Morgunblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 01.05.2014, Qupperneq 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2014 Í dag kveð ég Ástu móðursystur mína með söknuði og þakklæti. Hún var mikilvægur hluti af mínu lífi og var ávallt til staðar ef eitthvað bjátaði á. Sem barn man ég eftir góðum stundum í eldhúsinu í Staðarbakkanum. Eft- ir að hafa borðað góða grjóna- grautinn hennar, skoðaði ég mig um heimilið þar sem ríkti góður andi. Þótti mér ævintýralegt og heillandi að horfa á vegg þar sem Ásta og Arnór geymdu minningar um ferðalög meðal annars í formi korta og minjagripa. Ég á góðar minningar frá ferðalagi fjölskyldu minnar til Ítalíu sumarið 1989 ásamt Fridda, Ástu og Arnóri. Á fimm ára afmælisdegi Ástu eignaðist hún litla systur, Aðal- heiði móður mína. Ásta var svo glöð og hljóp út á götu og tilkynnti hverjum sem heyra vildi að hún hefði fengið litla stelpu í afmæl- isgjöf. Þær systur voru alla tíð mjög nánar. Ásta var útivinnandi, starfaði lengst af sem skrifstofustjóri hjá Nóa Síríusi. Hún hreyfði sig reglulega, fór í gönguferðir, stundaði jóga og líkamsrækt í World Class í mörg ár. Hún fór samviskusamlega eftir ráðlegg- ingum sem hún fékk frá fagfólki og öðrum varðandi heilbrigðan lífsstíl. Hún hafði áhuga á áhrifum mataræðis á heilsuna. Stutt er síðan hún sagði mér frá því að hún væri að gera tilraunir með eplae- dik og hunang til að koma betri reglu á svefninn. Ásta var fróð, víðlesin og áhugasöm um menn og málefni. Fylgdist vel með fréttum og var mjög opin fyrir nýjungum og for- dómalaus. Hún var sterkur kar- akter og lá ekki á skoðunum sín- um. Oft var stutt í glensið og man ég eftir því þegar hún endurtók grínið aftur og aftur og fannst okkur það alltaf jafn fyndið. Við áttum það sameiginlegt að hafa gaman af góðum kvikmyndum og fórum við oft í bíó ásamt móður Ásthildur Torfadóttir ✝ ÁsthildurTorfadóttir var fædd 3. ágúst 1929. Hún lést 14. apríl 2014. Útför Ást- hildar var gerð 28. apríl 2014. minni. Ásta var alltaf gjafmild á tíma sinn, trygg og var mjög annt um minn hag. Hún sýndi það í verki í veikindum mínum, er ég þakk- lát fyrir það. Þegar ég hugsa um Ástu koma margar góðar minn- ingar upp í hugann. Ég fór oft í heimsókn til hennar þegar ég bjó í Álftamýrinni og við horfðum saman á kvikmyndir og Idol-keppnina. Þá töluðum við saman oftar en ekki fram á rauða nótt. Samskipti okkar voru náin og vinátta okkar mér mjög kær. Hún sagði mér frá æsku sinni, foreldrum sínum og þótti mér gaman að heyra um þau, því ég kynntist þeim lítið. Oftar en ekki ræddum við um tilgang lífsins, dauðann og um umskiptin úr þessum heimi. Stutt er síðan ég talaði við Ástu í síma og var hún hress í bragði, þrátt fyrir erfið veikindi. Rödd hennar ómar enn í höfði mér þegar ég skrifa þessar línur. Ég sakna hennar og vil þakka allar dýrmætu samverustundirn- ar. Dætrunum, Gerði og Björk Ingu og fjölskyldum þeirra sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Hvíl í friði, elsku Ásta mín. Þegar nóttin kemur taktu henni feginshugar. Hún mun loka hurðinni að baki deginum og lyfta byrði hans af herðum þínum. Hún, sem geymir fortíðina og safnar óskunum, mun vita hvert skal leiða þig og vídd hennar er önnur. (Þóra Jónsdóttir.) Þín Tinna. Í dag kveðjum við hinstu kveðju Ásthildi Torfadóttur, hana Ástu. Ástu, og Arnóri