Morgunblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014 Það er margs að minnast þegar horft er um öxl í sam- skiptum mínum við Völlu frænku. Sérstaklega minnist ég tímans þegar systurnar þrjár, mamma, Valla og Gústa, komu með mér til San Diego í Kali- forníu þar sem ég bjó á þeim tíma með fjölskyldu minni. Það var augljóst hvað þær systur nutu þess að vera saman og oft heyrðust hlátrar þegar þær minntust skemmtilegra atvika úr þeirra lífi. Yngri sonur minn var oft á tíðum með þeim og á hann góðar minningar frá þeim tíma. Einnig eru mér minnisstæð- ar heimsóknir foreldra minna og systkina til Völlu og Alberts til Sauðárkróks þar sem þau bjuggu um árabil. Valla missti eiginmann sinn, Albert, fyrir nærri tuttugu árum síðan og bjó hún hin síðari ár í notalegri íbúð í Breiðholtinu þar sem henni leið mjög vel. Valla kom oft í Garðabæinn til foreldra minna og þær systur gerðu eitthvað skemmtilegt saman Valgerður Valdemarsdóttir ✝ ValgerðurValdemars- dóttir fæddist 6. maí 1936. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 12. apríl 2014 Útför Valgerðar fór fram frá Frí- kirkjunni í Hafn- arfirði 25. apríl 2014. eins og að fara í gönguferðir eða í búðir. Yfirleitt settust þær svo yf- ir kaffibolla og meðlæti þar sem mikið var spjallað og hlegið. Gústa, systir þeirra slóst stundum í hópinn. Ég hafði tækifæri til að taka þátt í kaffispjallinu af og til og hafði gaman af. Ég minnist Völlu frænku með söknuði. Hún var alltaf hress og kát og hló mikið. Það var skemmtilegt að ræða við hana um ýmis mál því hún hafði ákveðnar skoðanir og brenn- andi áhuga á flestum þáttum daglegs lífs. T.d. hafði hún mik- inn áhuga á íþróttum og hún fylgdist iðulega með árangri mínum í hástökki á sínum tíma og einnig systkinabarna minna í þeim íþróttum sem þau hafa stundað. Hún las mikið og fylgdist vel með fjölmiðlum og sá yfirleitt skemmtilegar hliðar á öllum málum og meira að segja á líknardeildinni stuttu fyrir andlátið þá kom þessi eig- inleiki hennar fram. Brynja, systir mín, veitti Völlu mikinn stuðning á síðustu vikum og mánuðum í hennar veikindum og kom Ásta, systir, einnig þar að. Ég veit að þessi stuðningur var Völlu mikilvægur. Það er alltaf erfitt að sjá á bak nánum ástvinum og ég sendi Alberti og Tomma, fjöl- skyldum þeirra og systkinum Völlu mínar samúðarkveðjur. Anna Lilja. Þegar ég kveð með nokkrum orðum kæra vinkonu í 56 ár sækja á hugann margar minn- ingar. Eitt af mörgu sem ein- kenndi Völlu umfram flesta aðra var einstök jákvæðni hennar og eiginleiki til að gleðj- ast og gefa öðrum hlut í gleði sinni. Oftast fóru allir glaðir af hennar fundi, sama hvernig líf- ið valt. „Sjáðu Esjuna mína núna, sjáðu hvað allt er ynd- islega fallegt,“ sagði hún oft. Íþróttir allskonar voru henni hugleiknar. Hún naut þeirra í sjónvarpinu og fótboltakeppnir og Ólympíuleikar voru næstum heilagar stundir. Valla las ógrynni af bókum og enginn kom að tómum kofunum hjá henni ef rætt var um bók- menntir, því minnið var ótrú- legt. Enga bók taldi hún þess virði að eiga ef ekki væri hægt að lesa hana tvisvar. Á seinni árum voru göngu- ferðir henni mikið áhugamál og borgina þekkti hún orðið afar náið. Hún skoðaði allt sem fyrir augu bar, m.a. flest söfn í borg- inni og víðar og kunni á því flestu góð skil. Hún var ein- stök. Kynni okkar Völlu hófust í Hafnarfirði og tókust þar með fjölskyldum okkar vináttubönd sem alltaf héldust. Við hjónin fluttumst til Sauðárkróks og þau Valla og Alli skömmu síðar. Þau byggðu sér þar stórt og fallegt hús og á neðri hæð þess flutti Valla blómabúðina sína sem þá var sú fyrsta og eina í Skagafirði. Á Króknum var hún virk í félagslífi og mörgum eru ógleymanlegir þeir gamanleikir sem hún lék þar í. Völlu var af- ar margt til lista lagt, til eru falleg málverk og handavinna eftir hana frá yngri árum. Á þeim tímum hafði fólk sem ekki átti sterka að lítil tök á að láta drauma sína rætast. Hún var