Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 22
KOSNINGABARÁTTAN SKIPULAGSMÁLIN Í BRENNIDEPLI FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Þ egar mánuður er til sveitarstjórnarkosninga er kosningabaráttan langt frá því að vera hafin af einhverjum krafti. Hér verður sjónum beint að Reykjavík, þar sem greinileg undir- alda er vegna áforma meirihlutans um mikla þéttingu byggðar. Hvorki sjálfstæðismönnum né öðrum fram- boðum hefur tekist að virkja óánægju og áhyggjur borgarbúa í sína þágu. Óvíst er með öllu hvern- ig þessi mál þróast fram að kjör- degi. Róttæk framtíðarsýn Það er smám saman að renna upp fyrir Reykvíkingum að hið nýja aðalskipulag borgarinnar felur í sér mun róttækari breytingar á um- hverfi og mannlífi en áður hefur verið stefnt að. Í nafni þéttingar byggðar eru miklar húsbyggingar komnar á dagskrá og nálægt fram- kvæmdastigi í grónum hverfum. Þéttingin breytir verulega ásýnd hverfanna og hefur áhrif á daglegt líf fólks. Jafnframt á samkvæmt skipulag- inu að þrengja að einkabílnum í borginni til að skapa gangandi og hjólandi vegfarendum og almenn- ingssamgöngum meira svigrúm. Stór umferðarmannvirki sem greiða fyrir bílaumferð heyra sögunni til. Það mun valda þeim sem þurfa á einkabílnum að halda óþægindum og töfum. Þá er stefnt að því að taka flugvallarsvæðið í Vatnsmýr- inni undir nýja byggð eftir nokkur ár. Sú stefna hefur ekkert breyst þótt nýtt flugvallarstæði sé ekki í augsýn. Lokun flugvallarins mun hafa áhrif á samgönguvenjur allra landsmanna. Aðalskipulagið nýja naut mikils stuðnings í borgarstjórn. Aðeins þrír fulltrúar sjálfstæðismanna greiddu atkvæði gegn því og vöruðu við afleiðingum þess. En óánægja margra borgarbúa með það kom í ljós þegar á undirbúningstímanum; aldrei hafa fleiri sent skriflegar at- hugasemdir við skipulag. Þessi gagnrýni hafði hins vegar engin áhrif. Innan borgarkerfisins og meðal meirihlutans í borgarstjórn er mjög sterk sannfæring fyrir því að aðalskipulagið sé stórt framfara- skref og að með því sé á ábyrgan hátt lagður grundvöllur að mann- eskjulegra og vistvænna borgarlífi. Óánægja og áhyggjur Á íbúafundi í Úlfarsárdal á mánudaginn kom fram mjög mikil óánægja íbúa með þá ákvörðun borgaryfirvalda, sem staðfest er í aðalskipulaginu, að hætta nær allri frekari uppbyggingu hverfisins. Þar búa nú um þúsund manns, en upp- haflega stóð til að þarna risi tíu til tólf þúsund manna byggð. Ákvörð- unin hefur mikil áhrif á þjónustu í hverfinu, þar á meðal aðstöðu barna og unglinga til íþrótta. Fréttir Morgunblaðsins að undanförnu um það hvernig stefnan um þéttingu byggðar mun birtast í framkvæmd í borginni á næstu ár- um hafa einnig vakið nokkurt upp- nám. Í Vesturbænum eru menn agndofa yfir hugmyndum um að taka bílastæði og bílskúra sem eru í eigu íbúa undir nýja byggð. Aldrei hefur verið talað um þetta áður og hugmyndin ein getur haft áhrif á verðmæti fasteignanna. Ef hugmyndirnar í hverfaskipu- laginu, sem er næsta skref á eftir aðalskipulaginu, ná fram að ganga verða stór græn svæði, sem fólk hefur gengið að vísum til fram- búðar, sums staðar tekin undir íbúðir og atvinnuhúsnæði. Annars staðar verður þrengt svo að gamlli byggð með nýbyggingum að yf- irbragð umhverfisins breytist. Erf- iðara verður að finna bílastæði og Undiralda vegna þrengingar byg  Enn hefur ekki tekist að virkja óánægjuna í kosningabaráttunni  Bílskúrarnir við Hjarðarhaga eru mál af því tagi sem getur fellt meirihluta Umdeilt Hugmyndir borgaryf- irvalda um íbúðarbyggingar þar sem nú eru bílastæði og bíl- skúrar við Hjarðarhaga hafa vakið undrun og óánægju íbúa. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014 0 kr. útborgun Langtímaleiga Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Losnaðu við vesenið með langtímaleigu Kynntu þér málið í síma 591-4000 Á R N A S Y N IR Myndin sem skoðanakannanir draga upp af landslagi stjórnmálanna í að- draganda sveitarstjórnarkosninga hefur lítið breyst frá því í haust. Flokkum í þröngri stöðu hefur hvergi tekist að snúa taflinu sér í hag. Í því sambandi vekur að vonum mesta at- hygli hve þungur róðurinn hefur reynst Sjálfstæðisflokknum, hinum gamla höfuðflokki Reykvíkinga um áratugaskeið. Kannanir fram að þessu benda til þess að flokkurinn sé frekar að tapa fylgi en að bæta við sig. Í grófum dráttum má segja að myndin sem nú blasir við sé þessi: Í Reykjavík heldur meirihlutinn velli og Dagur B. Eggertsson verður borgarstjóri. Sjálfstæðisflokkurinn fær lökustu kosningu frá upphafi. Helstu nýmælin felast í möguleikum Pírata til að fá fulltrúa kjörinn. En ekki er líklegt að það muni hafa mikil áhrif í borgarstjórn því sennilega yrði sá fulltrúi ekki aðili að meirihluta- samstarfinu. Á Akureyri fellur meirihluti Lista fólksins og gömlu flokkarnir sækja í fyrra horf. Spurning er þó hvort ný- leg uppstokkun á framboði Lista fólksins, sem runnið hefur saman við Bæjarlistann, muni breyta stöðunni. Á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur heldur Sjálfstæðisflokk- urinn sterkri stöðu sinni, sækir sums staðar verulega á og heldur meiri- hlutanum á Seltjarnarnesi, í Garðabæ og Mosfellsbæ. Meirihluti flokksins í Reykjanesbæ hefur virst traustur í sessi en óvíst er hvort klofnings- framboð Frjáls afls setji strik í reikn- inginn. Í Hafnarfirði eiga sjálfstæð- ismenn möguleika á að komast í meirihluta eftir kosningar. Þá er lík- legt að meirihluti þeirra og framsókn- armanna haldi velli í Kópavogi. Víða á landsbyggðinni er flokkurinn einnig sterkur og í sókn, svo sem í Vest- mannaeyjum og á Akranesi. Í Árborg er meirihluti sjálfstæðismanna hins vegar fallinn. Utan Reykjavíkur hefur Samfylk- ingin víðast hvar átt undir högg að sækja. Það stafar einkum af fylgi við Bjarta framtíð sem býður fram í nokkrum stórum sveitarfélögum. Margt bendir til sögulegs ósigurs Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, sjálfum kratabænum.VG hefur hvergi náð sér á strik. Í Hafnarfirði Stjórnmálin eru í óbreyttu fari  Mynd skoðanakannana af landslagi stjórnmálanna hefur lítið breyst í vetur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.