eiginmanni hennar, kynntist ég sumarið 1969 þegar dóttir þeirra, vinkona mín, Björk Inga, kom í fyrsta sinn til sumardvalar til okkar í sveitina. Bundust fjölskyldur okkar þá vin- áttuböndum sem haldið hafa æ síðan. Ásta var góðum gáfum gædd, hafði húmor, var heiðarleg, rétt- sýn og hjálpsöm. Jafnréttismál voru henni alla tíð ofarlega í huga. Hún var skipulögð og mikið snyrtimenni. Hún var sjálfstæð, hreinskiptin og fylgin sér. Ung lauk hún prófi frá Versl- unarskóla Íslands. Hún vann alla tíð utan heimilis sem ekki var al- gengt að húsmæður gerðu þegar hún var ung kona. Lengst af sinnti hún skrifstofustörfum hjá sælgætisgerðinni Nóa eða þar til hún lét af störfum sökum aldurs. Hún stundaði einnig heilsurækt og fór reglulega í leikfimi á meðan heilsan leyfði. Ásta var ávallt vel til höfð og fallega klædd. Hún hafði mikið yndi af því að ferðast, bæði utan lands og innan. Ferðuðust þau Arnór mikið sam- an á meðan hans naut við. Ásta var vinur vina sinna og fjölskyldan var henni mikils virði. Þegar ég kynntist þeim hjón- um höfðu þau reist sér fallegt rað- hús við Staðarbakka. Bar heimili þeirra vott um þá reglusemi og snyrtimennsku sem einkenndi þau og öllu var vel við haldið. Nokkrum árum eftir fráfall Arn- órs árið 1993 flutti Ásta í Hvassa- leitið og hélt þar heimili til ævi- loka. Ég á þeim hjónum margt að þakka. Heimili þeirra stóð mér ávallt opið. Þegar ég fór til Reykjavíkur í menntaskóla bjó ég hjá þeim fyrstu önnina. Síðar leigðum við Björk saman íbúð um tíma skammt frá þeim og sam- gangur var mikill. Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn rétt orðin tvítug og dvaldi af því tilefni um tíma í Reykjavík átti ég vísan samastað hjá þeim hjón- um og átti stuðning þeirra og þeirra góðu fjölskyldu vísan. Þeg- ar ég varð stúdent var slegið upp veislu í Staðarbakkanum. Á kveðjustund er margs að minnast. Ég minnist ferðalaganna með þeim Ástu, Arnóri og Björk um landið sem barn, ýmist í tjaldútilegur eða sumarbústaði. Ég minnist kvöldanna þegar Arn- ór tók fram slides-myndirnar. Þá var oft mikið hlegið. Ég minnist súkkulaðikökunnar góðu hennar Ástu og hún bjó til heimsins besta rækjusalat. Ég minnist þess að oftast var saltfiskur í matinn í há- deginu á laugardögum og ef var afgangur þá steikti Arnór hann stundum á pönnu með kartöflum og lauk. Þá minnist ég allra stund- anna við eldhúsborðið í Staðar- bakkanum þar sem rædd voru stjórnmál, jafnréttismál og mál- efni líðandi stundar. Þeirra stunda er nú ljúft að minnast. Mín síðasta heimsókn til Ástu var nú í febrúar þegar við pabbi áttum notalega og skemmtilega dagstund með henni og Björk. Heilsunni hafði hrakað en lundin var sú sama. Að leiðarlokum kveð ég Ástu mína með virðingu og þakklæti fyrir alla tryggðina, vináttuna, hjálpsemina og hlýjuna sem hún sýndi mér og mínum alla tíð. Elsku Bjögga mín, Gerður og fjöl- skyldur, mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til ykkar allra. Margrét Ríkarðsdóttir. Við fráfall ættingja eða náins vinar verða oft umbrot í sálarlíf- inu og finn ég sannlega fyrir því er ég kveð Ástu Torfa, bestu vin- konu eiginkonu minnar sálugu. Kynni þeirra hófust í Verslunar- skólanum en þaðan útskrifuðust þær vorið 1949. Þær voru fljótar að ná sér í ágætis eiginmenn og fjölskyldurnar urðu stórar og mannvænlegar. Báðar gerðust frumbyggjar í