send í sveit barn að aldri til að létta af heimilinu eins og þá tíðkaðist en börnin voru oft notuð til erfiðra verka og að- búnaður stundum bágborinn. Atvinnuleysi var mikið í Reykjavík og alla tíð voru þess- ir erfiðleikatímar henni ofar- lega í huga. Við hjónin fluttum aftur suður og Valla og Alli skömmu síðar. Eftir að suður kom hófu þau rekstur matvöru- verslunar og starfaði Valla þar alla tíð. Síðast komu þau upp og ráku myndarlegt gistiheim- ili, en Alli var þá orðinn veikur og lést skömmu síðar. Því fylgdu erfiðleikar. Eftir að hún bjó um sig lítilli fallegri íbúð sem hún átti í Breiðholtinu leið henni vel. Þar átti hún fallegt útsýni, m.a. til Esjunnar sem hún dáði svo mjög. Þar naut hún lífsins á sinn skemmtilega hátt. „Ég hef allt til alls og ég þarf ekki að kvarta,“ sagði hún oft. Hún hafði þó aðeins elli- launin. Hún átti góð og náin samskipti við sína nánustu sem voru henni mikils virði. Sjálf á ég eftir að sakna okkar löngu samtala sem voru ekki svo fá og síðasta árið oft í viku. Þetta ár var Völlu erfitt þó hún bæri sig eins og hetja. Og nú er hún horfin af heimi. Það var alla tíð hennar sannfæring að dauðinn væri í senn kveðja og stefnu- mót við gengna ástvini og fé- laga. Ég segi bara far vel, vin- kona, og takk fyrir allt. Kristín Viggósdóttir (Lóló). Það eru yfir 30 ár síðan við kynnt- umst, þá á skóla- bekk í rafeinda- virkjun við Iðnskólann í Reykjavík. Við vor- um ungir að árum og komum hver úr sinni átt. Vinátta tókst snemma með hópnum sem efld- ist með árunum. Svavar varð snemma miðpunktur hópsins og hafði jafnan frumkvæði að því að kalla menn saman og voru reglulegir vinafundir hjá honum á skólaárunum. Undir lok náms- ins kynnti Svavar okkur fyrir Rannsý sem samstundis féll vel inn í hópinn. Að námi loknu tóku þau hjónin upp þann sið að bjóða árlega til endurfunda á heimili sínu. Ef ekki hefði komið til stað- festa Svavars hefði fyrir okkur legið það sama og svo mörgum öðrum, að missa tengsl að námi loknu. Í tímans rás höfum við alltaf vitað hver af öðrum og þá oftast fyrir tilstilli Svavars. Svavar bjó yfir mikilli gleði og bjartsýni. Hans smitandi hlátur var aldrei langt undan þegar við félagarnir hittumst. Hann talaði ávallt vel um náungann og beindi athyglinni að því jákvæða með lifandi og skemmtilegri frásögn. Okkur er það mjög minnis- stætt hversu mikill fjölskyldu- maður Svavar var. Það var auð- heyranlegt í hans máli, því hann talaði ávallt af miklu stolti um fjölskyldu sína. Frásagnir hans báru þess vott hversu margt þau gerðu saman. Svavar og Rannsý áttu ynd- Svavar Sæmundur Tómasson ✝ Svavar Sæ-mundur Tóm- asson fæddist 5. júní 1959 og lést 13. apríl 2014. Svavar var jarðsunginn 25. apríl 2014. islegt heimili. Því fylgdi alltaf til- hlökkun að sækja þau hjón heim en þau mættu okkur með gleði og hlýju. Við verðum þeim ævinlega þakklátir fyrir okkar vina- fundi í gegnum ár- in. Við eigum afar bágt með að trúa að vinur okkar sé horfinn til nýrra heima og minnumst hans með hlýju og söknuði. Við erum þakklátir fyrir að hafa fengið að kynnast Svavari og minningar um góðan vin munu alltaf verða ofarlega í huga okkar. Við vott- um Rannsý og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd félaga úr raf- eindavirkjuninni, Guðmundur Kristján Kristinsson. Mikið finnst okkur það óraun- verulegt að í dag fylgjum við vinnufélaga og vini til grafar. Stórt skarð er nú höggvið í góðan hóp hér á vinnustaðnum og fregnin af andláti Svavars kom eins og þruma úr heiðskíru lofti, hann sem alltaf fór svo varlega og brýndi fyrir öllum að leika sér aldrei með lífið og passa vel upp á allan örygg- isbúnað. