Menntaskólans í Reykjavík halda tvenna tónleika í Langholtskirkju á morgun, sunnudaginn 16. mars, og hefjast þeir klukkan fimm og átta. Flutt verður tónverk Carls Orffs, Carmina Burana, við æva- fornan kveðskap úr Bæheimi sem hefur valdið hneykslan og hroll- vekjandi hrifningu frá því hann varð til. „Alls taka hundrað manns þátt í flutningnum í kirkjunni og það má segja að hér mætist þrjár kyn- slóðir sem taki höndum saman því Dómkórinn, kór Menntaskólans í Reykjavík og drengir úr Skólakór Kársness koma við sögu í verk- inu,“ segir Kári Þormar dómorg- anisti, sem heldur utan um tón- leikana. Með kórunum syngja einsöngv- ararnir Hallveig Rúnarsdóttir sópran, bróðir hennar Þorbjörn Rúnarsson tenór og Jón Svavar Jósefsson bassabaritón. Vanalega er verkið flutt í hljómsveit- arútsetningu en að þessu sinni er undirleikur í höndum tveggja pí- anóleikara að sögn Kára. „Þau Helga Bryndís Magnúsdóttir og Kristinn Arnar Kristinsson og sex manna slagverkssveit munu sjá um allan undirleik á þessu skemmtilega verki.“  Þrír kórar koma saman til að flytja verkið Carmina Burana á sunnudag Siðlausir söngvar Kynslóðir Kór Menntaskólans í Reykjavík, drengir úr Skólakór Kársness og Dómkórinn koma fram á tónleikum í Langholtskirkju á sunnudaginn. EGILSHÖLLÁLFABAKKA POMPEII KL.5:40-8-10:20 300:RISEOFANEMPIRE3D KL.5:40-8-10:20 300:RISEOFANEMPIREVIP KL.1:30-3:40-5:40-8-10:20 SAVINGMR.BANKS KL.8-10:40 NONSTOP KL.5:40-8-10:20 WINTER’STALE KL.10:20 HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL3DKL.3:40 (1:30(LAU)) HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL2DKL.1:30-3:40-5:50 THELEGOMOVIE ÍSLTAL KL.3D:1:20-3:30 2D:1:30-3:40-5:50 THELEGOMOVIEENSTAL2D KL.3:30-8 JÓNSIOGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2DKL.1:30 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI SPARBÍÓ MERKTAR MEÐ GRÆNU EÐA APPELSÍNUGULU KR.750 Á APPELSÍNUGULT OG KR. 1000 Á GRÆNT POMPEII KL.5:50-8 300:RISEOFANEMPIRE2DKL.5:45-8-10:20 NONSTOP KL.10:30 HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL3DKL.1:30-3:40 THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.1:30-3:40 KEFLAVÍK AKUREYRI POMPEII KL.8 300:RISEOFANEMPIRE3DKL.5:45-8-10:20 NONSTOP KL.10:20 GAMLINGINN KL.5:30 THELEGOMOVIE ÍSLTALKL.3D:1:30-3:40 2D:3:20 JÓNSIOGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2DKL.1:20 WERTHERÓPERA KL.4:55(LAU) POMPEII KL. (5:40(SUN)) 8-10:20 300:RISEOFANEMPIRE2DKL.(11(LAU)) (10:30(SUN)) NONSTOP KL.10:40 GAMLINGINN KL.3-5:30(8:30(LAU)) (8(SUN)) 12YEARSASLAVE KL. 5:20 -8 LEGOMOVIE ÍSLTALKL.3D:1 -3:10 2D: (1:20 -3:30(SUN)) FROSINN ÍSLTAL2D KL. 12:50 POMPEII KL.5:40-8-10:20 300:RISEOFANEMPIRE3DKL.5:40-8-10:20 NONSTOP KL.8-10:20 GAMLINGINN KL.5:40-8 LÍFSLEIKNIGILLZ KL.10:25 HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL3DKL.1:20-3:30 HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL2DKL.1-3:10-5:50 THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.1:20-3:30 FROSINN ÍSLTAL2D KL.1-3:20 SÝNDMEÐ ÍSLENSKUOG ENSKU TALI Í 2D OG 3D SÝNDMEÐ ÍSLENSKU TALI Í 2D OG 3D FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA VARIETY  ENTERTAINMENT WEEKLY  FRÁ FRAMLEIÐANDANUM ZACK SNYDER, LEIKSTJÓRA 300 OG MAN OF STEEL NEW YORK MAGAZINE  “SKEMMTILEGRI EN NOKKRARHAMFARIRÆTTU AÐVERA“ SKYLMINGAÞRÆLAR, FORBOÐIN ÁST OGNÁTTÚRUHAMFARIR Í EINNU FLOTTUSTU MYND ÞESSA ÁRS ÍSL TAL G.D.Ó. - MBL 12 12 12 12 L L L ÍSL TAL 16 ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND MEÐ KEVIN COSTNER OG HINUM ÍSLENSKA TÓMASI LEMARQUIS FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR TAKEN -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar THE BAGMAN Sýnd kl. 8 - 10:20 3 DAYS TO KILL Sýnd kl. 8 - 10:20 HR.PÍBODY & SÉRMANNS 3D Sýnd kl. 2 - 4 - 6 HR.PÍBODY & SÉRMANNS 2D Sýnd kl. 1:45 - 3:45 THE MONUMENTS MEN Sýnd kl. 10:25 RIDE ALONG Sýnd kl. 6 THE LEGOMOVIE 2D Sýnd kl. 1:50 - 4 DALLAS BUYERS CLUB Sýnd kl. 5:45 - 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.