Smáíbúðahverfinu í Sogamýrinni, Ásta og Arnór í Akurgerði og Bíbí og undirritaður í Langagerði. Þótt margt væri ólíkt með þeim vinkonum var vin- átta þeirra innileg og trúnaðarrík. Ásta var lengi starfandi á vinnu- markaðnum en Bíbí átti stærri fjölskyldu og sinnti aðallega heimilisstörfum. En samveru- stundir þeirra urðu alltaf fjöl- margar, ég minnist fyrstu sam- eiginlegu utanlandsferðar þeirra til grísku eyjarinnar Rhodos árið 1981 og þá vorum við Arnór með í ferð. Seinna fóru þær tvær saman til Grænlands, það var árið 1994. Dugnaður þeirra og samheldni var aðdáunarverð. Síðasta sam- eiginlega utanlandsferð þeirra vinkvennanna var árið 2002, en þá fórum við til Rússlands og gistum í Moskvu og Pétursborg. Ásthild- ur Torfadóttir er einhver sú besta og heilsteyptasta sómakona sem ég hef kynnst. Tengsl og vinátta þeirra skólasystra var svo sterk að ég leit alltaf á Ástu sem meðlim fjölskyldu okkar og ég veit að börn mín sakna hennar ekki síður en ég. Við leiðarlok kveð ég Ástu með mikilli virðingu og þakklæti fyrir kynnin. Í veraldarvídd hugarins vona ég að vinkonurnar nái saman á nýjan leik. Kristján Oddsson. Við þurfum flest okkar að kveðja ást- vin á okkar lífsleið. Nú er komið að mér að kveðja hann Geir tengdaföður minn. Ég ætla ekki að halda einhverja lofræðu um þann mæta mann, enda hefði það ekki verið í hans anda. Í mínum huga var hann og verður alltaf ljúfmenni, og það var eitthvað sérstakt við brosið hans sem heillaði mig. Það sagði manni alltaf hvernig honum leið á hverj- um tíma fyrir sig. Kímnin, gleðin og ástin speglaðist svo vel í þess- um fallegu augum. Að missa móður sína 3 ára gam- all, bróður sinn ungan að aldri og ekki síst dóttur sína, hana Sól- veigu, 16 ára gamla var þungur baggi. Það kom alltaf sérstakt dökkt blik í fallegu augun hans þegar við töluðum um hana Sollý hans. Ég ætla ekki að segja einhverj- ar frægðarsögur af hans golf- kunnáttu, það geta einhverjir aðr- Geir Þórðarson ✝ Geir Þórðarsonfæddist 21. október 1926. Hann lést 9. apríl 2014. Útför Geirs fór fram 22. apríl 2014. ir gert, en að fara þrisvar sinnum holu í höggi held ég að sé bara nokkuð gott, eða hvað? Það var gaman að fá hann tengdaföður minn í mat, og ég tala ekki um ef elda- mennskan var óvenjuleg eins og hann orðaði það, kryddið og framandi sósur vöktu mikinn áhuga hjá honum, og hann gat spurt enda- lausra spurning, en alltaf endaði hann á því að lofa þennan yndis- lega mat. Ekki má gleyma honum pönnukökuafa eins og barnabörn- in mín kölluðu hann. Það var sama hvert tilefnið var, hann hringdi og spurði: Má ég koma með pönnu- kökur? sem hann gjarnan pakkaði í silfurpappír og mætti með, öllum til mikillar ánægju og gleði. Þakka þér að lokum fyrir okkar góðu kynni. Guð geymi þig. Anna. Elsku afi minn, þá er komið að kveðjustund. Það fyrsta sem kemur upp í huga minn er þakklæti. Þakklæti fyrir að fá að hafa þig, elsku afi minn, svona lengi í mínu lífi. Fyrir mér varst þú alltaf hann „Geiri afi“ sem ég heimsótti með pabba mínum oft um helgar og man ég vel eftir að alltaf voru skálar fullar af nammi á borðum sem maður fékk að læðast í og ekki má gleyma öllum bókunum sem þú gafst mér í gengum tíðina og voru þjóðsögur Jóns Árnasonar þar í miklu uppáhaldi hjá mér og las ég þær oft. En það var svo ekki fyrr en á seinni árum sem þú fórst að segja mér sögur