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er en það verð- ur að segjast að Svavar notaði tímann vel, rækti vel fjölskyldu og vini, sinnti áhugamálum sín- um, veiðinni, ferðalögum, dans- inum, dúntekjunni fyrir vestan og vélsleðasportinu, öllu skipt niður í árstíðir, enda Svavar með eindæmum skipulagður maður og deildi hann þeirri gleði óspart með okkur, þannig að okkur leið eins og hefðum verið á staðnum. Svavar var afar vel liðinn meðal allra sem hann átti í sam- skiptum við, í vinnu sem utan, með sinni léttu lund, glaðværð og hlátri hreyfði hann við öllum í kringum sig. Við erum lánsöm og þakklát fyrir samfylgdina sem var allt of stutt. Elsku Rannsý, Anna Hlíf, Tómas, Áslaug og fjölskyldur. Missir ykkar er mikill en minn- ingin lifir í hug og hjarta okkar allra. Úr hjarta mínu hverfur treginn, er ég hugsa um hlátur þinn. Bros þitt veitti birtu á veginn, betri um stund var heimurinn. Farðu í friði, góði vinur, þér fylgir hugsun góð og hlý. Sama hvað á okkur dynur, aftur hittumst við á ný. (Magnús Eiríksson) Innilegar samúðarkveðjur frá samstarfsfélögum hjá Friðriki A. Jónssyni og Marás ehf. Guðmundur Bragason, Steinþór Ólafsson, Auður Gróa Kristjánsdóttir og El- ín Gautadóttir. Við, Siggi og Kata, viljum í nokkrum orðum minnast vinar okkar, Svavars, sem nú er fall- inn frá í blóma lífsins. Vinskapurinn byrjaði þegar við vorum táningar, en þá hófu foreldrar Svavars byggingu framtíðarheimilis þeirra við Skildinganes í Skerjafirði. Svav- ar féll strax inn í vinahópinn í Skerjó og varð fljótt mikilvægur hluti af hópnum. Siggi og Svavar gengu saman í Iðnskólann og unnu saman bæði við húsasmíði og til sjós, á Hafnarbergi, skipi Tomma föður Svavars. Margt var brallað á unglings- árunum sem mótaði okkur til framtíðar og treysti vinarbönd- in. Á þessum árum var heimili foreldra Svavars opið okkur vin- unum og var Siggi þar eins og heimagangur. Einn af föstu punktunum í tilverunni var að Íris móðir Svavars bakaði alltaf pönnukökur eftir hádegi á laug- ardögum og voru allir vinirnir sem vildu, hjartanlega velkomn- ir í pönnsur og var það oft vel þegið. Ransý kom til sögunnar og lífið tók á sig nýja mynd. Stofn- aðar voru fjölskyldur og tímabil barneigna fór í hönd. Við vorum á sama róli og Svavar og Ransý að þessu leyti. Vinskapur okkar fjögurra var meiri en nokkru sinni og samgangur fjölskyldna okkar mikill. Þau voru ófá spilakvöldin og ekki vantaði fjörugar umræður um allt milli himins og jarðar. Tengslin voru svo mikil á þess- um tíma að börnin okkar köll- uðu móður Svavars „Írisi ömmu“ og þótti það hinn eðli- legasti hlutur. Þegar kom að því að finna framtíðarheimili fyrir fjölskyld- ur okkar, varð niðurstaðan að byggja hús hlið við hlið í Hamratanga í Mosfellsbæ. Svona leið lífið í leik og starfi. Svavar var mikill vinur vina sinna og hrókur alls fagnaðar. Sú mynd sem situr sterkt eftir er hláturmildi og glaðværð hans. Hann var alltaf til í rök- ræður en þeim lauk þó alltaf í góðu, með gleði og glensi. Svavar og Ransý voru höfð- ingjar heim að sækja og hefur Svavar verið einstakur í að halda sambandi við vini og fé- laga í gegnum tíðina hvort sem þeir eru búsettir á Íslandi eða erlendis. Skarðið sem nú er höggvið með fráfalli Svavars er stórt og verður hans sárt saknað. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Hugur okkar er hjá fjöl- skyldu Svavars og til ykkar sendum við okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Sigurður V. Viggósson, Katrín Sigurðardóttir og fjölskyldur. Elsku pabbi. Það er svo mikill sökn- uður í hjarta mínu og eftir lifir minn- ing um yndislegan föður sem ég á eftir að sakna svo sárt. Ég þakka þér fyrir all- ar þær góðu stundir sem við átt- um saman og allt sem þú gerðir fyrir mig. Minningin um þig mun ávallt lifa í huga mínum og hjarta. Guð gaf mér engil sem ég hef hér á jörð, hann stendur mér hjá og heldur um mig vörð. Hann stýrir mér í gegnum lífið með ljósi sínu, ég er svo þakklát að hafa hann í lífi mínu. Ég vona að hann viti að hann er mér kær, allar mínar bestu hugsanir hann fær. Hans gleði og viska við alla kemur, við flestalla honum vel semur. Hann stendur mér hjá þegar illa ligg- ur við, hann víkur ekki frá minni hlið. Nema