af sjálfum þér þegar þú varst ungur og afi, þú varst nú meiri prakkarinn, ha ha! Það sem ég gat hlegið að uppá- tækjum þínum og ég sem hélt að þú hefðir alltaf verið bara „afi“. Ég man líka eftir myndinni af þér sem var tekin þegar þú hefur kannski verið eitthvað í kringum tvítugt þar sem þú liggur í grasinu með kettling við hliðina á þér og ég man að þegar ég sá þessa mynd þá hélt ég fyrst að þetta væri Elvis Presley. Já, myndarlegur varstu, drengur, og enn og aftur greini- lega ekki alltaf bara verið „afi“. En svo komu langafabörnin til sögunnar og dætur mínar voru nú ekki alveg á þeim buxunum að kalla þig „langafa“ þar sem þeim fannst þú nú vera frekar stuttur í annan endann en ekki langur, þannig að þær fundu það út að þú fengir nafnið „pönnuköku-afi“ og þann titil áttir þú réttilega skilið því í hvert skipti sem þú komst í heimsókn til okkar bakaðir þú pönnukökur og komst með þær til okkar, sem var mjög viturlega gert af þér, ég næ aldrei að gera þær svona þunnar og flottar og fékk ég oft að heyra það frá dætr- um mínum, „mamma, pönnsurnar þínar eru góðar en pönnuköku-afi gerir þær betur“ og reyndi ég ekki að þræta fyrir það. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa tekið þá ákvörðun að koma heim til Íslands og heimsækja þig í síðasta mánuði og fá að kveðja þig og segja þér hvað ég elska þig mikið, afi minn. Ég hugga mig við margar góðar minningar um þig. Elsku pabbi minn og mamma, hugur minn er hjá ykkur þessa daga. Hvíl í friði, elsku afi minn. Þín Kristín. HINSTA KVEÐJA Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Elsku pabbi minn, hvíl í friði. Gunnar Þór Á sínum tíma sóttu tveir miklir framsóknar- menn um lóð undir tvíbýlishús í nýju hverfi á Melunum í Reykjavík, að Reynimel 23. Þetta voru þeir Árni Benedikts- son, forstjóri Mjólkursamsöl- unnar, og Kristjón Kristjóns- son, aðalféhirðir SÍS. Húsið reis með undrahraða á stórri hornlóð. Snilldar-arkitektinn Þórir Baldvinsson teiknaði hús- ið. Svo fluttu fjölskyldurnar inn. Börn Árna og Jónu Jó- hannesdóttur voru Benedikt Árnason og Þórdís Árnadóttir, sem síðar fluttist til Ameríku og eignaðist góða fjölskyldu. Benedikt var fæddur árið 1931, hann lést 25. marz sl. Hann fór í gamla menntaskól- ann, hvarf ungur inn fyrir for- tjöld leiklistargyðjunnar og þegar hann bauð okkur systk- inunum að sjá leikrit með hann í aðalhlutverki vorum við í leiðslu í marga daga. Jóna móð- ir Benna, falleg og yndisljúf og vönduð kona, en Jóhann skáld Sigurjónsson var föðurbróðir hennar og mörgum þótti Benni minna á frænda sinn í útliti og jafnvel að innri gerð. Við gris- lingarnir á neðri hæðinni á Reynimel áttum ávallt yndis- skipti. Hann hélt til London í Konunglega leiklistarskólann. Oft kom hann heim um jól og voru fagrar konur með í för og leiddu rannsóknir okkar gris- linganna í ljós að aldrei var sama konan með í ferð tvívegis. Benni varð aðalleikstjóri í Þjóð- leikhúsi í áratugi. Og stjórnaði mörgum mjög stórum verkum. Bakkus var oft förunautur hans líkt og frænda frænda hans Jó- hanns Sigurjónssonar. Eitt lítið atvik lýsir lund Benna. Hann setti upp revíu eftir Bjarna Guðmundsson í Sjálfstæðishús- inu og þar lék Nína mín Björk Benedikt Örn Árnason ✝ Benedikt ÖrnÁrnason, leik- ari og leikstjóri, fæddist í Reykjavík 23. desember 1931. Hann lést 25. mars 2014 á Sóltúni. Úför Benedikts fór fram frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík 8. apríl 2014. vænt hlutverk. Við Nína vorum byrjuð að skjóta okkur saman en ég var búsettur utanbæj- ar. Í leikritinu lék Nestor leikara- stéttarinnar Har- aldur Björnsson. Nína, sem varla hafði leikið nema í tveim til þrem leik- ritum eftir leiklist- arskólann, hafði áhuga á að kanna, hvort „kærastinn“ væri í húsi. Bað hún Benna um að komast að þessu nokkrum mín- útum fyrir leikbyrjun og Benni fór og fann gaurinn, þá varð Haraldi að orði: „Sussum svei svei, svona er leikhúsið orðið. Leikstjórinn á flandri út í sal, nokkrum mínútum fyrir leik- sýningu að leita að einhverjum gæja“. Erna Geirdal kynntist ung Benna og var held ég fyrsta eiginkona hans en þau skildu fljótlega af fjölmörgum ástæðum. Fyrir allnokkrum ár- um lá Benni á sjúkrahúsi. Var hann svo fársjúkur að endur- lífga þurfti hann. Svo vildi til að Erna Geirdal var stödd á land- inu en hafði verið búsett er- lendis áratugum saman. Katrín Thors leikkona fór ásamt Ernu að heimsækja Benna. Þar end- urlífgaðist þeirra forna ást. Ég hef í áranna rás þekkt aragrúa kvenna sem báru afar djúpar tilfinningar til Benna, vildu all- ar „eiga hann“. Næstsíðast hitti ég Benna þegar hann kom heim til okkar Nínu fyrir löngu og var þá á leið í vímuefnameð- ferð. Reyndar sá ég þau Ernu á Laugavegi fyrir um 7 árum og var nærri dauður undir strætó, þegar ég stökk yfir götuna í faðm þeirra. Benedikt Árnason var hæfileikaríkur listamaður sem lagði líf sitt undir fyrir listina. Okkur sambýlingunum hans á Reynimel 23 í barnæsku þótti svo vænt um hann og allt hans góða fólk. Hann var breyskur og undur raungóður maður, sem lifir með okkur sem elskuðum hann meðan öndin blaktir í hálsinum. Innilegur samhugur til barna hans og ástvina. Bragi Kristjónsson Elsku fallegi, hlýi, sniðugasti, brosmildi, litli bróðir minn, þú gafst mér heiminn með komu þinni í líf mitt og fylltir mitt þá unga, þunga hjarta af gleði og ham- ingju, ekkert jafnaðist á við að eiga þig og hefur aldrei gert. Þú þekktir mig best af öllum og ég þig, hvort sem við vorum í hlutverkum eða ekki. Mikið gátum við hlegið, spunnið og líka grátið og rifist, nánari systkin finnast ekki, það veit ég og syrgi. Einn svipur, eitt blikk og ég vissi líðan þína og öfugt. Þú áttir alltaf opnar dyr hjá mér, ég elskaði þig of mikið kannski og þú mig. Ég skal reyna, elsku Ólafur Freyr Hervinsson ✝ Ólafur FreyrHervinsson fæddist í Reykjavík 20. september 1987. Hann lést á heimili sínu, Svölu- tjörn 20, Reykja- nesbæ, 9. apríl 2014. Útför hans fór fram 25. apríl 2014. bangsalóabró, af öllum mætti að lifa án lúbba míns sem ég treysti fyrir öllu, treysti á og trúði. Þungt og rífandi sárt er tómið, getur heimurinn áfram gengið, þegar þú mest elsk- aða blómið, hvarfst, eftir að ég hafði þig fengið? Ég sakna þín svo mikið, Óli, ég get ekki sætt mig við að þú sért ekki hér né verðir. Mig ór- aði ekki fyrir að það væri hægt að sakna einhvers, svíða, þrá eitthvað eins mikið og ég geri. Ég elska þig, góði, litli bróðir minn, og ekkert sem ég hér skrifa getur lýst þeirri ást og söknuði. Engillinn minn er nú aftur til himna kominn. Pabbi tekur á móti þér og hlýjar þér og hugg- ar. „One Love.“ Þín systir, Glow-Glow, Herdís Kristjana Hervinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.