sé þess viss að allt sé í lagi, fer þá að vesenast í málarastússi af ýmsu tagi. Hann er vandvirkur og iðinn, hann sinnir alltaf sínu vel, hann segir það aðalatriðin, sem er rétt, það ég tel. Hann hefur kennt mér að vera þol- inmóð og sterk, hvetur mig áfram að stunda mín dagsverk. „þú skalt alltaf standa á þínu,“ hann ávallt hefur sagt mikla áherslu á það lagt. Þótt svo hann segi ekki við mann oft mikið. Þá meinar hann alltaf margt. Hann getur aldrei neinn svikið. það getur hann ekki á neinn lagt. Hann er bara þannig maður. Hann er bara þannig sál. Hann er aldrei með neitt þvaður. Hann meinar allt sitt mál. Hann sýnir mér svo mikla ást. Hann vill aldrei sjá neinn þjást. Hann er minn klettur og hann er mín trú hann er minn besti pabbi, staðreyndin er sú. (Katrín Ruth, 1979) Elska þig. Þín dóttir, Elva Hrund. Takk fyrir allt, elsku afi, við söknum þín svo rosalega mikið. Takk fyrir allt sem þú kenndir okkur og gerðir með okkur, það var alltaf svo gaman hjá okkur. Við munum geyma þær fallegu minningar í hjörtum okkar. Rita vil ég niður hvað hann var mér kær, afi minn góði sem guð nú fær. Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt, og því miður get ég ekki nefnt það allt. Að tala við hann var svo gaman, á þeim stundum sem við eyddum saman. Hann var svo góður, hann var svo klár, æ, hvað þessi söknuður er sár. En eitt er þó víst, og það á við mig ekki síst. að ég sakna hans svo mikið, ég sakna Guðmundur Krist- inn Þórðarson ✝ GuðmundurKr. Þórðarson, Muggur, fæddist 1. mars 1949. Hann lést 4. apríl 2014. Útför hans fór fram 11. apríl 2014. hans svo sárt, hann var mér góður afi, það er klárt. En alltaf í huga mín- um verður hann, afi minn góði sem ég ann. Í himnaríki fer hann nú, þar verður hann glað- ur, það er mín trú. Því þar getur hann vakað yfir okkur dag og nótt, svo við getum sofið vært og rótt. Hann mun ávallt okkur vernda, vináttu og hlýju mun hann okkur senda. Elsku afi, guð mun þig geyma, yfir okkur muntu sveima. en eitt vil ég þó að þú vitir nú, minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth, 1979) Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Elskum þig. Þínar afastelpur, Aníta Mist og Birta Rós. Það er erfitt að kveðja bróður sinn og eiga aðeins minningarn- ar eftir. Muggur, eins og hann var alltaf kallaður, var yngstur af okkur systkinunum, ég í miðj- unni og Díana Íris elst. Við ólumst upp á Bjarnastöð- um í Kleppsholtinu og síðan á Austurbrún 37, þar sem foreldr- ar okkar byggðu sér hús. Ég man það eins og það hefði gerst í gær, þegar okkur var tilkynnt að það ætti að fara að byggja hús, að þá stóð lítill maður upp og sagði: „Ég skal hjálpa þér að byggja hús, ég get verið á steypuvélinni.“ Þá brosti pabbi og það var samþykkt. Æskuvin- ina eignaðist Muggur í Holtinu; Magga, Stebba, Villa og fleiri góða vini og hefur sú vinátta haldist öll þessi ár. Árið 1964 fluttust foreldrar okkar á Hellissand og Muggur með þeim. Muggur heillaðist alltaf af sjónum, enda pabbi okk- ar sjómaður og var ávallt viðrið- inn sjóinn. Muggur byrjaði sína sjómennsku á Arnkatli SH og var síðan á Skarðsvíkinni með Sigurði Kristjónssyni, sem hann hafði miklar mætur á. Árin liðu og Muggur fór í Sjó- mannaskólann og eftir að honum lauk varð hann stýrimaður og skipstjóri á ýmsum skipum, meðal annars á Vestfjörðum. Hann var um árabil hjá Björgun og síðast var hann skipstjóri á hafrannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Muggur bróðir minn var svo lánsamur að giftast henni Terrý og eignuðust þau Evu Lind, Elvu Hrud og Kristin Þór. Terrý, börnin hans og fjölskyld- ur þeirra stóðu við hlið hans sem klettur í veikindum hans og um- luktu hann ást og umhyggju. Ég og fjölskyldan mín vottum Terrý, Evu Lind, Elvu Hrund, Kristni Þór og fjöskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Guð vaki yfir þér, kæri bróðir. Gyða Þórðardóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.